Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Side 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Side 8
8 - Miðvikudagur 2. apríl 1997 ÍDagur-ÍHúrrám ^ J O Ð M A L ÍDagur-SEtmimt Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 563 1600 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 462 2087 - Fax ritstjórnar: 460 6171 „Samstaða“ hér og þar í fyrsta lagi Skiljanlegt er að verkalýðsfélög á Vestíjörðum vilji sum hver ekki vera í verkfallssamfloti eins og horf- ir. Verkfall er dýrt. Verkfallsvopnið getur verið tví- bent. Þegar öll helstu landssambönd hafa náð samningum og beðið er úrslita í atkvæðagreiðslu þeirra, eru engar líkur á að atvinnurekendur semji við verkfallsmenn fyrir vestan fyrr en málalok eru ljós. „Samstöðuleysi“ á Vestijörðum er bara hluti af þeirri áhættu sem fylgir því að leika einleik. í öðru lagi Alþýðusamband Vestijarða hefur tekið þann kost- inn að gera mun hærri kröfur en aðrir - um 100 þús. kr. lágmarkslaun. Sú krafa gæti fengið byr undir báða vængi ef öflug félög taka upp á því að fella nýgerða samninga og fara í verkföll. Ekki virðist það líklegt og einir og sér hafa Vestfirðingar ekki sterka stöðu. Allir hafa samúð með þeim sem borga meira fyrir almennar neysluvörur og orku - eins og Vestfírðingar gera - en er slegist um þau mál í verkfalli? Er verkalýðsforystan á Vestijörð- um að meina það að ríkið eigi að greiða niður laun þar? Þá er nú hætt við að einhver bendi á að Vest- firðingar hafi einna hæstu meðaltekjur á landinu og minnst atvinnuleysi. í þriðja lagi Brestir í samstöðu á Vestfjörðum og kröfur um lífskjarabætur utan launaumslags vekja athygli á að enn er ósamið við hina stóru blokk opinberra starfsmanna. Þar eru miklu flóknari mál á ferð- inni. Munu opinberir starfsmenn kyngja annarra manna samningum; hver verður samstaðan, inn- byrðis, um það? Og hverjar kröfurnar „umfram aðra“ - og samstaða með þeim í þjóðfélaginu? Teikn eru á lofti: Nú hafa verkfræðingar og tækni- fræðingar samþykkt gjörbreytt launakerfi hjá ríki og borg og þar með ljóst að þeir freista þess að fara fram úr öðrum hópum opinberra starfs- manna í krafti sérþekkingar og menntunar. „Sam- staðan" er búin - innbyrðis slagur hafinn. Stefán Jón Hafstein \______________________________________________________/ duoóúvó Á að banna algjört ferðafrelsi fólks og án leiðsögumanna á Skeiðarársandi í sumar? Magnús Oddsson ferðamálastjóri Nei. Mín skoðun hefur alltaf verið sú að það eigi að höfða til skynsemi fólks til að koma í veg fyrir óhöpp en forðast boð og bönn varðandi um- gengni við landið. Það má ekki gera lítið úr því að kynna þá hættu sem fyrir hendi er ásamt leiðbeining- um um hvað beri að varast. Það þarf að stórauka upp- lýsinga- og fræðsluþáttinn. Herdís Storgaard fulltrúi hjá SVFÍ Nei ég hef alltaf verið á móti því. Það væri frekar að fræða fólk um þetta og gera því grein fyrir hættunum sem eru fyrir hendi, þess vegna væri mjög þarft að fá e.k. fjölmiðlaátak. Ég held að sérstaklega þurfi að leið- beina leiðsögumönnum. Það verða of mörg slysatil- vik t.d. á hverasvæðunum og með því að einbeita sér sérstaklega að leiðsögu- mönnum mætti minnka hættuna. ♦ ♦ Kristín Ástgeirsdóttir þingmaður Nei ekki held ég það nú. Ég tek það fram að ég hef sjálf ekki komið á Skeiðarársandinn nýlega en ég tel fulla þörf á að fylgjast mjög vel með því sem er að gerast þarna, nánast daglega. Þeim upp- lýsingum þarf svo að miðla til ferðamanna, en það væri ekki rétt að banna neitt að svo stöddu. Ari Trausti Guðmundsson útivistarmaður S Eg er nýkominn af þessu svæði og tel víst að algjört ferða- frelsi gangi ekki upp. Það þarf að fylgjast mjög vel með þessum slóðum, þegar hafa t.d. orðið nokkur spjöll vegna umferðar bíla. Slysahætta á eftir að auk- ast og það væri æskilegt að kreíjast þess að fólk færi þarna um með leiðsögu- mönnum. Það er hins veg- ar varla framkvæmanlegt og því verður fræðsla og eftirlit að duga. Munaðarlaus milljarða- mœringur „Félag sem á 3,4 milljarða króna virðist því vera munaðar- laust! Á meðan svo er kann að vera gott að stýra því enda eru stjórnendur þess ekkert allt of ánægðir með þá athygli sem fé- lagið nýtur þessa dagana.“ - Sigurður Már Jónsson í Viðskiptablað- inu um ríkt fyrirtæki, Brunabótafélag fslands, sem mikill vafi virðist leika á um hverjir eiga í raun. Þjóðvegur við stofugluggann „Ytri aðstæður hafa neytt mig Saatowc^ til að yfirgefa heimili mitt og at- vinnu á Akranesi,” - segir Dagmar Vala Itjörleifsdóttir dýralæknir í Skagablaðinu, fylgiriti Dags-Tímans til Vestlendinga. Hún hef- ur búið að Móum í innri-Akraneshreppi. Fyrirhugað stæði vegtengingar við Hval- fjarðargöng kemur til með að liggja rétt við stofuglugga dýralæknisins. Uppboð á góssinu! „Ef fólk er fljótt á staðinn verð- ur eflaust hægt að gera ævin- týraleg kaup,“ - segir í frétt DV af uppboði á góssi úr Víkartindi í Reiðhöllinni eftir hádegið í gær. Vel heppnað aprílgabb lijá kollcg- um okkar á DV! Kraftaverk í Kína »Ég vissi alltaf að Hjálmar Hannesson, sendiherra okkar í Peking, væri duglegur, en gerði mér ekki grein fyrir því hvers konar kraftaverkamaður hann er,“ - segir Súsanna Svavarsdóttir í grein í Mbl. um heimsókn til Kína. Langdregið hneyksli Flutningaskipið Vikartindur velkist enn um í íjöruborðinu á Þykkva- bæjarljöru. Þjóðin fylgist spennt með og horfir á aðgerðarleysið magn- ast frá degi til dags. Eitt helsta lífs- kryddið þessa dagana er að setjast niður við sjónvarpið á kvöldin og bíða eins og barn við jólatréð eftir að sjá hvað verði í „pakkanum í dag“ - hvað verði í gámnum sem opnast á fjörunni. Og hver „pakkinn" á fætur öðrum velt- ur upp í ijöruna í viðtækjum almenn- ings þar sem umbúðirnar flettast af og eftirsóttur neysluvarningurinn veltur fram. Bleiur í gær og hjól í dag. Dægrastytting páskanna felst í því að geta upp á hvað kemur út úr gámi morgundagsins. Aðgerðarleysi Þegar Vikartindur strandaði á sínum tíma var það hneyksli hvernig málið bar að. Flestum jnálsmetandi mönnum ber saman um að koma hafi mátt í veg fyrir strandið ef hjálp hafi verið þegin þegar hún var fyrst boðin. Eftir strandið hefur Vikartindur verið nán- ast samfellt hneyksli og er þá ekkert undanskilið nema björgunarþáttur Landhelgisgæslunnar. Hneykslið felst fyrst og síðast í aðgerðarleysi og að því er virðist ótrúlegu tómlæti gagnvart þeim mengunarskaða sem þarna er að verða. Enginn virðist almennilega vita hver á að gera hvað, eða þá hver er að gera hvað. Það gildir jafnt um íslensk yfirvöld sem erlenda björgunarmenn og eigendur og nú síðast hafa landeig- endur blandað sér í „bj ör gunarstarfið“ með óskiljanlegri girðingavinnnu þar sem einn bóndinn girðir í dag en annar tekur girðinguna niður á morgun. Okkur er sagt að tryggingafélag Vik- artinds dragi lappirnar í að reiða fram bankatryggingu fyrir hreinsunarstarfi og því hafi verið gefinn frestur þar til á hádegi í dag, miðvikudag. Sögum ber raunar ekki saman um hvort skortur á bankatryggingu hefur eitthvað með síðbúið hreinsunar- og björgunarstarf að gera. f öllu falli virðast íslensk um- hverfismálayfirvöld eitthvað vera farið að lengja eftir aðgerðum því þau hafa gefið út yfirlýsingar um að allur þessi dráttur sé illþolandi. Enn sem komið er það þó allt sem yfirvöld hafa gert í málinu - gefið út yfírlýsingar. Mengun En á meðan farsinn rennur sitt skeið hjá öllum þeim sem að Vikartindsmálinu koma, eru grafalvar- legir hlutir að gerast í náttúrunni. Meng- unin er staðreynd. Ruslið á söndunum innihald „pakkanna" sem opnast nánast daglega og fokið hefur um allar sveitir er þar e.t.v. ekki versti skaðvaldurinn. Olían er nú farin að menga friðlýstar fjörurnar hjá Stokkseyri. Fulgar eru að drepast og flæð.armálið og þarabeltin í íjörukamb- inum eru stórhættulegar dauðagildrur fyrir vaðfugla og endur sem senn koma til landsins frá vetrarstöðvum sínum. Slíkt er einfaldlega óþolandi. Skipulagsleysi og seinagangur af því tagi sem þjóðin er nú að fylgjast með á Þykkvabæjarfjöru er vísbending um að eitthvað sé að í skipulaginu hjá okkur íslendingum. Viðbrögð við skipskaða og yfírvofandi mengunarhættu ættu, ef vel væri, að smella sjálfkrafa inn í einhvern feril þar sem ábyrgð er skýr og skil- virkni mikil. Feril þar sem enginn vafi leikur á um hver eigi að gera hvað og hver geti tekið af skarið um aðgerðir. Strax í dag Það er einfaldlega tímabært fyrir um- hverfisyfirvöld, með Guðmund Bjarna- son ráðherra í broddi fylkingar, að hætta kurteisi og tillitssemi við erlenda aðila sem að þessu máli koma. Gerist ekki eitthvað því róttækara í þessum málum strax í dag er tími dónaskapar og hörku augljóslega kominn. Þá hörku ber að sýna öllum sem verið hafa að vandræðast í þessu máli jafnt innlendum sem útlendum. Þetta gegn- ur einfaldlega ekki lengur. Birgir Guðmundsson.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.