Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Page 5
JDagur-®minn
Laugardagur 8. mars 1997 - 5
Sjóprófin ? Reykjavíkurborg
Reyndu að prútta við
Landhelgisgæsluna
Kvenna-
athvarfið
fær mest
Styrkir fyrir
70 milljónir kr.
Aðeins spurning um
tíma hvenær
ákvarðanir skip-
stjórans verða að
lögreglumáli.
Saksóknari óskaði í gær eft-
ir aðstoð Rannsóknarlög-
reglu ríkisins vegna hugs-
anlegrar refsiábyrgðar skip-
stjórans á Vikurtindi. Dómarinn
vísaði því frá en ákvað að veita
skipstjóranum réttargæslu-
mann. Saksóknari taldi að
rannsaka þyrfti hvort brot
hefðu verið framin á siglinga-
og almennum hegningarlögum,
auk hugsanlegra brota á um-
hverfls- og mengunarvarna-
reglugerð.
Sjópróf standa yflr og leiddu
í gær m.a. í ljós að útgerð skips-
ins kannaði síðdegis á miðviku-
dag hvort hægt væri að semja
við Landhelgisgæsluna um fast
verð fyrir björgunaraðgerðir.
Forstjóri Landhelgisgæslunnar,
Hafsteinn Hafsteinsson, sagði
það ekki hægt, enda andstætt
siglingalögum.
Skipstjóri og stýrimaður á
Vikartindi höfðu ekki komið áð-
ur til íslands og var tæknilegri
þekkingu þeirra um ankerið
ábótavant. Misræmi var hjá
yfirmönnum skipsins og hlutað-
eigandi íslendingum um viðvar-
anir Landhelgisgæslunnar.
Sögðu Gæslumenn að ítrekað
hefði verið varað við hættxmni
en stýrimaður Vikurtinds sagð-
ist hins vegar ekki hafa fengið
viðvaranir.
Björgunaraðgerðir eru ekki
hafnar, en í gær jukust
skemmdir skipsins og fór olíu-
leki vaxandi. Ákveðið hefur ver-
ið að aðgerðir heíjist ekki fyrr
en eftir helgina og sætir sú
ákvörðun gagnrýni. Fulltrúar
Brak úr skipinu.
„Ekkert annað
en handvömm“
Fjölmargir inn-
flytjendur kunna
að sifja eflir með
sárf ennið eftir
skipsskaðann við
Þjórsárósa.
Talsverð brögð munu
vera að því að vöru-
sendingar séu
ótryggðar. Hjá Sjóvá-Al-
mennum höfðu í gær 20-25
tilkynnt um vöru sem þeir
eiga eða áttu um borð í Vik-
artindi og er tryggð af félag-
inu.
En ekki höfðu allir var-
ann á, margir eru með
ótryggða farma.
„Það er töluvert um það
að menn hafi samband við
okkur vegna þess að þeir
hafa verið með ótryggðan
farm. Menn vilja vita hver
staða þeirra er, hver beri
skaðann af tjóninu, hvort
um sé að ræða heildartjón
sem fellur á tryggingafélag
skipsins, eða farmtryggingin
fyrir þá sem hana hafa
haft,“ sagði Stefán Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra stórkaup-
manna, í gær.
Stefán sagði að FÍS
mundi huga að réttarstöðu
sinna félagsmanna, sem
hafa margir orðið fyrir
tjóni, ekki síst þeir sem voru
að flytja innn árstíðabundna
vöru til páskanna, eða að
birgja sig upp fyrir væntan-
leg verkföll. Lögmaður stór-
kaupmannafélagsins mun fá
það verkefni að kanna rétt-
arstöðu innflytjendanna.
Halldór Teitsson, deildar-
stjóri hjá Sjóvá-Almennum,
sagði allt fremur óljóst enn
sem komið væri varðandi
tjón af strandinu. Enginn
vissi hversu stórt tjónið yrði
á endanum. -JBP
Sjópróf hófust í gær og verður framhaldið um helgina.
Alvarlegt um-
hverfisslys ef
300 tonn af
svartolíu fara
í sjóinn.
tveggja björgunarfyrirtækja
mátu aðstæður í gær og er talið
ólíklegt að hægt sé að bjarga
skipinu, en mögulegt að bjarga
megninu af farminum og fjar-
lægja svartolíuna. Um ræðir
300 tonn af svartolíu og gæti
orðið alvarlegt umhverfisslys ef
það magn fer í sjóinn. Skipið
ásamt farmi er metið á um tvo
milljarða króna.
Samþykktar styrkveitingr
íþrótta- og tómstundaráðs,
félagsmálaráðs og fræðslu-
ráðs á þessu ári nema samtals
rúmlega 70 milljónum króna.
Fjárhagslegar styrkveitingar
félagsmálaráðs til félags- og
heilbrigðismála nema tæpum
35 milljónum króna. Hæsti ein-
staki styrkurinn í ár kemur í
hlut Kvennaathvarfsins, eða 7,7
milljónir króna. Þrjár umsóknir
bárust hinsvegar of seint og var
þeim vísað til gerðar næstu
íj áriiagsáætlunar. Þar á meðal
var umsókn Leigjendasamtak-
anna sem fóru frani á hálfa
milljón króna í styrk.
Hjá ÍTR var samþykkt að út-
hluta styrkjum til íþrótta- og
æskulýðsfélaga fyrir rúmar 20
milljónir króna. Hinsvegar er
heildarfjárveiting til styrkja
samkvæmt ijárhagsramma ÍTR
um 30 milljónir króna á þessu
ári. Hæsta styrkinn hjá ÍTR fékk
Skátasamband Reykjavíkur
vegna skátastarfs í hverfum
borgarinnar, eða 4,5 milljónir
króna.
Styrkveitingar fræðsluráðs
nema um 15,7 milljónum
króna. Hæsta styrkinn hlýtur
Tónlistarskólinn Do Re Mi, eða
3,5 milljónir króna. -grh
Börnin heim
„Tyrkir famir að
skammast sín“
Aukin bjartsýni eftir
að Halim Al var
dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi.
Halim A1 var í gær dæmd-
ur í sakadómi í Istanbul í
tæplega fjögurra mánaða
fangelsi vegna brota á um-
gengnisrétti Sophiu Hansen.
Þetta er í annað skipti sem Ha-
lim A1 hlýtur dóm og á enn eftir
að taka fyrir tvær ákærur fyrir
sömu sakir. Sophia er bjart-
sýnni en áður eftir dóminn.
„Ég hef enga sérstaka
ánægju af að koma Halim á bak
við lás og slá, það verður erfitt
fyrir börnin að sjá á eftir for-
eldri sína bak við rimlana. En
ég er mjög glöð yfir að við höf-
um náð árangri og fengið tyrk-
neska réttarkerfið til að virka.
Ég er tvímælalaust bjartsýnni
núna en oft áður. Bæði vona ég
að framhaldið verði betra og
svo gæti dómurinn haft áhrif á
ákvörðun Hæstaróttar. Ég von-
ast til að fá að hitta dætur mín-
ar og vera með þeim. Og ég
vona að Halim sjái jafnvel að
sér og hætti þessum eltingar-
Ieik.“ Sophia átti að hitta dætur
sínar í gær, en kom að tómum
kofunum.
Frábærar fréttir
„Þetta eru frábærar fréttir,"
sagði Sigurður Pétur Harðar-
son, stuðnings-
maður Sophiu í
samtökunum
Börnin heim.
„Hann fer í fang-
elsi og Hæstiréttur
hefur beðið með að
taka ákvörðun um
að bíða þangað til
niðurstaðan í þess-
um málum liggur
fyrir. Við eigum
jafnvel von á að
forræðisúrskurður-
inn verði endurskoðaður og
þetta sýnir að með þrautseigju
er hægt að koma málum í gegn-
um þetta þunga og mikla kerfi,“
sagði Sigurður Pétur.
Áhugi fjölmiðla
Fjölmiðlar í Tyrklandi eru farn-
ir að sýna málinu mikinn áhuga
og voru aðilar frá um 30 ljöl-
miðlum viðstaddir réttarhöldin
í gærmorgun. Sophiumálið var
ríkjandi fréttaefni í Tyrklandi í
gær og kom Sophia m.a. fram í
beinni útsendingu í kvöldfrétta-
tíma. Aðspurður um skýringar
á því hvers vegna fréttastofur
sýndu máli aukinn áhuga svar-
aði Sigurður Pétur: „Þeir
skammast sín bara fyrir að
vera Tyrkir. Ilvernig hægt er að
láta einn mann komast upp
með þessi brot.“
Hann segir jafnframt að rétt-
arkerfið í Tyrklandi sé í brenni-
depli sem stendur, herinn hafi
krafist þess að spillingu yrði ýtt
út úr réttarkerfinu og staðið
faglega að meðferð sakamála.
BÞ
Sophia Hansen
móðir
„Ég hef enga sérstaka
ánœgju af að koma
Halim Al bak við lás og
slá. Það verður erfitt
fyrir börnin. En ég er
mjögglöð."