Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Page 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Page 5
^JDagur-SImróm Þriðjudagur 18. febrúar 1997 -17 VIÐTAL DAGSINS Budda reykíngamanna Guðmundur Steinsson segir beinar og óbeinar áfengis- og tóbaksauglýsingar víða og enginn sjái ástæðu til að fetta fingur út í þær. fengis- og tóbaksverslun ríkisins gaf verðlagningu írjálsa á tóbaki um ára- mótin. Guðmundur Steinsson, eigandi söluturnsins Póló á Bú- staðaveginum, er óánægður með að á sama tíma var stað- greiðsluafslátturinn af magn- viðskiptum afnuminn og inn- kaupsverðið hækkað. Hann mótmælti með því að auglýsa tóbak á lágmarksverði. „Mótmæli mín beinast fyrst og fremst að því að vera gerður að blóraböggli fyrir hækkun- inni. Á sama tíma og verðlagn- ingin á tóbaki var gefin frjáls urðu allir að hækka vegna þess að ríkið tók af okkur stað- greiðsluafsláttinn og hækkaði tóbakið um 2%. Mér finnst þetta lélegt bragð og ákvað því að halda verðinu óbreyttu og fara síðan að selja á lág- marksverði enda finnur fólk fyrir hækk- uninni og held- ur að frjálsri verðlagningu sé um að kenna.“ Guðmundur segir lág- marksverð á algengustu am- erísku sígarett- unum vera 271 krónu núna eða krónu lægra en það var en flestir séu að selja pakkann á 278-285 krón- ur og hafi þannig hækkað um þessi 6%, sem aðgerð Áfengis- og tóbaks- verslunarinnar hafi gefið ástæðu til. Fylgistfólk vel með? „Eg ákvað að vekja athygli á verðinu og setti hálfsíðuauglýs- ingu í DV um síðustu mánaða- mót. Þar auglýsti ég sölu á tóbaki á lágmarksverði.“ Erþað ekki bannað? „Ég talaði við samkeppnisráð sem sagðist ekki gera athuga- semdir og menn eru almennt á því að þetta sé löglegt á meðan ég auglýsi ekki sjálfar tegund- irnar. Hitt er annað mál að beinar og óbeinar áfengis- og tóbaksauglýsingar eru víða og enginn virðist sjá ástæðu til að fetta fingur út í þær. Þá er ég jafnvel að tala um ákveðnar tegundir sem eru auglýstar stórum stöfum fyrir utan skemmtistaðina og stundum á íþróttakappleikjum. Stefna rík- isstjórnarinnar virðist líka vera hömlulaust frelsi í þessum mál- um. - Sjálfur er ég hlynntur banni á áfeng- is- og tóbaks- auglýsingum, ég vildi bara mótmæla hækkuninni frá rfldnu á sama tíma og verðlagning var gefin frjáls.“ Hvaða við- brögð fékkstu við auglýsing- unni? „í sjálfu sér hafa ekki orðið svo mikil við- brögð við henni sem slíkri en fólk er yfirleitt mjög ánægt með verðlagn- inguna. Auðvitað er enginn að stórgræða og þetta er kannski frekar sálrænt, ef menn reykja pakka á dag spara þeir 5.000 krónur á ári með því að kaupa á lágmarksverði. Sá peningur gefur reykingamönnum e.t.v. ekki ástæðu til að endur- skipuleggja budduna hjá sér; eins og ég segi er þetta frekar svona táknrænt og ég reikna með að einhverjir af mínum viðskiptavinum séu að styðja mig í þessari afstöðu. Það var þó ein kona sem hellti sér yfir mig og hótaði mér helvítisvist og spurði hvort þetta væri mitt framlag til tóbaksvarna í land- inu. En ég var ekki að auglýsa tóbak heldur verð á tóbaki og ég let fólk frekar en hvet til reykinga." -mar „Sjálfur er ég hlynntur hanni á áfengis- og tóbaksauglýsing- um, ég vildi bara mótmœla hœkk- uninnifrá ríkinu á sama tíma og verðlagning var gefinfrjáls. “ Saga um gijótbáta og gamla daga Már Karlsson skrifar ir nú sögunni til. Stefán Jónsson fréttamaður, rithöfundur og al- þingismaður Utgerð svonefndra grjót- báta á fyrri hluta þessar- ar aldar hér austur á Djúpavogi mun vera einstakt fyrirbrigði að talið er. Ekki er vitað um svo kunnugt sé að drengir á aldrinum fjögra til níu ára hafi í öðrum sjávarplássum stundað slíka iðju. Þessi útgerð- arleikur verðandi sjómanna í plássinu vakti verðskuldaða at- hygli gestkomenda. Færeyingar, sem sigldu á skútum til Djúpa- vogs á stríðsárunum og fluttu fisk til Bretlands tóku þátt í leiknum og töluðu um að kynna hann heima fyrir. Ekki er vitað um tilurð þessarar pollaútgerð- ar né hvenær hún hófst. Henni lýkur svo um árið 1950 og heyr- og hans jafn- aldrar ásamt mörgum öðr- um útskrifuð- ust úr þessum sjómanna- skóla. Þrátt fyrir skrif hans um æskustöðv- arnar getur hann hvergi um þennan kafla sögunnar í bókum sín- um. Útgerð grjótbáta byggðist fyrst og fremst uppá miklu hug- myndaflugi og athafnaþrá —............—...... þátttakenda. Settur var á svið hér á klettun- um sjónleikur af sjómannastörf- um hinna eldri sem réru til Þegar áhöfnin var mœtt um borð og allt var orðið klárt kallaði skipstjór- inn hvellri rödd: „Sleppa að framan og aftan“. Um leið buldu við miklir skellir frá dúnkn- um í vélarrúminu fiskjar og færðu björg í bú. Það var alloft töluverð ásókn að _______________ komast í gott pláss á grjót- bát, ýmist sem skipstjóri, vél- stjóri eða há- seti. Ef fleiri en einn sóttu um laust pláss gat klíkuskapur ráðið um hver var ráðinn og út frá því orðið töluverður has- ar. Grjótbátar voru byggðir uppá klettum eða í námunda við þá, þar sem efnistaka var til staðar. Eins og nafngiftin gefur til kynna voru þeir hlaðnir úr grjóti eftir lögun báta og voru fram- og afturendi þeirra hlaðnir ívið hærri heldur en miðjan. Stefnið var nokkuð hár stuðlabergssteinn sem framtóið var hringað utan um. Tvær þóftur voru hlaðnar fyrir miðju og mynduðu þær lestarrými fyr- ir aflan. Þar aftan við var vélar- rúmið ásamt stýrigræjum. Vélin samanstóð af ýmsu járnadóti sem safnað var saman hér og þar í plássinu. Aðalhluti vélar- innar og sá þýðingarmesti var stór olíudunkur sem vélstjór- innn barði í með járnflein þegar vélin var ræst. Sver bambus- stöng var notuð sem mastur sem stóð fyrir miðju og út frá því gærubandsvantar sem strengdir voru út í lunningarn- ar. Skipstjóri ákvað alltaf róðr- artíma sem oftast nær var eftir hafragrautarát og lýsisinntöku milli klukkan níu og tíu að morgni. Mætt var með nestis- tösku í róðurinn sem tekið gat nokkrar klukkustundir ef veð- urútlit var gott. Þegar áhöfnin var mætt um borð og allt var orðið klárt kallaði skipstjórinn hvellri rödd: „Sleppa að framan og aftan“. Um leið buldu við miklir skellir frá dúnknum í vél- arrúminu, sem bergmáluðu frá klettunum í nágrenninu. Það var stímt á fullri ferð og ekki slegið af fyrr en komið var á miðin. Þá hófst fiskeríið sem fór þannig fram að skipverjar fóru út um hvippinn og hvappinn til að tína steinvölur, sem ýmist voru þorskur, lúða, steinbítur eða ýsa. Aflanum var haganlega komið fyrir í lestinni eftir teg- undum og siglt síðan í land. Þannig var í þá daga baukað oft heilu dagana frá morgni til kvölds af miklum áhuga. Fyrir langa löngu hafa leikskólar, sjoppurölt ásamt sjónvarps- og vídeóglápi leyst slíkt hug- myndaflug af hólmi. Að lokum þetta; Um grjótbáta og gamla daga gaman vœri að yrkja Ijóð. Er sextugskveðju sendi Braga sindrar minninganna glóð.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.