Dagur - Tíminn Akureyri - 09.04.1997, Blaðsíða 8
20 - Miðvikudagur 9. apríl 1997
|DitgurJ3Imrám
FOLK
Söngglaðir íslendingar á írlandi
Keith Scott gítarleikari fór á kostum.
Reykt folaldakjöt
kr. 298,-
Bjúgu (dágóö)
kr. 298,-
Pizza (mjög góö)
kr. 289,-
Fiskur á hvers manns disk
Fiskborðiö svignar af
soöningu!
Ertu með eitthvað á prjónunum?
Ef ekki, þá færðu garnið í
KJALLARANUM
Hrísalundur sér um sína
Bryan Adams hylltur af íslendingum,
Söngbræður og Papar
Söngbræður sungu fyrir ís-
lensku gestina á föstudaginn
langa á Burlington hótelinu,
sem orðið er annað heimili
íjölda íslendinga, við mikla
hrifningu viðstaddra. Að söng
bræðranna loknum, svo og
borðhaldi, tók hljómsveitin Pap-
ar sig til og lék fyrir dansi svo
lengi sem menn nenntu að
dansa. Góð hljómsveit Paparnir
og miklir stuðboltar.
Um 300 íslendingar eyddu
páskahelginni í Dyflinni
og voru ferðalangarnir
almennt sammála um að hið
góða orð sem fer af viðmóts-
hlýju og glaðlyndi frænda okkar
á eyjunni grænu hafl í engu
verið ofmælt. Með í förinni var
karlakór úr Borgarfirðinum,
Söngbræður, sem setti
skemmtilegan svip á ferðina og
hlaut afar góðar viðtökur hvar
sem hann kom fram. Ekki síst á
skemmtikvöldi er sópransöng-
konan Theodóra Þorsteinsdóttir
flutti aríu Leonoru úr óperunni
Á valdi örlaganna eftir Verdi,
ásamt kórnum. Aðrir fóru til að
njóta tónlistar hjá kanadíska
rokkgoðinu Bryan Adams, sem
John Kelly er búinn að vera leigubílstjóri í Dyflinni í 10 ár. „Ten years too
long,“ (tíu árum of lengi) sagði hann, enda var þetta síðasta vikan hans
sem leigubílstjóri. Nú er hann væntanlega farinn að gera eitthvað annað,
gangi þér allt í haginn Jón!
hélt grfðarvel heppnaða tón-
leika í The Point Theatre í
Dublin.
Á O’Donoghue’s hóf hin heimsfræga hljómsveit Dubliner's feril sinn og
e.t.v. á þessi trúbador sem þar lék og söng eftir að slá í gegn á heimsvísu,
hver veit. Hinir borgfirsku Söngbræður tróðu að sjálfsögðu upp á
O'Donoghue’s við mikinn fögnuð áhorfenda.
Vel giftur blaðamaður
Ekki var nú byrjunin góð hjá
blaðamanni Dags-Tímans því
um leið og hann sté fæti sínum
á svæðið var myndavélin gerð
upptæk. En það kom sér enn
eina ferðina vel að vera vel gift-
ur ekki síður en Gísli Súrsson,
konan smyglaði litlu hand-
myndavélinni sinni á svæðið og
árangurinn fylgir hér með.
Það er skemmst frá því að
segja að Adams fór hamförum;
við lá að bera þyrfti grjót á þak
hússins er hann flutti sinn
gamla og góða rokkara, Summ-
er of 69 og litlu minni var hrifn-
ing gestanna er ballaðan Hea-
ven hljómaði. frskir tónleika-
gestir komu vel undirbúnir til
tónleikanna og sungu látlaust
með. Bryan Adams er ekki að-
eins skemmtilegur rokkari.
Hann er góður.
Karlakórinn Söngbræður úr Borgarfirði hlaut feikigóðar viðtökur hvar sem
hann kom fram á írlandi, ekki síst er Theodóra Þorsteinsdóttir sópran
söng aríu Leonoru úr óperunni Á valdi örlaganna eftir Verdi og Söngbræð-
ur hlutverk munkanna.
Já, það þrífst menning víðar
en í Mjóaíirði. gþö/ohr