Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Page 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Page 8
8 - Laugardagur 8. mars 1997 |Dagur-®mírat PJÓÐMÁL JOagnr- Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 563 1600 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639 Ilarmur útvarpsráðs í fyrsta lagi Hvað fyndist mönnum um það að Alþingi fjallaði um teiknimyndafígúruna Bogga blaðamann eða spaugar- ann Ragnar Reykás? Eitthvað þarfara að gera? Já, og það hafa fulltrúar Aiþingis í æðsta dagskrárráði Ríkis- útvarpsins líka. En þeir koma saman og harma einum rómi Dagsljóssþátt af því að þar var gert grín að menntamálaráðherra. Maður á erfltt með að ímynda sér alvöruríki, sem vill kenna sig við vitsmunalíf, þar sem fulltrúar þjóðþingsins í helstu menningarstofnun hafa ekkert þarfara að gera. Hvað er í gangi? Pað sem er í gangi er botnlaus misskilningur á nánast öllu sem viðkemur íjölmiðlun, opinni umræðu, hlut- verki útvarpsráðs og dagskrárgerð. Við sem horfum á sjónvarp erum alveg fullfær um að meta dómgreind og skort á henni í Dagsljósi - og höfum satt að segja oft látið álit okkar á þeim þætti í ljós hér í blaðinu. Það er líka gert í öðrum fjölmiðlum og kafflstofum landsins. Og það gera þeir sem harma sinn hlut, sjálf- ir, til dæmis á heimasíðunni sinni. Mjög margt í Dags- ljósi einkennist af húmors- og dómgreindarleysi, en þá fyrst gerir útvarpsráð alhugasemd þegar gert er grín að sjálfum menntamálaráðherranum! Ilugsið ykkur, sjálfum menntamálaráðherranum! Búum við virkilega í landi þar sem æðstu ráðamenn njóta sór- stakrar grínverndar? í þriðja lagi Grínvernd ríkisins? Á maður að trúa því að ráðherra og vinir hans í flokknum hafi komið saman til að ræða þetta alvörumál, og fengið ráðið allt til að taka það föstum tökum að fluttur var í sjónvarpi lélegur brandari? Eigum við von á því að í framtíðinni sinni útvarpsráð því hlutverki að vernda okkur fyrir léleg- um bröndurum í sjónvarpinu? Eða ekki réttri tegund af húmor? Eða ekki vel staðsettu glensi? Miðað við dagskrána að undanförnu hefur útvarpsráð nóg að gera á næstunni. Við heimtum svör við þessari spurn- ingu: hverjum má herma eftir í sjónvarpi, hvenær og í hvaða tilgangi? Ekki verður öðru trúað en allir lands- menn njóti jafnræðis af hálfu hollustueftirlitsins. Stefán Jón Hafstein. V________________________________________________________________V Spivtnutty dctg^ín^ Er eðlilegt að færa völd til Landhelgisgæslu þannig að hún megi og eigi að taka völd, þegar sjávarháski vofir yfir? Gunnar Tómasson forseti SVFÍ Löggjafinn á að hafa völd til að grípa inní í íslenskri lög- sögu þegar almannaheill krefur, hvort heldur er á sjó eða landi. Sævar Gunnarsson formaður Sjómanna- sambands íslands s Eg tel að heimildir eigi að vera fyrir því að taka völd af skipstjórnarmönnum, en hvort það á að vera Land- helgisgæslan eða einhver annar, til dæmis sam- gönguráðuneyti, skal ég ekki segja um. Gæslan getur verið beinn hags- munaaðili, vegna björg- unarlauna. Erlendum skipstjórum hættir til að vanmeta aðstæður, eins og gerðist við Þjórsárósa. ♦ ♦ Ragnhildur Hjaltadóttir form. Rannsókna- nefndar sjóslysa Það er enginn færari um að meta hvort skip er statt x' hættu en skipstjórinn. Þetta er mikil ábyrgð, en hana á skipstjórinn að bera. Hilmar Snorrason skólasljóri Slysavarnaskóla sjómanna Vald skipstjóra er ótvírætt, sam- kvæmt lögum. En hitt er annað að vanda- mál skapast eins og í þessu atviki við Þjórsár- ósa. Það kemur vissulega til greina að auka völd Landhelgisgæslunnar, í málum sem þessum. Sirkusstjórar „Sjálfum er mér nokk sama hvort Jón í Skífunni eða einhver banka- stjóri á Manhattan í Nýju Jórvík stjórnar sirkusnum á Lynghálsi og rekur þar fleiri menn en hann ræður .... Ég hef hins vegar áhyggjur af því að rekstrargrund- velli litlu sjónvarpsstöðvanna úti á landi, sé nánast kippt burtu og engin fyrirsjáanleg samkeppni eða framþróun er í sjónvarpsmál- um vegna gleypigangs og yfir- gangs markaðsráðandi afla.“ - Leiðari Fjarðarpóstsins. SaatuwL~ Barmafullur ríkissjóður „Nú stöndum við frammi fyrir því að þjóðarsáttarárin eru orðin sjö en áttu aldrei að verða nema tvö eða þrjú; að hagnaðurinn hefur margfaldast miðað við það sem búist var við. Nú er svo komið að það flóir meira segja út úr ríkiskassanum á fjóra vegu. Þeir eru í vandræðum með hvað þeir fá mikið inn í hann, en þeim dettur samt ekki í hug að hækka skattleysismörkin ....“ - Pétur Sigurðsson í Alþýðublaðinu. Tölfrœðihugsunin „Það er merkilegur andskoti hvað ýmsar ómerkilegar tölur geta orðið stórar ef þær eru teknar saman í lengri tíma. Þannig getur skeð að það sem engum óx í augum, verður allt í einu óyfirstíganlegt ef þú asnast til að hugsa tölfræðilega um mál- in.“ - Jonni á Uppsölum í Degi-Tímanum í gær. Mjólkurlaus börn við Dagsbrún Islensk verkalýðsbarátta hefur staðið í þrjá aldarfjórðunga og stöðugt færast fleiri launþegar undir fátækramörkin. Land hinna mörgu tækifæra borgar víða lægri laun en Suður-Evrópa og brátt sigl- ir Austur-Evrópa sjálfsagt fram úr íslend- ingum líka. Verkalýðsforystan heldur samt sínu striki og boðar áfram verkfóll eins og í gamla daga. Verkföll eru úrelt þing og arfur liðins tíma. Svisslendingar lærðu fyrir löngu að verkfóll borga sig ekki en íslensk verkalýðsforysta þekkir því miður ekki annan rétt en hnefarétt- inn. Nútíminn gerir hins vegar kröfur um þroskaðri hugsun í kjaramálum og samn- ingamenn leysi verkfallsverði af hólmi. Nútíðin veit líka að samtíðin mun brátt skammast sín fyrir fortíðina. En fortíðin lifir góðu lífi í kjarabarátt- unni. Sorglegt dæmi um fortíðardýrkun eru boðuð verkföll hjá Dagsbrún og Framsókn á næstu vikum. Áfram er ráð- ist á garðinn þar sem hann er Iægstur: Ráðist á lítil börn. Fyrsta verkfallið er boðað hjá Mjólkursamsölunni til að skrúfa fyrir mjólkina til barnanna í Reykjavík. Verkfallsverðir á landsbyggð- inni ætla svo að stöðva allar tilraunir Reykvíkinga til að sækja mjólk út fyrir borgarmörkin. Hvað hefur barnæska Reykjavíkur gert þessu fólki? Pistilhöf- undur er þess fullviss að litlu börnin mundu fúslega samþykkja hærri laun til Dagsbrúnarmanna ef þau mættu ráða. Samt ráðast þeir á börnin í borginni. Af hverju Dagsbrún, og fyrir hvern? Pistilhöfundur hef- ur jafnan staðið með þeim sem lægst hafa launin þegar kjara- mál eru á dagskrá. En í verkföllum skilja leiðir. Verkalýðsfor- ystan verður að þekkja sitt hlutverk að halda fullri vinnu fyrir alla hvað sem tautar og raular. Það gerist ekki með því að leggja niður vinnu. Fólk býr sér ekki í haginn með því að laska vinnustað sinn og atvinnu- grein. Ekki heldur með því að um- kringja önnur fyrirtæki og banna þeim allar bjargir. Á meðan fyrirtækin eru umsetin þiggja verkfallsmenn svo bætur úr alþjóða sjóðum og leita að annarri vinnu. í vinnustöðvun gerir andinn á bakvið verkfallið hins vegar ráð fyrir að hvorugir starfi: Starfsfólkið vinni ekki og fyrirtækin opni ekki fyrir viðskipti. Verkföll eru hreint og klárt ofbeldi við atvinnureksturinn. IJjól og stegla á þjóð- félagið og verða engum manni að gagni. En vilji íslensk verkalýðsfélög halda áfram að dýrka fortíðina með hjóli og steglu sæmir þeim betur að takast á við sína eigin vinnuveit- endur og hlífa börn- um Reykjavíkur. Byrja á vinnustöðum sínum í stafrófsröð eða eftir launatöxtum eða einhverju öðru forriti. Mest yrði þeim sæmdin að slást við þá vinnuveit- endur sem þora að taka á móti og berja frá sér. Dagsbrúnarmenn ættu að um- kringja vinnustaði sem kalla ekki allt ömmu sína og taka Lögregluna í Reykja- vík úr umferð eða Varnarliðið á Kefla- víkurvelli. Ekki bara Mjólkursamsöluna. Félög sem ráðast með ofbeldi á þjóðfé- lagið verða að sýna bæði þrek og þor og mega ekki einblína á mjólkurlaus börn í leikskólum. Menn sem vilja stöðva heiminn verða að hafa tímann fyrir sér. Alþýðusamband íslands er ekki sam- nefnari fyrir alþýðu manna í landinu frekar en Þjóðviljinn speglaði vilja þjóð- arinnar á sínum tíma. Almenningur landsins er hinn borgaralegi meirihluti þjóðarinnar og enginn annar: Fólkið sem þvinganir verkfalla beinast að og bitna á. Gæfa verkfallsmanna hefur löngum verið að borgarastéttin er sein- þreytt til vandræða og hefur alltaf litið á ofbeldi sem fastan lið í vinnudeilum. Eins konar náttúrulögmál sem ekki tjóar að fást um. En viðhorf til ofbeldis eru að breytast í heiminum eins og rétt- arhöldin gegn níðingum á Balkanskaga bera vott um. Einn góðan veðurdag kann því að fara svo að alþýða manna berji í borðið og segi: Ilingað og ekki lengra, piltar! Verkfallsmenn Dagsbrúnar ættu að ná sáttum við æsku Reykjavíkur áður en foreldrar í borginni staðfesta að þeir eru hvorki of feitir til að flýja eða of latir til að berjast. / Jíanneó

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.