Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.03.1997, Blaðsíða 11
|Dagur-'3Kmimt Föstudagur 14. mars 1997 - 23 FÍNA FRÆGA FÓLKIÐ Ekki lengur fnl Tom Cruise Lengi vel naut hún þeirra vafasömu forréttinda að vera frú Tom Cruise í augum fólks. To Die For breytti því Nú er hún, Nicole Kidman, sjálf orðin númer... Nicole leikur naífa ameríska konu, Isabel Archer, í myndinni Portrait of a Lady, sem tilnefnd er til einhverra Óskarsverðlauna og er hún heilluð af persónunni. „Pað eru svo margir þætti í Isa- bel, sérstaklega spennandi hvers vegna hún laðast svona að dökku hliðunum þegar hún hefur svona mörg tækifæri. Hún velur að taka versta mögulega kostinn. Ég hreifst af því. Mér finnst það miklu meira heillandi en fólk sem alltaf velur réttu leiðina. Það er miklu áhugaverðara að vilja taka vitlausa leið.“ Nicole sjálf velur nefnilega alltaf rétta kostinn. Foreldrar hennar eru vel menntaðir, mamman kennari og pabbi henn- ar, sálfræðingur, skrifaði m.a. metsölubók um „How To Change Your Life“. Pabbinn er afar upp- tekinn af líkamlegri hreysti og á hverjum morgni urðu dæturnar tvær að gera armbeygjur áður en þær fóru í skólann (hann langaði meira í strák). Nicole var svo uppgötvuð á hefðbundinn máta. Dag einn þeg- ar hún var 14 ára að vafra um flómarkað í úthverfi Sidney nálg- aðist ljósmyndari og bað um að fá að taka mynd. OK. Myndin kom á forsíðu útbreidds ung- lingatímarits. í kjölfarið komu fleiri myndir og tískusýningar. En þegar hún var beðin um að fara tii New York í meira fyrirsætu- havarí sagði hún nei. „Mig lang- aði ekki þá leiðina. Ég þoli ekki þegar fólk er alltaf að koma við mig. Mér finnst fyrirsætubran- sinn heldur ekki heilbrigður - maöur verður of meðvitaður um sjálfan sig.“ Það fylgir eyjarskeggjum að vera: „eitt sinn Íslendingur/Ástrali ávallt..." Og ekki skal vanmeta ástr- alskan uppruna Nicole. „Ástralar hafa húmor,“ segir hún. „Englend- ingar hafa sömu tegund af húmor - þurran, gera grín að öllu, ekkert er heilagt. Það finnst mér frábært... Maður verður stundum að vera var- kár í návist Ameríkana, maður gæti sært þá eða þeir taka þig of bók- staflega." Uppskrift að rómantísku kvöldi hjá þeim Cruise og Kidman hjónunum felst í því að panta hótelherbergi í Vegas og horfa á box. Já, box. Þessi kveifarlega lengja, kríthvít á hörund og með Ijósrautt hár segist elska box. (Lstcv&Cfid Teitur Þorkelsson skrifar Bannað að anda Fyrir nokkrum árum lenti vinur minn í slysi, braut á sér nefið og hefur ekki getað andað í gegnum það síð- an. Þetta hefur valdið nokkrum vandræðum við kossa, sérlega þá dýpri og ástríðufyllri því hann getur aldrei kysst lengur en súrefnið endist. Samkvæmt gömlu kossaleiðbeiningabók- inni minni er slíkt svo gott sem dauðasök: Þér skuluð ekki flýta yður við kossana, fremur en neitt annað sem viðkemur ástinni. Kossinn er of unaðslegur til þess að hans verði notið á einu augna- bliki, einu örstuttu augnabliki. Dveljið lengur við varir hennar - lengur en nokkru sinni áður. Gleymið tímanum. Gleymið öllu nema kossinum sem stendur yf- ir. Hegðið yður ekki eins og ungur og feiminn elskhugi sem eftir unaðslegan og langan koss færði sig burt frá munni ást- meyjar sinnar, og hún fór að hágráta á sömu stundu. „Hvað er að þér?“ spurði hann áhyggjufullur. „Þú elskar mig ekki,“ sagði hún kjökrandi. „Víst elska ég þig,“ sagði hann. „Hvers vegna snérirðu þá munninum frá mér?“ „Ég gat ekki andað,“ sagði hann barna- lega. Andað? Hver þarf að anda, hvern langar til að anda í miðjum eldheitum kossi? Andið í gegnum nefið ef þér þurfið að anda. En kyssið og haldið áfram að kyssa eins lengi og nokkur snefill af lofti er í lung- um yðar. QjafakffTi 14 24.900,- sjonvorp 20 33. sjonvorp S VZÍ frá J INAunið gjafakort __ RðDlöraAUS Geislagata 14 • Sími 462 1300 vinnandi menn

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.