Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Qupperneq 3
ÍDngmÆmtmn
Miðvikudagur 7. maí 1997 - 15
LÍFIÐ í LANDINU
Sigrún þórólfsdóttir og Magnús
Björnsson saman á góðri stundu.
Þriggja ára sæludvöl þeirra á
Hveravöllum er nú að Ijúka og við
taka ný og spennandi verkefni
erlendis.
„Engin emangrun“
Flestar helgar er einhver
umferð hér á Hveravöll-
um, þannig að hér er eng-
in einangrun eins og sumir
myndu halda. Pað er kannski
helst að síðustu vikur fyrir jólin
færist ró yfir
ferðalög á há-
lendinu, en í
annan tíma er
hér oftast mikið
umleikis. Kjal-
vegur er orðinn
fær í júní og nú
öllum bflum eft-
ir að Seyðisá
var brúuð fyrir
fáum árum,“
segir Sigrún
Þórólfsdóttir.
Hún og Magnús
Björnsson,
sambýlismaður hennar, munu í
sumar ljúka þriggja ára vist
sinni sem veðurathugunarmenn
á Hveravöllum. Nýlega var
stariið auglýst laust til umsókn-
ar og bárust fjölmargar um-
sóknir, enda heiliar hálendið.
Á þriggja
stunda
fresti
„Ég hef þá til-
íinningu að
vetrarferðir um
hálendið haii
verið heldur
minni síðustu
ár - en þar á
undan. Að þær
haíi náð
einhverjum
toppi, en svo
dregist saman.
En árin hér á Hveravöllum hafa
verið skemmtileg og lærdóms-
rík og höfum við fengið að
kynnast góðu fólki sem lagt hef-
ur leið sína á hálendið. Við
komum hingað til starfa haustið
1994 og var starfsaldur veður-
athugunarmanna að jafnaði tvö
ár þótt lengst hafi fólk starfað
hér í fimm ár samfellt. Síðast-
liðin þrettán ár hefur fófk hins
vegar verið hér
í eitt og tvö ár,
þannig að það
var tími til
kominn að
sprengja þann
múr,“ segir
Sigrún.
Hveravellir
eru einn mikil-
vægasti staður-
inn í neti veð-
urathugunar-
stöðva lands-
ins. Stöðin var
sett á fót árið
1965, en þar fyrir utan eru
Hveravellir vel þekktur staður í
sögu landsins; bæði sem hreið-
ur útilegumanna fyrr á öldum
og einnig fyrir að þar eru sælu-
hús Ferðafélags fslands. „Störf
veðurathugunarfólks hér á
Hveravöllum felast í því að gera
athuganir á þriggja stunda
fresti allan sól-
arhringinn;
það er að at-
huga hitastig,
skýjafar,
skyggni, vind-
hraða- og
stefnu, úrkomu
og loftvog. Síð-
an bætast við
margskonar
aðrar athugan-
ir, svo sem tök-
ur á snjósýnum
yfir veturinn,
ísingamælingar og daglegar
mælingar á snjódýpt. Allar
þessar upplýsingar eru síðan
sendar reglulega á tölvutæku
formi til Veðurstofu fslands í
Reykjavík,“ segir Sigrún.
í betra
fjarskiptasambandi
Að sögn Sigrúnar hafa síðustu
tveir vetur verið fremur snjó-
léttir, en nú í vetur vetur hafa
óveður varað heldur lengur en
veturna þar á undan. „Versta
veður sem hefur komið á þess-
um tæpu þremur árum sem við
höfum verið hér var í janúar
1995. Þá var slegið vindhraða-
met hér frá því mælingar hóf-
ust, en meðalvindur fór í 88
hnúta eða 15 vindstig. Þetta er
jafnframt í eina skiptið á þess-
um Hveravallaárum sem við
höfum ekki treyst okkur út úr
húsi til veðurathugana."
Á síðustu árum hafa Hvera-
vellir komist í mun betra sam-
band við umheiminn. Þangað er
nú beint símasamband með ör-
bylgjusendingum, en áður var
aðeins hægt að ná sambandi við
staðinn í gegnum NMT farsíma,
auk talstöðva. Ilin nýja síma-
tækni opnar síðan fyrir ýmsa
aðra möguleika, svo sem beina
tengingu staðarins við umheim-
inn í gegnum Alnetið. Þá var á
síðasta ári unnið að endurbót-
um á móttöku sjónvarps þannig
að sendingar útvarps og Sjón-
varpsins nást þar nú með ágæt-
um. „Að ná sjónvarpinu styttir
kvöldin og það er gott að geta í
það minnsta séð fréttir,“ segir
Sigrún.
Á leið úr landi
Sem áður segir lýkur dvalar-
tíma þeirra Sigrúnar og Magn-
úsar á Hveravöllum í ágúst á
þessu ári. Þau segja að eftir það
muni leið þeirra að öllum lík-
indum liggja út fyrir landstein-
ana í leit að nýrri þekkingu og
reynslu. - En eftir sitja góðar
minningar um skemmtilega
þriggja ára veru á þeim stað
sem kannski má kalla hjarta
hálendisins. -sbs.
Sæluhús Ferðafélags íslands á Hveravöllum. Til Hveravalla er stöðugur straumur ferðamanna árið um kring.
„Þá fór í 88 hnúta
eða 15 vindstig.
Það er í eina skipt-
ið sem við höfum
ekki treyst okkur
út úr húsi til veð-
urathugana. “
„Hér er engin ein-
angrun. Það er
kannski helst
að síðustu vikur
fyrir jól fcerist ró
yfir ferðalög á
hálendinu.“