Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Qupperneq 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Qupperneq 6
18 - Miðvikudagur 7. maí 1997 |Dagitr-®tmfam Hermann Pálsson sérfræðingur í miðaldabókmenntum og fyrrverandi pró- fessor við Edinborgarháskóla er einn þeirra sem skemmtir mönnum á Listasumri. AAkureyri kemur ekki bara sumar heldur Lista- sumar og nú er undir- búningur fyrir þau herlegheit á fullu. Það er Listasumar númer fimm sem verið er að undirbúa og segir framkvæmdastjórinn, Ragnheiður Ólafsdóttir, að það verði dagskrá nánast upp á hvern einasta dag frá Jóns- messu, 24. júní til 29. ágúst sem er afmælisdagur Akureyr- arbæjar. „Við erum enn að auglýsa eftir myndlistarmönnum en að- alsýningin verður opnunarsýn- ing þar sem akureyrskir lista- menn sýna saman. Vinnuheiti sýningarinnar er 50x50 en það er sú stærð sem listaverkin eiga að vera.“ Og auðvitað mega burtfiuttir Akureyringar vera með. Ragnheiður segir að stefnan sé að virkja heimamenn en eins og menn muna voru nokkrir sem kvörtuðu undan of lítilli þátttöku Akureyringa á síðasta Listasumri. „Það sem stjórn Listasumars gerir í raun er að raða dagskráratriðunum sam- an, sjá um að ekkert rekist á og gefa út upplýsingabæklinga. Gilfélagið leggur líka til hús- næði. - En dagskrárliðirnir eru ekki allir í umsjá Listasumars heldur koma þar að fleiri aðilar eins og Sumartónleikar á Norð- urlandi, Minjasafnið og Jazz- klúbbur Akureyrar." Jazzstemmning Listamenn hafa verið meira en Manúela Wiesler er eitt trompið, hún mun einungis leika á Akureyri að þessu sinni. MENNING OG LISTIR Listasumar að skella á tilbúnir til að koma til Akur- eyrar á Lista- sumri og segir Ragnheiður að jazzistar fari þar fremstir í fiokki en þeir eru mun fleiri sem sækja um en komast að. „Stemmningin á jasstónleik- um hér hefur verið einstök og nú hefur jazzklúbbur Akureyrar tek- ið að sér að skipuleggja jazzinn." Myndlistin og tónlistin 24. júní hefst Listasumar með samsýn- ingu myndlist- armanna á Ak- ureyri í Ketil- húsi en fyrir- hugað er að halda um 10 myndlistarsýn- ingar í Deiglu og Ketilhúsi. Þar verða á ferð listamenn frá Akureyri, Reykjavík, Gautaborg, Sviss og IJol- landi. Á meðal þeirra sem sýna eru Hlyn- ur Helgason, Joris Radema- ker, Marianne Schoiswohl, Arna G. Vals- dóttir og Guð- ný Kristmanns- dóttir. Framkvæmdastjórn Listasumars 1997. Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Pálína Guðmundsdóttir og Ragnheiður Ólafsdóttir. Á myndina vantar Gunnar Frímannsson og Þórgný Dýrfjörð. Mynd: GS Dagskrd ndnast upp d hvern ein- asta dag frd Jóns- Einir sex klassískir tónleikar eru komnir á blað. Par má fyrsta fræga telja Manúelu Wi- esler sem er væntanleg hingað í ágúst í tengslum við flautunám- skeið Kristínar Cardew. Sin- fóníuhljómsveit íslands kemur norður íjúníog leikur ásamt Sinfóníuhljóm- sveit Norður- mesSU, 24. jÚní, til lands. Þa eru ■' Laufey Sigurð- ardóttir, Páll Eyjólfsson, Guðrún Jóns- dóttir og Ólafur Vignir Aiberts- son á meðal þeirra sem halda tónleika í Deiglunni í sumar. Auk þess verða fimm tónleikar á vegum Sumartónleika á Norðurlandi í Akureyrarkirkju. Þar koma fram m.a. Björn Steinar Sól- bergsson, Hafliði Hallgrímsson, Arnaldur Arnarsson, Schola 29. dgúst sem er afmœlisdagur Akureyrarhcejar. Cantorum og Hörður Áskelsson. Jazzinn verður á sínum stað, í Deiglunni á fimmtudagskvöld- um. Jazzklúbbur Akureyrar sér um hann eins og áður sagði og er Tuborg helsti stuðningsaðil- inn. Tónlist með börnum verður í ágúst. Þar vinnur Jaque- line FitzGibbon með þema um fugla og býr til tónlist með börnunum. Söngvaka verður tvisvar í viku á þriðju- dags- og fimmtudags- kvöldum í Minjasafnskirkjunni en þar flytja þau Þórarinn Ifjartarson og Rósa Kristín Baldursdóttir íslenska tónlist, gamla og nýja með sögulegu ívafi. Leiklistin Leikklúbburinn Saga frumsýnir leikverk sem unglingar frá Ak- ureyri ásamt vinabæjunum Randers, Lahti, Vesterás og Álesund hafa unnið að. Ilingað koma 50 unglingar í tengslum við verkefnið. Færeyingurinn Christian Blak er tónlistarstjóri og hann mun halda tónleika í Deiglunni fjúlí. Gestir Davíðshúss munu verða sýnilegri en oft áður, því þcir halda fyrirlestra í Deigl- unni. Hermann Pálsson sér- fræðingur í miðaldabókmennt- um og fyrrverandi prófessor við Edinborgarháskóla er einn þeirra. Bókmenntir Ragnheiður segir að reynt verði að lialda bókmenntum á lofti á Listasumri. Lítið er enn vitað um dagskráratriðin en hugsan- lega verður haldið námskeið í skapandi skrifum og í fram- haldi af því ritlistarvaka. „Við erum að leggja drög að þessu ásamt Rithöfundasambandinu." - mar

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.