Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Blaðsíða 10
22 - Þriðjudagur 18. febrúar 1997 Jlitgxtr-'ðSnróm RADDIR FOLSINS Bréfleiðis... Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri Ofbeldið í RIJV og ímynd karlmanna „Margt er einnig fagurt í mannlífinu, eins og t.d. föðurástin sem íslenskir fjölmiðlar gera sjaldan skil,“ segir í grein Arnars. Sverrisson Nýlega lauk „ofbeldisviku“ RÚV. Það er vel til fundið hjá stofnuninni að beina athyglinni að mikilvægu sviði mannlífsins með þessum hætti. Ofbeldi í ýmsum myndum birt- ist víða í mannheimum. Því gefur að skilja, að örðugt sé að velja, hvert kastljósinu skuli beint og hvernig skuli haga umræðu. En í umflöllun RÚV er að mínum dómi margt prýði- lega úr garði gert. Umfjöllunin um unglingana var áhrifarík og sterk og lofa ber hugrekki hinn- ar ógæfusömu ungu stúlku, sem varð fyrir fólskulegri árás kynsystra sinna. Þó hefði mátt gæta jafnvægis í umfjöllun með tilliti til kynja. Þátturinn um eineltið í skólum var sömuleið- is prýðilegur. Karlóargadýrið í einum dagsljóssþáttanna var umíjöllun, að ég hélt, um fjöl- skylduofbeldi. En þó ekki. í reynd var ijallað um ofbeldi karla gegn komun í hefðbundn- um kvenfrelsunarstíl með rymjandi skuggaveru, sem sagði farir sínar ekki sléttar. Karlóargadýrið var ævinlega allt um kring. Ofbeldi af kvenna hálfu bar hvergi á góma, hvorki ofbeldi í garð karlmanna né barna. í ljósi töluverðrar þekkingar á hvoru tveggja, er umfjöllun sem þessi með öllu óskiljanleg. Hvaða boðskap flytur RUV? Áróður kvenfrelsis Kastljóssþátturinn um kynferð- islegt ofbeldi var með svipuðu sniði. Fleiri rymjandi „skugga- verufórnarlömb" vondra karla. (Þó með einni lofsverðri undan- tekningu). Umfjöllunin reyndist vera um ljóta karla sem mis- þyrmdu ungum stúlkum. Stund- um lá við að viðmælandinn væri óþarfur, svo mjög var spyrlinum í mun að koma eigin hugarórum fyrir í hugskoti hans. Þetta var umfjöllun ein- faldleikans og bar miklu fremur svip frumstæðs kvenfrelsunar- áróðurs, en hlutlausrar og mál- efnalegrar umræðu. Dregin er upp hin skelfilegasta mynd af feðrum. Varla er minnst á sam- skipti kynjanna eða samábyrgð þeirra. Varla er ýjað að því, að konur og mæður fremja einnig kynferðisglæpi. Algengi kyn- ferðisofbeldis þykir ekki áhuga- vert. Varla er nokkur viðleitni sýnd til að varpa ijósi á til- brigði við það andstyggilega hátterni, sem kynferðislegt of- beldi er, hvorki frá sjónarhóli þolenda, né gerenda. Rann- sóknir og gild fræði eru tæpast virt viðlits. Höfundur þáttanna virðist kokgleypa hugmynda- fræði kvennaathvarfs og Stíga- móta, sem starfa með ofstækis- kennd kvenfrelsunarsjónarmið að leiðarljósi. Vinnubrögð af þessum toga eru ámælisverð og uppeldislega viðsjárverð. Hvað hugsar ungviðið okkar um feður sína og bræður, eftir shk- an boðskap? Og hvað hugsa ungir drengir um sjálfa sig? Ofbeldi er viðurstyggð Kynferðislegt oíbeldi gegn börnum er viðurstyggilegt, hvort sem í hlut á kona eða karl. Þegar fjallað er um efnið er hollt að hafa í huga, að hug- takið er víðtækt og eins hvers konar kynferðisleg áreitni full- orðinna gagnvart börnum er væntanlega tiltölulega algeng. Danskar rannsóknir benda til, að um fimmtungur fullorðinna hafi í bernsku þurft að þola slíka áreitni í einhverri mynd. Sambærilegar rannsóknir hafa ekki verið gerðar hér heima. Hið fagra í mannlífinu Vitanlega ber að leita allra leiða til að spyrna gegn kyn- ferðisglæpum. En mér er mjög til efs, að umjöllum af því tagi, sem hér er gagnrýnd, auðveldi slíka leit, nema síður væri. Vonandi verður áhugi á kyn- ferðislegu ofbeldi ekki til þess, að við látum undir höfuð leggjast að skoða önnur til- brigði við ofbeldi gegn börnum og unglingum, sem eru ekki síður örlagarík. Að lokum er ekki úr vegi að minna á, að margt er einnig fagurt í mannlífinu eins og t.d. föðurástin, sem íslenskir íjöl- miðlar gera sjaldan skil. Fæddir morðingjar? Um daginn var verið að sýna á Stöð tvö þá um- deildu mynd, Fæddir morð- ingjar. Oliver Stone, sem er alltaf sami predikarinn, gerði þessa mynd gagngert til þess að ganga fram af fólki og koma af stað um- ræðum um ofbeldi sem af- þreyingarefni. Svo þegar myndin gekk í reynd fram af fólki og umræður hófust um ofbeldi sem afþreying- arefni, þá fór Stone eitt- hvað að hneykslast á við- brögðunum. Enda urðu þau reyndar ekki nákvæm- lega eins og hann hafði ætlast til, blessaður. Ritskoðunarraddir urðu áberandi, kröfur um að banna allt ofbeldi í kvik- myndum og sjónvarpi. En ekki var það víst ritskoðun sem Stone vildi, heldur frekar hugarfarsbreyting, jafnvel menningarbylting. Greinilega bjartsýnn mað- ur, hann Oliver Stone. Hættuleg ævintýri En liann kom þó af stað einhvers konar umræðum og sýndi þar með fram á að það er, þrátt fyrir allt, hægt að hafa einhver áhrif á það sem tekið er til umræðu á svokölluðum opinberum vettvangi í þjóðfélaginu. A.m.k. stundum. Hann hefði auðvitað átt að vita það að enginn getur stjórn- að þeim umræðum, jafnvel ekki sá sem kemur þeim af stað. Þær verða aldrei ná- kvæmlega eins og ætlast var til. Og allt í lagi með það. Lýðræðið er bölvað andskotans ævintýri og getur Verið stórhættulegt eins og dæmi sanna. Og er ég þá ekki að gera lítið úr mikilvægi þess. Ætli það ekki bara En það var þetta með of- beldið. Erum við öll kannski morðingjar inn við beinið? Ætli það ekki bara. Og æth það sé nema eðli- legt að í sjónvarpi og bíó, bókum og leikhúsum og öllu því batteríi, sé fjallað um það sem við blasir í raunveruleikanum. Og auðvitað hefur þetta tvennt, raunveruleikinn og fjölmiðlaveruleikinn, áhrif hvort á annað - og geta þess vegna magnað hvort annað upp í vitleysunni. Það er fleira en blessað lýðræðið sem getur verið hættulegt. En ætli einfeldn- ingar á borð við undirrit- aðan verði þá ekki bara að halda sér fast í það, séu menn ekki sáttir við vit- leysuna, að það sé a.m.k. ekkert fyrirfram vonlaust dæmi að hafa áhrif á það sem er að gerast. Annars væri jafngott að hengja sig strax. Umsjón: Guðsteinn Bjarnason. * 3prúttinn kunningi meinhornisins sem á við þorra-þunglyndi að stríða var heldur óhress með bolludaginn. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum stóð hann í þeirri meiningu að hann gæti orðið sér úti um nokkra veikindadaga með því að úða í sig bollum. í stað þess að verða gulur og grænn og engjast af sárum magaverkjum hefur hann sjaldan verið hressari en einmitt eftir bolluátið. Meinhornið kann ekki við þetta látlausa og meinfýsna grín sem gert er að forsætis- ráðherra í tíma og ótíma. Á miðvikudag fyrir skömmu sýndi sjálft Ríkissjónvarpið hann með kött á öxlinni. Fyrr má nú rota en dauðrota en að gefa það í skyn að ráðherrann sé einhver seiðskratti. Miðað við allt og alla mætti halda að ár uxans sé gengið í garð á Fróni, eins og hjá Kínverjum. Menn baula orðið hver á annan og láta eins og naut í flagi við minnsta áreiti.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.