Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 4
16 - Laugardagur 8. mars 1997 ®itgur~®tmmri LEIKFELAGIÐ BÚKOLLA SÝNIR í UÓSVETNINGABÚÐ GAMANLEIKINN © g) © g) 1 g) Jll eftir Rick Abbot í þýöingu Guðjóns Ólafssonar Leikstjóri: SKULI GAUTASON SUNNUD. 9. MARS KL. 20.30 NÆST SÍÐASTA SÝNINGARHELGI s © g) © MIÐAPANTANIR í SlMA 464 3550 UÓSVETNINGAB. FYRIR SÝN. S: 464 3617 Leikklúbburinn Locos sýnir: Tíu litlir negrastrákar eftir Agatha Christie 2. sýnlng laugardaginn 8. mars 3. sýning mánudaginn 10. mars 4. sýning miðvikudaginn 12. mars 5. sýning fimmtudaginn 13. mars Lokasýning mánudaginn 17. mars Miðaverð er 600 krónur. Sýningarnar eru kl. 20.30 í gryfju Verkmenntaskólans (gengið inn að norðan). - besti tími dagsins! Freyvangs- leikhúsið Sýnum firna fyndinn gamanleik: „Meb vífib í lúkunum" eftir Ray Cooney Leikstjóri: Hákon Waage 8. sýning laugard. 8. mars kl. 20.30 9. sýning fimmtud. 13. mars kl. 20.30 10. sýning föstud. 14. mars kl. 20.30 11. sýning laugard. 22. mars kl. 20.30 12. sýning sunnud. 23. mars kl. 20.30 Miöapantanir í síma 463 1193 milli kl. 18og20. Á öörum tíma í síma 463 1196 (símsvari) MENNING O G LISTIR Tíu litlir negrastrákar í VMA Tíu manna hópur er fastur á afskekktri eyju. Undar- legir atburðir gerast og einn gesturinn deyr. Síðan sá næsti og næsti. Upp á hillu í húsinu sem dvalið er í eru stytt- ur af tíu litlum negrastrákum. f hvert sinn sem einhver deyr hverfur ein styttan. Og það sem meira er; dauðsföllin ríma við það sem segir í kvæðinu um negrastrákana tíu... Þetta er söguþráðurinn í leikriti sem Locos, leikklúbbur Verkmenntaskólans á Akureyri, frumsýndi á fimmtudagskvöld. Leikritið er eftir ekki ófrægari höfund en Agöthu Christie og mun vera eitt af hennar klass- ísku verkum þar sem ómögu- legt er að sjá út hver er morð- inginn fyrr en í lokin. Gunnar Bergman leikstýrir leikhópnum en honum til að- stoðar er fris Dröfn Jónsdóttir, sem jafnframt er formaður Loc- os. Leikarar eru 12 og þeirra á meðal eru þeir Guðlaugur „Tumi“ Baldursson og Evert In- gjaldsson. „Tumi er leikara- nafnið hans. Mitt nafn er svo sjaldgæft að ég þarf ekkert listamannsnafnt," útskýrir Ev- ert þegar félagarnir mættu til að spjalla við blaðamann um leikritið. Ásökunarrödd á grammafónsplötu Þeir Evert og Guðlaugur eru beðnir um að lýsa söguþræðin- um nanar og segja þeir frá því að þeg- ar fólkið sé að biða eftir ónafngreind- um gestgjafa heyr- ist skyndilega í rödd á gramma- fónsplötu sem ásaki alla í hópn- um um hræðilega glæpi. „Minn ka- rakter á að hafa drepið 21 mann af afríkönskum kyn- stofni," segir Evert. „Og minn er ákærður fyrir að aka yfir tvo krakka á Cambridge," bætir Guðlaugur við. í fyrstu telja gestirnir að um hrekk sé að hræða en þegar einn úr hópnum deyr eftir að drukkið viskí fara að renna á þá tvær grímur. Ekki síst þegar þeir taka eftir að ein negra- stráksstyttan er horfin. Dauði mannsins minnir líka óþægilega á fyrstu vísuna í kvæðinu um negrastrákana: Negrastrákar fóru í boð og þá voru þeir tíu Einn þeirra stóð á öncLinni og þá voru þeir níu. Enn annar gesturinn deyr, önnur stytta hverfur og dauðs- fallið passar við vísu númer tvö. Leikritið gengur síðan út á að finna út hver sé morðinginn. „Ef morðinginn fær að ráða þá Ur sýningunni. Myndin er tekin á æfingu. hafa mun allt fara eins og í síðustu vísunni,“ segir Evert en hún hljómar svona: Einn lítill negrastrákur var nú eftir einn. Hann gekk úit og hengdi sig og þá var ekki neinn. Hvort vilji morðingjans gangi eftir gefa þeir Evert og Guð- laugur hinsvegar ekkert upp um. Spenna og drama Áður en leikhópurinn valdi leik- rit var gerð skoðanakönnun í skólanum og kom í ljós að ílest- ir nemendur vildu fá að sjá Mynd: JHF spennu- og gamanleikrit eða spennu- og drama. „Þar sem við höfðum verið með gaman- leikrit árin á undan völdum við spennu og drama,“ segja þeir. Næsta sýning á „Tíu litlum negrastrákum" verður í kvöld en alls eru áætlaðar sex sýning- ar. „Kannski íleiri ef vel geng- ur,“ segir Evert. Sýningar fara fram í Gryfjunni í VMA og er miðaverði stillt í hóf, miðinn kostar 600 krónur. „Ekki nema 50 krónum meira en í bíó,“ segja þeir félagar brosandi og lofa góðri skemmtun. AI Yrkjandi bæjarstjóri Sigurður Geirdal er ekki bara bæjarstjóri íKópavogí Um daginn las hann ífgrsta sinn upp óbundin Ijóð fyrir kjós- endur sína. Og þegar bœjarstjórnarfundir verða úr hófi leiðinlegir, hressir hann upp á sinnið með smá heilaleik- fimi og hripar niður tœkifœrisvísur... Eg geri mikið af því og hef ort með gamla iaginu í 40 ár,“ segir Sigurður, en beðinn um að birta afrakstur leiðinlegra bæjarstjórnarfunda komu einhverjar vöílur á hann. „Það gæti einhver þekkt... en jæja, ÓK. Það var verið að halda langa og leiðinlega ræðu og ég hékk eitthvað annars hugar fram á borðið og starði svona ósjálfrátt beint á dömu, bæjarfulltrúa. Svo sá ég að hún var farin að skælbrosa svo ég sendi henni limru: Það situr á móti mér meyja og margt vœri gaman að segja en hvað hugurinn gegmir og holdið um dreymir er þannig að best er að þegja. “ „Bara viðvaningur" En Sigurður er ekki bara í tæki- færiskveðskapnum því þegar færi gefst frá önnum embættis- ins laumast hann í tölvuna og ber saman óbundin ljóð - og hefur reyndar gert í áratugi (birtust nokkur ljóð ’59). Þau hefur hann ekki lesið opinber- iega fyrr en í Gerðarsafni í síð- ustu viku. „En ég er bara við- vaningur og ekkert merkileg- ur.“ Sigurður hefur þó lengi fylgst með nútímakveðskap - m.a. vegna áhuga sonarins, Sjóns, á fyrirbærinu. „Þetta gerist yfirleitt þannig, eins og sjálfsagt hjá flestum, að maður fær einhverja hugmynd sem maður losnar ekki við. Þá slæ ég hana inn í tölvuna," seg- ir Sigurður. Næst þegar frí gefst fer hann aftur inn í tölvuna og reynir að koma skikki á upp- haílegu myndina sem hann hafði í kollinum. Óbundna ljóðið finnst honum mun erfiðara viður- eignar. „Það er svo mikill vandi finnst mér að vera orðinn sannfærður um að þetta sé orðið gott. í bundnu setur formið manni skorður og maður breytir því ekki svo glatt. En þarna ætlar maður að búa til ákveðna mynd og heist í sem fæstum orðum og það er ekkert sem bindur mann. Ljóðið til Jóns úr Vör tók fyrst hátt á aðra síðu, svo byrjaði ég að klippa og skera og það tók auðvitað Iangan tíma.“ -Hvað er það sem leggst á huga bæjarstjóra? „Það er nánast allt á milli himins og jarðar. Ég var á upplestrinum með ákveðið þema, tímann og okkur í víðu samhengi, bæði sem eilífð og augnablik.” Gaman af tilraunum krakkanna Uppáhaldsskáld Sigurðar hlaupa til og frá, þau eru svo mörg, segir hann. „Og ég hef Nóltin Ég hef alltaf hugsað mér að nóttin vœri móðirin myrk og mjúk, örmum vefjandi dulúðug og seiðandi vinkona skáldanna. En dagurinn vœri sonurinn og nóttin vœri stundum í vandrœðum með það hvað úr honum yrðt Mér hefur alltaf fundist þetta svona en ég hef hvergi getað fengið það staðfest. Tíminn og vatnið Mérfinnst stundum að líminn sé sömu náttúru og vatnið. Eilífðin einskonar úthaf og augnablikið, eins og lítið tár sem regnið skolar af kinn barns. Tíminn sjálfur eins og beljandi stórfljót sem streymir drynjandifram, úfið og grált eða spegilslétt og lygnt, kliðmjúkt og vinalegt. En spyr okkur einskis, bara kemur og fer dramblátt og óstöðvandi. mjög gaman af þessum tilraun- um krakkanna, unga fólksins. Þau eru svo laus við að vera bundin af nokkru öðru sem þau hafa lært eða lesið. Þau eru svo orgínal og fín. Það er verst að það er alltof lítið gert í skólun- um til að rækta þetta áfram." -Hvaða unga fólk hefur hrifið Þig? „Það eru mjög margir. Gyrðir [Elíasson] finnst mér mjög efni- legur. Ég veit nú ekki hvort maður á að telja Þórarinn [Eld- járn] ungan lengur en hann er mjög sleipur." Og svo þurfti bæjarstjórinn að hlaupa á fund. lóa

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.