Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Page 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Page 6
6 - Miðvikudagur 2. apríl 1997 Jlítgur-ÍIItmhm Orösending til viðskiptavina banka, spari- sjóða og greiðslukortafyrirtækja Verkfall félagsmanna í Sambandi íslenskra banka- manna hefst á miðnætti aðfaranótt 4. apríl 1997 hafi ekki samist fyrir þann tíma. Verkfall mun valda ýmis konar röskun fyrir viðskiptavini banka, sparisjóða og greiðslukortafyrirtækja. Lokun afgreiðslustaða Afgreiðslur banka og sparisjóða og nokkurra fyrirtækja í eigu þeirra verða lokaðar frá og með föstudeginum 4. apríl og þangaö til verkfalli lýkur. Starfsmenn Kreditkorts hf. (EUROCARD á íslandi) eru ekki í verkfalli og verður af- greiðsla þess fyrirtækis því opin. Opnun afgreiðslustaða Afgreiðslur banka og sparisjóða verða opnaðar svo fljótt sem verða má eftir að verkfalli lýkur. Það verður auglýst nánar þegar þar að kemur. Tékkar Framvísa skal tékka til innlausnar innan þrjátíu daga frá út- gáfudegi. Renni þessi frestur út meðan á verkfalli stendur skal tékka framvísað strax að verkfalli loknu. Víxlar Falli víxill sem afsegja þarf í gjalddaga meðan á verkfalli stendur verður hann afsagður vegna greiðslufalls á öðrum hvorum virkum degi eftir fyrsta afgreiðsludag að verkfalli loknu. Ekki verður unnt að senda skuldurum eða ábyrgðar- mönnum víxla tilkynningar meðan á verkfalli stendur. Skuldabréf, innheimtuskuidabréf Standa skal skil á afborgunum af skuldabréfum sem falla í gjalddaga meðan á verkfalli stendur strax að verkfalli loknu. Þetta gildir um öll skuldabréf í bönkum og sparisjóð- um, einnig skuldabréf sem þeir innheimta fyrir aðra. Ekki verður unnt að senda skuldurum eða ábyrgðarmönnum skuldabréfa tilkynningar meðan á verkfalli stendur. Dráttarvextir Falli krafa í eindaga áður en verkfall hefst verða reiknaðir dráttarvextir meðan á verkfalli stendur. Ef gjalddagi kröfu er áður en verkfall hefst og eindagi eftir að þaö hefst verða reiknaöir dráttarvextir frá gjalddaga ef krafan er ekki greidd áður en verkfall hefst. Ef gjalddagi og eindagi kröfu eru meðan á verkfalli stendur veröa reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga ef krafan er ekki greidd strax að verkfalli loknu. Debetkort Unnt verður að nota debetkort undir ábyrgðarmörkum innanlands og utan. Tölvuvædd kassakerfi í mörgum versl- unum og víða annars staðar geta nánast tekið endalaust við debetkortafærslum þrátt fyrir verkfall. Posar taka hins vegar eingöngu við 250-1250 færslum og stöðvast þegar hámarkinu er náð. Ekki verður unnt að nota debetkort sem merkt eru „ÁN ÁBYRGÐAR", þ.m.t. unglingakort, meðan á verkfalli stendur. Kreditkort, innanlands Tölvuvædd kassakerfi og posar taka við kreditkortafærsl- um með sama hætti og debetkortafærslum (sjá umfjöllun að ofan). Þá verður unnt að strauja kreditkort eins og áð- ur. Kreditkort, erlendis Tiltölulega lltil röskun verður á kreditkortaviöskiptum er- lendis. Starfsmenn Kreditkorta hf. (EUROCARD á íslandi) fara ekki í verkfall og því verður unnt að nota EUROCARD- kreditkort erlendis með venjulegum hætti. Einnig verður unnt að nota VISA-kreditkort erlendis en úttektarmöguleik- ar byggjast ekki á annars konar viðmiðunarmörkum en undir venjulegum kringumstæðum. Þau ráðast af samspili ýmissa þátta, s.s. tegund korts (t.d. gullkort eða almennt kort) og tegund viðskipta (t.d. hótel, flugfélag eða versl- un). Tölvutengingar heim'ila og fyrirtækja, hraðbankar, næturhólf Ekki verður unnt að nota tölvutengingar heimila og fyrir- tækja við banka og sparisjóði meðan á verkfalli stendur. Tölvutengingum heimila og fyrirtækja, Þjónustusíma og hraðbönkum veröur lokað kl. 20 fimmtudaginn 3. apríl. Unnt verður að koma fjármunum í næturhólf meðan á verk- falli stendur. Samband íslenskra viðskiptabanka Samband íslenskra sparisjóða Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, skýrir út skuldastöðu heimilanna. Myn&.E.ói. Konumar betri í fjármálunum Islendingar skulda mikið, en meirihlutinn virðist ráða við skuldabyrðina og lendir ekki í vanskilum, segir hag- fræðiskýrsla um skuldir heimilanna. Venjulegur íslendingur er mikill sómamaður og gerir skil á skuldum sínum. Skýrsla starfshóps, sem félagsmálaráð- herra fól að kanna skuldir og vanskil heimilanna, sýnir þetta og niðurstaðan kemur í raun ekki á óvart. En skýrslan sýnir fjölmargt annað varðandi skuldir og vanskil lands- manna. Pannig eru ein- stæðir karlar um og yfir miðjan aldur, að best verð- ur séð, mun meiri trassar en konur við að borga skuldir sínar. Þó hafa kon- urnar mun lægri tekjur og þyngri heimih. Námsmenn stóðu líka vel í skilum hjá Lánasjóðnum. „Petta segir okkur að konur eru miklu gætnari í íjármálum en karlar," sagði Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, við blaðamenn, aðallega karla, þegar hann kynnti skýrslu Hag- fræðisviðs Seðlabanka íslands um skuldir og vanskil einstak- linga í gær. 15 þúsund í „alvarleg- um“ vanskilum í skýrslunni, sem hagfræðing- arnir Már Guðmundsson og Markús Möller eiga heiðurinn af, segir að í meginatriðum tengist skuldasöfnun eigna- myndun, sem varla kemur svo mjög á óvart. Hins vegar kemur fram að stór meirihluti þeirra sem efna til skulda virðist ráða mæta vel við afborganir. Af 86 þúsund fjölskyldueiningum sem skulduðu við árslok 1994 voru tæploga 71 þúsund án vanskila sem voru þriggja mánaða eða eldri. Ríílega 15 þúsund reynd- ust vera að kljást við vanskil. Vanskil, þriggja mánaða og eldri, reyndust vera um 2,5% af skuldum. í úttekt hagfræðinganna var borið niður hjá lánastofnunum, Húsnæðisstofnun og lífeyris- sjóðum. Meðlagsskuldir og skattaskuldir voru ekki með í dæminu, né heldur var tekið til- lit til inneigna viðkomandi hjá lífeyrissjóðum. Gagnavinnsla reyndist við- kvæmt mál, enda verið að „hnýsast“ í upplýsingar um ein- staklinga. Átta mánuðum eftir að beiðni ráðherra um úttekt- ina kom fram, heimilaði Tölvu- nefnd eftir ítarlegar viðræður að gagnavinnslan mætti fara fram. Hærri tekjur - hærri vanskil „Ekki fæst einhh't mynd af því meðal hvaða hópa vanskila- vandinn er mestur. Vanskil í krónum talin fara hækkandi með hækkandi tekjum en sem hlutfall af tekjum eða eignum fara þau lækkandi með hækk- andi tekjum,“ segja skýrsluhöf- undar. Skuldir einstaklinga við þá hluta lánakerfisins sem skoðað- ir voru, reyndust 276 milljarðar við árslok 1994. Þar af reynd- ust 7 milljarðar í verulegum vanskilum, 3 mánaða og þaðan af eldri. í frétt Dags-Tímans sl. fimmtudag segir að heildar- skuldir heimilanna um síðustu áramót hafi verið komnar í 350 milljarða króna, aukning um 74 milljarða á tveim árum. Skattagögn frá þessum tíma sýna að 56.625 hjón, 44.140 einstæðir karlar og 45.062 ein- stæðar konur, töldu fram til skatts fyrir árið 1994. Heildar- skuldir hópsins samkvæmt framtölum reyndust 276 millj- arðar, eignir 768 milljarðar og framtaldar tekjur 234 milljarð- ar króna. Bankalán með trygg- ingu í vanskilum En hvar voru vanskilin á þess- um 7 milljörðum mest? Svarið er að lán hjá bönkum og sparisjóðum, lán með ábyrgð annarra en skuldara (21% skuldanna), reyndust í mestum vanskilum. Vanskil við Húsnæð- isstofnun (52% skuldanna), líf- eyrissjóði og LÍN reyndust lítiL Vanskil á kreditkortum voru ennfremur iítilsháttar. Fram kom að af þeim 148 þúsund fjölskylduein- ingum sem um er rætt, voru 62 þúsund skuldlaus- ar um áramót 1994 til 1995. En tafsvert margir voru í skuldum. Pannig skulduðu um 17 þúsund meira en 5 milljónir, 2.403 skulduðu meira en 10 millj- ónir, 460 meira en 15 millj- ónir og 147 meira en 20 milljónir króna. Meðal- skuldir eru um 1,7 milljón króna á ljölskyldu. Meðalskuld- ir einstæðra karla og einst.aiöra kvenna voru tæp ein milljón, en hjóna að meðaltali 3,5 milljónir. Suðvesturhornið skuldseigara Fram kemur að meira en 132 þúsund skuldaranna, eða um 90%, voru ekki í vanskilum um- fram 3 mánuði. Hins vegar voru ríflega 15 þúsund í einhverjum vanskilum. Rúmur þriðjungur var í vanskilum með allt frá mjög litlu upp í 100 þúsund krónur. Alls skulduðu átta meira en 40 milljónir - jafn- framt því að vera með að minnsta kosti 20 milljónir króna í vanskilum. Fleiri punktar úr úttektinni: íbúar á SV-horni landsins eru með meiri meðalvanskil á fjöl- skyldu en íbúar á landsbyggð- inni, en á höfuðborgarsvæðinu var líka mest meðaleignin og meðalskuldir hærri. Hátekjufólk skuldaði meira en lágtekjufólk og vanskil þess voru meiri í krónum talið. -JBP Páll Pétursson félagsmálaráðherra „Þetta segir okkur að konur eru miklu gætnari í fjármálum en karlar"

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.