Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 15

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.03.1997, Side 15
IDítgur-'ðSnróm Laugardagur 8. mars 1997 - 27 BÚBBA segir ykkur frá erma- hnappa-safni breska ríkisarfans Sannir áhugamenn um kon- ungborna hafa jafnt áhuga á hinu smæsta sem hinu stærsta í lífi þeirra. Eitt af því smæsta eru ermahnappar sem þó skipa stóran sess í lífi Karls Bretaprins. Það er nefnilega þannig að prinsinn á veglegt safn ermahnappa sem hann skartar við flest tækifæri. í safninu er m.a. að finna nokkra dýrmætustu ermahnappa í heimi. Kvenfólkið í kóngafjölskyld- unum hefur möguleika á að skreyta sig með undurfögrum dýrgripum, meira að segja kór- ónum. En karlarnir hafa ekki jafnmikla möguleika á því að fá útrás fyrir glysgirnina. Vissu- lega geta orðurnar verið æði til- komumiklar en Karl hefur tekið slíku ástfóstri við ermahnapp- ana sína að það má líkja því við ástríðu. - Og það er eins og ermahnapparnir hans Karls gegni öðru og mikiivægara hlut- verki en að vera einvörðungu skraut. Hann hefur þann ávana að grípa um þá, svona rétt eins og til að athuga hvort þeir séu ekki örugglega á sínum stað. Kannski veita þeir honum ör- yggistilfinningu. (Það geta víst ótrúlegustu híutir gert það!). Dýrmætir ættargripir Margir af ermahnöppunum í safni Karls eru dýrmætir ættar- gripir. Þar má finna gripi sem voru í eigu Nikulásar II. Rússa- keisara og Játvarðar VIII. (Þessum sem afsalaði sér krún- unni fyrir Wallis Simpson). Þá erfði Karl marga ermahnappa eftir langafa sinn George V. og afa sinn George VI. Einnig hef- ur Karl auðvitað keypt nokkra glæsilega ermahnappa sjálfur. Verðmæti ermahnappanna sem Karl ber við hin margvís- legu tækifæri, komst í fréttirnar á árinu 1994 þegar brotist var inn í íbúð hans í St. James höll. Þjófurinn komst undan með nokkra dýrgripi og hafði enga hugmynd um hversu erma- hnapparnir eru dýrmætir. Enda bera venjulegir menn ekki ermahnappa sem metnir eru á hundruðir þúsunda ef ekki milljónir króna. (Fyrir utan það að þjófar nota líklega sjaldan slíkt pjátur). Þjófurinn hafði m.a. á brott með sér sívala ermahnappa úr 18 karata gulli. Á öðrum hnappinum er breski fáninn en á hinum sá gríski. (Karl er trúr uppruna sínum því faðir hans rekur uppruna sinn til Grikk- lands). Aðrir hnappar, sem þjóf- urinn seldi skartgripasala fyrir slikk, eru úr hvítagulli og skreyttir safírum og demöntum. Hnapparnir voru gjöf frá móður Karls, Eh'sabetu drottningu, eru þeir metnir á 3000 pund, eða ríflega 300 þúsund krónur. En Karl á miklu dýrari erma- hnappa en þá sem móðir hans gaf honum. í hópi þeirra dýrari eru hnappar sem sá frægi skartgripasmiður Fabergé smíðaði. Hnapparnir eru úr gulh, demöntum og bláum kristal. Prinsinn keypti hnapp- ana sjálfur og eru þeir metnir á allt að 2,5 milljónir króna. Aðrir ermahnappar sem eru í dýrari kantinum, svo ekki sé meira sagt eru úr 18 karata gulli, skreyttir demöntum, rúbín- um og safírum. Þeir eru einnig smíðaðir af Fabergé og voru upprunalega í eigu Nikulásar II. Hann gaf stórhertoganum af Hesse hnappana og það var Prins Lúðvík af Hesse sem gaf Karli ríkisarfa þá í skírnargjöf. íhaldssamur í klæðaburði Karl ríkisarfi er mjög íhalds- samur í klæðaburði og útlitið er allt mjög „pottþétt". Hvernig má annað vera þegar maðurinn hefur tvo einkaþjóna og tvo að- stoðar-einkaþjóna sem sjá um klæðaskápinn! Það eru engar venjulegar skyrtur frá Marks & Spencer sem ermahnapparnir góðu eru settir í. Karl gengur aðeins í sérsaumuðum skyrtum frá fyr- irtækinu Turnbull og Asser. (Prinsinn hefur notað sama númer sl. 25 ár). Karl velur skyrtur með hefðbundnu mynstri en auðvitað eru þær úr bestu fáanlegum efnum. Sam- kvæmisskyrturnar eru undan- tekningalaust úr fílabeinslitu silki. Saga ermahnappanna Það var ekki fyrr en í lok 18. aldar að skyrtuhnappar litu dagsins ljós. Fram til þess tíma voru skyrtur bundnar um úln- liðinn. Á Viktoríutímanum hrif- ust menn af línsterkjunni og þá varð erfitt að hneppa uppslag- inu á erminni. Því fóru menn að nota ermahappa en í þá tíð var yfirleitt málmkeðja á milli hnappanna sem auðvelt var að þræða í gegnum uppslagið. Á þessum tíma voru hnapparnir einfaldir og lítt áberandi en menn freistuðust fljótlega til að gefa skrautgirninni lausan taum. - Farið var að skreyta hnappana með dýrum eðal- steinum frá nýlendunum. Þessi tíska náði hámarki með Fa- bergé, sem varð frægastur fyrir páskaeggin, en smíðaði marga stórkostlegustu ermahnappa sem til eru. Játvarður VII., sá mikli snyrtipinni, hafði auðvitað mikinn áhuga á verkum Fa- bergé. Játvarður VIII. og kona hans Wallis Simpson höfðu mikinn áhuga á nútímalegum skart- gripuin og hlóðu gjöfum hvort á annað. - Þau keyptu gripi frá Cartier, Van Cleef and Arpels og Harry Winston. í marga gripina var grafinn texti. Til dæmis færði Wallis Játvarði erma- hnappa sem í var grafið: „Hold Tight“ og ártalið 7.5.35. Þetta var í takt við íjölskylduhefðina því að það var Viktoría drottn- ing sem var frumherji þeirrar tísku að láta grafa í skartgripi. Karl Bretaprins hefur þann sið að gefa þeim ermahnappa sem hann vill tjá þakklæti sitt. Yfirleitt eru það ermahnappar frá Cartier sem í er grafin við- eigandi texti. Fabergé ermahnappar úr gulli, demöntum og bláum gljábrenndum kristal. Úr, innsiglishringur (sjá litlafingur prinsins á myndinni) og ermahnappar eru að mati Karls, eins og annarra íhaldssamra Breta, það skart sem karl- menn geta leyft sér að bera. Myndin er frá heimsókn prinsins til Nýja Sjá- lands. Karl hefur þann ávana að grípa um ermahnappana. Merki um óöryggi, eða hvað?

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.