Dagur - 17.03.2001, Side 4
28 -LAVGARItAGUR 17. MARS 2001
FRÉTTIR
Þj álfunars etur
fyídr imgmeimi
Hugmyndin er að Fjölsmiðjan gefi ungu fólki, 16-24 ára, kost á hagnýtri vinnu, fram-
leiðslu og fræðilegri þjálfun. Hvort logsuða verður þar með skal ósagt látið en fagleg
verkþjáfun á að vera rfkur þáttur í starfseminni.
Fjölsmiðjan sem starf-
rækja á verkþjálftmar- og
framleiðslusetiir fyrir 40
til 70 ungmenni hefur
verið formlega stofnuð og
verður liklega til húsa í
Kópavogshælinu.
„Það cr engin spurning að hér er að
fara af stað eitt metnaðarfyllsta verk-
efni af þessu tagi sem efnt hefur veriö
til hér á landi. Þetta úrræði sem er allt
f senn: vinnumarkaðsúrræði, mennt-
unarúrræði og félagslegt úrræði.
Væntanlegur forstöðumaður Fjöl-
smiðjunnar þarf að vera handverks-
maður, sölumaður, uppeldisfræðingur,
eldhugi, trúboði, sáttasemjari, stjórn-
andi og umfram allt góður félagi,"
sagði Gissur Pétursson framkvæmda-
stjóri Vinnumálastofnunar á fundi þar
sem skipulagsskrá f\'rir sjálfseignar-
stofnunina Fjölsmiðjuna var undirrit-
uð af félagsmálaráðherra og fulltrúum
Rauða krossins, Reykjavíkurborgar og
annarra sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu.
Verkþjálfun á 69 Juis. kr. kaupi
Hugmyndin er að Fjölsmiðjan - sem á
sér fyrirmyndir á hinum Norðurlönd-
unum - gefi ungu fólki, 16-24 ára, kost
á hagnýtri vinnu, framleiðslu og fræði-
legri þjálfun. Fagleg verkþjáfun á að
vera ríkur þáttur í starfseminni. Mark-
miðið er að þroska persónuleika ein-
staklinganna og búa í haginn fyrir þá
til aukins skólanáms eða þátttöku á
hinum almenna vinnumarkaði. Gert er
ráð fyrir 40-70 þátttakendum í 9 mán-
uði á ári. Laun þeirra eru áætluð um
69 þús.kr. á mánuði: Atvinnuleysis-
tryggingasjóður greiðir þeim sem eru á
atvinnuleysisskrám, sveitarfélög þeim
sem eru á félagslegu framfæri og RKI-
deildirnar þeim 16-18 ára ungmenn-
um sem njóta hvorugra þessara hóta.
Lýst vel á hus í Kópavogi
Frumkvæðið sagði Gissur hafa kom frá
RKÍ árið 1998 og vinnuhópur hafi síð-
an unnið að undirbúningi. Viðbrögð
sveitarfélaga, menntamálaráðuneytis
og annarra hafi undantekningarlaust
verið jákvæð. Aætlað sé að starfsemin
hefjist í haust og verði tilraunaverkefni
til 3ja ára. Viðræður hafi farið fram við
yfirstjórn Ríkisspítalanna um mjög
hentugt húsnæði á lóð hans í Kópa-
vogi, sem bjóði upp á marga möguleika
um verksvið eða framleiðslulínur. En
ákvörðun um það verði tekin af nýrri
stjórn Fjölsmiðjunnar. Sölu fram-
leiðsluvara er ætlað að vera einn þátt-
ur í fjáröflun Fjölsmiðjunnar.
Útrétt hönd Fjölsmiöjunnar
Þrátt fýrir myndarlega aðkomu RKÍ að
verkefninu - með 10 milljóna kr. fram-
lagi - sagði Gissur hér er um allkostn-
aðarsamt úrræði að ræða og fleiri
hefðu þurft að koma að. Atján milljóna
framlag frá Vinnumálastofnun og At-
vinnuleysistry'ggingasjóði hefði í raun
riðið baggamuninn. Menntamálaráðu-
neytið muni einnig leggja til rekstrar-
fjármuni og sveitarfélögin eftir fjölda
þátttakenda. Rekstrarkostnaður er
áætlaöur 29 milljónir á ári.
„Eg dreg enga dul á að þetta er ekk-
ert áhlaupaverk sem við erum hér að
hefja, heldur langtíma stuðnings- og
uppbyggingarstarf. Það á að vera stað-
ur og hlutverk fyrir alla í samfélaginu.
Það unga fólk sem hrasar á lífsbraut-
inni eða greinir ekki hlutverk sitt í
fyrstu atrennu á að gera treyst því að
því sé rétt hjálparhönd. Vonandi verð-
ur Fjölsmiðjan þekkt fyrir sína útréttu
hönd,“ sagði Gissur Pétursson. — HEI
Ð^utr
Sigurður Helgason,
forstjóri Flugle/ða:
flott tímasetning.
Mat pottverja á hótunum
forstjóra Flugleiða að
hætta rekstri Flugfélags ís-
lands innan tveggja ára,
voru með tvennum hætti.
Sumir héldu því fram aö
þetta væri einfaldlega ekki
verjandi fyrir Flugleiðir að
halda þessum rekstri áfram
mcð miklu tapi. Aðrir sem
eru gamalreyndari í að fylgj-
ast með pólitískum refskap
töldu einsýnt að í þessu út
spili Flugleiðamanna fælist
tilraun til að seilast cnn frek-
ar ofan í vasa skattborgar-
anna - það er til að neyða þingmenn til að auka
verulega ríkisstyrk til flugsins. Þeir benda á að
tímafresturinn sem forstjóri 11 ugleiöa gaf þýði að
örlög innanlandsflugsins muni ráðast fyrir voriö
2003 - það er rétt fyrir næstu alþiugiskosningar!
Pottverjar hafa nokkuð velt vönguin yfir væntan
legri fjölgun dagblaða í landinu, en nýtt dagblað
að sænskri metró-fyrirmynd er væntanlegt. Þefvís
fréttamaöur hefur laumað því að pottverjum að
til standi að koma nýja Fréttablaðinu á göturnar
þegar í upphafi dymbilviku...
í heita pottinum á Akureyri
heyrist nú að miklar hausa-
veiðar séu í gangi hjá KEA en
(yrirlækiö er í leit að stjórn-
endum. KEA hefur á tiltölu-
lega skömmum tíma inisst
þrjá stjómendur til annara
starfa. Nú síðast var tilkynnt
um að starfsmannastjórinn
Heiðrún Jóiisdóttir sé aö
liverfa til Símans, en fyrir ____________
skömmu fór Ragneiður
Björk Guömundsdótir, markaðsstjóri til Olís og
þar áður fór Þórarinn E. Sveinsson sem var aö-
stoöarkaupfélagsstjóri yfir til Háskólans á Akur-
eyri. Þessu til viöbótar berast svo fréttir af því að
sjálfur kaupfélagstjórinn Firikur S. Jóhannsson
liafi næstum verið orðinn bankastjóri 1 Búnaðar-
bankanum, en af því varð þó ekki sein betur fer
fyrir KEAI...
Eiríkur S. Jó-
hannsson, heldur
virkinu.
FRÉT TA VIÐTALIÐ
Bubbi Morthens
tónlistannaður
Bubbi Morthens, sem er
jyrrverandifíkill, hefur tekfí
höndum saman með ESSO í
baráttunni gegn fíkniefnum.
Lífið sé ofskemmtilegt tilað
taka sénsinnl
Veldu rétt í minningu látiuna viua
- Hverl er nppluif þessci samstarfs þíns við
Olíufélagið?
„Eg frétti gegnum menn hjá ESSO að þeir
hefðu áhuga á að hafa áhrif í þessum geiran-
um. Þegar ég var spuröur hvort ég hefði
áhuga á því að taka þátt í þessu átaki þeirra ,
vera „andlit“ þessa átaks, svaraði ég að svo
væri ekki nema menn gengju heilir og óskipt-
ir til þess verkefnis. Síðustu 20 ár hef ég
haldið mig frá auglýsingahransanum vegna
þess að ég hef ekkí verið tilbúinn til að selja
mig í þágu einhverrar vöru ákveðins fyrirtæk-
is. Eftir f’und með þeim ákvað ég að slá til og
láta peninginn sem ég fæ renna f Foreldra-
húsið sem fyrsta átak. Það er engin fjölskylda
óhult fyrir þessum vágesti og fylgifiskar fíkni-
efna eru t.d. vonbrigði, harmur, sóun á hæfi-
leikum, geðveiki, glæpir og mannskaðar svo
eitthvað sé nefnt."
- Hvernig verður framkvæmdin cí þessu
úlciki?
„Þróunin varð sú að ég fer í skólana í
haust, það er of langt liðið á skólaárið nú, og
byrja á Norður- og Austuriandi og ná bæði til
nemenda og foreldra, setja saman eins konar
nemenda/foreldra kvöltl, þar sem ég myndi
spila og tala gegn fíkniefnaneýslu og auðvit-
að auglýsa ESSO um leið í þessa 12 mánuði.
Þetta er þess virði, ]>að þrengir alls staðar að,
SAA er í kröggum og það eru að koma upp
smákeisarar í þessum meðferðarbransa í stað
þess að í landi eins og okkar ættum við bara
að vera með eitt stórt meðferðarapparat.
SAA hefur staðið sig svo geysileg vel að það
verðskuldaði að vera þetta apparat. Svo er að
fara í gang auglýsingaherferð, svo mcnn
munu fá nóg að sjá af mér á næstunni."
- Þtí ert óvirkur ftkill og talar afreynslu.
Ræður stí staðreynd einhverju um þessa
ákvörðun þína?
„Eg er að borga til baka mína meðferð og
heiðra minningu allra þeírra vina minna sem
eru dánir, en frá 1980 hafa 12 þeirra horfið
úr þessu lífi, sumir drepnir á eiturlyfjum, þ.e.
of stórum skammti, aðrir drepið sig undir
áhrifum eiturlyija. Sumir þeirra voru æsku-
vinir og tilheyrðu þessum neysluheimi sem
ég var einu sinni í en það er ekki til það eit-
urlyf á markaðnum sem ég hef ekki prófað,
en ég er kannski einn af þeim heppnu sem
hafa komist einn dag í einu í gegnum mcð-
ferðina. Eg hugsa bara einn dag í einu, dag-
inn í dag. Krakkarnir munu af þeim ástæðum
leggja eyrun við, vitandi mína forlíð, það
væri erfiðara ef svo væri ekki að ná athygl-
inni.“
- Hvað með framhaldið. Verður næsii
geisladiskur tileinkaður þessari baráttu?
„Nei, en hins vegar gcrði ég lag fyrir þetta
átak sem heitir „Veldu rétt", en svo er ég að
klára rokkplötu þar sem sum lögin fjalla urn
þessa vini mína sem eru dánir. Eitt jieirra
fjallar um Lalla vin minn sem dó um síðustu
jól, og hitt um hann Agga sem var einn af
mínurn betri vinum, en hann var drepinn á
Leifsgötunni."
- Það verða þá rólegheit yjir þessu t sum-
ar?
„Nei, nei, ég ætla að veiða mikið í sumar í
Vatnsdalsá. Laxá f Kjós, Selá, Elliðaánum,
Hítará, og eflaust víðar. Það er góð og göfug
aðferð til þess að halda sig frá fíkniefnum.
Eg veit um fólk sem hefur haldið sér edrú
með því að kasta flugu. Svo eru aðrir fullir
við veiðar, en það eimir enn eftir af þeim
slæma kultúr okkar Islendinga." - GG