Dagur - Tíminn Akureyri - 25.01.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 25.01.1997, Blaðsíða 3
Jkgur-'QRmóm Laugardagur 25. janúar 1997 -15 Barátta góðs og ills Cfj: A' ^ / J_is itli-Kláus er bláfátækur en bæði glaður og nægju- ___ Isamur. Stóri-KIáus er 1Sj hinsvegar steinríkur en bæði skapillur og gráðugur, og lokst verður Litli- Kláus að taka til Úr uppfærsiu Þjóðleikhússins á leikritinu um iitia og Myndirnar eru teknar á æfingu. sinna ráða. Þetta er söguþráðurinn í hinu sígilda verki „Litli-Kláus og Stóri-Kláus“ eftir H.C. Andersen sem Þjóðleikhúsið frumsýndi á fimmtudaginn. Leikritið hefur verið sýnt tvisvar sinnum áður í Þjóðleikhúsinu við miklar vinsældir, 1952 og 1971, en er komið í glænýjan búning í uppfærslu Ásdísar Þórhallsdóttur, sem leikstýrir nú í fyrsta sinn í Þjóðleikhús- inu. „Mér líður bara mjög vel, svolítiil fíðringur í mag- anum,“ sagði Ásdís í stuttu samtali við blaðið hálftíma fyrir frumsýninguna. Verkið er það stærsta sem hún hefur leikstýrt fram að þessu en faðir Ásdísar, Þórhallur Sig- urðarsson, er leikhúsunn- endum að góðu kunnur bæði sem leikstjóri og leikari. Boðskapurinn í leikritinu er skýr að mati Ásdísar. Ann- ars vegar er fjallaö um góð- semina og gjafmildina og lnnsvegar gráðuga illvirkja. „Og við tökum eindregna af- stöðu með hinu góða,“ segir Ásdís. Það er Þórarinn Eldjárn sem semur söngtexta og Jó- hann G. Jóhannsson, tónlist- arstjóri Þjóðleikhússins, sem- ur tónlistina. Aðalleikarar eru Bergur Þór Ingólfsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Bryndís Pétursdóttir, Jóhann Sigurðarson, Guðrún Þor- stóra Kláus. valdsdóttir og Örn Árnason. Myndir: Pjetur AI Litli-Kláus er fátækur en glaður en Stóri-Kláus er skapillur og gráðugur þó hann sé ríkur. Sjö bakarar og kökuskreytinga- menn keppa um íslandsmeistara- titilinn í kökuskreytingum í Perl- unni um helgina. Mynd: ÞÖK Spennandi keppni í köku- skreytingum íslandsmeistarakeppni í kökuskreytingum fer fram í Perlunni í dag og verða úrslitin kynnt síðdegis. Keppnin er opin almenningl Kökuskreytingar eru mikil listgrein sem tiltölulega fáum hefur auðnast að læra til fulls. Þar fara þó að sjálfsögðu fremstir í flokki bak- arar og sérmenntaðir köku- skreytingamenn, sem leggja sig í h'ma við að skreyta kökur á frumlegan og skemmtilegan hátt. Um þessa helgi fá sjö kökuskreytingamenn tækifæri til að sýna hvað í þeim býr því að þá .verður haldin íslands- meistarakeppni í Perlunni. „Nánast öll vinna fer fram hér uppi í Perlu. Þeir höfðu tím- ann frá eitt til sex í gær og síð- an mæta þeir klukkan tíu á laugardagsmorgun og eiga að vera búnir að ljúka störfum klukkan tvö. Þema keppninnar er fsland, land og þjóð og þeir eiga að vinna út frá því,“ segir Ester Steinsson, framkvæmda- stjóri Landssambands bakara- meistara. Þetta er í þriðja sinn sem ís- landsmeistarakeppni er haldin í kökuskreytingum. Keppendurn- ir eiga að skila skreyttri köku á borði sem er 1,80 sinnum 80 cm að stærð og eru verðlaun af- hent klukkan sex. Keppendur verða svo við kökurnar sínar á morgun, sunnudag, og spjalla við gesti. Kynþokkafyllstu karlarair Hlustendur Rásar 2 völdu x gær kynþokkafyllsta íslenska karl- manninn. Áhuginn mun hafa verið svo mikill að 8 síma- línur voru rauðglóandi frá níu um morguxúnn fram til klukkan fjögur. Dagur-Tíminn birtir hér listann yfir tíu efstu menn í kjörinu. 1. Jón Arnar Magnússon, íþróttakappi. 2. Logi Bergman Eiðsson, dagskrárgerðarmaður. 3. Baltasar Kormákur, leikari og leikstjóri. 4. -5. Ingi Hansen, samskiptafulltrúi Samherja og Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari. 6. Sigurður Nikulás Kristinsson, Frystihús- inu á Eskifirði. 7. -9. Gaui litli, Jóhann Jón ísleifsson í Plastprenti og Magnús Magnússon, veit- ingamaður hjá Riis á Hólmavík. 10. Ingvar E. Sigurðsson, leikari.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.