Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Side 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Side 1
Laugardagur 11. janúar 1997 - 80. og 81. árgangur - 7 tbl. TIL HAMINGJU LR! LR hefur í gegnum tíðina dregið ýmis leik- skáld inn í íslenskt menningarlíf. Árið 1965 kynnti LR íslenska leikhúsgestifyrir Þjóf- um, líki og fogrum konum, eftirDario Fo, sem lengi vel átti miklum vinsœldum að fagna meðal leikhúsgesta. Leikritið var sett upp á Jjölum Iðnó með því einvalaliði leik- ara sem sést hér á myndinni og LR hefur alið af sér. Mynd: Oddur ólafsson Leikfélag Reykjavíkur er af- mælisbarn dagsins og hefur nú fyllt öldina. Félögum LR er þakkað fyrir ánægjulegar stundir í myrkvuðum áhorfenda- sölum á síðastliðnum áratugum - eða svo langt aftur sem aldur starfsmanna leyfir - og blaðið sendir þeim óskir um betri afla en á síðustu árum. íslenskt leik- listarlíf yrði snöggtum snauðara FLUTTUR í SVEITINA Mörgum kom á óvart þegar Sigbjörn Gunnarsson var ráðinn sveitarstjóri í Mývatnssveit. Ekki hafði spurst út að hann hefði sótt um og enginn vissi til að hann ætti nein tengsl við Mývatns- sveit. Enda voru þau ekki til staðar. Hann var einfaldlega tilbúinn að breyta til. Ekki er annað að heyra en hann sé sáttur við breyt- inguna. Nýja starfið heillar og hann er ekki síður hugfanginn af nýjum búsetustað. Fegurðin og kyrrðin er honum að skapi. Og hann er hvergi banginn við að starfa með Mývetningum. Sjá bls. 18. MENN VIKU NAR Rónarnir Bogi og Örvar eru menn vikunnar - bara fyrir að vera til, jafnvel þó það sé bara í þykjust- unni. Þeir hafa um árabil létt geð landsmanna og nú mæta þeir enn og aftur á skjáinn - fyrsti þáttur Spaug- stofunnar á þessu ári verður í kvöld. Hver man ekki eftir þeim félögum þegar þeir stóðu fyrir framan ÁTVR á öskudaginn og sungu til að fá brenni- vín. Þegar það tókst þurfti blandið og þá var sungið fyrir kóksjálfsala. Bogi og Örvar hafa kitlað hláturtaugarnar svo árum skiptir og fyrir það eiga þeir þökk skilda. Því eins og allir vita lengir hláturinn lífið!

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.