Dagur - Tíminn Akureyri - 12.03.1997, Page 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 12.03.1997, Page 2
II - Miðvikudagur 12. mars 1997 4Dagur-®mmm VÍKUR BI^AÐIÐ Vörn fyrir börn Gefa skíðahjáLma til að lána bömum ✓ Adögunum afhenti hópur- inn „Vörn fyrir börn“ á Húsavík tíu skíðahjálma til notkunar í Stöllum í Húsa- víkurfjalli. Hjálmana geta börn sem stunda skíðaíþróttina feng- ið lánaða meðan dvalið er í flalbnu. Nefndin „Vörn fyrir börn“ var sett á laggirnar 1994 og hefur það að markmiði að gera umhverfið eins hættuh'tið fyrir börnin og mögulegt er. Að sögn Hrannar Káradóttur, formanns Slysavarnadeildar kvenna á Húsavík, komu mörg áhugafé- lög í bænum að málinu, en nefndin sjálf er skipuð fulltrú- um frá Húsavíkurbæ, frá Heilsugæslustöðinni og Slysa- varnadeild kvenna á Húsavík. „Nefndin hefur farið víða um bæinn á þessum árum og komið með íjölda ábendinga um hluti sem betur mættu fara, bæði í fyrirtækjum, opinberum stofn- unum og á ýmsum svæðum í bænum, en misjafnlega hefur gengið að fá það lagfært. Nefndin vill með kaupunum á öryggishjálmum fyrir börn, sem eru á skíðum í Stöllunum, tryggja öryggi þeirra eins og hægt er. Aður hefur hópurinn fært Sundlaug Húsavíkur tíu sundvesti, björgunarvesti á Hafnarsvæðið og á Heilsugæslu- stöðinni hefur verið komið fyrir stórri töflu þar sem á eru festir ýmsir smáhlutir ætfaðir til að tryggja öryggi barna á heimil- mn. Með þessari töflu vUl nefndin benda fólki á hvað hægt er að fá til að tryggja ör- yggi barna í heimahúsum. Hér er um að ræða hluti sem t.d. eru settir á borðshorn, á hurðir til að ekki sé hægt að klemma sig á þeim og mottur í sturtu- botna svo eitthvað sé nefnt. í kjölfar úttektar nefndarinnar segir Hrönn að mikið hafl verið gert á barnaheimilinu Bestabæ sem bætt hafi aðstöðu barn- anna hvað hættur varðar og þangað gaf nefndin mottu sem sett er undir leiktæki úti á leik- vellinum. GKJ Þetta fólk hefur starfað í nefndinni „Vörn fyrir börn“ á Húsavík. Myndin er tekin í skála skíðamanna í Stöllum þeg- ar hjálmarnir voru afhentir. Frá vinstri: Birna Sigurbjörnsdóttir, Sveinn Hreinsson, Jane Annisíus og Hrönn Kára- dóttir. Mynd: GKJ IBS Þarikar þingeyings Valíumskamintiir af Alþingi aJóhannes Sigurjónsson að bar til um daginn að einhver krankleiki í formi innanmeina sem höfðu í för með sér steinsmugu nokkra og uppsölur, dró undirritaðan heim í flet úr miðri vinnu. Og þar lá maður fúll til allra átta í ein tvö dægur og undi hag sín- um illa. Við þessar aðstæður þarf að grípa til ýmissa ráða til að drepa tímann og létta lund og þarf maður ekki endilega að vera vandur að meðölum í þeim efnum. Sumir lauma koníaks- fleyg undir kodda og dreypa á í laumi og bryðja svo ópal í blóð- spreng til að hylja gjörninginn fyrir konu og börnum. Aðrir sanka að sér ofbeldis- ellegar klám-myndböndum (nema hvortveggja sé) ef ske kynnni að duga mætti til að blása lífi í líkama og sál. Ég valdi hinsveg- ar róttækari aðferð (svokallað sjokk-treatment á læknamáli) og horfði því uppstyttulaust á sjónvarpsútsendingar frá Al- þingi íslendinga. Brotaheili á Alþingi í þessum útsendingum fór harla lítið fyrir klámi og því síður of- beldi. Útsendingarnar voru þvert á móti einkar róandi og sefuðu sál og líkama, hkt og öfl- ugur endaþarmsstíll eða vænn valíumskammtur, ef marka má umsögn manna sem brúkað hafa þessi andlegu hjálpartæki. Umræðurnar svæfðu sem sé undirritaðan beðfegumann með vissu millibilli. En eitt sinn, þegar augnalok- in voru að þyngjast enn eina ferðina undir frábærlega flat- neskjulegri ræðu einhvers reykjavíkurþingmannsins, þá hrökk ég óþyrmilega við. Ég tók sem sé eftir því að forsætisráð- herra var eitthvað að bauka í bakgrunni á skjánum. Hann sat þar einn ráðherra með blaða- bunka fyrir framan sig og fletti ótt og títt, drap annað veifið niður penna og páraði eitthvað stutt og laggott. Skyndilega verður fyrir hon- um þykkt skjal, sem fangaði at- hygli hans öðru fremur. Hann fletti fram og aftur, klóraði sér í kollinum, hnyklaði brúnir, brokkaði fingrum á borð, setti penna við eyra, velti vöngum og mölbraut greinilega heila. Eftir mikla íhugun og flett- ingar í skjalinu, brá hann á það penna en ógjörningur var að sjá hvort hann var að strika yf- ir, bæta við eða teikna krúsí- dúllur. Að pári loknu virtist honum létta. Brúnir lyftust, hann lagði feginn kollhúfur að auðsjáan- lega loknum heilabrotum. Ilann tók skjölin, staflaði þeim sam- an, seildist eftir umslagi, opnaði það og renndi skjölunum ofan í. En aðeins til hálfs, því þegar skjölin voru að hverfa ofan í umslagið, fékk forstætisráð- herra greinilega bakþanka. Hann rýndi í þann hluta skjal- anna sem upp úr umslaginu stóðu, og nú sást að þau voru í einhverskonar gulbleikum lit. Hann hóf aftur andlitsleikfimi með augabrýr og annað tiltækt og vangavelti nú eins og gamall síðutogari í ofsaveðri í Norður- sjónum í denn. Hlutverk Hamlets hentar illa Davíð En hlutverk og hátterni Ham- lets, að vera endalaust á báð- um, ef ekki öllum áttum, henta ekki forsætisráðherra. Ilann er maður hinna skjótu ákvarðana, hverjar svo sem afleiðingarnar kunna að verða. Og svo varð einnig í þessu máli. Hann hristi snögglega makkann, tautaði eitthvað í barminn, (líklega „lad det svinge", eða „skítt og laggó“). Og með það smellti hann skjölunum ofan í umslag- ið, lokaði því og rétti einhverri hlaupatík þingsins sem væntan- lega hefur komið því rétta boð- leið. Þessi skjaladramatík í þing- inu hefur varla liðið mér úr minni síðan ég leit og óþarfi að taka það fram að pestin rauk úr mér og allar illar veirur við þessa áhorfun. En á manni brenna spurningarnar, ekki síð- ur en á Hamlet heitnum um ár- ið. Hvað var forsætisráðherra að skoða og skrifa á? Var hann e.t.v. að yfirfara handrit að Ieikriti eða sálmabók á leiðinni til útgefanda? Var hann með í höndunum sjálft fjöregg þjóðarinnar, grundvall- arsamning við Evrópusamband- ið sem sviptir fslendinga full- veldinu og bændur fullvirðis- réttinum að fullu og öllu? Eða var hann kannski bara að leggja síðustu hönd á skatta- framtalið sitt og bæta inn á það áður ógleymdum bflastyrk eða duldum dagpeningum frá síð- ustu Djakartaför sinni? Heilsuspillandi sjónvarpsefni Málið snýst sem sé um það að allajafnan vitum við harla fátt um hvað helstu ráðamenn þjóð- arinnar eru að bralla bak við tjöldin þegar þeir halda að eng- inn sjái til. Það sem við fáum að sjá og vita, er yfirleitt aðeins það sem þeir vilja leyfa okkur að sjá og vita. En annað veifið rifar í tjöldin og við sjáum þeim bregða fyrir við allt sitt brambolt og bauk og baktjaldamakk, eins og ég sá Davíð í sínu dularfulla skjala- skaki í þinginu á dögunum. En kannski var Davíð sér fullkomlega meðvitaður um að ég var einmitt að fylgjast með honum á þessari stundu. Hugs- anlega var hann einungis með í höndunum pöntunarlista frá Pizza-hut eða Parafatabúðinni, sem hann fletti svo ábúðarmik- ill, aðeins til að láta mig og hinn sem var að horfa, halda að hann væri stöðugt að puða og púla og vinna íslandi allt. Ég vona bara að það sé langt í næstu veikindi hjá mér. Maga- veikin er að sönnu horfln en ímyndunarveikin og samsæris- sýkingin grassera sem aldrei fyrr. Það er sem sé engum hollt að horfa á útsendingar frá Al- þingi. Ég vísa málinu í traustar krumlur heilbrigðisráðherra.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.