Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Blaðsíða 11
|Dagur-®tmtmt
Miðvikudagur 7. maí 1997 -11
og hófa. Fyrir hæfileika fær
hann 8,37, þar af 9 fyrir fegurð
í reið. Ásaþór er undan Kraflari
frá Miðsitju, sem er stórættaður
og Ásdísi frá Neðra-Ási. Geta
má þess að Vigdís alsystir Ása-
þórs var efst fjörurra vetra
hryssna á fjórðungsmótinu í
fyrra. Þó byggingareinkunnirn-
ar séu misjafnar þá er þarna
um óvenju framfallegan hest að
ræða. Líklegt er að þessi hestur
eigi eftir að bæta við sig í hæfi-
leikum, einkum í skeiðinu.
Gustur ofdæmdur?
Þriðji hesturinn í þessum flokki
var Gustur frá Grund. Gustur er
orðinn 9 vetra og hefur áður
hlotið góðan dóm. Hesturinn
hefur vakið mikla athygh, eink-
um fyrir brokk og vilja. Hann
hefur hins vegar verið mikið
umdeildur og hætt er við að svo
verði áfram. Þær einkunnir sem
Gustur hlaut nú voru fyrir
byggingu 7,88 og fyrir hæfileika
8,63. Frambygging hestsins er
góð en aðrar einkunnir slakar,
hófar þó þokkalegir. Fyrir hæfi-
leika fær þessi hestur 10 fyrir
brokk og 9,5 fyrir tölt. í báðum
þessum tilfellum er hestinum
ofgefið og þó sérstaklega í tölt-
inu. Einkunn upp á 9,5 er fyrir
tölt sem þykir mjög æskilegt og
verður að vera algerlega takt-
hreint. Það er það alls ekki hjá
þessum hesti. Miðað við dóm-
stigann eins og hann er settur
fram í bókinni Kynbótadómar
og sýningar er að mínu viti sett
fram mjög góð skilgreining á
því tölti sem fram kemur hjá
Gusti. Hún er þannig:
„Rúmt, afar lyftingar- og
framgripsmikið tölt en skortir
nokkuð á gott taktöryggi." Sam-
kvæmt dómstiganum er þetta
8,5 fyrir tölt. Gustur er ekki í
hópi bestu töltara landsins.
Brokkið í þessum hesti er
mjög einstakt fyrir mikið fram-
grip. Stilling hestsins í reið ger-
ir það hins vegar að verkum að
svifið verður ekki að sama
skapi eins mikið, því er hæpið
að gefa honúm 10 fyrir þessa
gangtegund. Þó þessi gagnrýni
komi fram á dóminn þá er hér
á ferðinni mikill garpur og á
væntanlega eftir að skila góðum
kostum inn í ræktunina. Skeið-
einkunn Gusts hefur snarlækk-
að frá því fyrir þremur árum.
Þessa gangtegund er erfitt að
dæma vegna blendingsins í
hreyfingunni. Aðaleinkunn
Gusts er 8,28.
Askur næstur
Sjö aðrir hestar fengu yfir 8 í
aðaleinkunn. Næstur Gusti var
Askur frá Keldudal. Hann
hækkar fyrir byggingu en
lækkar fyrir hæfileika frá því í
fyrra þó heildareinkunn sé
svipuð 8,18. Ilrókur frá Glúms-
stöðum bætti sig verulega, fékk
nú 8 fyrir byggingu og 8,31 fyr-
ir hæfileika, allt mjög jafnar
einkunnir. Gauti frá Gautavík,
sem er ættlítill hestur fékk góða
einkunn fyrir hæfileika 8,41 en
byggingareinkunn fremur slök,
7,88. Þetta er fljúgandi reið-
hestur. Faxi frá Hóli í Sæmund-
arhlíð fékk góðar og jafnar
einkunnir aðaleinkunn 8,12.
Hann er albróðir Þyts frá Ilóli
sem fékk háan dóm á lands-
mótinu 1994. Hlér frá Þórodds-
stöðum fékk jafnar einkunnir
aðaleinkunn 8,08, en vantar
fegurð. Andvari frá Skáney sem
orðinn er 9 vetra fór nú yfir 8
markið, þokkalegur reiðhestur.
Sömuleiðis fékk náði Brynjar
frá Árgerði yfir 8, mikill gang-
hestur en byggingin slök.
i
%
KNATTSPYRNA
Leikurínn gegn Genk
er sá besti hingað 1U
Rætt við Lúkas
Kostic, þjálfara KR.
Undirritaður lagði leið sína
vestur á Álagranda eitt
fagurt sunnudagskvöld í
byrjun maí og tók hús á Lukasi
Kostic og fjölskyldu hans á vist-
legu heimili þeirra í Vesturbæn-
um. Tilgangurinn var að spjalla
stuttlega við þjálfarann um fót-
bolta og tímabilið sem framundan
er. Fjölskyldan sat við stofuborðið
og spilaði myllu þegar fréttasnáp-
inn bar að garði. Yngsti meðlim-
urinn, Alexander, var ekki beint
sáttur við gang mála í spilinu því
hann var að tapa fyrir eldri bróð-
ur sínum. Hönum kippir greini-
lega í kynið og kann tapinu illa.
Eftir að hafa þegið góðar veiting-
ar hjá Svetlönu og Kóla, en svo er
Lukas kallaður meðal KR-inga,
skelltum við okkur í viðtalið.
- Nú ertu búinn að vera hér í
l’Á ár, hvernig hefur fjölskyldunni
líkað dvölin í Vesturbœnum?
„Hér er mjög gott að vera.
Þetta er svipað og heima í Júgó-
slavíu þar sem við áttum heima í
150 þúsund manna borg. Eldri
strákurinn okkar hefur eignast
mjög góða vini og sá yngri er í
leikskóla og þeir eru mjög ánægð-
ir hér í Vesturbænum. Það er
mikið þægilegra að vera hér í
borginni en á minni stöðunum úti
á landi. Ilér höfum við allt til
alls.“
- Eru strákarnir þínir í fót-
boltanum eins og þú?
„Eldri strákurinn, Igor, er að
æfa með 4. flokki í KR og ég held
að hann sé efnilegur. Sá yngri er
bara 4 ára en auðvitað sparkar
hann bolta eins og allir strákar.
Það kemur í ljós hvort hann fær
brennandi áhuga einhvern tíma
seinna."
- Hvernig hefur fótboltinn
þróast á íslandi síðan þú komst
hingað til lands árið 1989 og
lékst með Þór Akureyri?
„Það hafa orðið miklar fram-
farir og bestu liðin hérna eru að
verða mjög góð. Ilérna verða
menn samt að fara að hugsa
meira eins og atvinnumenn. Það
er fullt af efnilegum leikmönnum
á fslandi sem geta orðið góðir
evrópskir knattspyrnumenn ef
þeir fá tækifæri til að helga sig
boltanum meira en þeir hafa gert
til þessa.“
- Eflir gotl gengi fyrrihlula
mótsins ífyrra gekk allt á aftur-
fótunum í seinnihlutanum, Hvað
var það sem fór úrskeiðis?
„Það er kannski ekki hægt að
benda á neina eina ástæðu. Við
vorum óheppnir með meíðsli.
Þegar Guðmundur (Benediktsson)
meiddist kom vel í ljós að breidd-
in í sóknarleiknum var ekki nógu
mikil. Svo var Ililmar (Björnsson)
að leika kviðslitinn allan seinni
hluta mótsins. Það setti allt strik í
reikninginn. Hjá klúbbi eins og
KR þarf að vera hörð samkeppni
um allar stöður. Varamennirnir
mega ekki vera neitt síðri en þeir
sem byrja leikinn."
- Hvaða breytingar hafa orð-
ið á KR-liðinu frá síðasta ári?
„Strákarnir eru miklu sterkari
núna en í fyrra. Þeir eru í mjög
góðu úthaldi og nú er leikskipu-
lagið farið að ganga vel. Belgarn-
ir sem við lékum við voru undr-
andi á hvað liðið var í góðu út-
haldi og hve mikið strákarnir
lögðu á sig. í leiknum við Lom-
mel, sem var í 4. sæti, fyrir ofan
Anderlecht, var Þormóður (Egils-
son) að hlaupa frá línu til línu á
90. mínútu á sömu ferð og í upp-
hafi leiks og I-iilmar var alveg frá-
bær líka, alltaf kominn þar sem
hans var þörf áður en Belgarnir
gátu áttað sig.“
- Er hópurinn sterkari nú en
áður?
„Já hann er það. Við lögðum
áherslu á að halda öllum hópnum
frá siðasta ári. Það tókst nokkurn
veginn. Eins og ég sagði áðan þá
eru strákarnir í betra úthaldi en
nokkru sinni áður síðan ég kom.
Það leit illa út hjá vörninni þegar
bæði Þorsteinn og Siggi Örn ætl-
uðu að hætta en nú eru þeir
komnir aftur og yngri strákarnir,
Villi, Arnar og Bjarni Þorsteins,
eru orðnir mjög sterkir og geta
allir verið í 11 manna liðinu. Síð-
an höfum við fengið tvo mjög
góða leikmenn, Þórhall Dan Jó-
hannsson og Sigþór Júh'usson, og
þeir falla báðir mjög vel í hópinn.
Þegar svo Gummi Ben. og Ándri
Sigþórsson verða orðnir heilir
verður hópurinn mjög sterkur."
- Þið stóðuð ykkur mjög vel í
œfingaferðinni til Belgíu á dög-
unum. Er liðið eins sterkt og töl-
urnar úr þeirri ferð segja?
„Það er kannski ekki hægt að
segja að tölurnar úr leiknum við
Genk hafi verið raunhæfar. Það er
lang besti leikur sem KR hefur
leikið undir minni stjórn og allt
liðið lék mjög vel, eins og at-
vinnumenn. Að komast í 5-0 við
liðið í 8. sæti í belgísku fyrstu
deildinni er varla raunhæft fyrir
íslenskt félagslið á venjulegum
degi. Þeir höfðu leikið 13 leiki án
taps í deildinni þegar við unnum
þá og voru með sitt sterkasta lið
en við án Gumma og Sigga. Þetta
sýnir að allt getur gerst í fótbolt-
anum. Leikurinn við Lommel var
hinsvegar misgóður hjá okkur.
Við spiluðum hræðilega fyrsta
klukkutímann. Þá trúðu strákarn-
ir ekki að þeir gætu unnið lið sem
væri fyrir ofan Anderlecht í Belg-
íu. En þegar þeir sáu að þeir voru
ekkert lakari fótboltamenn tóku
þeir leikinn í sínar hendur. Við
fengum fullt af færum á lokakaíl-
anum til þess að gera út um
þennan leik en það gekk ekki í
þetta sinn.
Þessi ferð sýndi okkur það, að
ef við erum heppnir í Evrópu-
keppni og komumst t.d. upp úr
forkeppni fáum við miklu meiri
pening til að gera eitthvað fyrir
leikmenn okkar. Þá munum við
líka fljótt eignast marga góða
leikmenn sem allir gætu leikið
með evrópskum fyrstudeildarlið-
um. Margir í KR liðinu í dag gætu
verið í bestu iiðunum í Belgíu.“
- / fyrsta leik eftir Belgíuför-
ina tapið þið fyrir þínu gamla
liði, Grindavík. Hvað kom til?
Nú hló Kóli. „Við komum heim
kvöldið fyrir þennan leik. Það var
búið að vera mikið álag á okkur
og ég vildi ekki láta alla leik-
mennina leika þennan leik. Það
er strangt leikjaprógramm fram-
undan hjá okkur, úrslitin í
Reykjavíkurmótinu við Fram og 5
leikir með stuttu miilibili í deild-
inni sem hefst eftir hálfan mánuð.
Þess vegna lét ég strákana úr
öðrum flokki leika þennan leik
með Heimi, Einari Þór og Sigga
Erni, sem þarna lék sinn fyrsta
leik með okkur í vetur. Ég tók ein-
faldlega ekki áhættu á að þeir
Lúkas Kostic, þjálfari KR.
leikmenn, sem hafa verið á fullu í
allan vetur, yrðu fyrir meiðslum
rétt fyrir mót.“
- Nú er stutt í að íslandsmót-
ið hefjist. Verður nú biðin eftir
íslandsmeistarabikarnum loks-
insáenda?
„Ég veit eiginlega ekki hvernig
ég á að svara þessu. Auðvitað
stefnir KR alltaf að öllum titlum.
Við viljum vera íslandsmeistarar.
Stjórnin, þjálfarinn og leikmenn-
irnir stefna allir að því að vinna
allt sem hægt er að vinna. Þannig
er KR og þannig á það að vera.
En það er margt sem getur spilað
inn í. Ef við verðum heppnir og
losnum við meiðsli hjá leikmönn-
um eigum við hikiaust að vinna
íslandsmeistaratitilinn. Við höfum
mannskap til þess ef allir eru
heilir og leggja sig 100% fram allt
tímabilið. Það þarf að vera sam-
keppni um allar stöður í liðinu,
menn þurfa að hafa metnað og
vilja til að vinna sér sæti í liðinu
því það er heiður að fá að leika
fyrir KR. Ef við höldum allir því
hugarfari og leggjum allt sem
þarf á okkur til þess að fá 3 stig í
hverjum leik verðum við meistar-
ar.“
GuðniÞ. Ölversson.
KARFA
Teitur með
þrjútilboð
Teitur Örlygsson, lands-
Uðsmaður í körfubolta
og fyrrum atvinnumaður í
Grikklandi, hefur fengið til-
boð frá þremur íslenskum
úrvalsdeildarliðum. Það er
hans gamla félag, Njarðvík,
sem vill fá hann í sínar
raðir aftur svo og KR og
Grihdavík. Það mun svo
skýrast á næstu dögum
hvaða tilboði hann tekur
og víst er að það verður
happdrættisvinningur fyrir
fyrir það félag, svo og alla
körfuboltaunnendur, að fá
Teit aftur til leiks hér
heima. gþö
HANDBOLTI
Úrvalslið
Sigurðar mætir
landsliðinu
Sigurður Gunnarsson,
þjálfari Hauka, hefur
tilkynnt val sitt á úrvalsliði
sem mæta mun íslenska
landsliðinu í handknattleik
á laugardaginn. Leikurinn
hefst klukkan 16 og fer
fram í Smáranum í Kópa-
vogi en þetta verður síðasti
leikur landsliðsins, áður en
liðið heldur utan á IIM í
Kumamoto.
Lið Sigurðar er skipað
eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Bjarni Frostason, Haukum
Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV
Aðrir leikmenn:
Páll Þórólfsson, UMFA
Guðmundur Pedersen, FH
Oleg Titov, Fram
Sigfús Sigurðsson, Selfossi
Aron Kristjánsson, Haukum
Jón Kristjánsson, Val
Gunnar Andrésson, UMFA
Daði Hafþórsson, Fram
Sigurður Sveinsson, HK
Gunnar Berg Viktorsson, (BV
Njörður Árnason, Fram
Sigurður Sveinsson, UMFA
ALMENNINGSHLAUP
Ursfítí 1. maíhlaupi
Alls tóku 544 hlauparar þátt
í 1. maíhlaupi UFA, Greif-
ans, Sportvers og Sólar hf. sem
haldið var á Akureyri. Helstu
úrslit urðu þessi.
Stelpur 6 ára og yngri, 1 km
1. Anna Karen Sigurjónsdóttir
Strákar 6 ára og yngri, 1 km
1. Davíð Jón Stefánsson
Stelpur 7-12 ára, 2 km
1. íris Berglind Jónasdóttir
2. Hrönn Helgadóttir
3. Hildur Arna Magnúsdóttir
Strákar 7-12 ára, 2 km
1. Baldvin Ólafsson
2. Viktor Már Jónasson
3. Stefán Kári Sveinbjörnsson
Stelpur 13-16 ára, 2 km
1. Þóra Pétursdóttir
2. Vala Birna Valdimarsdóttir
3. Laufey Hrólfsdóttir
Strákar 13-16 ára, 2 km
1. Ómar Freyr Sævarsson
2. Steinþór Þorsteinsson
3. Derey Jóhannsson
Skóiakeppni, hlutfall nemcnda
sem tóku þátt í hlaupinu
1. Giijaskóli 74,6%
2. Oddeyrarskóli 52,3%
3. Glerárskóli 15,6%
(Giljaskóli vann bikarinn annað árið
í röð)
Konur 17-39 ára, 4 km
1. Ragna Erlingsdóttir 18:35
2. Anna Eðvarðsdóttir 18:40
3. Gréta Björnsdóttir 19:15
Karlar 17-39 ára, 4 km
1. Haraldur Grétarsson 16:30
2. Höskuldur Stefánsson 16:35
3. Hákon Þorsteinsson 17:20
Konur 40 ára og eldri, 4 km
1. Elín Hjaltadóttir 20:10
2. Anna Hermannsdóttir 23:15
3. Þorgerður Sigurðardóttir 24:30
Karlar 40 ára og eldri, 4 km
1. Bjarni Guðleifsson 20:00
2. Atli Benediktsson 20:15
3. Jón Þór Sverrisson 20:35
Konur 17-39 ára, 10 km
1. Guðrún Una Jónsdóttir 48:13
Karlar 17-39 ára, 10 km
1. Jón ívar Rafnsson 35:34
2. Einar Ólafsson 37:19
3. Sigurður Jónsson 42:34
Karlar 40 ára og eldri, 10 km
1. Sigurður Bjarklind 36:20
2. Karl Halldórsson 38:19
3. Jón Illugason 39:39