Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Qupperneq 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Qupperneq 3
jDagur-ÍEtmrmt Miðvikudagur 2. apríl 1997 - 3 F R E T T I R Grundartangi Framkvæmdir þegar hafnar Álver hannað í fyrsta skipti á íslandi. Byggingar Norðuráls á Grundartanga eru að hefjast og eru í hönnun hjá arkitektastof'u Magnúsar H. Ólafssonar á Akranesi. Lóða- framkvæmdir hófust um páskana, strax og starfsleyfi lá íyrir. Eigi að síður liggur enn ekki fyrir heimild Alþingis fyrir álverinu, - né heldur er lokið íjármögnun á vegum eigand- ans, Columbia Ventures. Aldrei fyrr hefur íslenskur arkitekt fengið það hlutverk að hanna álver. Magnús H. Ólafs- son sagði í gær í samtali við Dag-Tímann að því væri ekki að neita að hér væri um spennandi verkefni að ræða. Framleiðsla áls á að hefjast sumarið 1998 þannig að öll undirbúnings- vinna þarf að vinnast hratt og vel. „Ailar verða þessar bygging- ar nýbyggingar. Formið á ker- skálanum stjórnast mikið af þeim búnaði sem keyptur verð- ur frá Þýskalandi, búnaði sem er tífalt dýrari en húsakostur- inn,“ sagði Magnús II. Ólafsson, ráðgefandi arkitekt nýs álvers á Grundartanga, í gær. Á Grundartanga rísa bygg- ingar sem hýsa steypuskála, skautsmiðju, verkstæði og vöru- geymslur, ásamt matstofu og bráðabirgðabyggingu fyrir skrifstofur. Lóð Norðuráls á Grundar- tanga er rúm, eða 82 hektarar að stærð. í fyrstu er reiknað með verksmiðju fyrir 60 þús- und tonna ársframleiðslu. Lóð- in er skiljanlega rúmgóð fyrir þá verksmiðju. En í framhald- inu er ætlunin að stækka, fyrst í 90 þúsund tonna verksmiðju og síðar ef til vill í 180 þúsund tonn. Svo stórt álver rúmast þarna með góðu móti. Undirbúningur á lóðinni hófst um páskana. Þar eru mættir verktakar úr Hafnar- flrði, Háfell ehf. Fyrsta verkefn- ið er að Qarlægja 285 þúsund rúmmetra af mold og klöpp, en síðan að fylla með 230 þúsund rúmmetrum af fyllingarefnum til að gera lóðina byggingar- hæfa og gefa henni nægjanleg- an burð fyrir þung tæki verk- smiðjunnar. Innan lóðar Norðuráls hf. verður hluti af jarðveginum úr grunni verksmiðjunnar vistað- ur. Ákveðin svæði á lóðinni eru ætluð fyrir uppgröftinn. Háfell ehf. hefur orðið sér úti um námu í nágrenninu þar sem uppfyllingarefni er að hafa. Þrír aðilar standa að allri - hönnun álversins á Grundar- tanga. Það er Hönnun hf., Raf- hönnun hf. og Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen. Magnús H. Ólafsson sagði að hann stæði til hliðar við þessa aðila sem ráðgjafi við útlit, hönnun og með að gera samskipti við byggingaryflrvöld. Þá er að nefna verkefnisstjórnun, en hún er í höndum bresks fyrirtækis K. Home, sem er frægt fyrir uppsetningu álvera vítt og breitt um veröldina. Um páskana fór fram fyrsta útboð í steypuvinnu og útboð í stálgrind og klæðningu fyrir kerskála er á döfinni um næstu helgi. -JBP Vestfirðir Samstaðan úti Bolvíkingar hoppa af ASV-vagninum. Engan bilbug að finna hjá öðrum. Samstaða aðildarfélaga Al- þýðusambands Vestfjarða brást í gær þegar Verka- lýðs- og sjómannafélag Bolung- arvíkur ákvað að fresta boðuðu verkfalli sem átti að hefjast á miðnætti sl. nótt. Félagið aftur- kallaði einnig samningsumboð ASV. Sömuleiðis er Verkalýðsfé- lag Tálknaijarðar ekki með í samfloti annarra aðildarfélaga ASV. Megn óánægja ríkti meðal verkafólks á Vestijörðum með þessa ákvörðun Bolvíkinga, en félagið í Víkinni er næst íjiil- mennasta aðildarfólag ASV. Á ísafirði var jafnframt vakin at- hygli á því að formaður Vinnu- veitendafélags Vestfjarða er Bolvíkingurinn Einar Jónatans- son, sonarsonur athafnamanns- ins Einars Guðfinnssonar. Ilelgi Ólafsson, formaður Verkalýðsfélags Hólmavíkur, sagði þó að ákvörðun Bolvík- inga mundi ekki hafa nein áhrif á boðað verkfall né mótaða kjarabaráttu annarra verka- lýðsfélaga í ijórðungnum. Hann segir engan bilbug að finna á verkafólki sem krefst þess að lægstu mánaðarlaun verði 100 þúsund krónur. Hann segir að verkfall á öðrum þéttbýlisstöð- um í íjórðungnum muni lama alla fiskvinnslu og hafnarvinnu og valda röskun á ræstingum í skólum. Daði Guðmundsson, formað- ur Verkalýðs- og sjómannafé- lags Bolungarvíkur, sagði í gær að félagsmenn hefðu metið stöðuna á þann veg að ekkert mundi gerast til lausnar kjara- deilunni fyrr en niðurstaða væri fengin í atkvæðagreicslum fé- laga um kjarasamning VMSÍ og VSÍ, eða um miðjan mánuðinn. Af þeim sökum hefðu menn af- ráðið að fresta verkfalli. Hins- vegar mundi félagið virða allar leikreglur ef til verkfalls kæmi hjá öðrum aðildarfélögum ASV. Það þýðir t.d. að ekki verður tekið við afla til vinnslu í Vík- inni af öðrum vestfirskum skip- um nema heimamanna. -grh Akureyri Aldrei fleiri í íj allinu Aldrei hafa fleiri verið á skíðasvæðinu í Hlíðar- Ijalli en föstudaginn langa, er mat ívars Sigmunds- sonar, forstöðumanns Skíða- staða. Hann áætlar að rúmlega 3000 manns hafi verið á svæð- inu en erfitt er að geta sér til um nákvæma tölu vegna t.d. árskorta auk þess sem yngstu börnin þurfa ekki að greiða að- gangseyri. „Samkvæmt því sem kom upp úr peningakössunum hjá okkur er líklegt að um met sé að ræða. Föstudagurinn langi árið 1993 kemur næst þessu en þá var ekki svona margt,“ segir fvar. Allt gekk vel fyrir sig í ijall- inu um páskana og urðu engin slys. ívar segir að þótt útlitið hafi ekki verið bjart fyrir páskadagana sé enn von um viðunandi afkomu. „Þetta gæti enn bjargast, apríl er langtekju- hæsti mánuðurinn og þá eru Andrésar andar leikarnir. Ef veður og færi verður gott næstu þrjár vikurnar lítur þetta ágæt- lega út. Samkvæmt snjómagninu núna eru líkur á að hægt verði að renna sér í Hlíðarijalli út apríl a.m.k. en þó er alltaf erfitt að spá fyrir um það. BÞ Gildir til 8. apríl eöa meöan birgöir endast Kæliskápar Frystiskápar Frystikistur Þvottavélar Þurrkarar Uppþvottavélar Eldavélar 20% afsláttur frá afborgunarverði VC-6213 Samsung ryksuga 1300 W Afmælistilboð 9.900 kr. Muniö lukkupottinn, dregiö tvisvar á dag og að lokum u'rn ferö til Benidorm Fylgist meö á FM 102 Sími 462 4102 RdDlð® Geislagata 14 * Sími 462 1300

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.