Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 10
10- Laugardagur 8. mars 1997 |Dagur-®mxmrt Menntamálaráðuneytið Menningarsjóður íslands og Finnlands Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og íslands. í því skyni veitir sjóðurinn ár- lega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum, stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á. Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina. Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir síðari hluta árs 1997 og fyrri hluta árs 1998 skulu berast sjóðsstjórninni fyrir 31. mars 1997. Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin á fundi sjóðsstjórnar í lok júní nk. Áritun á íslandi: Menntamálaráðuneytið, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Sérstök um- sóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands, 6. mars 1997. Aðalfundur 1997 Aðalfundur Gúmmívinnslunnar hf. verður haldinn laugardaginn 15. mars 1997, í Stássinu, Glerárgötu 20, Akureyri og hefst fundurinn kl. 18. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. grein sam- þykkta félagsins. 2. Önnur mál löglega borin upp. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðaifund. GÚMMÍVINNSLAN HF. Réttarhvammi 1 • Sími 461 2600 Oska eftir að ráða prentara til starfa Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um vaktavinnu gæti verið að ræða. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri (Leifur) í síma 462 4166. LIMMIÐAR NORÐURLANDS HF. Strandgötu 31 • 600 Akureyri Sími: 462 4166 • Fax 461 3035 Hamar félagsheimili Þórs: Salir til leigu Tilvaldir til hvers konar íþrótta- og tóm- stundaiðkana. Gufa - Pottur - Búningsaðstaða Hamar sími 461 2080 Útsoía áCandy heimilistækjum P J Ó Ð M Á L Leikskóli Björg Bjarnadóttir skrifar Uppbygging leikskóla á ís- landi er víða tii fyrir- myndar en í mörgum sveitarfélögum þarf að gera verulegt átak til að hægt verði að tala um leikskóla fyrir öll börn. Til að það verði hægt þarf að vera fyrir hendi tilboð um leikskóladvöl fyrir öll börn frá því að fæðingarorlofi lýkur til sex ára aldurs óski foreldrar þess. Það virðist sem svo að margar sveitarstjórnir miði upphaf leikskólagöngu við tveggja ára aldur barna og byggi áætlanir um uppbygg- ingu leikskóla á þeim leiða mis- skilningi að börn skuli ekki byrja í leikskóla fyrr. Skyldur sveitarfélaga Frá því að lög um leikskóla voru samþykkt á Alþingi 1994 er leikskólinn skilgreindur sem fyrsta skólastigið í landinu og 6r ætlaður fyrir börn undir skólaskyldualdri. Bygging og rekstur leikskóla skal vera á kostnað og í umsjón sveitar- stjórna og er þeim skvlt, að hafa forystu um að tryggja börnum dvöl í góðum leikskóla. Það er staðreynd eins og öllum er kunnugt að fæðingarorlof hér á landi er einungis 6 mán- uðir. ísland er þar eftirbátur annarra norðurlandaþjóða í því sem og mörgu öðru er lýtur að aðbúnaði og kjörum ijöl- skyldna, þar með talið barna í landinu. Það gefur auga leið að stutt fæðingarorlof gefur ekki foreldrum möguleika á því að velja um það að vera heima með ungum börnum sínum standi hugur þeirra til þess. Því miður er það staðreynd að sveitarfélög bregðast ekki á fullnægjandi hátt við þessum aðstæðum í samræmi við óskir foreldra því yngstu börnunum er víða úthýst úr leikskólunum. Réttur barna Það er fyrst og fremst réttur barnsins að fá að vera í leik- skóla. Það að vera í góðum leik- skóla hlýtur að vera krafa for- eldra fyrir börn sín, hversu ung sem þau eru. Hve lengi dags barnið dvelst í leikskólanum fer eftir aðstæðum og óskum hvers og eins. Því hefur stund- um verið fleygt fram að heimil- in og leikskólinn keppi um börnin og að leikskólakennarar haldi því fram að það að vera í leikskóla sé það besta fyrir börn í nútímaþjóðfélagi. Þetta er misskilningur. Leikskóla- kennarar líta á leikskólaupp- eldi sem nauðsynlega viðbót við foreldrauppeldið og leggja áherslu á góða samvinnu og Það er réttur barnsins að fá að vera í leikskóla. Að vera í góðum leikskóla er krafa foreldra. traust milli foreldra og leikskól- ans, ávallt með velferð og hag barnsins í fyrirrúmi. í þessu sambandi má benda á að rann- sóknir sýna að eftir því sem börn byrja fyrr í leikskóla standa þau sig betur hvað varðar ýmsa þroskaþætti seinna í skólagöngu sinni. Þetta er að margra áliti mikilvæg- asta forsendan fyrir nauðsyn leikskólauppeldis fyrir öll börn og ætti að vera hvatning til sveitarstjórnarmanna til að koma á móts við þarfir yngstu barnanna. Skóli fyrir börn frá 6 mánaða aldri Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta litla fallega orð skóli geti verið fráhrindandi í hugum ein- hverra í þessari umræðu. Fólki finnist það ekki viðeigandi að tala um skóla/skólagöngu fyrir nokkurra mánaða gömul börn, hvað þá hugtakið að læra eða menntun. í uppeldisáætlun leik- skóla er kveðið á um uppeldis- og námssvið. Eitt þeirra er leik- urinn. Gildi leiksins fyrir þroska barnsins er löngu við- urkennt af fræðimönnum. Leik- urinn er hið eðlilega tjáningar- form barnsins og í gegn um hann læra börn og afla sér þekkingar. Þau fá útrás fyrir tilflnningar sínar, sköpunar- og hreyfiþörf. Hugmyndaflug barnanna og forvitni birtist í leiknum, svara er leitað og rökhugsun efld. Börnin iæra að vinna saman, taka tillit, virða rétt og sam- skiptareglur. Annað námssvið í uppeldis- áætlun leikskóla er umönnun og daglegar venjur. Því yngri sem börnin eru því meiri natni þarf að leggja í þennan þátt uppeldisstarfsins. Þar er lögð höfuð áhersla á tilfinninga- tengsl, traust og öryggi. Smám saman verða börnin sjálfbjarga og móta sína eigin sjálfsmynd í samskiptum sínum við önnur börn og starfsfólkið. Starfið í leikskólanum mótast einnig mjög af venjubundnum athöfn- um sem lúta að líkamlegum þörfum barnanna, máltíðir, hreinlæti, hvfld, klæða sig o.s.frv. Að annast börnin and- lega og líkamlega af ábyrgð, hlýju, virðingu og áhuga er grundvallaratriði í öllu leik- skólastarfi. Leikskólaheitið skírskotar til þess fjölbreytta uppeldis- og menntastarfs sem fram fer í leikskólum og ætti því ekki að valda nokkurri tortryggni í hugum fólks. Til gamans má geta þess að latnesk/gríska orðið schola þýðir í uppruna- legri merkingu tómstundir sem notaðar eru til náms. Framtíðarsýn Áður en hægt verður að tala um leikskóla fyrir öll börn þarf margt að koma til. Það sem þar vegur þyngst er að mínu mati viðhorfsbreyting. Að litið verði á leikskólann sem sjálfsagðan hluta í skólakerfinu, og hann hugsaður fyrst og fremst vegna barnanna og þeirra þarfa er þar mikilvægast. Uppbygging leikskóla þarf að vera ofar á forgangslistum margra sveitar- félaga. Til að efla leikskólastarf þarf að gera átak í menntunar- málum leikskólakennara, því víða er skortur á fagfólki og það háir leikskólastarfi veru- lega. I menntun leikskólakenn- ara þarf að taka mið af því að öll börn eigi rétt á leikskóla- dvöl. Þar er átt við að námsefni og verkleg þjálfun v/yngstu barnanna verði ekki fyrir borð borin. Lengja þarf fæðingaror- lof og gefa báðum foreldrum kost á því. Það er réttur barns- ins og barátlumál sem allir ættu að geta sameinast um. Áfram mætti eflaust lengi telja, en að lokum er ekki hægt að láta hjá líða að benda á nauð- syn þess að hækka laun þeirra stétta sem eru í umönnunar-, uppeldis- og menntageiranum svo þau verði eftirsóknarverð- ari. Til þess er tækifæri nú. Höfundur er formaður Félags íslenskra leikskólakennara. Hreinsum leður, rúskinn og mokkafatnað Sendum í póstkröfu. Góö þjónusta í yfir 40 ár. Efnalaugin Björg, Háaleitisbraut 58-60, Álfabakka 12 í Mjódd og Grímsbæ við Bústaðaveg.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.