Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Blaðsíða 3
(®agur-'®tmttm Laugardagur ll.janúar 1997 - 15 Alda Sigurðardóttir hefur leikið í kvikmyndunum Hvíti víkingurinn og Hin helgu vé. Á sunnu- dagskvöldum má sjá hana í norrænu þáttaröðinni Hótel Osió. Ljóska sem lærir á selló Ljóskur lenda gjarnan í ýmsum æv- intýrum eins og sannast í norrænu þáttaröðinni Hótel Osló, sem hefur verið á skjánum á sunnudagskvöldum að undanförnu. Það er leikkonan Alda Sig- urðardóttir sem leikur eitt af sex aðal- hlutverkum, íslensku ljóskuna Vigdísi en hún er læra á selló í Noregi og býr á hótelinu ásamt sex öðrum ungmennum. „Ég er voða snobbuð íslensk stelpa sem fer til Oslóar til að fara í tónlistarhá- skóla. Ég lendi á Hótel Osló því að vin- konur mínar eru komnar með kærasta og ég lendi í veseni með húsnæði. Á þessu hóteli eru krakkar frá öllum Norð- urlöndunum, hótelið tengir söguþráðinn en hver og einn hefur sína stefnu," segir Alda. Alda Sigurðardóttir er ekki eini fs- lendingurinn sem leikur í þáttunum. Þegar hefur mátt sjá Ingibjörgu Stefáns- dóttur, leikkonu og söngkonu, bregða fyrir en hún er í aukahlutverki ásamt stúlku sem heitir því íinnskættaða nafni Aino Freyja. Þá leikur Eiríkur Guð- mundsson, starfsmaður RÚV, pabba Vig- dísar. Alda og Ingibjörg eru líklega þekktastar íslensku leikaranna en Alda hefur áður leikið í myndunum Hvíti vík- ingurinn og Hin helgu vé. Hefurðu fengið einhver tilboð í fram- haldi af þessari þáttaröð? „Ekki ennþá. Það á eftir að sýna þætt- ina á hinum Norðurlöndunum,“ segir hún. Ævintýri Vigdísar í Noregi eru bara rétt hálfnuð því að aðeins hafa verið sýndir tveir þættir af ijórum og verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála. Sjónvarpsþættirnir eru samstarfsverk- efni norrænna sjónvarpsstöðva. GHS Reyklaus skóli Við heyrum ífréttum að reykingar hafi aukist með- al ungmenna. En ekki með- al unglinganna íÞelamerk- urskóla íHörgárdal Meðal 28 nemenda í 8., 9. og 10. hekk er enginn sem reykir. Af þessu tilefni ákváðu stjórnendur skólans að verð- launa nemendur og gáfu nem- endum í efstu bekkjardeildun- um þremur boli í verðlaun. „Til að efla baráttuandann," segir skólastjórinn, Karl Erlendsson. Krabbameinsfélagið hefur áður veitt skólanum viðurkenningu fyrir að vera reyklaus en þetta er í fyrsta sinn sem nemendur frá viðurkenningu frá skólanum fyrir að reykja ekki. Dagur- Tíminn óskar ungmennunum til hamingju. Gott hjá ykkur. AI Gettu betur byrjar Unglingarnir í Þelamerkurskóla með bolina góðu. Nokkra nemendur vantar á myndina. Mynd: JHF Gettu betur, spurninga- keppni framhaldsskól- anna, hefst á Rás 2 á þriðjudagskvöldið klukkan hálfníu með viðureign Fjöl- brautaskólans í Ármúla og Iðn- skólans í Hafnarfirði og Menntaskólans á Akureyri og Framhaldsskólans á Húsavík. „Þetta er alltaf pínulítið breytilegt milli ára og aldrei al- veg nákvæmlega eins. Keppnin hefur unnið sér þann sess að hún er alltaf eins að meginupp- byggingu. Það eru einstaka liðir sem koma og fara,“ segir Davíð Þór Jónsson en hann er stjórn- andi keppninnar. Dómari er Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. „Nú verða margar tveggja liða spurningar, sem menn fá tvö stig fyrir, hljóðdæmi og svo verður haldið áfram með stað- reyndavillur í leiknum texta eins og var í fyrra og hitti- fyrra,“ segir Davíð Þór Jónsson, stjórnandi þáttarins. Seinni umferð hefst um miðj- an febrúar í Sjónvarpinu og er ráðgert að lokakeppnin verði rétt fyrir páska. Æsispennandi verður að fylgjast með hvaða liði tekst að rjúfa sigurgöngu MR-inga en hún hefur nú staðið óslitið í ijögur ár, að sögn Ragn- heiðar Erlu. - En verða spurningarnar núna erfiðari en í fyrra? „Ég get ekkert dæmt um það. Nei, nei. Það hlýtur bara hver og einn að setja sinn persónu- lega stimpil á þetta. Ætli þetta verði ekki bara í svipuðum far- vegi. Ég býst við því,“ segir hún. Spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, byrjar á þriðjudaginn. Spennandi verður að fylgjast með því hvaða lið rýfur fjögurra ára sig- urgöngu MR-inga.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.