Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 11
glagur-®ómmt
^jUagur vimtitmr
Laugardagur 8. mars 1997 - 23
Munið þið eftir því þegar voru bara til tvœr að-
altegundir afbrauði? Franskbrauð, stundum
kallað aumingjabrauð, og hveilhveitibrauðið
sem var þetta holla. Svona var þetta alla vega í
minningunni þó eitthvað gœtu tegundirnar hafa
verið fleiri í raun.
Auður
fjf* .«¥-| Ingólfsdóttir skrifar
^"^fjálfri fannst mér fransk-
brauðið betra en forðaðist
að borða það. Ekki vegna
þess að ég liefði áhyggjur af
hvort það væri hollt heldur var
mér illa við að vera stimpluð
sem aumingi. Nú er ég löngu
hætt að freistast í franskbrauð-
ið. Ég er auðvitað orðin eldri og
meðvitaðari um hvað ég læt of-
an í mig. En ástæðan er þó fyrst
og fremst sú að nú finnst mér
til fullt af brauði sem hefur þá
eiginleika að vera bæði hollt og
líka gott á bragðið. Ég vel því
grófa brauðið einfaldlega vegna
þess að mér finnst það
betra.
Næringarfræðingar
segja okkur að
stærstan hluta fæðunn-
ar sé æskilegt að fá úr
kolvetnum. Þrátt fyrir
gífurlega sprengingu í
pastaréttum, mikið
kartöflu- og hrísgrjóna-
át, fá flestir enn stóran hlut af
sínum kolvetnum úr brauði.
Það er því eins gott að vanda
valið.
30 til 40 tegundir
Ég hringdi að gamni mínu upp í
Brauðgerð Kristjáns á Akureyri
til að kanna hvort þetta væri
ekki örugglega rétt hjá mér; að
tegundirnar nú væru miklu
fleiri en fyrir 10-15 árum. Eitt-
hvað virðist barnsminnið hins
vegar hafa brugðist mér því þar
fékk ég þær upplýsingar að teg-
undirnar í dag séu ekki mikið
fleiri en áður var. Nýjar tegund-
ir ryðji þeim eldri út. Alls er
Brauðgerð Kristjáns með milli
30 og 40 brauðtegundir á boð-
stólnum. Um 20 tegundir af
svokölluðum sérbrauðum, sem
eru skorin og pökkuð jafnóðum
og viðskiptavinurinn biður um
þau, 10 tegundir af pökkuðum
brauðum (t.d. samlokubrauð)
og 7 tegundir af rúgbrauðum.
Vinsælustu brauðin eru þau
milligrófu, segir Kjartan
Snorrason, einn eigendanna.
Ekki of fín og ekki of gróf. Það
nýjasta um þessar mundir eru
hins vegar brauð úr súrdeigi.
Einhver suðiu--amerísk/spönsk
sveifla í gangi að mati Kjartans.
Alþjóðavæðingin tekur greini-
lega á sig ýmsar myndir.
Er heima best?
Heimabakað er alltaf best,
segja samt margir en ég er nú
ekki viss um það. Hitt er annað
mál að brauðilmurinn sem læð-
ist um húsið þegar brauðið er
bakað heima vekur alltaf upp
sérstakar kenndir. Tilfinning
öryggis og hlýju hríslast um
heimilisfólkið og kannski er það
þess vegna sem brauðið bragð-
ast svo óskaplega vel. Hér kem-
ur ein uppskrift sem fólkið á
mínum bæ er hrifið af.
5 bollar heilhveiti
2 bollar hveiti
5-6 tsk. lyftiduft
2 tsk. natron
n tsk. salt
2'/ msk. sykur
2 bollar sólblómafrœ
1 bolli sesamfrœ
2'á mysa
2/ bolli léttmjólk
Blandið saman þurrefnum
og vætið síðan í með mjólkinni
og mysunni. Deigið sett í 3 form
og bakað í 45-50 mínútur við
200° C hita.
NJÓTIÐ VELi
Þó bakaríisbrauðin séu ekki síðri en þau heimabökuðu, og oft betri, kem-
ur fátt í staðinn fyrir ilmandi brauðilminn sem laeðist um húsið þegar
brauðið er bakað heima.
aí)
7í Lei
eimilis-
hamið
Ananaskaka
Sutinudagskakan:
2 egg
2 dl sykur
1 tsk. rijið sítrónuhýði
2'/ dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 dl rjómi
100 g brœtt smjör
Fylling:
20 g smjör
60 g púðursykur
6 ananassneiðar
Egg og sykur þeytt vel saman
í ca. 5 mín. þar til það er létt og
ljóst. Hveiti, lyftiduft, sítrónu-
hýði og rjómi sett út í, og síðast
brædda smjörið. Bræddu smjöri
og púðursykri smurt inn í form-
ið og raðið svo ananassneiðum í
botninn á forminu. Deigið sett
ofan á sneiðarnar. Kakan bökuð
við 180° í 45-60 mín. Prófið
með prjóni hvort kakan er bök-
uð. Það er ágætt að hafa pappír
í botninum á forminu því stund-
um vill smjör/sykurinn leka nið-
ur úr mótinu. Kökunni hvolft úr
forminu og þá snýr botninn
með ananassneiðunum upp á
kökudiskinum. Góð kaka, falleg
á borði og gott er að bera þeytt-
an rjóma eða sýrðan rjóma með
henni.
Fiskur í eldfóstu
móti.f. 4
500 g soðinn Jiskur, roðflettur
og beinlaus
10 meðalstórar kartöjlur, soðn-
ar og skornar í sneiðar
2 saxaðir laukar, léttsteiktir í
smjöri
Salt og pipar
2 dl kaffirjómi
2 dl mjólk
Borið fram með hrásalati,
brauði, sinnepi og smjöri.
Þessu er raðað í lög í eldfast
mót, kartöflusneiðar, laukur,
fiskur, krydd - smá smjörklípur
á víð og dreif. Efst eru svo kart-
öflusneiðar, raspi stráð yfir og
smjörklípur. Svona getur mótið
beðið þar til passar að setja það
í ofninn, við 225° í 30 mín. Látið
bakast gyllt og gegnum heitt.
Bananakaka
3 egg
150 gsykur
2 þroskaðir bananar
100 g brœtt smjör
Z dl rjómi
'/ tsk. engifer
1 tsk. vanillusykur
Z tsk. lyftiduft
175 g hveiti
Egg og sykur þeytt saman í
þykka eggjafroðu. Bananarnir
músaðir með gaffli og hrærðir
saman við með bræddu smjör-
inu og rjómanum. Hveiti, Iyfti-
dufti, engifer, vanillusykri,
blandað saman og hrært út í
hræruna.
Kakan sett í vel smurt form
og bökuð við 175° í ca. 45 mín.
neðarlega í ofninum. Kakan
kæld og flórsykri sigtað yfir
hana.
Hakkað nautakjöt
m/karrý
500 g hakkað nautakjöt
1 msk. karrý
2 msk. matarolía
1 laukur
2 hvítlauksrif
1 grœn paprika
1 dós saxaðir tómatar
1 dl vatn
salt og pipar
Brúnið kjötið með karrýinu í
heitri olíunni á pönnu. Bætið
fínt söxuðum lauknum út í, og
paprikunni í ræmum. Látið
krauma saman smá stund. Lát-
ið tómatana og vatnið út í og
látið þetta malla saman í ca 15
mín. Bragðið til með salti og
pipar, berið fram með góðum
brauðbollum og hrísgrjónum.
Við brosum
1. Eiginmaðurinn hafði alltaf
verið ótrúr og haldið fram-
hjá eiginkonunni. Nú var
mælirinn fullur fannst
henni: „Ég veit ekki einu
sinni hvort ég trúi því að
hann sé faðir yngsta
stráksins, svo lyginn sem
hann er!“
2 Skilti fyrir ofan snyrtistof-
un: „Flautið ekki á dömuna
sem kemur út af stofunni,
piltar. Það gæti nefnilega
verið hún amma þín.“