Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Side 15

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.02.1997, Side 15
jDiigur-Œmmtit Þriðjudagur 18. febrúar 1997 - 27 UppáAaCch átuxutpð- ogr ójánitxvtpð&fni Ámundi Ámundason auglýsingastjóri Alþýðublaðsins Dagsljósið í Sjónvarpinu flnnst mér ömurlegt, sérstaklega þessi Gaui Litli. Petta er óttalegt fl'gúru- verk. Ég vona að hann megr- ist hratt, svo hann hverfi af skjánum sem fyrst, þá fer ég að horfa því stjórnendurnir eru góðir,“ sagði Ámundi Ámundason stjórnmála“gúrú“ Gaui Litli þarf að grennast hratt Alþýðuflokksins og eitilharður auglýsingastjóri Alþýðublaðs- ins, nýkominn á nýja skrif- stofu sína í ísafoldarhúsinu skammt frá Hlemmi. Ámundi segir að hann sé fyrst og fremst fréttafíkill, hlusti og horfi á flesta frétta- tíma, nema helst gömlu Guf- una sem hann gefl frí flesta daga, enda sé þar þreytt fréttastofa. Ellefufréttir Sjón- varps segir hann einna bestu fréttatíma dagsins. „Uppáhaldsútvarpsefnið er Kristján Þorvaldsson með Sunnudagskaffi á Rás 2 á sunnudögum, og þátturinn hans Jónasar Jónassonar, Kvöldgestir, á föstudagskvöld- um er stórkostlegur. Svo er yndislegt að hlusta á Bryndísi Schram á sunnudögum eftir hádegið. Bylgjan er fín milli 7 og 9 á morgnana, þar fara Þorgeir Ástvaldsson og Mar- grét Blöndal á kostum," sagði Ámundi. „Sakamálamyndir eru í uppáhaldi hjá mér í sjónvarp- inu. Ég horfí alltaf á Wolf, þýska rannsakarann á Stöð 3, - og svo er hann fínn þessi feiti, skoski kall á Stöð 1, hann er nýbyrjaður aftur sem betur fer,“ sagði Ámundi. „Ingólfur og Árni eru oft góðir með Á elleftu stundu, en stundum eru viðfangsefnin ömurleg, til dæmis Margrét Frímannsdóttir, meira segja þótt hún mætti á höfuðborg- arskónum sínum. Hún hafði ekkert fram að færa frekar en fyrri daginn. Spaugstofan er á niðurleið, strákarnir hefðu átt að hætta og sleppa þessu í vetur. Þátturinn um X-files var ömurlegur á laugardags- kvöldið. Gísli Rúnar er hins vegar fríkaður á Stöð 2, hann er með snarpan þátt, maður veit aldrei á hverju maður á von frá honum," sagði Ámundi. „Og undir lokin, með leyfi fundarstjóra, ég horfi aldrei á Hemma Gunn.“ -JBP AHXJGAVERT í K V Ö L D Stöð 2 kl. 20.20 SYN kl. 21.00 Poppstjömur í körfubolta Fleiri strákapör Iþrótta- og tómstundaþátturinn Fjörefnið er á sínum stað í dagskrá Stöðvar 2 í kvöld, rétt eins og ævinlega á þriðjudags- kvöldum. Þátturinn hefur vakið verðskuldaða athygli enda eru efnistök íþróttafréttamannanna Valtýs Björns Valtýssonar, Snorra Sturlusonar og Guðjóns Guðmundssonar bæði fjölbreytt og skemmtileg. í kvöld er það sá síðastnefndi þeirra þremenn- inga sem stýrir þættinum en Guðjón ætlar að bregða sér á svo- kallað „Pop Cup“ í World Class þar sem allir helstu tónlistar- menn landsins ætla að takast á í körfuboltakeppni. Einnig verð- ur skoðað hvað er í boði í einstaklingsþjálfun að því ógleymdu að þrír bráðefnilegir handboltastrákar verða heimsóttir. Bíómynd kvöldsins á Sýn heitir Fleiri strákapör, eða Porky’s II: The Next Day, en þetta er bandarísk gamanmynd um hóp ungmenna úr Angel Beach skólanum í Flórída. Þessir krakkar hafa áður komið við sögu í dagskrá Sýnar og þeir sem til þeirra þekkja vita að þeir láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Eftir að hafa komið næturklúbbi Porkys Wallace fyrir kattarnef telja strákarnir sig vera á grænni grein en sú reynist alls ekki raun- in. Vandræði þeirra eru rétt að byrja og nú þurfa strákarnir að finna kvenmann sem getur svalað þorsta þeirra! Það er vanda- samt verk en strákarnir eru hvergi bangnir og takast á við það af fullum krafti. Myndin er bönnuð börnum. SJÓNVARP JJ T V A R P b 11 SJONVARPIÐ 13.30 Alþingi. 16.20 Helgarsportiö. 16.45 Leiðarljós 17.30 Fréttir. 17.35 Sjónvarpskringlan. 17.50 Táknmáisfréttir. 18.00 Barnagull. 18.25 Mozart-sveitin (14:26) (The Mozart Band). Fransk/spænskur teiknimyndaflokkur um fjóra tónelska drengi og uppátæki þeirra. 18.55 Andarnir frá Ástralíu 19.20 Feröaleiöir. í flóanum við Saint Michel (Thalassa: Les gens du Mont). Frönsk þáttaröö frá fjarlægum strönd- um. Aö þessu sinni er sagt frá einu af undrum veraldar sem er að finna í Frakklandi. 19.50 Veöur. 20.00 Fréttlr. 20.30 Dagsljós. 21.05 Perla 21.30 Ó. 22.00 Fangelsisstjórinn (2:6) (The Governor II). Framhald af breskum myndaflokki geröum eftir sögu Lyndu La Plante um daglegt amstur ungrar fangelsisstýru. 23.00 Ellefufréttlr. 23.15 Vlöskiptahornið. Umsjónar- maöur er Pétur Matthíasson. 23.30 Dagskrárlok. STOÐ 2 09.00 Línurnar I lag. 09.15 Sjónvarpsmarkaöurinn. 13.00 Blanche 13.45 Chicago-sjúkrahúsið 14.30 Sjónvarpsmarkaöurinn. 14.50 Framlag til framfara (1:6) (e). Þáttaröö þar sem leitaöir eru uppi vaxtarbroddar íslensks samfélags og leiöir til að efla þjóðarhag okkar. 15.15 Mörk dagsins 15.40 Hope og Gloria 16.00 Krakkarnfr viö flóann. 16.25 Sögur úr Andabæ. 16.50 Lísa í Undralandi. 17.15 Glæstar vonir. 17.40 Línurnar í lag. 18.00 Fréttir. 18.05 Nágrannar. 18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn. 19.00 19 20. 20.00 Eiríkur. 20.20 Fjörefniö. 20.55 Barnfóstran 21.25 Þorpslæknirinn 22.20 New York löggur 23.10 Borgarinn (e) (American Cit- izen). Myndin fjallar um bandarískan körfuboltamann sem er ráðinn af Iþróttanefnd smábæjar í Israel til að blása nýju lífi í körfuboltaliö staöarins sem er t fallhættu. 00.55 Dagskrárlok. s t o Ð STOÐ 3 08.30 Heimskaup 18.15 Barnastund. 18.35 Hundalíf 19.00 Borgarbragur. 19.30 Alf. 19.55 Kyrrahafslöggur 20.45 Nærmynd 21.10 Rýnirinn 21.30 Þögult vitni (Silent Witness) (1:2). Réttarlæknirinn Sam Ryan (Am- anda Burton, Peak Practice) er kölluö á lögreglustöðina. Tveir menn hafa verið handteknir fyrir ölvun og settir í sama klefa. Annar þeirra vaknar og sér klefafélaga sinn látinn. Skoöun á líkinu leiðir ýmislegt I ijós en lætur enn fleiri spurningum ósvarað. Líkiö er illa leikiö og upp vaknar grunur um aö hommahatur búi aö baki. Við yfir- heyrslu ber sá grunaði fýrir sig minnis- leysi og þaö auöveldar ekki lögregl- unni að sinna sínu starfi. í þættfnum eru atriöl sem geta vaklð óhug. Seinni hluti þessarar bresku spennu- myndar frá BBC-sjónvarpsstööinni er á dagskrá á sama tíma nk. fimmtudags- kvöid. 22.25 48 stundir (48 Hours). 23.15 David Letterman. 24.00 Þýsku mörkin. 00.30 Dagskrárlok Stöðvar 3. svn SYN 17.00 Spítalalíf (MASH). 17.30 Beavis og Butthead. Ómót- stæöilegir grínistar sem skopast jafnt að sjálfum sér sem öðrum en ekkert er þeim heilagt. Tónlist kemur jafn- framt mikið við sögu I þáttum tvímenn- inganna. 18.00 Taumlaus tónlist. 19.00 Ofurhugar (Rebel TV). Spenn- andi þáttur um kjarkmikla íþrótta- kappa sem bregöa sér á skíðabretti, sjóskíöi, sjóbretti og margt fleira. 19.30 Ruönlngur. Ruöningur (Rugby) er spennandi íþrótt sem er m.a. stunduö í Englandi og víöar. í þessum þætti er fylgst með greininni í Eng- landi en þar nýtur hún mikilla vin- sælda. 20.00 Walker (Walker Texas Ranger). 21.00 Fleirl strákapör (Porky's II: The Next Day). 22.35 NBA-körfuboltinn. Leikur vik- unnar. 23.30 Lögmál Burkes (e) (Burke's Law). Spennumyndaflokkur um feöga sem fást viö lausn sakamála. 00.15 Spítalalíf (e) (MASH). 00.40 Dagskrárlok. Eyrun svo fremri aiigunum Utvarpið er enn óvenju stekur miðill, menn sem fara í viðtöl í útvarp eru t.d. alltaf jafn hissa á hve margir heyra. Rýnandi er sérdeilis hrifinn af útvarpi og þá sér- staklega morgunútvarpi Bylgjunnar. Það er rýnanda bókstaflega nauðsynlegt að kveikja á útvarpinu um leið og búið er að drepa ískrið í vekjaraklukkunni. Þetta bráðmorgunhressa útvarps- fólk vekur hvern vöðva á fætur öðrum og það er svo undarlegt með það að eyrun eru svo miklu fljótari að vakna en augun. Þannig hefur rýnanda tekist að ná megninu af því sem markvert þykir þann daginn áður en hann í raun vaknar. Og ef við erum ekki að tala um að nýta tímann þá veit rýnandi ekki hvað. Stundum þegar rýnandi vill ekki vita um hækkandi yfirborð sjávar eða stigvax- andi barómet einhvers stað- ar á landinu þá kúrir hann sig niður í sængina. En það er enginn leið að sofna aftur því útvarpsfólkinu tekst allt- af að skríða undir hjá manni, sem er vel. Rýnandi hvetur alla til að hlusta á morgunútvarpið fyrir klukk- an átta, þannig fá menn það markverðasta úr blöðunum og helstu pælingar leiðar- anna og þurfa ekki að hafa áhyggjur af tengingarleysi langt fram eftir degi. Það hefur lengi verið draumur mannsins að geta nýtt svefntímann og það ger- ir rýnandi með hjálp morg- unútvarpsins. © RÁS 1 09.00 Fréttir. 09.03 Laufskálinn. 09.38 Segðu mér sögu. 09.50 Morg- unleikfimi 10.00 Fréttir. 10.03 Veður- fregnlr. 10.15 Árdeglstónar. 11.00 Fréttlr. 11.03 Byggðalínan. 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.01 Daglegt mál. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veö- urfregnir. 12.50 Auölind. 12.57 Dán- arfregnlr og auglýsingar. 13.05 Hvaö segir kirkjan? (3) Andagáfur. 13.40 Litla djasshorniö. 14.00 Fréttlr. 14.03 Útvarpssagan, Á Snæfellsnesi. 14.30 Miödegistónar. 15.00 Fréttir. 15.03 Komast atvinnurekendur upp meö þaö aö brjóta lög? 15.53 Dag- bók. 16.00 Fréttir. 16.05 Tönstiginn. 17.00 Fréttlr. 17.03 Víösjá. 18.00 Fréttir. Víðsjá heldur áfram. 18.30 Lesið fyrir þjóðina: 18.45 Ljóð dags- ins. 18.48 Dánarfregnir og auglýsing- ar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýs- ingar og veðurfregnlr. 19.40 Morgun- saga barnanna endurflutt. - Barnalög. 20.00 Þú, dýra list. 21.00 Sagnaslóö. 21.40 Nautiö hvíta - Um Bolavísu eft- ir Látra-Björgu. 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnlr. 22.15 Lestur Passíu- sálma. Frú Vigdís Finnbogadóttir les (20). 22.25 ísskápur meö öörum. (1) Stórfjölskyldan. Umsjón: Sigrún Stef- ánsdóttir. 23.10 Er vit í vísindum? 24.00 Fréttir.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.