Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Síða 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Síða 4
16 - Föstudagur 14. mars 1997 cUmfhíða£auót !®agm--®írtTtmt að hækka lægstu launin og geri það án þess að mögla. Hann er ekki veglyndur yflr- leitt. Þakklæti? Don’t make me laugh! Nú skal ég ekki draga í efa að atvinnurekendur hafi raun- verulegar áhyggjur af því að verðbólgan gæti farið á skrið og stöðugleikinn margrómaði guf- að upp ef mjög veglegar Iauna- hækkanir færu út í þjóðfélagið allt. En íslenskur atvinnurek- andi sem væri veglyndur í hjarta sér, sanngjarn og réttlát- ur, og - það er best að láta það flakka - þakklátur starfsfólki sínu fyrir stuðninginn í krepp- unni, hann myndi áreiðanlega geta fundið aðferð til að setja saman tilboð til verkalýðslireyf- ingarinnar er fæli í sér veruleg- ar kjarabætur til þeirra á lægstu töxtunum sem um leið væri tryggt að aðrir fengju ekki sjálfkrafa. Verkalýðshreyfingin gæti vart annað en tekið slíku tilboði. Sjálfsagt mætti lengi deila um framkvæmdina en auðvitað er enginn vafi á því að það er vel hægt að útrýma þessum lægstu smánartöxtum án þess að þjóðfélagið eða fyrir- tækin bíði nokkurt tjón af - nema síður væri. Það skortir bara ekki aðeins viljann. Það skortir líka veg- lyndið. Og höfðingskapur hins ís- lenska atvinnurekanda birtist aðeins í því á hve dýran pappír hann lætur prenta ársreikning- inn þar sem gróðinn er tíund- aður, og í því á hve fallegum bflum hann gerir æðstu yflr- mönnum fyrirtækja sinna kleift að aka um á. Mánaðarlaun sem við fáum á nokkrum dög- um, ha? Skyldi aldrei neinn forkólfur at- vinnurekenda segja, þegar þeir koma saman til þess að bregð- ast við kröfum Dagsbrúnar- karla um lágmarkslaun sem allir vita að eru líka of lág - skyldi þá aldrei neinn þeirra segja: „Strákar mínir, við vitum alveg að við getum vel borgað þetta. Eigum við ekki bara að gera það, og losna þannig við að niðurlægja dygga starfs- menn sem hafa þjónað okkur vel á erfiðum tímum, og losa þá við að þurfa að ganga bónarveg eftir lágmarkslaunum á mánuði sem við vinnum okkur flestir hverjir inn á nokkrum dögum? Væri það ekki sanngjarnt, strákar mínir?" Ég sé reyndar ekkert sem bendir til þess að nokkur at- vinnurekandi segi nokkurn tíma svonalagað upphátt. Sennilega yrði hann púaður niður. Enda væri þetta veglyndi og þetta væri höfðingskapur. Og það virðast þeir ekki eiga til. Pistill Illuga var fluttur í Morgunútvarpi Rásar 2 í gœr. Illugi Jökulsson skrifar Sú hrina samningaviðræðna um kaup og kjör launa- fólks, sem nú stendur, hef- ur leitt í ljós ákveðið atriði sem mér sýnist allt í einu að sé ískyggilega áberandi í fari ís- lenskra atvinnurekenda, og því kannski á einhvern hátt sam- gróið okkar þjóðarsál, eða sumra okkar. Það er lítill ágreiningur um atburðarásina í stórum dráttum; launafólk hef- ur á síðustu árum tekið á sig alls konar byrðar til að létta al- varlegri efnahagskreppu af þjóðinni allri, og síðan er kreppan allt í einu blásin af og því er lýst yfir að hér sé komið eitthvert mesta góðæri í manna minnum. Fyrirtækin græða á tá og fingri, enda var þeim lagt allt hugsanlegt lið í Kreppunni miklu, bæði með hagstæðum sköttum hins opinbera og hóf- stillingu launafólksins - engu að síður hafa atvinnurekendur allt á hornum sér þegar talið berst að langþráðum launahækkun- um. Að vísu geta þeir ekki bein- línis - í ljósi hinna glæstu árs- reikninga - haldið því fram með góðu móti að fyrirtækin hafi ekki efni á kauphækkunum; þess í stað er þeim nú umhugað um að varðveita stöðugleikann, gæta þess að verðbólgan fari ekki á skrið og svo framvegis. Tal forystumanna atvinnurek- enda um þessi og þvíumlík at- riði í hagstjórn landsins sýnir reyndar oft ljóslega að þeir líta í rauninni á sig sem ríkisstjórn landsins; þegar þeir eru farnir að vilja leggja hinar stóru línur Tal forystumanna atvinnurekenda um þessi og þviumlík atriði í t.agstjórn landsins sýnir að þeir líta á sig sem ríkisstjórn landsins, segir ma. í grein llluga. sem maður skyldi ætla að væri hlutverk ríkisstjórna, í stað þess að semja einungis um kaup og kjör á grundvelli þess sem fyrirtækin hafa bolmagn til. En látum það liggja milli hluta - fyrirtækin eru sem sé af- ar treg í taumi þegar talið berst að launahækkunum og þó nú hafi verið samið við ýmsar starfsstéttir sitja þeir meðal annarra eftir sem lægst hafa launin, og virðist hvorki ganga né reka í þeirra samningavið- ræðum. Dagsbrúnarmenn, Sóknarkonur, og þess konar fólk. Hinn algjöri skortur atvinnurekenda á veglyndi Ekki ætla ég að hætta mér út í hin fínni blæbrigði samninga- málanna en það er þó deginum ljósara að atvinmrrekendur streitast mjög gegn því að hækka lægstu taxta sína að einhverju marki - því þá færi verðbólg- an af stað. Þó er löngu komið fram að það eru í rauninni tiltölulega fáir sem eru á þessum lægstu töxtum, þeim töxtum sem færa fólk að eða undir fá- tækramörkin og eru þjóðar- smán í þessu skyndilega góð- æri. Það eru hjáróma raddir sem reyna núorðið að halda því fram að fyrirtækin hafi bara alls ekki efni á að borga hærri laun því fólki sem lúrir með þessa smánar- taxta í neðstu þrepum efna- hagskerfisins, en eigi að síð- ur er það at- vinnurekend'- um gjörsam- lega um megn að gera eitt- hvað í málinu - að minnsta kosti meðan þeir eru í rflds- stjórnarleikn- um sínum. Og það sem ég vildi sagt hafa að þessi hrina samningaviðræðna hefði leitt í ljós í fari íslenskra atvinnurekenda er, að því er virðist, alger skortur á veglyndi. Veglyndi og höfðingskap. Það sem þessi hrina samningaviðrœðna hefur leitt í Ijós ífari íslenskra atvinnurek- enda er, að því er virð- ist, alger skortur á veglyndi. Veglyndi og höfðingskap. Veglyndi myndi til dæmis birtast í því að atvinnurekendur hugsuðu sem svo: Jæja, þá er kreppan að baki og ég farinn að græða á ný, þökk sé meðal ann- ars og ekki síst því að starfs- mennirnir voru ekki með neina heimtufrekju meðan þetta reið yfir, og getur það verið - Drott- inn minn dýri! - að þeir lægst launuðu hjá mér séu komnir með svona fáránlega lágt kaup? Ég verð auðvitað að gera eitt- hvað í því og það ekki seinna en núna! En svona hugsar íslenskur atvinnurekandi greinilega ekki. fslenskur atvinnurekandi virðist vera lágkúruleg lítil aurasál sem ætlar að halda eins fast og hann getur í gróðann sinn og það livarflar ekki að honum að í rekstri fyrirtækisins ætti ekki síður að taka tillit til réttlætis og sanngirni gagnvart verst setta slarfsfólkinu en stöðunnar á hlutabréfamarkaðnum. Hann semur kannski um kauphækk- anir ef hann neyðist til þess en hann er ekki svo veglyndur að hann sjái sjálfur nauðsyn þess YOFT/Ð G/C/Y/ /?/?FM/?G/Y/lÐ, D/?V/£> ? DÓ,p/?D A//)SFGJ/?/>/?Ð, £/V TÓ/C5T PÓ /?£> GFE/Ð/? Væri það ekki bara sann- gjamt, strákar mínir?

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.