Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Page 10
22 - Laugardagur 8. mars 1997 JktgMr-®amrat
Iist best á Liverpool
Það blása vindar um fjölskyldu Guðjóns Þórðarsonar
knattspyrnuþjálfara og sona hans enda eru þeir allir
áberandi í knattspyrnunni. Guðjón hefur verið mikið í
fréttum, síðast sagði hann frá drykkjuvanda sínum og
misklíð við Bjarna, son sinn, sem útlit er fyrir að gerist
atvinnumaður í Bretlandi. Bjarni er ungur að árum og
efnilegur, stefnir hátt í fótboltanum og er ákveðinn í að
breyta leik í atvinnu.
Bjarni er fæddur 26. febrúar 1979 á Akranesi og al-
inn þar upp. Hann er sonur Bjarneyjar Jónasdóttur og
Guðjóns Þórðarsonar. Þau eru skilin. Bæði móður- og
föðurfólk Bjarna er á kafi í íþróttunum, faðir hans er
einn fremsti knattspyrnuþjálfari landsins
og bræðurnir fimm eru allir á kafi í boltan-
um nema sá yngsti.
Báðir albræður Bjarna eru í Þýskalandi.
Þórðin-, 24 ára, er atvinnumaður í knatt-
spyrnu hjá Bochum og Jóhannes Karl, 16
ára, hefur verið au pair hjá honum frá
áramótum og æfir með unglingaliði félags-
ins.
Alltaf bolti
Bjarni byrjaði að sparka bolta um leið og
hann gat staðið í lappirnar og fór á sína
fyrstu æfingu fjögurra eða fimm ára gam-
all að tilstuðlan móðurbróður síns. Bjarni
segist hafa verið mjög spenntur fyrir fyrstu
æfingunni.
„Pabbi var alltaf í fótbolta og það hefur
alltaf verið fótbolti inni á heimilinu. Ég
hugsa að pabbi hafi viljað að ég færi á æf-
ingu en hann píndi mig ekki til þess. Ég
held að það sé alveg á hreinu. En hann ýtti
undir það,“ segir Bjarni.
búnir að bjóða honum að koma og þar var hann í þrjár
vikur. Hann fór svo til Liverpool og var þar í þrjár vik-
ur, síðan í viku hjá Newcastle og svo fór hann til Real
Madrid á Spáni.
„Ég var þar í þrjá daga, spilaði einn leik og æfði einu
sinni. Ég held að það verði ekkert úr því. Á þriðjudag-
inn fer ég til Glasgow Rangers og verð tvo til þrjá daga
þar og spila einn leik. Síðan fer ég til Leeds. Svo vona
ég að þetta sé að enda núna og það komist á hreint eft-
ir þessa ferð hvort ég fer út eða verð heima,“ segir
hann.
Bjarni segist reikna frekar með því að gerast at-
Langaðí að verða bóndi
Bjarni hefur átt sér þann draum að gerast
atvinnumaður í knattspyrnu frá barnæsku
en hefur þó ekki alltaf stefnt jafn staðfastur að því. Sjö
ára gamall tók hann sér frí frá sparkinu og á unglings-
árunum vildi hann verða bóndi. Móðir hans og stjúp-
faðir keyplu þá Þórisstaði í Svínadal og fluttu þangað.
Bjarni var eitt sumar í sveit og hugleiddi þá alvarlega
að hætta, bæði vegna þess hve erfitt var að komast á
æfingar og líka vegna þess að honum fannst svo gaman
í sveitinni.
„Það var skemmtileg lífsreynsla. Mig langaði til að
verða bóndi en fótboltinn varð sterkari. Það er eina
skiptið sem mig hefur langað til að hætta,“ segir hann.
Ótrúlega stoltur
Bjarni hefur verið á fleygiferð frá því meistara-
flokkur ÍA fór í æfingaferð til Kýpur vorið
1996. Þar meiddist hann og varð að fara
í uppskurð. Eftir þær hremmingar
hófst tímabil sem Bjarni segist vera
„ótrúlega stoltur af‘ því að „það er
ótrúlegt afrek að vinna fslands-
mótið og bikarinn."
Það var þó ekki allt tekið út
með sældinni. Á þessum tíma
þjálfaði faðir hans meistaraflokk
ÍA og var mjög umdeilt að hann
skyldi velja son sinn í liðið. Bjarni
þótti þó standa sig vel.
Eftir leiktíðina góðu fór Bjarni
ásamt föður sínum og móður-
ður til Lins í Austurríki og dvaldist
í góðu yfirlæti í viku. Þar fékk hann
oð, „það var ekkert af viti sem þeir
u að’bjóða,“ segir hann.
oraði eina markið
inenningarnir keyrðu svo til Bochum og voru
a viku hjá Þórði Guðjónssyni. Þar æfði Bjarni
1 Bochum og fór svo heim til að taka þátt í und-
ningi fyrir 1 idsleik við íra. í Dyflinni unnu ís-
Jngar á „óti gan hátt 1:0 og ég skoraði mark-
'ftir það hai •> Newcastle samband,“ segir Bjarni
>ar með var boltinn farinn að rúlla. Bjarni fór til
castleogva liar í viku og var boðið að koma aft-
iður en hann fór til Newcastle voru Grasshoppcrs
Bjarni og kærastan hans, Margrét Valsdóttir, ætia að byrja að búa ef samningar takast.
Mamma Bjarna fer með þeim og hjálpar þeim að koma sér fyrir.
vinnumaður í knattspyrnu en bendir þó á
að það sé „ekkert öruggt“. Honum hst
langbest á England, uppáhaldsliðið sitt
Liverpool og Newcastle. „Mér líst
ekkert á Spán. Það er allt annar
heimur,“ segir hann.
Tíminn læknar sár
Bjarni og faðir hans, Guðjón Þórð-
arson, voru í fréttum eftir fyrstu
ferðina til Newcastle. Guðjón hefur
sagt frá því í sjónvarpi að hann hafi
verið drukkinn og þeim hafi lent
saman. Bjarni vill ekkert tala um misklíðarnar við föð-
ur sinn og segist ekkert hafa rætt við hann síðan. Hann
hafi heyrt af viðtalinu við Guðjón og segir að sér finnist
„ekkert um það.“ Eftir atvikið hafi þeir feðgarnir ekkert
hist og pabbi hans hafi dottið út úr viðræðunum og
hætt að koma með í ferðirnar. Bjarni vill ekkert segja
frá því sem gerðist í Newcastle.
„Það er sagt að tíminn lækni öll sár. Við verðum bara
að bíða og sjá. Það hlýtur að lagast,“ segir hann. „Auð-
vitað er maður sár og leiður," bætir hann við og
samsinnir því að samband þeirra feðganna hafi verið
mjög náið, þeir hafi verið góðir vinir.
- Nú er pabbi þinn búinn að viður-
kenna að hann eigi við áfengisvanda að
stríða. Ert þú bindindismaður?
„Nei. Ég er ekki bindindismaður,"
segir Bjarni.
Byrja að búa
Ef samningar takast í Bretlandi ætlar
Bjarni að flytja út með kærustunni sinni,
Margréti Arnbjörgu Valsdóttur, 17 ára
nema í Fjölbrautaskólanum á Vestur-
landi, og mun Bjarney fara með þeim og
hjálpa þeim að koma sér fyrir. Margrét
ætlar að vera utanskóla fram á vor en
sjálfur hætti Bjarni í skólanum síðasta
haust. Margrét segist stefna að því að
læra hárgreiðslu en er ekki búin að
ákveða hvernig hún hagar sínu námi,
hvort hún klárar stúdentspróf eða fer í
nám í breskum skóla næsta haust.
„Ég fór með Bjarna í seinni ferðina til
Newcastle og leist vel á það. Ég held að
það verði ágætt að búa þar en ég kvíði
dálítið fyrir,“ segir hún. Að undanförnu
hefur Margrét búið með Bjarna heima
hjá foreldrum hans. Þau kvíða ekki pen-
ingamálunum því að Newcastle er ríkt
félag og hefur nýlega verið breytt í hlutafé-
lag. Þau vilja ekkert spá í launin en bestu
knattspyrnumennirnir í Bretlandi fá
jafnvirði Qögurra milljóna króna á
viku. -GHS
Bjarni Guðjónsson framherji vonast til
þess að samningar takist við breskt
knattspyrnulið á næstunni og setur þar
uppáhaldsliðið sitt Liverpool ofarlega á
lista. Hann er á leið til Glasgow og Leeds á
þriðjudaginn.