Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Síða 12
JDagur-'ðKmmn
MiðviJcudagur 2. apríl 1997
Línuritin sýna ijögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Reykjavík______________
°9 Fim Fös Lau Sun
10
5
0
NNA3 ASA3 NNA3 N3 ASA2
ANA2 ANA3 NNA3 SV2
Veðrið
í dag
Norðlæg átt og dálítil él
á víð og dreif, einkum
um norðanvert landið.
Hiti nálægt frostmarki
yfir daginn sunnan-
lands en annars
1-8 stiga frost.
Stykkishólmur
Lau Sun mm
NA4 A3 NNA4 N3 A2
ANA3 NA5 NNA4 SV2
Bolungarvík
Fös
Lau Sun mm
NA3 ANA4 NNA4 NNV2 ASA2
ANA3 NA5 N4 ANA3
Blönduós
NA2 NA2 NNA2 NV4 ASA1
NA2 NA4 N4 NNA2
Akureyri
-15-
NNA3 NA3 N3 NV3 NNV2
NNA3 NA4 NNV5 NV4
Egilsstaðir
NNA3 NNA2 N3 NNV3 NNV3
NA4 NA4 NNV6 NV6
Kirkjubæjarklaustur
NA2 ASA2 ANA3 NNV2 N2
ANA2 A3 N3 NNV3
Stórhöfði
N4 ASA4 NA5 N4 V3
NA3 A4 NNA4 NV3
þvottavélar
Hitabreytirofi - Ullarþvottakerfi
Rústfrí tromla og pottur
Verð frá kr. 39.900
KAUPLAND
KAUPANGI
Sfmi 462 3565 • Fax 461 1829
HANDBOLTI • íslandsmótið
KA í úrslitum þriðja árið í röð
KA vann sér réttinn til að leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn í handknattieik þriðja árið í röð, eftir
sigur gegn Haukum í hreint ótrúlegri viðureign í Hafnarfirði á laugardaginn. KA mætir Aftureldingu í
fyrsta leik liðanna um titilinn á sunnudaginn að Varmá og Ijóst er að nýr kafli verður skrifaður í íslenska
handboltasögu í vetur, því hvorugt liðið hefur orðið íslandsmeistari. Á myndinni sést Jóhann Gunnar Jó-
hannsson, leikmaður KÁ, fagna sigrinum á laugardaginn. Mynd: bg
Sjá nánar um páskaleikina í Lífmu í landinu.
KNATTSPYRNA • England
Lárus Orri fékk að sjá rautt
spjald gegn Bradford
Lárus Orri Sigurðsson, fyrir-
liði Stoke, var í sviðsljósinu
þegar lið hans heimsótti
Bradford á mánudaginn. Lárus
Orri fékk að líta rauða spjaldið
frá dómaranum og þótti dómur-
inn mjög harður. Lou Macari,
stjóri Stoke, var að vonum ósátt-
ur og missti stjórn á skapi sínu í
kjölfarið. Dómarinn sýndi hon-
um einnig rauða spjaldið og vís-
aði honum upp í áhorfendastæði.
Stoke tapaði leiknum, 0:1.
f grein The Daily Telegraph
um leikinn segir að Lárus Orri
hafi verið óheppinn að fá á sig
víti, svo ekki sé talað um að vera
rekinn útaf að auki, en þetta er í
fyrsta sinn sem Lárus Orri fær
rauða spjaldið síðan hann kom í
enska boltann. Sérstaklega var
tekið fram að dómarinn hafi
verið um 40 metra í burtu þegar
atvikið átti sér stað. Línuvörður-
inn lyfti ekki ílaggi sínu.
Bradford hafði eitt mark yfir
þegar Lárus Orri fékk reisu-
passann en
þá var hálf-
tími til
leiksloka.
Edinho, sá
sem fiskaði
vítið, tók
spyrnuna
sjálfur en
Carl Mugg-
elton varði
lélega
spyrnuna.
Lou Macari
sakaði dóm-
arann um
afglöp í starfi. Hann er í fullum
rétti til að dæma víti en ekki
einu sinni aðdáendur heima-
liðsins töldu að Lárus ætti að
vera rekinn útaf, sagði Macari
eftir leikinn en Lárus Orri hafði
ekki fengið áminningu í leikn-
um. Chris Kamara, stjóri Brad-
ford, var sammála Macari. Ég
sagði Lou að hann hefði verið
óheppinn. Víti var meira en nóg
og þetta eru fáránlegar reglur.
Pað var enginn ásetningur í
brotinu, sagði Kamara.
Macari var svo heitt í hamsi
að það þurfti öryggisverði til að
koma honum af leikvellinum.
Ég sætti mig við að dómari geti
gert ein mistök en ekki tvö í
sömu andránni. Hann var óra-
langt frá atvikinu, sagði Macari,
sem horfði á restina af leiknum
úr stúkunni. Ég fékk meira að
segja samúðarkveðjur frá aðdá-
endum Bradford, sem sögðu að
þeir teldu þetta ekki heldur
hafa verið víti. Við munum
áfrýja útafrekstrinum og biðja
dómarann að líta á atvikið aft-
ur, var haft eftir stjóranum.
Þorvaldur Örlygsson lék ekki
með Oldham um páskana en
liðið tapaði fyrir Lárusi Orra og
félögum á laugardag, 1:2. A
mánudag náði Oldham sér hins
vegar heldur betur á skrið og
sigraði Swindon 5:1.
-sh
HANDBOLTI
Þorbirni boð-
inn samningur
fram til2000
orbjörn Jensson landsliðs-
þjálfari mun væntanlega
taka ákvörðun um það fyrir
helgi, hvort hann skrifar undir
nýjan samning við HSÍ um
þjálfun karlalandsliðsins, eða
hvort hann gengur að tilboði
frá norska liðinu Drammen.
„Ég hef ekki haft tíma til að
líta á þessi mál, en ég þarf að
fara að ákveða mig og líklega
tek ég ákvörðun um það hvað
ég geri fyrir næstu helgi,“ sagði
Þorbjörn.
Samningurinn við HSÍ felur í
sér þjálfun landsliðsins framyfir
Ólympíuleikana í Sydney árið
2000 og samningurinn við
norska liðið felur í sér 3-5 ár.
HANDBOLTI
Leikiðvið
Kinverja
Islenska landsliðið leikur tvo
leiki við Kínverja hér á landi
og fer fyrri leikur liðanna fram
í kvöld á ísafirði og hefst hann
klukkan 20. Síðari leikurinn fer
fram á Selfossi annað kvöld.
Þorbjörn Jensson tilkynnti í
gær val á ijórtán manna leik-
mannahópi fyrir viðureignirnar.
Athygli vekur að enginn leik-
maður úr KA eða Aftureldingu
er í hópnum, en það varð að
samkomulagi fyrr í vetur að
gefa leikmönnum þeirra liða
sem leika til úrslita frí, því val á
leikmönnum hefði getað komið
misvel niður á undirbúningi lið-
anna. Hópurinn er þannig skip-
aður:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
Reynir Þór Reynisson, Fram
Aðrir leikmenn:
Dagur Sigurðsson, Wupperthal
Patrekur Jóhannesson, Essen
Gústaf Bjarnason, Haukum
Konráð Olavson, Stjörnunni
Ólafur Stefánsson, Wupperthal
Geir Sveinsson, Montpellier
Róbert Sighvatsson, Schuttervald
Júlíus Jónasson, TV Suhr
Gunnar B. Viktorsson, ÍBV
Rúnar Sigtryggsson, Haukum
Valgarð Thoroddsen, Val
Jón Freyr Egilsson, Haukum
Þorbjörn hafði hug á því að
velja Nörð Árnason úr Fram í
liðið, en hann gat ekki gefið
kost á sér vegna meiðsla.
Lárus Orri Sig-
urðsson var rekinn
af leikvelli gegn
Bradford á mánu-
dag og vakti sá
dómur mikla at-
hygli í Englandi.