Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 3
Hiigur-SItmiim Laugardagur 8. mars 1997 - 3 Kynferðisafbrot Þykkvibær „Mjög míkilvirkir“ kynferðisofbeldismenn Stígamótakonur glugga í skýrslu um kynferðisofbeldi. MynaiE.ói. Algengt að ungir piltar beiti sér yngri börn kynferðis- ofbeldi. Um 260 einstaklingar leit- uðu aðstoðar Stígamóta í fyrsta skipti á sl. ári, eða einn að jafnaði hvern virkan dag ársins. Frá 1990 hafa rúm- lega 2.200 einstaklingar komið til Stígamóta, yfirgnæfandi meirihluti konur á aldrinum 10-50 ára. Lætur nærri að 1 af hverjum 40 konum, eða 2,5% allra kvenna á þessum aldri séu í hópnum. Um 80% þeirra komu vegna kynferðislegs of- beldis sem þær voru beittar á barnsaldri, langflestar 5-10 ára. Rúmur helmingur tilfell- anna átti sér stað á landsbyggð- inni. Töluverður hluti ofbeldis- mannanna er „mjög mikilvirk- ur. í sumum íjölskyldum er slóðin af börnum eftir þá,“ sagði Guðrún Jónsdóttir, for- maður Stígamóta, á fundi með fréttamönnum. Til marks um afleiðingarnar nefndi hún að undanfarin 2 ár eða svo hafa komið 20-30 ung- ar stúlkur sem leiðst hafi út í fíkniefnanotkun, til að deyfa sárs- aukann eftir kyn- ferðisofbeldi æsku og síðan leiðst út í vændi til að ljármagna fíkn- ina. Fjallað verður um þetta á mál- þingi um kynferð- isofbeldi í Há- skólabíói í dag. Þá kom fram að um 15% þeirra sem leita til Stígamóta höfðu gert tilraun til sjálfsvígs. Athygli vekur að kringum sjötti hver ofbeldis- mannanna var á aldrinum 10-16 ára. „Það virðist því næsta algengt að ungir piltar beiti sér yngri börn ofbeldi af kynferðislegum toga. Vert er að taka fram að hér er ekki um að ræða mein- lausa „læknisleiki" barna. Þol- endur upplifa það sem ógnandi og meiðandi," segir í ársskýrslu Stígamóta. Þar er jafnframt vakin athygli á að aðeins um 6% ofbeldismannanna voru þol- endunum ókunnugir. Stærsti hópurinn (37%) voru vin- ir/kunningjar, fjölskylduvinir (11%), frændur (11%), bræður (9%), feður (5%), stjúpar (4%) og afar (4%). Af öllrnn nauðgur- unum voru t.d. meira en 70% vinir/kunningjar og 11% eigin- menn en bara 15% „ókunnugir karlar.“ - HEI Far- bann um íjör- urnar Sýslumaðurinn á Hvolsvelh hefur bannað umferð óvið- komandi um Þykkvabæjar- og Háfsfjörur, sem hefur verið síðustu daga vegna strands flutningaskipsins Vikartinds. Bannið nær einnig til landeig- enda. Þeim sem ekki eiga erindi um svæðið verður vísað á brott af lögreglu, sem fjarlægir fólk fari það ekki sjálfviljugt. Bannið nær ekki til björgun- arfólks. Á því hefur borið síð- ustu sólarhringa að fólk sé á ferð um fjörurnar að nauð- synjalausu og það jafnvel haft á brott með sér verðmæti úr skip- inu. „Við ætlum að koma í veg fyrir að þetta verði helgarbíl- túrinn hjá fólki,“ sagði lög- reglumaður á Hvolsvelli í sam- tali við Dag-Tímann. Talsvert af lausum munum úr skipinu liggur á Þykkavbæj- ar- og Háfsfjörum og einnig hefur þá rekið á Landeyja- og Eyjaljallafjörur. Þessar íjörur hafa verið gengnar vegna leit- arinnar að Elíasi Erni Krist- jánssyni, bátsmanni, sem tók út af varðskipinu Ægi. -sbs. Mjólkursölumál Auknar líkur á verkfalli. Þungt hljóð í verkalýðshreyfingunni í gær Mynd: E Mjólk frá Akureyri til Reykjavíkiir í verkfaUi? Koma kann til mjólk- urskorts á höfuð- borgarsvæðinu ef verkfall brestur á næsta sunnudagskvöld. Rætt hefur verið um að flytja mjólk suður frá mjólkursamlögum á landsbyggðinni, en nokk- ur ótti hefur gripið um sig að til mjólkurskorts kunni að koma, og ekki verði t.d. til nægur rjómi um páska- helgina, sem er mikil „ferm- ingarvertíð". Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri Mjólk- ursamlags KEA, segir að fyrirtæki sem eru með verslanir víða um land geti væntanlega keypt mjólk gegnum verslanir fyrirtæk- isins á landsbyggðinni og flutt hana suður á höfuð- borgarsvæðið. „Við munum ekki grípa inn í þá þróun, við getum ekki neitað nein- um um viðskipti ef úttektin er staðgreidd. Það hafa ver- ið óvenju stórar pantanir frá Hagkaupi á Akureyri síðustu daga.“ Svo kann að fara að mjólkursala verði það mikil að það dragi úr vinnslu á öðrum afurðum en neyslu- mjólkin hefur alltaf forgang. Þórarinn segir að verkalýðs- hreyfingin hafl haft það stór orð um flutninga af lands- byggðinni að hann eigi ekki von á mikilli mjólkursölu til Reykjavíkur. GG Kjaramál Fyrstu verkföUin um helgina hafi sanmingar ekki tekist Verkamannasamband ís- lands áréttaði framlagða kröfugerð sína frá því sl. haust í 14 blaðsíðna svari sínu við tilboði VSÍ í gær. Björn Grét- ar Sveinsson, formaður VMSÍ, leggur áherslu á að kröfugerð sambandsins og annarra lands- sambanda ASÍ séu skilyrtar að- komu ríkisins um skattabreyt- ingar. í dag, laugardag, eru fulltrú- ar Dagsbrúnar boðaðir til fund- ar í Karphúsinu og einnig full- trúar Rafiðnaðarsambandsins. Á þessum fundum verður trú- lega reynt til þrautar að ná samningum til að koma í veg fyrir boðuð verkföll í Mjólkur- samsölunni og hjá borgarfyrir- tækjum á morgun 9. mars. í atkvæðagreiðslu um verk- fallsboðun félagsmanna Rafiðn- aðarsambandsins hjá RARIK samþykktu 95.5% að fara í verkfall 16. mars hafi samning- ar ekki tekist fyrir þann tíma. Þá er reiknað með að yfirvinnu- bann Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja í loðnubræðslum skelli á 10. mars nk. að óbreyttu. í svari VMSÍ til VSÍ er þess krafíst að lægstu laun hækki í 65 þúsimd krónur frá 1. febrú- ar sl. og um fhnm þúsund krón- ur 1. janúar 1998. Tekjuhærri hópar fá tvisvar sinnum fimm þúsund króna launahækkun á samningstímanum sem er til mars 1999. Hinsvegar hafnaði VMSÍ kröfu VSÍ um lækkun yfir- vinnuálags úr 80% í 70% og ákvæði um sveigjanlega vinnu- tíma frá 07-19. -grh Mjólkursamsalan Verslanir hamstra mjólk - ekki skortur í bráð Neytendur virðast rólegir. Mjólkurkaup verslana hafa aukist um allt að 30% í vikunni vegna yfirvofandi verkfalls Dagsbrún- ar í Mjólkursamsölunni á morg- un, 9. mars. Hins vegar hefur ekki enn orðið vart við aukin mjólkurkaup almennings. Þetta hefur leitt til tafa á mjólkur- pökkun hjá MS vegna skorts á mjólkurvögnum sem standa fullhlaðnir í verslunum. Pétur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri framleiðslusviðs hjá MS, segir að unnið verði í dag, laugardag, við að pakka eins mikið af mjólk og hægt verður. Hann gerir ekki ráð fyr- ir að mjólkurskorts fari að gæta fyrr en seinnihluta næstu viku, ef til verkfalls kemur. Þá ræðst það mikið af innkaupum al- mennings og lengd hugsanlegs verkfalls hvenær fer að gæta skorts á öðrum mjólkurafurð- um. Baráttuglaðir Dagsbrúnar- menn hjá MS settu í gær einhliða og tímabundið afgreiðslubann á Hagkaupsbúðir. Með því vildu þeir sýna Hagkaup mátt sinn og megin, auk þess sem þeim gramdist hvað verslanirnar hömstruðu mikið af mjólk. -grh

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.