Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Síða 2
14 - Laugardagur 8. mars 1997 Pitgur-®faimm
Fyrir
smáfólkið
Þetta er helgin sem gott er að eiga
góða að. Alla vega fyrir þá sem eru
að fara á árshátíð og þurfa að
bjarga barnapössun. Hinir láta ekkert
veislustand í þjóðfélaginu raska ró sinni
og eyða helginni í faðmi fjölskyldunnar
eins og venjulega. Fyrir þann hóp kemur
Dagur-Tíminn með nokkrar uppástung-
ur.
Uppstoppuð dýr
Náttúrugripasöfn eru fyrirtaks stoppu-
staðir í sunnudagsbíltúrnum. Börnin
njóta þess að valsa um og skoða upp-
stoppuð dýr og ekki spillir fyrir að
skemmtunin getur jafnframt verið fræð-
andi. Safnverðir hafa oft frá ýmsu fróð-
legu að segja og heyrst hefur að þeir séu
upp til hópa einstakar barnagælur.
Allir í sund
Nú þegar sól er óðum að hækka á lofti
er tilvalið að rifja upp kynnin við sund-
laug staðarins. Eftir ærsl og læti í sundi
með börnunum, afslöppun í pottinum og
jafnvel gufu, bragðast helgarsteikin mun
betur en ella.
Leikhúsin
Peir sem hafa verið lítið duglegir við
leikhúsin í vetur eiga enn möguleika að
drífa sig með smáfólkinu. Trúðaskólinn
er sýndur klukkan 14 í Borgarleikhús-
inu, í Loftkastalanum er Áfram Latibær
og Litli-Kláus og Stóri-Kláus skemmta
börnunum í Þjóðleikhúsinu.
Hvað er í bíó?
Hinir, sem eru búnir að sjá öll leikritin,
gætu brugðið sér í bíó. Þar er eitt og
annað sem börnin hefðu gaman af að
sjá. Gullbrá og birnirnir þrír eru í
Stjörnubíói og rétt er að benda á að
krakkar sem eiga bókina sem myndin er
byggð á geta fengið miðann á 300 kr. í
staðinn fyrir 450 kr. ef þeir mæta með
bókina og sýna hana í bíó. í Bíóborginni
er verið að sýna Ævintýraflakkarann og
Hringjarinn í Notre Dame er enn á tjald-
inu í Kringlubíói.
Góð bók gulli betri
Ef hvorki bíó né leikhús heilla er ekki úr
vegi að vera bara heima, kúra sig undir
teppi og lesa hugljúft ævintýri. Þessar
stundir eru með þeim albestu með börn-
unum og engin ástæða til að vera spar-
samur á hið góða.
Baráttudagur kvenna
Alþjóðlegur baráttudagur
kvenna er í dag. Af því til-
efni œtla konur að safnast
saman í Hlaðvarpanum
og velta fyrir sér gagn-
semi jafnréttislaganna og
CEDAW sáttmálans.
íAkureyrarkirkju verður
umrœðuefnið hinsvegar
konur og kristni.
CEDAW sáttmálinn er alþjóðlegur
samningur frá 1979 sem kveður á
um afnám allrar mismununar gegn
konum. ísland hefur skrifað undir sátt-
málann og var hann hafður til hliðsjónar
þegar jafnréttislögin voru samin. En þótt
í fljótu bragði virðist ekkert nema gott
eiga að segja um sáttmálann eru um
hann töluvert skiptar skoðanir. „Margir
femínistar segja að tungumál sáttmálans
sé svo karllægt að hann gagnist ekkert
endilega konum. Hið eiginlega viðmið
sáttmálans sé karlmaðurinn," segir
Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir, lög-
fræðingur og ein þeirra sem mun flytja
erindi í Hlaðvarpanum í dag. Ragnheið-
ur bætir við að þessi sjónarmið hafi síð-
an aftur verið gagnrýnd og ljóst að sitt
legum sáttmálum. Sagt er að
ríkið skuli gera allar ráðstaf-
anir til að tryggja okkur
grundvallarréttindi sem við
höfum nú þegar í öðrum sátt-
málum. Þannig að í raun er
frekar verið að lýsa ástand-
inu en að skapa rétt,“ segir
Ragnheiður.
Fundurinn í Hlaðvarpan-
um er á vegum Kvennalist-
ans og stendur yflr frá 14.00-
17.00. Auk Ragnheiðar munu
Brynhildur Flóvenz, Unnur
Pétursdóttir og Drífa Krist-
jánsdóttir tala og kvenna-
hljómsveitin Ótuktin spilar í
hléi.
Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir, lögfræðingur, efast um að
hinn alþjóðlegi sáttmáli, CEDAW, sé konum gagnlegur í
jafnréttisbaráttu sinni.
sýnist hverjum. En hvað finnst henni
sjálfri?
„Ég efast um gagnsemi þessa samn-
ings en það er ekki vegna þess að hann
sé eitthvað sérlega karllægur að mínu
mati heldur myndi ég rökstyðja það á
annan hátt. Orðalag hans virðist t.d.
vera óljósara en í öðrum stórum alþjóð-
Konur og kristni
Arnfríður Guðmundsdóttir,
doktor í kvennaguðfræði,
mun ræða um konur og
kristni á dagskrá sem List-
vinafélag Akureyrarkirkju og
Félag áhugafólks um heim-
speki stendur fyrir. Dagskrá-
in samanstendur af hádegis-
tónleikum Björns Steinars
Sólbergssonar, organista Ak-
ureyrarkirkju, og fyrirlestri Arnfríðar.
„Hvað segja konur um Krist?“ er yfir-
skrift fyrirlestrarins og mun Arnfríður
fjalla um hefðbundnar kenningar um
Krist og þá gagnrýni sem konur hafa sett
á þær kenningar. Orgeltónleikarnir hefj-
ast í Akureyrarkirkju klukkan 12.00 og
fyrirlesturinn klukkan 13.15. AI
Dregið í
ferðaget-
raun
Margrét Kröyer, útlitshönnuður á Degi-Tímanum, með verðlaunasvarseðilinn. Mynd: as
Nú er komið í ljós hvaða lesandi var
dreginn út í ferðagetraun sem
blaðið efndi til á dögunum. Sigur-
björg Einarsdóttir, Reykjasíðu 18, Ak-
ureyri er sú heppna og nú er bara
spurningin hverjum hún býður með sér.
Verðlaunin eru í boði Samvinnuferða-
Landsýnar: Spánarferð fyrir tvo. Dvalar-
staðurinn er Albir sem er baðstrandar-
bær í nágrenni Benidorm. Fjölskrúðugt
mannlíf, gott veður, friðsæld en samt allt
í boði sem kröfuharðir sólarlandafarar
biðja um.
Nokkuð hefur verið um að lesendur
hafi hringt og verið forvitnir að vita
svörin við spurningnum. Getraunin birt-
ist á forsíðu Lífsins í landinu, fimmtu-
daginn 13. febrúar og fyrir þá sem
geymdu blaðið birtum við hér til gamans
rétt svör.
Rétt svör:
1. Hvergi
2. Frakklandi
3. Mont Blanc
4. Róm
5. Bretlandi
6. Elísabet II.
7. Egyptaland
8. Bretland
9. Holland
10. París
11. Þýskaland
12. Tjener
S
umfjöllun blaðsins í gær um nudd vill
blaðið taka fram að nuddarar á
Nudd- og gufubaðstofunni á Hótel
Sögu og Gerður Benediktsdóttir standa
ekki í því að örva viðskiptavini þó að les-
endur gætu hafa dregið þá ályktun.
Nuddarar hafa fagleg réttindi til að
stunda starf sitt og vonar blaðið að um-
fjöllunin í gær ýfi ekki upp orðspor sem
nuddarar hafa lengi barist hatrammlega
13. Antartíka (Suðurskautið)
14. Kanada og Grænland
15. Franskur franki
16. Waiter
17. Dollari
18. Kanadíski fáninn
19. Bikini
20. Laddi (Þórhallur Sigurðsson)
gegn til að stunda fag sitt í friði. Hins
vegar er nudd ekki bara læknisfræðileg
fyrirbæri heldur komast margir í annað
og léttara hugarástand við nudd. Ætlun
blaðsins var að Ieggja áherslu á þann
þáttinn. Nuddþegarnir, viðmælendur
blaðsins, voru ekki viðskiptavinir þess-
ara nuddara heldur almennt áhugafólk
um nudd, heima hjá sér sem annars
staðar.
Fagleg starfsemi á nuddstofum