Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Blaðsíða 8
20 - Miðvikudagur 7. maí 1997 ^Dctgur-®tmmí FOLK Þau gera það gott! Skinnastofan áAkureyri er að sprengja allt utan af sér með vaxandi velgengni. „Þetta er ítalska aðferðin, “ segja hjónin Steindór Kárason og Jóna Þórðardóttir, sem nú eru staðsett í hinum sögufrœga „gamla banka“ á Ak- ureyri. Lofthæðin í kjallaranum er ekki í neinu samrœmi við háleit áformin. Þau hanna, sníða og framleiða lúffur, skó og húfur sem þau selja til Japans og Þýskalands. Salan er í gegnum póstbœkling þar sem margar íslensk- ar framleiðsluvörur eru falboðnar erlendis. Þau vonast nú eftir viðskiptum við rússneskan heildsala. ítalska að- ferðin er að hanna og sníða, enfá saumakonur til starfa. Þœr vinna t. d. heima hjá sér úti á Grenivík og víðar. Þannig skapast störf fyrir heimavinnandi og sýnt að bœta verður við á nœstunni. Þetta er alíslenskfram- leiðsla, skinnin koma frá Skinnaiðnaði á Akureyri, hönnun og hugvit er hjónanna, saumafólkið er hingað og þangað við störf sín, og salan fer fram í íslenskum bœklingi. Og nýjasta afurðin? Smíðavesti með hettu fyr- ir uppfinningamann sem þarf að hafa tœki og tól hang- andi utan á sér og jái skjól fyrir veðrum og vindum líka! na með fjölskyldu sinm. Þórður „Doddi“ Steindórsson sonur Jónu og Steindórs með hlýlega húfu. Þórður starfar hjá foreldrum sínum þegar tækifæri gefst frá námi. •r Dúllulegt, ekki satt. Þessir barnaskór voru saumaðir fyrir fimmtán árum

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.