Dagur - Tíminn Akureyri - 15.03.1997, Side 5
jDagur-®titmm
Laugardagur 15. mars 1997 - 5
Ólafsfjörður
Hótelið lokað á meðan
Skíðalandsmótið fer fram
Bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar samþykkti
sl. þriðjudag að
falla frá öllum
áformum um kaup á
Hótel Ólafsfirði.
Olíufélagið Skeljungur hf.
hefur rekið hótehð und-
anfarin misseri ásamt
bensín- og greiðasölu áfastri
hótelinu. Iiótelið hætti rekstri í
nóvembermánuði sl. og í byrjun
marsmánaðar sl. var bensínsöl-
unni lokað. Hugmyndin var að
Skeljungur hf. seldi Olíuverslun
íslands hf. (OLÍS) hótelið og
bensínsöluna sem síðan seldi
bæjarsjóði sem aftur seldi Arn-
birni Arasyni bakarameistara
og Birgi Guðnasyni, sem m.a. er
með dekkjaframleiðslu, starf-
semina. OLÍS mun hafa ætlað
að kaupa af Skeljungi hf. til
þess að sitja eitt að bensínsölu í
Ólafsíirði jafnframt því að salan
er liður í uppstokkun olíufélag-
anna á bensínsölu vítt um
landsbyggðina.
OLÍS mun ekki hafa treyst
sér til þess að selja þeim Arn-
birni og Birgi beinni sölu heldur
vill fá bæinn inn í dæmið til
þess að þeirra sala yrði trygg.
Nú hefur Ólafsíjarðarbær hins
vegar dregið sig út úr þessari
„keðju“. Vegna breyttra for-
senda hafa þeir sagst munu
endurskoða hug sinn til kaupa
á hótelinu þar sem ekki takist
Vonir stóðu til að
hótelið yrði komið
aftur í rekstur fyrir
Skíðamót íslands,
sem haldið verður í
Ólafsfirði og á
Dalvík.
að ná í Skíðalandsmótið eða
Landsmót vélsleðamanna. Árni
Ólafur Lárusson, fjármálastjóri
Skeljungs hf., segir að aðeins
eigi eftir að skrifa undir samn-
ing um söluna til OLÍS, sam-
þykkt Bæjarstjórnar Ólafsfjarð-
ar breyti þar engu um.
Vonir stóðu til að hótelið yrði
komið aftur í rekstur fyrir
Skíðamót fslands, sem haldið
verður í Ólafsfirði og á Dalvík,
en ljóst er að af því verður ekki.
Bæjaryfirvöld hafa haft af því
vaxandi áhyggjur ef ekki er
starfrækt hótel í byggðarlaginu.
Auk þeirra hafa tveir aðrir aðil-
ar sýnt hótelinu áhuga með
kaup í huga. Pað eru Ólafsfirð-
ingarnir Árni Sæmundsson,
sem um tíma rak veitingastað-
inn Lúbarinn á Dalvík; og Þórð-
ur Guðmundsson, sem um tíma
rak loðdýrabú að Burstabrekku
í Ólafsfirði. GG
Austurland
Akureyri
Gegn virkj-
anaáformum
Stofnfundur félags um vernd-
un hálendis Austurlands
verður haldinn í Golfskálanum
Ekkjufelli, Fellahreppi, 16.
mars kl. 15.00. Að félaginu
stendur áhugafólk sem hefur á
annað ár Qallað um möguleika
á verndun þessa svæðis, eink-
um með áherslu á vatnasvið
Jökulsár á Fjöllum, Jökulsár á
Dal og Jökulsár í Fljótsdal. BÞ
Reykjavík
Barist gegn
fordómum
s
Idag verða stofnuð samtök
þeirra sem áhuga hafa á sam-
vinnu fólks af ólíkum uppruna.
Þau eru stofnuð í framhaldi af
ráðstefnu sem haldin var í nóv-
ember um kynþáttafordóma á
íslandi. Stofnfundurinn fer fram
í Ilinu Húsinu við Vesturgötu og
hefst kl. 14.00. Fundarstjóri
verður Þóra Arnórsdóttir og
verða frummælendur Ingibjörg
Hafstað hjá Fræðslumiðstöð
Reykjavíkurborgar og fulltrúi frá
Mannréttindaskrifstofu íslands.
Helga Björg Ragnarsdóttir,
ein aðstandenda samtakanna,
segir að hún telji persónulega að
miklir kynþáttafordómar séu á
íslandi og það sé brýnt að breyta
hugarfari þjóðarinnar. „Við er-
um að vekja athygli á þessu máli
og viljum verða menningarlegur
punktur fólks af ólfkum upp-
runa,“ segir Helga. BÞ
í kjötborði KEA-verslunarinnar í Hrísalundi á Akureyri. F.v: Ólafur H. Erlingsson, markaðsfulltrúi kjötgreina hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins; Jónas Þór, kjötverkandi í Gallerí Kjöt; Elís Árnason, Kjötiðnaðarstöð KEA; Bald-
vin Sigurðsson, KEA Hrísalundi og Gústaf Þórarinsson hjá KEA á Dalvík. Mynd:jHF
Átak í kjötsölu
Maðurinn sem kenndi
þjóðinni að borða
nautakjöt, Jónas Þór
kjötverkandi, veitir
ráðgjöf um með-
höndlun á kjöti.
Framleiðsluráð landbúnað-
arins vinnur að sameigin-
legum hagsmunum kjöt-
greinanna en það hefur verið
eitt af hlutverkum Framleiðslu-
ráðs að auka markaðslilutdeild-
ina, en hefur ekki verið sinnt
sem skyldi til þessa. Nú eru
breyttir tímar og ljóst að aðlaga
þarf kjötneyslu landsmanna að
markaðnum og breytingu á
honum og hefur Ólafur H. Er-
lingsson, markaðsfulltrúi kjöt-
greina hjá Framleiðsluráði
landbúnaðarins, umsjón með
því verkefni, þ.e. að viðhalda
neyslunni og helst auka hana.
„Við höfum bryddað upp á
nýrri aðferð í úrbeiningu á
lambi og úr framhryggnum er
gerð „lambakylfa" og með
þessu reynum við að auka Qöl-
breytni kjötborðsins. Lögð er
áhersla á kryddun og tilbúna
rétti og ekki síst á framsetningu
í kjötborðunum, gera það sem
þar er í boði girnilegra. Það
þarf í auknu mæli að koma til
móts við þarfir þeirra sem vilja
fá kjötréttina tilbúna á pönnuna
eða í ofninn. Þannig verður
hægt að auka hlutdeild þeirra á
markaðnum í samkeppninni við
skyndifæðið," sagði Ölafur H.
Erlingsson. í kjötborði KEA-
verslunarinnar í Ilrísalundi á
Akureyri, hefur Jónas Þór kjöt-
verkandi, sem stundum hefur
verið kallaður maðurinn sem
kenndi þjóðinni að borða
nautakjöt, veitt ráðgjöf um
meðhöndlun á kjöti. GG
Smugan
Einhliða kvótaákvörðun sýnir ábyrgð
Sjávarútvegsráðherra, Þor-
steinn Pálsson, hefur sagt
að til greina komi að ís-
lendingar ákveði einhliða kvóta
íslenskra skipa í Smugunni í
Barentshafi ef ekki gangi að
semja við Norðmenn, en kvót-
anum hefur verið skipt milli
Norðamanna og Rússa. Líkur á
samkomulagi eru ekki miklar
sem stendur. Ekki hefur verið
íjallað um þennan stofn í Norð-
uraustur- Atlantshafsfiskveiði-
nefndinni (NEAFC) en einhliða
ákvörðun um kvóta í Smugunni
mundi sýna vilja íslendinga til
ábyrgrar stjórnunar á nýtingu
fiskstofna í Smugunni. Heildar-
magn hefur enn ekki verið
ákveðið, en rætt hefur verið um
13 þúsund tonn og allt í upp í
30 þúsund tonn, sem er það
magn sem Útvegsmannafélag
Norðlendinga hefur sett fram
sem eðlilegan kvóta íslenskra
togara. GG
Þykkvibær
Jarð-
hitinn
er eins
ogolía
Þetta er einsog að finna
olíu. Þetta mun skipta
miklu fyrir byggðarlagið og
með þessu sjáum við fram
á ýmsa möguleika,“ sagði
Heimir Ilafsteinsson, odd-
viti í Þykkvabæ, í samtali
við Dag-Tímann. Heitt vatn
hefur fundist í Þykkvabæ.
Ileitavatnsæðin er á um
1.250 metra dýpi. Hún gef-
ur á þessari stundu um 8
til 9 sekúndulítra af 90
gráðu heitu vatni. Hitastig
verður aftur mælt í næstu
viku og þá skýrast málin
frekar. Að borholunni, sem
er skammt austan megin-
byggðarinnar í Þykkvabæ,
liggja kaldar æðar og fyrir
liggur að fóðra þarf efstu
470 metra hennar.
„Ef ekkert stórslys kem-
ur fyrir þá verður hér lögð
hitaveita í hús á næstunni.
Þá er sundlaug oft fylgifisk-
ur þess að heitt vatn
finnst,“ segir Heimir. Þá
segir hann einnig vel koma
til greina að nýta megi
heitt vatn í sambandi við
kartöíluraiktina umfangs-
miklu í Þykkvabæ. -sbs.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Sími 462 6900
Uppboð
Framhald uppboðs é eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Dalsbraut 1, hl. 02-02-03, austari
hi. e.h. Akureyri, þingl. eig. Kreppa
ehf., gerðarbeiðendur Akureyrar-
bær, Iðnlánasjóður og Sýslumaður-
inn á Akureyri, 19. mars 1997 kl.
10.
Hrafnagilsstræti 23, Akureyri, þingl.
eig. Helga S. Haraldsdóttir, og
Kjartan Kolbeinsson, gerðarbeið-
endur Akureyrarbær, Landsbanki
íslands, Lífeyrissjóður stm. Reykja-
víkurborgar, Lífeyrissjóður verslun-
armanna, Vátryggingafélag íslands
h.f., og íslandsbanki h.f., 19. mars
1997 kl. 10.30.
Klapparstígur 17, Árskógshreppi,
þingl. eig. Jón A. Jónsson, og
Hekla Tryggvadóttir, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður ríkisins og
íslandsbanki h.f., 19. mars 1997 kl.
1A
Melasíða 1, íb. 103, Akureyri, þingl.
eig. Hreinn Hrafnsson, gerðarbeið-
endur Akureyrarbær, Byggingar-
sjóður verkamanna og Vátrygg-
ingafélag íslands h.f., 19. mars
1997 kl. 11.
Múlasíða 16, Akureyri, þingl. eig.
H-Hús h.f., gerðarbeiðendur Akur-
eyrarbær og íslandsbanki h.f., 19.
mars 1997 kl. 11.30.
Múlasíða 18, Akureyri, þingl. eig.
H-Hús h.f., gerðarbeiðendur Akur-
eyrarbær og íslandsbanki h.f., 19.
mars 1997 kl. 11.45.
Sigtún, Grímsey, þingl. eig. Ríkis-
sjóður, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóð-
ur sjómanna, 20. mars 1997 kl.
11.45.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
13. mars 1997.