Dagur - Tíminn Akureyri - 15.03.1997, Síða 8
8 - Laugardagur 15. mars 1997
^Dagur-®tenmt
PJÓÐMÁL
íOagur'Œtmmit
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 563 1600
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 462 7639
l;kki verkföll!
í fyrsta lagi
Deiluaðilar á vinnumarkaði virðast sammála um að
kjaraviðræður séu nú komnar á ákveðnar krossgötur.
Annað hvort ná menn saman um einhverja málamiðlun
nú um helgina eða samfélagið siglir inn í síharðnandi
átök með tilheyrandi verkfollum. Stríðsdansarnir verða
ástríðufyllri með hverjum deginum og gamlir bardaga-
menn úr launþegahreyfmgunni telja sig vita að eftir að
menn eru komnir út í allsherjarverkföll getur verið erf-
itt að komast út úr þeim. Ábyrgðin sem hvílir á samn-
ingamönnum er því gífurleg og það er á svona tfmum
sem virkilega reynir á hvort forustumennirnir eru hlut-
verki sínu vaxnir.
í öðru lagi
En það eru fleiri en forustumenn aðila vinnumarkaðar-
ins sem bera ábyrgð. Eftir að hluti vinnumarkaðarins
hafði náð samningum og þannig í raun markað ákveð-
inn farveg fyrir aðra samninga öðrum verkalýðsforingj-
um til mikillar gremju, hóldu margir að útspil ríkis-
stjórnarinnar myndi e.t.v. ná að verða sú þúfa sem velti
um koll tregðunni í samningamálunum. Pað virðist því
miður ekki hafa gerst. Það virðist hafa verið ótrúlega
slakur undirbúningur að útspili nkisstjórnarinnar, enda
er þar að finna atriði sem augljóslega hljóta að særa
réttlætiskennd fólks, ekki síst fólks sem gefur sig út í
kjarabaráttu láglaunafólks. Fjármálaráðuneytið og fjár-
málaráðherra sáu um útfærsluna á þessu útspili stjórn-
arinnar. Ábyrgð Friðriks er því mikil þótt ríkisstjórnin í
heild verði að feðra krógann sameiginlega.
í þriðja lagi
IJað er algert forgangsatriði að koma í veg fyrir að þjóð-
félagið lendi í fari verkfallsátaka, en augljóst er að
hljómgrunnur fyrir verkíollum hefur ekki verið meiri í
verkalýðshreyfmgunni í mörg ár. Niðurstöður atkvæða-
greiðslna um verkfallsboðun sýna svo ekki verður mis-
skilið að mikill urgur er í fólki. Á hinn bóginn hefur stór
hluti launþega þegar samið og staðan er þröng. Samn-
ingsaðilar eiga að geta náð saman með sæmilegum
samningsvilja. Það myndi eflaust hjálpa mikið ef ríkis-
stjórnin í samráði við aðila vinnumarkaðarins setti
krógann, sem hún spilaði út í vikunni, í gagngera and-
litslyftingu.
Birgir Guðmundsson.
\_____________________________________________________/
Sp
Utó
Er nauðsynlegt að breyta siglingaleiðum olíuskipa
við strendur íslands vegna hættu á alvarlegum
mengunarslysum?
Guðmundur
Bjarnason
umhverfisráðherra
Eg tel rétt að skoða
þetta mál, sérstak-
lega eftir strand
Vikartinds. Ilins vegar er
skipum sennilega búin
meiri hætta á siglingaleið
á opnu hafi en við strend-
ur landsins. Samgöngu-
ráðherra skipaði nefnd
fyrir tveimur árum sem
tók á þessum málum en
hún komst ekki að niður-
stöðu. Það er rétt að at-
huga vel hvort þörf er á
breytingum en að svo
stöddu er ekki rétt að
kveða upp úr með það.
Geir
Magnússon
forstjóri Esso
Reynslan hefur sýnt
að það er varla til-
efni til þess. Margir
staðir hér við land eru
háðir þvf að sjóflutningar
á olíu gangi greiðlega fyrir
sig og skipin enda jú alltaf
inni í Faxaflóanum hvaða
leið sem þau fara. Óhöpp
geta hins vegar alltaf orð-
ið og það er sjálfsagt að
fara eftir öllum varfærnis-
regium, en tíðni þjónust-
unnar og kostnaður vegur
þungt. Þetta er dýr orka
og þolir illa frekari álögur.
Kristín
Ástgeirsdóttir
Samtökum um
kvennalista
Hermann
Guðjónsson
forstjóri
Siglingamála-
stofnunar
Eg tel nauðsynlegt að
skoða það mjög
rækilega í ljósi
reynslunnar. Nefnd hefur
skilað af sér áliti og það er
erfitt að fara rækilega of-
an í tillögur hennar. Við
erum að tala um við-
kvæmt lífríki sem gæti
orðið fyrir miklum skaða.
Ég bar upp fyrirspurn árið
1992 um hvernig við vær-
um viðbúin mengunar-
slysum og það má segja
að menn fari sér heldur
hægt í viðbrögðum.
Eg tel rétt að skoða
hvort beina megi
skipum íj;er þessum
lirygningarstöðvum og
fuglabjörgum sem eru
suður af landinu. Skip
sem leggur úr liöfn verður
hins vegar alltaf að ná
landi einhvers staðar og
j)ví er mengunarhætta
ávallt fyrir hendi.
UWU-
Stuð hjá Dcigsbrún
„Mér sýnist stuðið vera þannig
á mannskapnum að menn séu
tilbúnir að láta hendur skipta ef
þetta á að halda áfram,“
- sagði Ólafur Ólafsson, trúnaðarmaður
Dagsbrúnar í Mjólkursamsölunni, í
Mogganum. Hann telur að Dagsbrúnar-
rnenn grípi til aðgerða gegn mjólkur-
fiutningum verslana til borgarinnar og
heili niður mjólkinni.
Albaníumunstur á íslandi
„Braskkvótinn er mjög alvarlegt
vandamál. Stórfelld umdeild
eignatilfærsla hefur átt sér stað
með þjóðinni og á eftir að auk-
ast í skjóli kvótans. Ríkisstjórn
og Alþingi horfir á þetta að-
gerðalaus líkt og ríkisstjórnin í
Albaníu á keðjubréfahneykslið
mikla.“
- Gunnlaugur Þórðarson lögmaður fer á
kostum eins og venjulega 1' grein um
„svikamyllu og strjálbýlisauðn" í Mogga.
„Spœnskir nautabanar í verk-
falli"
- fyrirsögn og frétt í Mbl. í gær. Böiið er
víðar en á íslandi.
Víjilfell, Alþýðublaðið og
skattafrádráttur
„Þeir hringdu nokkrum sinnum,
en þá kom að því að starfsmað-
urinn sem fyrir svörum varð
benti þeim vinsamlega á að það
væri hægt að kaupa blaðið og
eins að gerast áskrifandi að
blaðinu og þá gætu þeir fengið
nokkur eintök aftur í tímann,
áskriftin væri jú frádráttarbær
til skatts."
- Vífllfellsmenn hungraði í að lesa grein
Guðmundar Andra Thorssonar um van-
hæfnismálið gegn Pétri Kr. Hafstein.
Kókflöskudómar
Dreggjar Lögmannafélagsins
leggja Pétur Hafstein dómara í
einelti um þessar mundir. Það er
að segja þeir félagsmenn sem hvorki
eru á bak við lás og slá eða fyrir
skiptarétti. Þessir lögmenn hafa komið
sér upp nýju dómstigi fyrir sakbitið
fólk og kæra þangað alla dóma sem
Pétur hefur tekið þátt í að kveða upp í
Ifæstarétti. Gildir þá einu hvort dóm-
urinn valt á atkvæði Péturs eða ekki.
Þetta er ekki fáránlegt heldur átakan-
legt.
Máltækið segir að ekki tjói að deila
við dómarann og er þar vitaskuld átt
við sjálft dómsorðið. Máltækið hefur
hins verið túlkað svo að dómarar séu
hafnir yfir almenna umræðu í þjóðfé-
laginu. Dómstólarnir hafa því þróast í
vélræna afgreiðslu sem talar ekki við
seglskip. Þetta er rangt. Sjálfsagt er að
deila við dómarann eins og aðra ríkis-
starfsmenn ef fólk unir ekki við for-
sendur dóma. Raunar á að lialda dóm-
urum svo vel við efnið að þeir séu
ávallt reiðubúnir að standa við dóms-
orð og rökstyðja frammi fyrir alþýðu
manna.
En hér er ekki
deilt um dómsorð
heldur framboð. Pét-
ur Hafstein bauð sig
fram til forseta sam-
kvæmt lögum lands-
ins og stjórnarskrá.
Eftir kosningarnar
er Pétur kærður fyrir að hafa látið ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins og nokkrar
kókflöskur ráða dómsorði sínu í
Hæstarétti. Þetta eru langsótt rök og
lægra verður ekki lotið fyrir rétti.
Hér skal fúslega játað að pistilhöf-
undi er lítt gefið um Hæstarétt. Sú var
þó tíðin að Hæstiréttur var hornsteinn
lýðveldisins ásamt stjórnarskrá og
þjóðfána en virðingin hvarf eins og
dögg fyrir sólu þegar rétturinn stað-
festi tvisvar úrskurði um gæsluvarð-
hald yfir saklausu fólki í Geirfinnsmál-
um.
í dag er Hæstiréttur því eins og hver
önnur breysk ríkis-
stofnun á borð við
ÁTVR og Gjald-
heimtuna. í Hæsta-
rétti syngur bland-
aður kór eins og ger-
ist á hverjum vinnu-
stað og stundum
hafa athafnir dómaranna lækkað enn-
þá risið á réttinum. En það er nú önn-
ur saga.
Pétur Hafstein hefur ekki lækkað
risið á Hæstarétti og er ekki líklegur til
þess. Hvorki innan réttarins eða utan.
f Pétri býr bæði íhaldsmaður og heið-
ursmaður þó að þeir eiginleikar fari
því miður ekki alltaf saman. Engir vita
betur um mannkosti hans en lögmenn-
irnir sem nú saka hann um ýmsa kók-
fiöskudóma. Kærurnar eru því lagðar
fram gegn betri vitund og kærendur
halda áfram að minnka fyrir bragðið
Pólitískir ráðherrar velja dómara í
Hæstarétt og nánast alltaf eftir flokks-
skírteinum. Samkvæmt hugmynda-
fræði kókflöskunnar eru dómarar ekki
hæfir til að dæma í málum þeirra sem
annað hvort styðja þá eða hafna þeim
á einhverju sviði. Fyrir vikið getur
rétturinn ekki tekið á dómsmálum rík-
isstjórnar og þingmanna sem studdu
val dómaranna. Ekki heldur málum
þeirra þingmanna sem höfnuðu dóm-
urunum. Með öðrum orðum getur rétt-
urinn ekki dæmt í nokkru máli hins
opinbera og varla í málum þeirra kjós-
enda sem styðja stjórn eða stjórnar-
andstöðu.
Á meðan velkjast dreggjar Lög-
mannafélagsins áfram á flöskubotnin-
um.
Clógevt
Manneð