Dagur - Tíminn Akureyri - 09.04.1997, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 09.04.1997, Qupperneq 9
ÍDagur-'SJtmírat Miðvikudagur 9. apríl 1997 - 21 ^ifæga ióikio Vorir framsýnu imglingar Felulitir, hermannabuxur, langar og mjóar flaksandi flíkur frá byrjun áttunda ára- tugarins toppaðar með ABBA-hárgreiðsl- ur virðist vera það sem koma skal í sum- ar hjá þeim bresku ungmennum sem eru hlýðnir sínum tískuspekúlöntum. Fína og frœga leggst auðvitað ekki svo lágt og heldur áfram að kaupa sínar rándýru merkjaspjarir en hér má sjá sönnun þess hve íslenskir unglingar eru framsýnir. Hver hefur ekki rekist á íslenskan ungling í enn lummulegri (og þá vœntanlega framúrstefnulegri) útfœrslum á búnaði ABBA-kynslóðarinnar? Jarðlitir eru í tísku. En það er þessi skæri og ógeðfelldi blái litur á pilsinu líka. Minnir helst á þessa sundlaugar- botna sem grili- ir í þegar bækl- ingum ferða- skrifstofanna er flett. Þessi ann- ars heimsblái litur sem laðar okkur til Algar- ve en ekki út í búð að kaupa pils. Krossið ykkur í bak og fyrir og biðjið þess af öllu hjarta að stúlkur vorar taki ekki upp þessa car- menrúllu-út- jaðraogtoppa greiðslu. Það er hægt að sætta sig við stórgert munstur, óþægilega liti og ofvaxna hælaskó en að þurfa að rekast á litlar Agnetur og Fridur á rölt- inu á 17. júní er einum of mikið af því góða. Ekkert frumlegt (enda Freemans) og fer alveg prýðilega (þ.e. ef þú sveltir þig í 10 mánuði áður en þú keyptir þér þrjú 10 tíma kort í Trimmformi - og nýttir atla tímana í fitubrennslu). Reiðbuxurnar eru úti. Gammosíurnar líka. Gallabuxnasniðið iafir en er á leiðinni út. Inn eru komnar buxur sem á allan hátt líta út fyrir að hafa verið sniðnar heima af van- kunnáttu og saumað- ar upp úr forláta af- gangsgardínu- eður púðaefni breskrar húsmóður. Undirkjólarnir eru nú aiveg sér kapítuli. Þunnir skulu þeir vera. Nariurnar verða að sjást - annars er ekkert fútt í þessu. Og þeir eru nú ekki allir svona klæði- legir og bera flestir mun meiri keim af uppruna sín- um (með blúndum og þvíumlíku). Það eru náttúrulega ár og dagar síðan íslenskir unglingar fóru að klæðast felulitum og hermanna- buxum en Bretunum líst víst vel á slíkar múnderingar fyrir næsta sumar. Svona skór eins og hún amma hefði laumað ofan í ferðatöskuna til að tipla á úti á Mallorca fyrir um 25 ár- um síðan.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.