Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Blaðsíða 5
JDagur-ÍEtmtmt
Miðvikudagur 7. maí 1997 - 5
F R E T T I R
Forsætisráðherra
Launþegar verða að fá
kaupmátt sem var lofað
Davíð Oddson forsætisráðherra: „Launþegar verða að koma frá þessu
samningstímabili með þann aukna kaupmátt, sem þeim hefur verið lofað.
Ella mun illa fara.1
Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra sagði í ræðu
sinni á aðalfundi Vinnu-
veitendasambands íslands að
líkt og sagt var að öxin og jörð-
in geymdu biskupinn best forð-
um, hafi nútímamenn stundum
sagt um stjórnarsáttmála ríkis-
stjórna að skápurinn og skúffan
geymdu slíka best.
Davíð vitnaði þó í stefnuyfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar varð-
andi ýmis verkefni í efnahags-
og atvinnumálum. Hann sagði
að megináhersla væri lögð á
efnahagslegan stöðugleika og
jafnvægi í ríkisijármálum.
„Ég tel að þeir kjarasamn-
ingar, sem gerðir hafa verið að
undanförnu, sanni best hvernig
til hefur tekist. Samningar eru
nú gerðir til þriggja ára og þeir
byggja á því að verðbólga verði
lág og hagvöxtur öflugur og
reyndar meiri en í helstu við-
skiptalöndum okkar, og þeir
byggja á meiri kaupmáttar-
aukningu en menn hafa lengi
þorað að stefna að,“ sagði for-
sætisráðherra.
Davíð bar lof á forystumenn
verkalýðshreyfingar og vinnu-
veitenda sem og almenning all-
an fyrir að fylgja ábyrgri stefnu
í launamálum. Með hóflegum
kröfum væri stefnt að bættum
árangri atvinnulífsins - og um
leið auknum kaupmætti al-
mennings.
Ræða Davíðs bar þess merki
að hann er fullur bjartsýni á
þróun mála á íslandi. Hann sér
margar sólir á lofti þessa
stundina.
Og Davíð Oddsson varaði við.
Hann segir að fólkið í landinu
verði að njóta þess sem um hef-
ur verið samið.
„Launþegar verða að koma
frá þessu samningstímabili með
þann aukna kaupmátt, sem
þeim hefur verið lofað. Ella
mun illa fara,“ sagði Davíð
Oddsson í gær.
Ráðherrann greindi frá íjöl-
mörgum góðum teiknum sem á
lofti eru í þjóðarbúskapnum.
Hagvöxtur var í fyrra tvöfalt
meiri en að meðaltali í OECD-
löndum. Horfur væru á að hag-
vöxtur verði að meðaltali 3,5%
næstu árin. Ráðstöfunartekjur
fólks færu vaxandi og mundu
halda áfram að gera það á
komandi árum. Ársverkum hef-
ur fjölgaö í landinu um 3 þús-
und í fyrra og hátt í það sama í
ár. Sagði Davíð þetta ef til vill
ánægjulegustu merki um að
farið sé að vora í íslensku efna-
hagslífi eftir langt hretviðri.
Hann sá fyrir sér grósku og lágt
Mynd: E.ÓI.
hlutfall mannafla sem á við at-
vinnuleysi að stríða.
-JBP
Borgarráð
Ilaímagn til
húshitimar
lækkar
Borgarráð hefur samþykkt að
lækka kostnað vegna rafhit-
unar húsnæðis til jafns við það
sem kostar að hita hús með
heitu vatni. Kostnaður vegna
þessa nemur rúmum 6 milljörð-
um króna á orkuveitusvæði
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Áætlaður kostnaður vegna
þessa er 2.450 milljónir króna í
Reykjavík, 1.388 milljónir kr. í
Kópavogi, 1.238 íMosfellsbæ og
1.177 milljónir króna á Kjalar-
nesi. Þetta hefur hinsvegar eng-
in áhrif í Garðabæ eða á Sel-
tjarnarnesi.
Samkvæmt áætlun Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, sem
lögð var fyrir borgarráð í gær,
er þarna um að ræða mismun
sem nemur 1,70 krónum á
hverja kílówattstund, þ.e. mis-
munur á verði Hitaveitu og Raf-
magnsveitu. Reiknað er með að
greiða niður allt að 30 þúsund
kWh á ári á hvert húsnæði. Það
er í samræmi við útgefnar regl-
ur iðnaðaráðuneytisins um nið-
urgreiðslur.
Hinsvegar verður ekki um
neina jöfnun á kostnaði að
ræða á þeim stöðum þar sem
hitaveita er fyrir. Ætlast er til
að húseigendur á þeim svæðum
nýti sér upphitun með heitu
vatni. - grh
Kaffí Puccini
Útrás til Noregs
Bandaríska kaffifyrir-
tækið Barnie’s Coffee
& The Company hefur
valið eigendur Kaffi Puccini
á Vitastíg til að opna og
starfrækja kaffihús í Fred-
riksstad og Osló. í bígerð er
einnig að opna kaffihús í
Prag, höfuðborg Tékklands.
Eigendur Puccini fengu á
sínum tíma umboð fyrir
Bernie’s kaffibaunir á Norð-
urlöndum en þeir hafa rekið
kaffihúsið sitt á Vitastíg síð-
an sl. haust. Það er ekki að-
eins kaffihús heldur einnig
kaffiverslun. - grh
Um 50 þús. íslend-
ingar með gigt!
Fimmti hver maður og
rúmlega það er með
gigt hér á landi, en
undir þann sjúkdóm flokk-
ast á annað hundrað til-
brigði við veikindi í stoðkerfi
líkamans. Þekktust er slit-
gigt sem lirjáir margan
mann, einnig liðagigt. Þetta
háa hlutfall kom fram við
sameiginlega rannsókn á
Norðurlöndum fyrir nokkr-
um árum. Mat lækna er að
10% þeirra sem eiga við
sjúkdóminn að etja séu illa
farnir, eða fimm þúsund
landsmenn. Sjúkdómurinn
hefur áhrif á hreyfigetu og
þrek. í lok mánaðarins er
fyrirhugað þriggja daga
þverfaglegt þing lækna,
sjúklinga og margra ann-
arra sem koma að gigtar-
meðferð. Þingið verður
haldið í Reykjavík 28.-30.
maí og þar m.a. kynntar
nýjungar í meðferð gigtar.
Varnarliðið
Vilja rannsókn á
rannsókn rýmunar
Verslunarmannafélag Suð-
urnesja óskar eftir rann-
sókn á rannsókn rýrnun-
ar, sem talið var að hefði orðið
á birgðum stórmarkaðar Varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli
árið 1995. Ekki verður séð að
rýrnunin stafi af þjófnaði ís-
lenskra starfsmanna, eins og
rannsóknaraðilar virtust ganga
út frá. Hallast er að bókhalds-
mistökum í Bandaríkjunum
sem skýringu á feiknamikilli
„rýrnun” á íslandi. Liður í
rannsókninni var myndavéla-
eftirlit með starfsmönnum, sem
mun vera ólöglegt athæfi hér á
landi.
„Það sem er efst í mínum
huga og skiptir mestu máli er
að greint verði frá niðurstöðu
rannsókna. Við erum að tala
um tvö mál, annars vegar rann-
sókn á meintri rýrnun í Varnar-
liðsversluninni 1995, sem hefur
óbeint verið klínt á starfsfólkið.
Hins vegar vil ég fá niðurstöður
úr rannsókn á því hvernig
svona mistök hafa gerst, sem er
önnur rannsókn sem ég óska
eftir að fari fram,“ sagði Jó-
hann Geirdal, formaður Versl-
unarmannafélags Suðurnesja, í
samtali við Dag-Tímann.
Jóhann segir að öll viðbrögð
hafi dregist, sem hann heldur
fram að stafi af því að upplýs-
ingar sem fengist hafa frá lög-
reglunni á Keflavíkur-
flugvelli hafi verið
rangar.
„Okkur var tjáð á
fundi að í gangi væri
lögreglurannsókn í
samstarfi við íslensku
lögregluna. Þess
vegna er það afstaða
varnarmálaskrifstofu
að aðhafast ekkert í
málinu, grípa ekki inn
í gang lögreglurann-
sóknar. Að henni lokinni er
hægt að óska eftir rannsókn á
henni, telji menn ástæðu til.
Núna óska ég eftir þessari
rannsókn,” sagði Jóhann. -JBP
Jóhann Geirdal
form. Versl.mannafélags Suðurnesja
Upplýsingar frá íslensku
lögreglunni á Vellinum voru
rangar.
Evróvisjón
Við erum úr leik
s
slendingar verða að finna
sér annað til dundurs næsta
vor en að spá fyrir um geng-
ið í Evróvisjón, því samkvæmt
útreikningum skipuleggjenda
keppninnar, verður þjóðin í
skammarkróknum næsta ár og
situr heima. Hverjum hefði
dottið það í hug fyrir 11 árum
þegar götur tæmdust og allt
þjóðfélagið beið þess að Icy-
hópurinn sigraði heiminn, fyrst
þegar íslendingar voru með.
Ástæða þess að ísland situr
heima næsta ár er einföld. Við
höfum einfaldlega ekki staðið
okkur nógu vel að undanförnu
og er þá hvorki litið til plötu-
samninga eða alheimsdýrkunar,
heldur fárra stiga sem í sarpinn
hafa safnast. Hitt er e.t.v. sára-
bót að árið 1999 fær þjóðin aft-
ur að vera með, en það er eins
gott að standa sig þá, því ann-
ars endurtekur sagan sig. BÞ