Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Page 10
22 - Föstudagur 14. mars 1997
|Dagur-'3Iamrat
Akureyri
Fjölskyldan og
fjármálin
f' / Fundur um stöðu Qöl-
jLj skyldunnar í Deiglunni í
kvöld kl. 20.30. Frum-
mælendur verða Pétur Blöndal,
alþingismaður, Guðlaugur Þór
Þórðarson, formaður SUS og
varaþingmaður, og Finnur Birg-
isson, arkitekt. Fundurinn er
öllum opinn.
Flóamarkaður
Hjálpræðishersins
verður opinn í dag kl. 10-17.
Markaðurinn er í húsnæði
Hjálpræðishersins á Hvannavöll-
um 10 og þar er einnig tekið á
móti fatnaði alla daga vikunnar.
Talnaspeki í Bókval
Viltu vita hver örlagatalan þín
er? íris Jónsdóttir, stjörnuspek-
ingur, mun kynna talnaspeki-
kort á Kaffi kveri í Bókval á Ak-
ureyri í dag og á morgun frá kl.
13-19.
Spilakvöld
Mánakórsins
verður haldið laugar-
daginn 15. mars kl. 21
að Engimýri í Öxnadal.
Þetta er þriðja spilakvöldið af
Qórum. Síðast var spilað á 16
borðum. Allir velkomnir.
Tónlist, kyrrð og
íhugun á föstu
Föstumessur eru sungnar í Ak-
ureyrarkirkju á hverju miðviku-
dagskvöldi á föstunni. Næst-
komandi miðvikudagskvöld,
þann 19. mars, verður síðasta
föstumessan og hefst hún kl.
20.30.
Jón Bergmann á
Akureyri
Á laugardaginn kl. 16
opnar Jón Bergmann
Kjartansson myndlist-
arsýningu í Gallerí+. Sýningin
er opin um helgar frá kl. 14-18
til og með 31. mars. Jón Berg-
mann er fæddur í Reykjavík
1967, hann hefur haldið 4
einkasýningar áður, tvær á ís-
landi og tvær í Hollandi. í Gall-
erxi+ sýnir Jón málverk og úr-
klippur úr tímaritum og kallast
hvoru tveggja „Hlutar", saman-
ber hluti af og hluti úr.
Samvinnuferðir-
Landsýn
efna á sunnudagskvöld
til samkomu í Alþýðu-
húsinu á Akureyri und-
ir yfirskriftinni Kátir
dagar - kátt fólk. Þar verða
kynntar ferðir sem ferðaskrif-
stofan býður elda fólki uppá í
ár. Aðgöngumiðar eru seldir á
skrifstofu Samvinnuferða-
Landsýn.
Dagskráin hefst á sunnu-
dagskvöld kl. 19:00. Fyrst er
boðið uppá mat en síðan verða
ferðir kynntar, dregið verður í
happdrætti og ýmis skemmtiat-
riði verða í boði. Þetta er í
fyrsta skipti sem samkoma af
þessu tagi er haldin á Akureyri,
en þær hafa síðustu ár margir
verið haldnar í Reykjavík. Um
3.000 manns eru í ferðaklúbbn-
um Kátt fólk.
Að eignast hund
^ Hundaræktarfélag ís-
lands og svæðafélag
f * H.R.F.Í. á Norðurlandi
verða með fyrirlestur fyrir verð-
andi hundaeigendur kl. 20 í
Galtarlæk (hús Flugbj.sv. gegnt
flugvelli). Fyrirlesturiim er öll-
um opinn.
Höfuðborgar-
svæðið
Vortónleikar
Karlakórs Reykavíkur
verða dagana 15.-
22 mars nk. Þótt
tónleikarnir séu
fyrst og fremst fyrir styrktarfé-
laga eru ávallt nokkrir miðar
seldir við innganginn.
Leirlistarsýning í
Norræna húsinu
Síðasta sýningarhelgi á leirlist
eftir 11 leirlistarkonur frá Dan-
mörku, Finnlandi, íslandi, Nor-
egi og Svíþjóð. Sýningin er far-
andsýning og heimi lýkur á
sunnudaginn.
Kabarett í Kópavogi
A Menntaskólinn að
Laugarvatni sýnir tvær
•rr sýningar á söngleiknum
Kabarett í Félagsheimili
Kópavogs í kvöld kl. 20.30 og kl.
22.45.
Síðdegistónleikar í
Hinu húsinu
Qy Hljómsveitin Moðfisk
* 1 kemur fram á síðdegis-
tónleikum í Hinu húsinu
kl. 17 í dag. Moðfisk spilar ný-
bylgjurokk og hefur fengið góða
dóma fyrir sín verk.
Þóra sýnir í Gallerí
List
Þóra Sigurjónsdóttir leirlistar-
kona er listamaður mánaðarins
í Gallerí List. Þóra stundaði nám
við Myndlistarskóla Reykjavíkur
en undanfarin ár hefur hún rek-
ið vinnustofu á Álafossi í Mos-
fellsbæ. Sýning Þóru opnar í
dag.
Félag eldri borgara
Kópavogi
$***>■ Spiluð verður félagsvist
að Fannborg 8 í kvöld
kl. 20.30.
Suðræn sveifla
Kvennakór Reykjavíkur heldur
funheita tónleika í Borgarleik-
húsinu 17. og 18. mars nk. kl.
20 og 22 báða dagana undir
yfirskriftinni Suðræn sveifla.
Einnig koma fram Tamla-
sveitin og Egill Ólafsson, dans-
ararnir Carlos Sanchez, Bryndís
Halldórsdóttir og Hany Hadaya
og fleiri.
Dagskráin er helguð hinum
blóðheitu þjóðum Suður-Amer-
íku og Afríku en á síðasta ári
hélt kórinn Gospel-hátíð í Loft-
kastalanum og voru sýningar
alls 7 fyrir troðfullu húsi. Miða-
sala er í Borgarleikhúsinu og
einnig verða miðar seldir hjá
kórfélögum. Miðaverð er kr.
1.200.
Sæmundur
Valdimarsson sýnir
Sýning á verkum Sæ-
mundar Valdimarsson-
ar verður opnuð í aðal-
sal Hafnarborgar, menningar-
og listastofnunar Hafnarborgar,
laugardaginn 15. mars kl. 14.
Sigrún Harðar í
Hafnarborg
Laugardaginn 15. mars
kl. 14 verður opnuð í
Sverrissal Hafnarborg-
ar sýning á verkum Sigrúnar
Harðardóttur. Sýning þessi er
unnin út frá þema um hverinn,
þar sem hin músíkalska hlið
hversins er dregin fram í rythm-
isku innsetningarverki, en hug-
= Lífog
hrif forms og lita gerð skil í olíu-
málverkinu.
Smámyndir Elíasar B.
Halldórssonar
Sýning á smámyndum
Elíasar B. Halldórsson-
ar verður opnuð í kaffi-
stofu Hafnarborgar, menningar-
og listastofnunar Hafnaríjarðar,
laugardaginn 15. mars kl. 14.
Dönsk bókakynning
Laugardaginn 15. mars
kl. 16 er röðin komin
að dönskum bókmennt-
um í bókakynningum norrænu
sendikennaranna í Norræna
húsinu. Gestur á bókakynning-
unni að þessu sinni er rithöf-
undurinn Dorrit Willumsen sem
nýlega tók á móti Bókmennta-
verðlaunum Norðurlandaráðs í
Osló.
Laugardagsgangan
Vikuleg laugardagsganga Hana
nú í Kópavogi verður á morgun.
Lagt verður af stað frá Gjá-
bakka, Fannborg 8, kl. 10. Ný-.
lagað molakaffi.
María og krossinn
Sunnudaginn 16.
mars næstkomandi
flytja Mótettukór
Hallgrímskirkju og Schola Can-
torum verkin Stabat Mater eftir
Palestrina, Responsoria eftir
Gesualdo, Magnificat og Sjö
andstef við Magnificat eftir Arvo
Párt og nýtt verk, Te Deum eftir
Hjálmar H. Ragnarsson.
Yfirskrift tónleikanna er
María og krossinn. Þá ber upp á
boðunardag Maríu.
Beethoventríó
Kaupmannahafnar
Sunnudaginn 16. mars
kl. 20 verða tónleikar í
Norræna húsinu þar sem
fram koma ungir tónlistarnemar
við Konunglega danska tónlistar-
háskólann. Á efnisskránni eru
þrjú verk: Tríó í G-dúr opus 1 nr.
2, „Kampavínstríóið eftir Ludvig
van Beethoven. Phantasiestúcke
op. 88 eftir Robert Schumann og
Tríó í d-moll op. 49 eftir Felix
Mendelsohn.
Breiðfirðingafélagið
Félagsvist verður spiluð
á sunnudaginn klukkan
14:00 í Breiðfirðingabúð
Faxafeni 14.
Alliance Francaise hefur
skipulagt bókmenntakvöld
mánudaginn 17. mars kl. 20.30
(Inngangur við Ingólfstorg) í tel-
efni af komu franska rithöfund-
arins Daniele Sallenave, en hún
hefur meðal annars skrifað
skáldsögur, smásögur, leikrit og
ferðafrásagnir. Boðið verður
upp á hressingu og er aðgangur
öllum heimill og ókeypis.
í Vesturheimi
flflj í Vesturheimi er yfir-
* ; skrift síðustu tónleika
Kammersveitar Reykja-
víkur í tónleikaröð vetrarins
sem haldnir verða í Listasafni
íslands mánudaginn 17. mars
kl. 20.30. Á efnisskránni eru
fimm verk sem samin eru í
Bandaríkjunum, þar af eru þrjú
eftir bandarísk tónskáld, þá
Aaron Copland, Michael Torke
og John Adams, og tvö verk eftir
aðílutt tónskáld: Rússann Igor
Stravinsky og íslendinginn Árna
Egilsson
Óbó og píanó í
Gerðarsafni
Eydís Franzdóttir óbóleikari og
Brynhildur Ásgeirsdóttir píanó-
leikari halda tónleika mánu-
daginn 17. mars kl. 20.30 í
Gerðarsafni í Kópavogi. Það er
ekki oft sem íslendingum gefst
kostur á að heyra heila tónleika
þar sem óbóið leikur einleiks-
hlutverkið, þrátt fyrir ijölbreyti-
leika hljóðfærisins. Á efnisskrá
tónleikanna eru verk eftir Mi-
chael Head, Paul Hindemith,
J.W. Kaliwoda, Antal Doráti,
Carl Nielsen og Camille Saint-
Saens.
Landið
Kyrrðardagar í
Skálholti í dymbilviku
Kyrrðardagar verða í Skálholti
á hefðbundnum tíma um bæna-
daga í dymbilviku, 26.-29. mars
og hefjast miðvikudaginn 26.
mars kl. 18 með aftansöng.
Þeim lýkur laugardag fyrir
páska eftir hádegisverð. Að
venju eru þátttakendur vel-
komnir í Skálholt frá hádegi á
miðvikudag til að njóta friðar og
helgi staðarins, áður en formleg
dagskrá hefst. Dr. Sigurbjörn
21. Aðgangseyrir er kr. 800 en
fyrir hjón kostar 1200. Samkór
Rangæinga mun síðar á sunnu-
daginn 16. mars syngja á dval-
arheimilum aldraðra á Hellu og
á Hvolsvelli og um kvöldið kl. 21
heldur kórinn tónleika í Stóra-
dalskirkju.
Draumalandið
D anshlj ómsveitin
Draumalandið leikur
fyrir dansi á fegurðar-
samkeppni Vesturlands
sem verður haldin í félagsheim-
ilinu Klifi í Ólafsvík á föstudags-
kvöldið 14. mars.
„Sálmar og Syrpur“ á
Hótel Húsavík
Sunnudagskvöldið 16. mars og
mánudagskvöldið 17. mars
heldur Stúlknakór Húsavíkur,
undir stjórn Hólmfríðar Bene-
diktsdóttur, kvöldskemmtun
kl:20:00 á Hótel Húsavík.
Hljómsveit, undir stjórn Valmar
Valjaots, sér um undirleikinn.
Skemmtunina kalla stúlkurnar
„Sálma og Syrpur“ því flutt
verður tónlist úr þekktum söng-
leikjum auk negrasálma og go-
speltónlistar.
Leikfélagið Biikolla
Nú fer í hönd síðasta sýningarhelgi í Ljósvetningabúð á leik-
ritinu „Á svið!“ Síðustu sýningar eru á föstudagskvöldið 14.
mars kl. 20.30 og á sunnudag 16. mars kl. 14.
Einarsson biskup annast íhug-
anir en auk hans verða kyrrðar-
dagarnir í umsjón Jóns Pálsson-
ar, rektors Skálholtsskóla og sr.
Guðrúnar Eddu Gunnarsdóttur.
Sr. Guðmundur Óli Ólafsson og
sr. Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup munu einnig annast
helgihald. í Skálholtskirkju
verður sýning á myndröð um
krossferil Krists eftir Önnu Guð-
rúnu Torfadóttur, myndlista-
mann. Upplýsingar um kyrrðar-
dagana og skráning eru í Skál-
holtsskóla í síma 486 8870.
Menningardagar á
Sauðárkróki
Menningarvaka verður á Sauð-
árkróki nk. sunnudag 16. mars,
á vegum MENOR (Menningar-
samtaka Norðlendinga). Menn-
ingarvakan verður í bóknáms-
húsi Fjölbrautarskólans og hefst
kl. 15 en húsið verður opnað kl.
14. Aðgangur að menningar-
vökunni kostar 800 krónur,
ókeypis fyrir börn yngri en 12
ára.
Söngtónleikar í Hvoli
og Stóradalskirkju
Sameiginlegir tón-
leikar Samkórs
Rangæinga og kórs
Grafarvogskirkju verða haldnir í
félagsheimilinu Hvoli í kvöld kl.
Elskendahelgi á
Hornafirði
^ Hornaljörður er einn
sex Gjuggbæja á land-
inu. Næsta helgi verð-
ur ein af sérstökum
áhersluhelgum Gjuggsins á
Hornafirði. Nefnist hún „Elsk-
endahelgi“. Þá er vonast til þess
að ástfangið fólk heimsæki
Hornaflörð og njóti þess sem
þar er upp á boðið á veitinga-
stöðum í mat, drykk og dansi.
Vorhreinsun á sál og
líkama
Boðið er uppá Páskaföstu á
Heilsusetrinu að Lundi í Öxar-
firði dagana 24.-31. mars næst-
komandi. Kolbrún Björnsdóttir
grasalæknir og Ása Jóhanns-
dóttir nuddari og leiðbeinandi
munu aðstoða gesti við að
hreinsa líkamann með jurtum,
föstu og ristilskolun. Einnig
verða gestir leiddir inn í hug-
leiðslur, jóga og skapandi hreyf-
ingu. Fastað verður í sjö daga,
fimm daga eða þrjá allt eftir
persónulegum þörfum hvers og
eins. Skrásetning á námskeiðið
verður að liafa borist fyrir 15.
mars n.k. til Ásu Jóhannsdóttur
í Lundi s. 4652334 eða til Kol-
brúnar Björnsdóttur s. 5521103.