Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Síða 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Síða 7
 ERLENDAR FRETTIR Laugardagur 8. mars 1997 - 7 N Fómarlömb efnahagsundurs Baksvið Dagur Þorleifsson Aung San Suu Kyi hefur hlolið heimsathygli og friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu sína gegn herfor- ingjaklíkunni sem stjórnar ætt- landi hennar, Búrma (Myan- mar). Þar er hún í stofufangelsi. Miklu verri þrengingum af hálfu búrmskra valdhafa sæta Karenar, þjóð í suðurhluta landsins, sem ekki sættir sig við yflrráð eiginlegra Búrma- manna. En fréttir af sjálfstæðis- baráttu Karena fara lágt í fjöl- miðlum. í einni heimild stendur að Karenar séu um þrjár milljónir, í annarri að um sjöundi hver íbúi Búrma sé þeirrar þjóðar. manna, Qölmennustu þjóðar Búrma. Enda hafa Karenar, einkum þeir sem eru kristnir að einhverju marki, verið í upp- reisn gegn búrmskum valdhöf- um svo að segja alla tíð frá því er Bretar létu af yfirráðum í Búrma, eða í um hálfa öld. Mun sá ófriður lengst af hafa verið þrátefli á þá leið, að Búrmaher hefur ekki getað bugað Karena að fullu en Kar- enar liafa ekki haft bolmagn til þess að kreppa svo að búrmsk- um valdhöfúm að þeir féllust á kröfur Karena um sjálfstjórn eða sjálfstæði. En fyrir skömmu hóf Búrma- her eina stórsóknina enn gegn uppreisnarmönnum þessum og beitir um 100.000 manna liði gegn um 2500 hermönnum uppreisnarmanna. Þar við bæt- ist að afstaða Taílands til Kar- ena hefur breyst, Búrmastjórn í vil. Fram að þessu hafa Kar- Herinn heldur landslýð niðri. Mál hennar er sínótíbetskt, sem sé skylt búrmsku (sem og tal- máli, kínversku og tíbetsku), en allsérstætt. Karenar búa víða í Suður-Búrma, í dölunum við fljótin Irawaddy og Salwe- en, við landamærin að Taílandi, í fjalllendinu milli nýnefndra íljóta, í fjalllendi fylkisins Ar- akan. 100.000 gegn 2500 í einni handbók stendur að Karenar séu myndarlegastir sýnum af þeim þjóðum megin- lands Suðaustur-Asíu, er séu mongólakyns, og þreklegir. Að- alatvinnuvegur þeirra hefur frá fornu fari verið landbúnaður. í heiðni þeirra fornri, sem enn gætir með þeim, hafa menn t.d. átrúnað á steinblætum og spá í hænsnabein. En margir Kar- enar eru einnig búddasinnar eða kristnir. Karenum varð eitthvað svip- að við og fleiri minnihlutaþjóð- um í nýlendum Evrópuríkja, er þær urðu sjálfstæð ríki. Þótti Karenum mörgum sem þeir færu úr öskunni í eldinn er þeir losnuðu við yfirráð nýlendu- kúgara og fengu í staðinn yfir sig drottnun eiginlegra Búrma- enar á flótta undan Búrmaher gjarnan fengið að dveljast í Taí- landi um lengri eða skemmri tíma, en nú bregður svo við að Taílandsher rekur tilbaka yfir landamærin fólk það karenskt, er yfir þau leitar á flótta undan Búrmamönnum. Búsmala slátrað, ávaxtatré höggvin Ástæðan til þess kvað vera sú að samkomulag hefur náðst milli Búrma og Taílands um að jarðgasleiðsla verði lögð frá fyrrnefnda landinu til hins síð- arnefnda og er fyrirhugað að hún liggi um héruð þau Búrmamegin landamæranna, sein lengi hafa verið á valdi karenskra uppreisnarmanna. Valdhafar Búrma vilja sem fyrr bæla umrædda uppreisn niður og bæði þeir og taílenskir ráða- menn vilja útiloka að leiðslunni geti stafað hætta af völdum þriðja aðila. Taíland mun telja sig hafa ærna þörf fyrir gasið, er því á að berast eftir þessari fyrirhuguðu Ieiðslu, sem orku- gjafa fyrir efnahagsundur sitt og búrmskir valdhafar eru með þessu að reyna að tengjast efnahagsundrum annarra Suð- austur- Asíuríkja. Dagbladet norska hefur eftir þarlendum Búrmafræðingi að Búrmaher einbeiti sér nú að því að gera að engu lífsbjargar- möguleika Karena þeirra, er búa í hóruðunum við landa- mæri Taflands, en þeir eru um hálf önnur milljón talsins. Ávaxtatré séu liöggvin kerfis- bundið, búfé slátrað og matar- birgðum rænt. Einnig hefur frést að fólk sé flutt nauðugt úr héruðum þessum og það hefur Búrmastjórn raunað játað á sig. Áminnstur norskur Búrma- fræðingur telur að hér sé um þjóðarhreinsun að ræða. Að sögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir nokkrum dögum hafði Taí- landsher undangengna viku rekið tilbaka yfir landamærin um 4000 karenska flóttamenn, nýkomna til Taflands á flótta undan Búrmaher. í hálfa öld hafa upp- reisnarmenn af þjóð Karena í Búrma hald- ið velli gegn Búrma- her. En nú sameinast Búrma og Tafland gegn þeim, vegna sameiginlegra hags- muna á sviði efna- hagsmála. Þorp brennd Eftir heimildamönnum í landa- mærahéruðunum Taflandsmeg- in er haft að flóttafólkið heim- rekna megi búast við því versta af Búrmaher, sem orðlagður er fyrir grimmd og hrottaskap. Muni Búrmaher líklega drepa alla karlmenn meðal flótta- fólksins yfir tíu ára aldri, en nauðga konunum. Flóttamenn hafa skýrt svo frá að í karensku þorpi að nafni Kaserdoh hafi búrmskir hermenn nauðgað fjórum konum fyrir augum þeirra nánustu. Þá hefur frést að Búrmaher hafi slegið eldi í hús í byggðum Karena og jafn- vel brennt þar heil þorp. Karenar munu í stríði þessu ekki hafa notið teljandi aðstoð- ar utan frá og á alþjóðavett- vangi hafa þeir litlar undirtekt- ir fengið við kröfur sínar um sjálfstjórn eða sjálfstæði. En einskonar hlutleysi Taflands gagnvart ófriði þessum mun hafa komið þeim að nokkru haldi. En nú er sem sé svo að sjá að Taflandsstjórn hafi í ill- deilu þessari tekið afstöðu með Búrmastjórn. Horfur eru taldar á að það ríði baggamuninn í stríði þessu, búrmsku herfor- ingjaklíkunni í vil. Bandaríkjastjórn hefur, með hliðsjón af ástandinu í landa- mærahéruðum Búrma og Ta- flands Búrmamegin, lýst yfir óánægju með það að Tafland skuli gera karenskt flóttafólk afturreka og borið fram mót- mæli við Taflandsstjórn af því tilefni. AKUREYRARBÆR LEIKSKÓLADEILD Leikskólakennarar Leikskólakennarar Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða leikskólastjóra við ieikskólann Kiðagil frá 1. júní 1997. Einnig er auglýst eftir leikskólakennurum í stöðu að- stoðarleikskólastjóra á leikskólann Iðavöll og í almenn- ar stöður á ýmsum leikskólum. Nánari upplýsingar gefa deildarstjóri leikskóladeildar og leikskólaráðgjafar í síma 460 1450. Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK/Félags ís- lenskra leikskólakennara og Launanefndar sveitarfé- laga. Umsóknarfrestur er til 20. mars nk. UMHVERFISDEILD Verkstjóri - Flokksstjórar Verkstjóri og flokksstjórar óskast til starfa við UNGLINGAVINNU og SKÓLAGARÐA í sumar. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa reynslu af verkstjórn/flokkstjórn og garðyrkjustörfum. Upplýsingar um störfin eru veittar á skrifstofu umhverf- isdeildar í síma 462 5600. Umsóknarfrestur er til 26. mars nk. Eftirtaldar stöður garðyrkjufræðinga eru lausar til umsóknar hjá umhverfisdeild: Forstaða unglingavinnu og skólagarða Akureyrar- bæjar Umsækjandi þarf að vera garðyrkjufræðingur, hafa reynslu af garðyrkjustörfum, verkstjórn og stjórnunar- störfum. Garðyrkjufræðingur hjá garðyrkjudeild Umsækjandi þarf að vera garðyrkjufræðingur og hafa reynslu af garðyrkjustörfum og flokksstjórn. Laun samkvæmt Launanefnd sveitarfélaga og Starfs- mannafélags Akureyrarbæjar. Upplýsingar um störfin veitir umhverfisstjóri í síma 462 5600. Umsóknarfrestur er til 21. mars nk. BÚSETU- OG ÖLDRUNARDEILD Við mötuneyti öldrunarþjónustu Akureyr- arbæjar í Hlíð eru eftirtalin störf laus til umsóknar: Staða yfirmatsveins: Verksvið yfirmatsveins er að sjá um allan rekstur eld- húss og mötuneytis í Hlíð, aðdrætti, skipulag og verk- stjórn við eldamennsku. í mötuneytinu eru allir íbúar Hlíðar auk starfsmanna í fæði en þaðan er einnig flutt- ur matur til annarra stofnana. Krafist er sveinsprófs í matreiðslu og er reynsla af rekstri mötuneytis æskileg. Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Launanefnd- ar sveitarfélaga. Staða aðstoðarmatsveins: Við hlið yfirmatsveins og undir hans stjórn er ætlunin að starfi aðstoðarmatsveinn og mun hann taka vaktir á móti yfirmatsveini. Sveinspróf í matreiðslu er skilyrði. Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Launanefnd- ar sveitarfélaga. Umsóknir ásamt prófskírteinum skulu berast starfs- mannadeild á eyðublöðum sem þar fást. Upplýsingar um störfin veitir deildarstjóri búsetu- og öldrunardeildar í síma 460 1400. Umsóknarfrestur vegna beggja starfanna er til 21. mars nk. Umsóknareyðublöð fyrir öll störfin, fást í starfsmanna- deild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Nánari upplýsingar um kaup og kjör eru gefnar í starfsmannadeild Akureyrarbæjar í síma 462 1000. Starfsmannastjóri. __________________________________________________________/ BELTIN UUMFERÐAR RÁÐ

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.