Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Síða 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Síða 4
4 - Miðvikudagur 2. apríl 1997 JDagur-CTOmm AÐALFUNDUR Þroskahjálp á Norðurlandi eystra heldur aðal- fund laugardaginn 12. apríl kl. 14 í Iðjulundi. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Dalvíkurskóli Lausar eru til umsóknar kennarastöður í eftirtöldum greinum: Hannyrðum, tón- mennt og aimennri bekkjarkennslu. Einnig er laus staða við bókasafn skólans. í skólanum eru um 280 nemendur í 1.-10. bekk. Við auglýsum eftir metnaðarfullu og áhugasömu fólki sem vill vinna með okkur að þróunar- og uppbygging- arstarfi. Starfsfólki skólans gefst kostur á að sækja námskeið innanlands og utan. í skólanum ríkið góður starfsandi, starfsaðstaða er góð og vel er tekið á móti nýju starfs- fólki. Umsóknarfrestur til 21. apríl. Upplýsingar um stöðurnar, húsnæði o.fl. gefur skóla- stjóri í síma 466 1380 (81) og í síma 466 1162. — AKUREYRARBÆR Félags- og fræðslusvið Tónlistarskólinn á Akureyri Laust er til umsóknar starf skólastjóra Tónlistarskól- ans á Akureyri. Skólastjóri hefur yfirstjórn á starfi skólans og er yfir- maður allra starfsmanna hans. Hann hefur forystu um að móta listræna stefnu skólans og ber faglega ábyrgð á starfsemi hans. Skólastjóri ber ábyrgð gagnvart sviðsstjóra félags- og fræðslusviðs, á öllum stjórnunaraðgerðum og tekur ákvarðanir í samræmi við það. Laun skv. kjarasamningi STAK og Launanefndar Sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið veita formaður skólanefndar, Jóhann Sigurjónsson, í síma 462 2310 og rekstrar- stjóri skólans, Gunnar Frímannsson, í síma 462 1788 og starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akur- eyrarbæjar í Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 23. apríi. Starfsmannastjóri. j-----7-----V ORÐ DAGSINS 462 1840 \_______ / Smásöluverslunín Um 2 mílljónir á meðalfjölskylduna Smásöluverslunin, áfengisverslunin ásamt 2/3 af bílasölu og 1/3 af bygginga- vöru nam 200.000 á mánuði á meðalfjöl- skylduna. Velta heildverslunar jókst um nær 11,5% á síðasta ári, næstum þrefalt meira en í smásöluverslun þar sem aukningin var 4,6% frá ár- inu áður, sem virðist að stórum hluta skýrast af lítilli veltu- aukningu í matvöruverslun, samkvæmt útreikningum Þjóð- hagsstofnunar úr virðisauka- skattskýrslum 1996. Mest var gróskan í olíuversl- un (22%) og bilasölu (14%). f smásölunni hækkuðu veltutöl- urnar langmest í snyrtivörum (22%), fiskverslun (13%), fatn- aði (11%), heimilistækja- og húsgagnaverslun (10%) og bókaverslunum og apótekum (rösklega 9%). En sala mat- vöruverslana jókst aðeins um 3% og blandaðrar verslunar um 4% frá árinu áður. Athygli vekur að velta sölu- turna/sjoppa hefur dregist sam- an um 3% milli ára. Þeir seldu samt aðallega tóbak, sælgæti og gosdrykki, fyrir rösklega 10 milljarða króna - sem samsvar- ar um 150.000 kr. á meðalíjöl- skylduna á árinu. Svo dæmi sé tekið er þetta miklu hærri upp- hæð en landsmenn fóru með í öll fata- og skókaup og t.d. næstum tvöfalt hærri upphæð heldur en heildarsala apótek- anna á lyijum og hjúkrunar- vöru. Heildarsala smásöluverslana var kringum 130 milljarðar króna (með vsk), sem samsvar- ar um það bil 2 milljónum að meðaltali á hverja fjögurra manna íjölskyldu í landinu. Að því gefnu að 2/3 af sölu bíla og bílavörum og þriðjungur af sölu byggingavöruverslana hafi ver- ið til heimila, ásamt áfengissöl- unni hafa heimilin verslað fyrir meira en 160.000 milljónir króna á árinu. Það jafngildir um 2.400 þús. kr. á Qölskyldu, eða um 200.000 kr. að meðal- tali á mánuði. Þá eru samt ótalin töluvert yfir 40% heimilisútgjalda vísi- tölufjölskyldunnar, m.a. allur húsnæðiskostnaður, olían og tryggingar á bflaflotanum, barnagæsla og heimilishjálp, lækniskostnaður, póstur og sími, skólagjöld og síðast en ekki síst orlofsferðirnar og þjónusta veitinga- og gistihúsa. - HEI Árnessýsla Stefmunótim í ferðaþjónustu Atta hreppar í uppsveitum Árnessýslu hafa tekið upp sameiginlega stefnu- mótun í ferðaþjónustu. Hrepp- arnir sem um ræðir eru Gnúp- verjahreppur, Skeiðahreppur, Hrunamannahreppur, Biskups- tungnahreppur, Laugardals- hreppur, Grímsneshreppur, Grafningshreppur og Þingvalla- hreppur. A fundi í Skálholtsskóla ný- verið kynnti Sveinn A. Sæland, formaður framkvæmdastjórnar verkefnisins, stefnumótunina og samstarfssamning áðurnefndra hreppa sem gildir til ársloka 1998. Ennfremur hefði verið gerð könnun sl. sumar á viðhorfum gesta og heimamanna til ferða- þjónustu á svæðinu. Þá hafi auk þessa verið ráðinn ferðamála- fulltrúi í fullt starf. Þá kynnti Rögnvaldur Guð- mundsson ferðamálafræðingur niðurstöður viðhorfskönnunar- innar. Þar kom m.a. fram að meðaldvalartími erlendra ferðamanna á landinu hafi ver- ið 16 dagar og þar af 3-4 dagar í uppsveitum Árnessýslu, að fjölsóttustu staðirnir væru Gull- foss/Geysir, en næst kæmu Flúðir í Hrunamannahreppi, Reykholt í Biskupstungum, Þingvellir og Laugarvatn. Inn- lendir ferðamenn sóttu mest til m jW Frá ferðamálafundinum í Skálholtsskóla. Laugarvatns, Flúða, Geysis og Gullfoss, en Reykholt, Úthlíð, Skálholt og Laugarás í Biskups- tungum komu svo næst. Varð- andi innlendu ferðamennina sagði Rögnvaldur að þeirra ferðastfll miðaðist talsvert við mikinn Qölda sumarhúsa á svæðinu. Áthygli vakti og sælu- hroll fundarmanna að erlendir ferðamenn töldu viðmót heima- manna í uppsveitum Árnessýslu jákvæðasta þáttinn á ferðum sínum um héraðið, tvöfalt já- kvæðari en náttúra og landslag sem var í öðru sæti. Landinn snéri þessu hinsvegar við, fannst náttúran tvöfalt jákvæð- ari en viðmótið sem þeir settu í sama sæti og veðrið. Eins gott að ekki rigni eldi og brenni- steini næsta sumar á landann, en samkvæmt könnuninni æsa útlendingarnir sig ekkert yfir veðrinu hvort heldur það er gott eða vott. Að lokum kynnti nýráðinn ferðamálafulltrúi, Ásborg Arn- þórsdóttir, sig og starf sitt og lýsti eftir áhugafólki í umræðu- hópa um tiltekin svið ferðamála á svæðinu. Þá kom fram að Biskupstungnahreppur útvegar ferðamálafulltrúanum starfsað- stöðu í félagsheimilinu Ara- tungu. -SB Alþingi Starfsmenn flokkanna fá lífeyri Atta fyrrverandi starfs- menn stjórnmálaflokk- anna fá greiddan lífeyri frá lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og 52 til viðbótar hafa áunnið sér rétt á lífeyri, en eru ekki byrjaðir að taka hann. Þeir eru ýmist í starfi hjá stjórn- málaflokkum núna, eða eiga geymd réttindin hjá sjóðnum vegna slíkra starfa. Þetta kem- ur fram í svari ijármálaráð- herra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, Alþýðubanda- lagi. Þrír fyrrverandi starfsmenn Sjálfstæðisfiokkins fá lífeyri núna og 18 núverandi og fyrr- verandi starfsmenn eiga rétt á lífeyri. Fjórir l'yrrum starfs- menn Framsóknarflokksins fá lífeyri frá sjóðnum og 17 eiga réttinn. Einn fyrrverandi starfs- maður Alþýðubandalagsins fær lífeyri og einnig maki eins af fyrrum starfsmanna fiokksins og 8 hafa áunnið sér réttindi í sjóðnum. Það á einnig við um 7 fyrrverandi og núverandi starfsmenn Alþýðuflokksins og 2 fyrrverandi starfsmenn fyrr- verandi flokks, sem hét Banda- lag Jafnaðarmanna.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.