Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Page 1
Vikartindur
Leitt ef krytur
skemma fyrir
Ef olíudæling heldur áfram
að ganga eins vel og í dag
þá ætti henni að ljúka eft-
ir tvo daga eða vera langt til
komin. Varðandi þessi girðing-
armál, þá hef ég vísað þeim frá
mér. Við erum ekki neinir
landamæraverðir og höfum
ekki með landamæradeilur að
gera. Það verða menn að leysa í
sinni heimabyggð. En mér þykir
að sjálfsögðu leitt að það skuli
vera uppi átök af þessu tagi
þegar loksins virðist eitthvað
gert af viti í hreinsun og björg-
un. Þá finnst mér að megi ekki
skemma fyrir með erjum og
krytum,“ sagði Guðmundur
Bjarnason umhveríisráðherra í
samtali við Dag-Tímann í gær.
Guðmundur sagði að vissu-
lega gætti mikillar óþolinmæði
vegna seinagangsins við strand-
staðinn. Sjálfur fengi hann mik-
ið af upphringingum, raunar
aðallega frá fólki sem vildi gefa
góð ráð.
„Ef við fáum þessa tryggingu
frá skipseigendum á morgun,
þá erum við búnir að ná þeim
áfanga, að ef við teljum hreins-
unina ekki ásættanlega, þá get-
um við sjálfir gripið inn í með
þessa Qármuni í bakhöndinni,"
sagði umhverfisráðherra í gær.
-JBP
ísbjöra sem skiptimyiit
Hvítabirnir eru sjaldséðir á
íslandi og enn sjaldgæfari
feldirnir af þeim. Einn er þó til
hór á landi og er hann í eigu
Jóns Runólfssonar veitinga-
manns. Feldinn eignaðist Jón í
fasteignaviðskiptum síðasta
haust og ætlaði að setja upp á
vegg heima hjá sér sem fínasta
stofustáss. Feldurinn reyndist
þó fullstór í lítið timburhúsið og
hefur hann því verið geymdur
upprúllaður ofan á skáp. Hann
hlýtur vonandi uppreisn æru
fljótlega því að Jón hefur aug-
lýst gripinn til sölu og vill fá
rúm 200 þúsund fyrir gersem-
ina.
„Sá sem átti ísbjarnarfeldinn
á undan mér fékk hann frá
Grænlandi. Ég ætlaði að setja
hann upp heima hjá mér en hef
bara of lítið pláss. Ég fékk hann
í pakka með sex brynjum úr
blikki, bæði svona sem maður
klæðist og líka allt upp í þriggja
metra háar. Mér fannst þær
flottar og fékk þetta sem hluta
af greiðslum fyrir íbúð,“ segir
Jón. -GHS
Fréttir og þjóðmál
Viðskipti
Jón Runólfsson veitingamaður eignaðist þennan hvítabjarnarfeld sem mynt í fasteignaviðskiptum síðasta haust
og. ætlaði að setja upp á vegg hjá sér með haus og klóm. Myn&.E.ói.
Foreidraféiag misþroska barna
Samúð landsmanna misnotuð?
Matthias Kristiansen, for-
maður Foreldrafélags
misþroska barna, telur
félagið hafa orðið handbendi
óprúttinna aðila. Hann segir að
fulltrúi símasölufyrirtækis,
Magnús Karlsson, hafi haft
samband við foreldrafélagið sl.
vor og boðið félaginu 10%
ágóða af hverjum seldum
hljómdiski í söluherferð, gegn
því að félagið heimilaði leyfi
fyrir því að nafn þess yrði notað
til styrktar. Félagið hafi ákveðið
að taka boðinu og skrifiegur
samningur gerður.
Góðar fréttir hafi borist í
kjölfar átaksins um sölu en
engir peningar greiddir. í sept-
ember sl. hafi Matthias svo ver-
ið kallaður á fund tiltekinna að-
ila og sagt að fyrirtækið væri
komið á hausinn og yfirtaka átt
sér stað. Lofað hafi verið föst-
um greiðslum en engir pening-
ar sést utan 100.000 kr. sem
greiddar voru í desember sl. og
séu aðeins brot af þeirri Ijár-
hæð sem formaður Foreldrafé-
lags misþroska barna telur sig
eiga inni.
f grein sem Matthias Kristi-
„Það sem safnað var í
okkar nafni lenti lík-
lega í rassvösum
giæpahunda sem
njóta þess að pretta,
snýta fólki eins og
þeir kalla það sjálfir."
ansen ritar í Dag-Tímann í dag
segir um þann aðila, Magnús
Karlsson, sem kom fyrstur að
máli við foreldrafélagið: „Við
nánari eftirgrennslan hefur
reyndar komið í ljós að í kjöl-
fari nefnds Magnúsar eru svik,
prettir og ólögleg starfsemi
reglan, ekki undantekningin.
Það sem safnað var í okkar
nafni lenti líklega í rassvösum
glæpahunda sem njóta þess að
pretta, snýta fólki eins og þeir
kalla það sjálfir. Og samt halda
þeir áfram að þykjast vera að
styrkja góðgerðarfélög sem að
öllum líkindum eiga ekki eftir
að sjá nema brot af því sem
þeim er ætlað. Eða hvað varð
um milljónirnar sjö og hlut for-
eldrafélagsins af þeim?“
Magnús Karlsson svaraði
ekki skilaboðum í gær en eigin-
kona hans var skráð fyrir fyrir-
tækinu. Hún sagðist ekki vilja
tjá sig um málið, enda hefði
hún persónulega haft afskipti af
því.
,Ég er ekki með þessu að
gagnrýna alla símasölu. Ég veit
t.d. að það er allt í lagi hjá
bókaútgáfum og íleiri aðilum.
En þetta er grafalvarlegt mál,“
sagði Matthias Kristiansen í
gær. Sjá bls. 9 BÞ
Bls. 2
Hitaveitan á
Akureyri
Bls. 6
Vnrmnskiptar
Alfa Laval
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMl 562 1
Skuidir
heimilanna