Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 14

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Qupperneq 14
26 - Laugardagur 8. mars 1997 s nyrtivörur eru stór og mjög einstak- lingsbundinn þátt- ur í lífi sérhverrar nú- tímakonu enda nota engar tvær konur snyrtivörur á nákvæm- lega sama hátt. Fjöl- miðlakonan Unnur Steinsson, 33 ára, vek- ur hvarvetna athygli fyrir góðan smekk og fallega snyrtingu. Hún er látlaus í andlitshirðu og klassísk, að eigin sögn. Hún málar sig lít- ið, lagar á sér hárið og notar bara varalit og maskara þegar hún fer út á daginn. Almennt séð málar hún sig með mjög daufum litum. Unnur hefur samþykkt að kynna snyrtivörur sínar fyrir lesendum Dags-Tímans. „Ég er voðalega látlaus og lítið fyrir tískusveiflur, frekar klassísk ef eitthvað er. Ég mála mig lítið, nota bara varalit og maskara - það sem mest sést,“ segir Unnur. „Ég tek því rólega á morgnana með yngsta syni mínum og fer bara í sturtu til að hressa mig við. Svo fer ég á flakk eftir hádegið og þá laga ég á mér hárið, set á mig maskara og smá varalit en þetta er allt í daufum litum, rétt að- eins skyggingar.“ J/' tyfa'durvneSA nu. 4 á ' C,/,fc f/">- ^UfUUfA, Unnur Steinsson skara - það sem málar sig lítið á daginn, lagar aðeins á sér hárið ef hún fer út og notar bara varalit og ma- sést mest. Hún notar mest dökka og daufa liti og er lítið fyrir tískusveiflur. Myndir. Pjetur Ófín með naglalakk Unnur er lítið fyrir að mála sig enda hefur liún inikið stundað útiveru og fengið roða í kinnarnar við það. Hún segist hafa verið svo heppin að læra ým- islegt um snyrtivörur af konu sem hefur séð um að farða hana fyrir sjónvarp. Hún starfaði lengi sem flugfreyja og var þá í aðstöðu til að fylgjast með og prófa nýjar og spennandi snyrtivörur. Það var þó ekki fyrr en nýlega sem hún komst upp á lag með að nota púðurmeik. Unnur naglalakkar sig aldrei og finnst „ég ekki fín með naglalakk. Mér finnst ég bara skítug á puttunum." Hún notaði ilmvatn frá Coco Chanel í mörg ár en fékk leið á því og hætti að setja á sig ilm- vatn í tvö ár. Nú notar hún aðeins tvær gerðir af ilmvatni, eitt á daginn og ann- að spari á kvöldin. Unnur er mjög með- vituð um hvernig hún getur notað augnskugga til að breyta augnlitnum og notar helst dökka liti, dökkgrænan eða dökkbláan. t/n"'«'" úAaö/f/ff, Mikið í svörtu - En hvernig er með fatnaðinn? „Maður myndar sér ákveðna línu í fatnaði sem maður heldur sér við þó að það sé gaman að taka inn eitt og eitt. Ég er mjög föst í litum, er ofsalega mikið í svörtu og tek svo með skæra liti, marga bláa liti og græna en ég er minna fyrir rauða, órans og gula,“ segir hún. Unnur segist ekki vera glysgjörn og sér finnist mest gaman að náttúrulegum skartgrip- um, til dæmis sérstökum steinum, þó að hún noti ekki mikið af slíku. „Ég fer Hka í skrínið hjá mömmu ef mig vantar eitt- hvað,“ segir hún. -GHS Unnur er __tcr cvo miog S'

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.