Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Blaðsíða 8
8 - Miðvikudagur 7. maí 1997
?öagur-<3Jíntmn
ÞJÓÐMÁL
JDagur- | J
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171
Afgerandi niðurstaða
í fyrsta lagi
Pað stefnir allt í að Qórflokkurinn gamli leggi á ný
undir sig flokkakerfið á íslandi. Kvennalistinn,
eina raunverulega ógnunin við flokkakerfið í rúma
hálfa öld, stendur nú á tímamótum þar sem feigð-
in kallar að honum. Nýlokið er könnun meðal fé-
lagskvenna þar sem leitað var eftir viðhorfum til
áframhaldandi starfs og framboðs sérstaks
Kvennalista. Upplýst er a,ð engin afgerandi niður-
staða hafi komið út úr þessari könnun þannig að
Kvennalistinn er jafn nær um hvað beri að gera.
Afgerandi leiðsögn eða vísbendingar skortir frá
kvennalistakonum sjálfum um hvort sérstakt
kvennaframboð sé réttur farvegur fyrir kvenna-
baráttuna á öndverðri tuttugustu öld.
í öðru lagi
Fyrir okkur, sem stöndum utan við naflaskoðun
Kvennalistans, er það hins vegar afar afgerandi
niðurstaða að engin afgerandi niðurstaða skuli
fást í könnun sem þessari. Kvennaframboðið og
síðar Kvennalistinn hafa allt frá byrjun þvertekið
fyrir að vera stjórnmálaflokkur í hefðbundnum
skilningi. Kvennalistinn hefur skilgreint sig sem
tímabundna, sjálfsprottna hreyfingu, sem grasrót-
arhreyflngu. Þegar engin afgerandi niðurstaða
fæst úr könnun meðal félaga er það afdráttarlaus
vísbending um að hugsjónahitinn sem hreyfði
hreyfinguna sé ekki lengur til staðar.
í þriðja lagi
Hreyfingarlaus pólitisk hreyfíng er ekki mikils
virði. Það vita Kvennalistakonur. En klukkan tifar
og það er aðeins spurning um mánuði eða misseri
í mesta lagi þangað til menn verða að viðurkenna
fyrir sjálfum sér þá niðurstöðu sem í raun liggur
nú þegar fyrir. Fjórflokkurinn bíður. A-flokkarnir
vonast eftir að geta virkjað Kvennalistann til upp-
stokkunar á flokkakerfinu. Framsókn og Sjálfstæð-
isflokkur telja sig líka eiga kost á vænum bitum.
Kvennalistanum sem slíkum verður þó ekki ráð-
stafað af flokkum eða til flokka. Hann er hreyfing,
sem leysist upp hætti hann að starfa.
Birgir Guðmundsson.
irtö
Á skólaeinkunn, í stað samræmdra prófa,
að gilda sem lokaeinkunn í stærðfræði í 10. bekk
þetta skólaár?
Óli Þ.
Guðbjartsson
skólastjóri
Sólvallaskóla
á Selfossi
Meginmistök varðandi
samræmd próf finnast
mér vera að krakk-
arnir fá ekki þann tíma sem
þau þurfa til þess að leysa þau
með sóma. Það heyri ég síðan
á kennurunum hér í skólanum
að stærðfræðiprófið hafi verið
þungt og efnismikið. Mér finnst
það líka óeðlilegt að á sam-
ræmdum prófum sé prófað úr
efni fjögurra námsvetra, þ.e. 7.
til 10. bekkjar, þegar í fram-
haldsskóium er aðeins prófað
úr efni einnar námsannar í
senn.
Baldvin J.
Bjarnason
skólastjóri
Gagnfrœðaskóla
Akureyrar
Nei, ég met stærðfræði-
prófið á dögunum ekki
jafn hart og kennarar í
Reykjavík gera. Hér á bæ voru
kannski eitthvað fieiri í stof-
unni ennþá þegar próftími
rann út - og hafa ber í huga að
sumir nemendur sitja alltaf út
allan tímann. En hér var eng-
inn grátur né gnístran tanna,
og mér finnst ekki ástæða til
þess að gera þann bægslagang
úr málinu sem orðið hefur.
♦
♦
Pétur
Bjarnason
forstöðumaður
Skólaskrifstofu
Vestfjarða
S
Eg tel sýnt að mistök hafi
verið gerð varðandi
þetta próf hvað varðar
lengd, miðað við próftíma. Þvf
tel ég skólaeinkunn eiga að
giida að þessu sinni, enda geta
samræmd próf í stærðfræði
þetta skólaár ekki gefið rétta
mynd af getu barnanna.
Jónína
Bjartmarz
formaður Heimilis
og skóla
S
Eg hallast að því út af
göllunum sem voru á
prófinu og framkvæmd
þess. Við vonumst til þess að
menntamálaráðherra tryggi að
í framtíðinni verði ekki gerð
sambærileg mistök og nú hafa
orðið við gerð stærðfræðipröfs-
ins, samanber umdeild
dönskupróf í fyrra og íslensku-
próf í hitteðfyrra.
s Tvffl
Bústin húsmœðralœri
„Ég sá svo sem ekkert dónalegt
í „framlaginu", nema ef vera
skyldu þykk og bústin hús-
mæðralæri sem umvöfðu piltinn
Pál.“
- Sigríður Halldórsdóttir í DV í gær.
Misskilningur
„Það er að mínu mati útbreidd-
ur misskilningur, að stærðfræði
sé tilbúinn pakki af þekkingu,
óbrigðul sannindi, sem urðu til
fyrir löngu í sinni endanlegu
mynd.“
- Meyvant Þórólfsson í Mbl. í gær.
Já og nei
„í slíkri stöðu getur ríkisstjórn-
in lítið gert annað en að ítreka
trúarjátningu hvalveiðanna,
með óvissum dómsdegi. Stefnan
felur í sér skýrt og klárt já og
nei.“
- Jónas Kristjánsson í DV í gær.
Svínbeygð
„Enn og aftur sannast, að það
sem ekki tekst að beygja verka-
lýðshreyfmguna undir í kjara-
samningum er hún svínbeygð
undir með lögum frá Alþingi."
- Magnús M. Norðdahl í Alþýðublaðinu í
gær.
Pínulítið hugrekki
„Mikið er nú gott að heyra að
íslenskir ráðamenn skuli af og
til sýna framsýni og djörfung,
pínulítið hugrekki og þor.“
- Ólafur Guðmundsson í Mbl. í gær.
f slenskur sigur í Bretlandi
• •
ssur Skarphéðinsson viðurkenni í
pontu Alþingis í gær, að hann hafi
ekki haft hugmynd um á móti eða
með hverju hann var að kjósa í atkvæða-
greiðslu um frumvarp ríkisstjórnarinnar
um lífeyrissjóði. Útbólgin umræða, utan
þings, sem innan, um sjóðakerfin hefur
ekki verið til þess fallin að auka skilning á
málefnunum, eða yfirleitt um hvað ágrein-
ingur stendur. Ef rétt er misskilið koma
málsaðilar sér ekki saman um hvort líf-
eyrissjóðir og líftrygging er eitt og hið
sama eða ekki og hver sé þá munurinn.
íhugulli menn er Össur eiga erfitt
með að greina um hvað lífeyriskemp-
urnar eru að hnakkrífast og er þing-
manninum vorkunn að greiða atkvæði
án þess að hafá hugmynd um hvaða
áhrif það kann að hafa til góðs eða ills,
eða er meiningarlaust með öllu.
Margt er það fleira í umræðu dagsins
sem erfitt er að henda reiður á eða koma
í neitt vitsmunalegt samhengi. Eitt af því
eru úrslit kosninganna í Bretlandi.
Allragagn
Af ummælum og blaðaskrifum er helst
að skilja að Tony Blair hafi verið í fram-
boði fyrir íslenskar flokkasamsteypur og
unnið glæsilegan kosningasigur fyrir
þær. En best af öllu er að Tony sigraði
fyrir öll helstu stjórnmálaöfl á íslandi
ekki síður en í Bretlandi.
Davíð Oddsson vísaði veginn þegar
hann skýrði svo frá rétt fyrir kosningar,
að baráttan líktist því helst að fara ætti
að kjósa formann
fhaldsflokksins.
Stefna flokkanna og
flokksforingjanna í
Bretlandi var sú
sama að dómi forsæt-
isráðherra. Hannes
Ifólmsteinn lét ljós sín skína í öllum fjöl-
miðlum og m.a. í Degi-Tímanum, þar
sem hann vák hvergi frá þeirri staðhæf-
ingu sinni, að lafði Margrót, sem áður
gengdi nafninu Thatcher, hafi unnið sinn
stærsta sigur með með því að planta öll-
um sínum uppáhaldskenningum í
stefnuyfirlýsingar hins nýja og sigursæla
Verkamannaflokks.
Vinstri menn af öllum sortum ráða
sér ekki af kæti og þykir nú deginum
ljósara að tími hins mikla FLOKKS sé
upp runninn og stíga á stokka og
strengja heit.
Fylgjum Tony
Allt ætlar það lið að feta í fótspor
breskra krata, sem búnir eru að skáka
íhaldinu til hliðar og uppheija merki
Thatcherismans á vegferð sinni til hins
alfrjálsa markaðar og
myntsamruna Evr-
ópusambandsins.
Sem lafðin er raunar
á móti, þar sem hún
viðurkennir ekki að
heimsveldið sé liðið
undir lok, þótt það hafi sprungið í loft
upp með síðustu bombunum sem kastað
var yfir Berlín. Hin nýja jafnaðar-
mennska á íslandi felst meðal annars í
því að Sighvatur flokksformaður býður
öllum sönnum allaböllum að ganga und-
ir jarðarmen þeirra kratanna og byggja
utanríkisstefnuna á Nató og að sækja hið
fyrsta um að komast í Evrópusamband-
ið. Ef eitthvað er eftir af Kvennalistanum
má hann einnig fá inngöngu í hinn nýja
Jafnaðarmannaflokk Sighvats og Tonys.
Sigur Tony Blairs er sigur íslenska
íhaldsins, jafnaðarmanna, allaballa og
samsteypusinna af mörgum gerðum. í
þessu blaði gat einnig að líta að Ingibjörg
Sólrún væri einn sigurvegaranna og fer
vel á því að engir verði undanskildir sig-
urlaunum fyrir að kolfella breska íhaldið.
Auðskilið er að Össur botnar ekkert í
hvaða áhrif atkvæði hans hefur á lífeyr-
issjóðafrumvarpið, þar sem hann botnar
ekkert í um hvað frumvarpið fjallar.
Enda á hann það sammerkt með öllum
þorra landsmanna, sem láta sé nægja
að halda að þingmenn skilji hvað þeir
eru að gera á Alþingi.
Hitt er undalegra að sé nokkuð að
marka leiðara Alþýðublaðisins, að þá
efast Össur ekki um hárréttan skilning
sinn á hvernig Tony Blair sigraði ís-
lenska íhaldið með því að fá hreinan
meirihluta í breska þinginu. Þann sama
sigur telur dr. Hannes Hólmsteinn, dó-
sent í stjórnmálafræðum, stórsigur
Thatcherismans.
Vér skilningssljóir játum oss sigraða.
OÓ