Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Síða 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Síða 7
^Hagiir-CEmttrat Miðvikudagur 7. maí 1997 -19 MENNING OG LISTIR Sæluvikutónleikai* 1997 Haukur Ágústsson skrifar Sýningar: Föstudaginn 9. maí kl. 20.30. Laugardaginn 10. maí kl. 20.30. Síbustu sýningar Það ætla allir að sjá Vefarann! Leikstjórn: Halldór E. laxness Sýningin er ekki við hæfi barna Ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn eftir að sýningin hefst. Sýnt er á Renniverk- stæSinu, Strandgötu 49. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Miðasalan er í Sam- komuhúsinu, Hafnarstræti 57 Sími í miðasölu er 462 1400. ^Dagur-tEímfrm - besti tími dagsins! Laugardaginn 3 maí var efnt til hinna árlegu Sælu- vikutónleika í Miðgarði í Skagaflrði. Fyrir tónleikunum stóðu heimakórarnir tveir, Karlakórinn Heimir, stjórnandi Stefán R. Gíslason, undirleikari Thomas Higgerson, og Rökkur- kórinn, stjórnandi Sveinn Árna- son, undirleikari Pál Szabó. Gestakórar að þessu sinni voru Skagfirska söngsveitin í Reykja- vík, stjórnandi Björgvin Valdimarsson, undirleikari Vil- helmína Ólafsdóttir, og Karla- kórinn Jökull, Hornafirði, stjórnandi Jóhann Morávek, undirleikari Guðlaug Hestnes. Skagfirska söngsveitin hóf tónleikana. Flutningur hennar var afar agaður og vel af hendi leystur og bar lítið á milli í þeim sjö lögum, sem voru á söngskrá sveitarinnar. Jafnvægi radda var í góðu lagi og einnig vald á innkomum og styrk- breytingum. Kórinn er fágaður og glæsilegt hljóðfæri í höndum söngstjórans, Björgvins P. Valdimarssonar, sem hefur mjög gott samband við kórinn. Sérlega má nefna lögin Sefur sól hjá ægi eftir Sigfús Einars- son við ljóð Sigurðar Sigurðs- sonar, sem var afar fínlegt í flutningi kórsins, og í gleðinni, sem er eftir Jón Ásgeirsson við erindi úr Tímarímu Jóns Dala- kolls, þar sem kórinn gerði stórvel. Jaðraði stundum við væmni Fyrir kom, að lög væru nálega ofmótuð í túlkun söngsveitar- innar, svo sem lagið Minning eftir Markús Kristjánsson við ljóð eftir Davíð Stefánsson, þar sem flutningur var heldur hægur og verk- aði nálega væminn. Karlakórinn Heimir var einn kóranna sem söng á tónleikunum. Einsöngvar- ar með Skag- firsku söng- sveitinni voru Krístín Sigurð- ardóttir og Guðmundur Sigurðsson. Bæði gerðu vel í söng sínum. Raddir þeirra féllu vel saman og lúlkun þeirra var tilgerðar- laus en innileg. Annar kórinn á svið var Karlakórinn Jökull. Hann hafði sex lög á efnisskrá sinni. Hljóm- ur kórsins er talsvert góður, en mætti á stundum vera heldur fyllri og breiðari. Agi í kórnum er góður og hefur söngstjórinn gott samband við kórinn, sem svarar vel bendingum hans. Þó þyrfti að ná heldur meiri ákveðni í fiutningi í nokkrum laganna, sem voru á efnisskrá kórsins. Kórnum tókst vel í flutningi negrasálmsins Ride the Chariot. Par náðist góður hljómur og talsvert ekta bragur. Einsöngv- ari í þessu lagi var Björn Ims- land. Rödd hans skilaði sér vel, en hefði mátt hafa meiri vídd til þess að samsama laginu og brag kórsins. Einnig var vel flutt lagið Öræfasveit eftir Jó- hann Morávek við ljóð eftir Að- alstein Aðalsteinsson og Svein- björgu Eiríksdóttur. Einsöngv- ari í laginu Sem lindin tær var Friðrik Snorrason. Hann gerði talsvert vel, en kórinn var nokkuð þungur. Þéttar bakraddir Karlakórinn IJeimir var næstur á dagskrá. Hann hafði sex lög á efnisskrá sinni. Agi í kórnum er í góðu lagi og samband gott við söngstjórann. Innkomur voru jafnan ákveðnar og hreinar. Eins voru túlkunaratriði, svo sem styrkbreytingar í góðu lagi. Eftirtektar- er hinn blær, sem kórinn nær í bakrödd- um með söng. Hinir drlegu Scelu- mjúki vikutónleikar eru mikil hátið og hún tilhlökkunarverð. Þeir, sem haldnir voru aðþessu sinni, gáfu hinum fyrri ekki eftir. ein- Sprengisandi Kórinn gerði lögum sínum góð skil. Nefna má lögin Þú álfu vorrar yngsta land eft- ir Sigfús Ein- arsson við ljóð Hannesar Haf- steins og Á eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð Gríms Thom- sens. Bæði þessi lög flutti kór- inn án undirleiks og var ílutn- ingur mjög vel af hendi leystur. f síðara laginu söng Einár Hall- dórsson einsöng og gerði vel. Þá má nefna Sjá dagar koma, þar sem Pétur Pétursson söng einsöng af mikilli smekkvísi, en kórinn var sérlega þéttur í bak- röddum sínum. Aðrir einsöngvarar með kórnum voru Sigfús Pétursson, sem söng lagið Sólskinsbarn eftir Björgvin Þ. Valdimarsson við ljóð Jóns frá Ljárskógum, og Óskar Pétursson, sem söng lag- ið Skál, skál eftir Sigmund Romberg við ljóð Hjartar Þrá- inssonar. Báðir gerðu vel, en þó var líkt og þreyta á rödd Ósk- ars. Tilhlökkunarefni Lokakórinn á tónleikum var Rökkurkórinn. Agi í kórnum er harla góður og raddir skila al- mennt vel sínu. Þó bar lítillega á þvingun og sárum tónum í sópran, svo sem í Ég hvísla út í nóttina eftir Friðrik Jónsson við Ijóð Valdimars Hólms Hallstaðs. Þá voru sópransóló í hendinga- byrjunum í laginu Við Vatns- mýrina eftir Sigfús Halldórsson við ljóð Tómasar Guðmunds- sonar voru nokkuð hljómlítil. Hvað best gerði kórinn í Á bak við heiðar eftir Mikis Theo- dorakis við ljóð Friðriks Guðna Þórleifssonar, þar sem til dæmis bassinn kom fallega fram. Einnig í laginu Ég fann þig, þar sem bakraddir og innkomur kórsins voru vel af hendi leyst- ar. Einsöng í þessu lagi söng IJallfríður Hafsteinsdóttir og gerði vel, en þó kom nokkur gjallandi blær á rödd hennar einkum í þróttugum tónum of- arlega á raddsviðinu. Hinir árlegu Sæluvikutón- leikar eru mikil hátíð og hún tilhlökkunarverð. Þeir, sem haldnir voru að þessu sinni, gáfu hinum fyrri ekki eftir í því sem að flutningi lýtur. Það tæki- færi sem gefst til smanburðar ár af ári er mikils virði, en ekki síður er eftisóknarverð sú stemmning, sem ríkir á þessum miklu kórasamkomum þeirra Skagfirðinga. Hún lyftir og gerir samveruna eftirminnilega og ætíð ánægjulega. ÞJÓDLEIKHÚSID Stóra sviðið kl. 20.00 KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 13. sýn. (kvöld, miðvikd. 7. maí. 14. sýn. sunnud. 11. maí. 15. sýn. fimmtud. 15. maí. FIÐLARINN Á ÞAKINU eftir Boch/Stein/Harnick 8. sýn. Á morgun, fimmtud. 8. maí. Uppselt. 9. sýn. laugard. 10. maí. Uppselt. 10. sýn. föstud. 16. maí. Uppselt. 11. sýn. mánud. 19. maí. (annar f hvítasunnu) Uppselt. 12. sýn. föstud. 30. maí. Uppselt. 13. sýn. laugard. 31. maí. Uppselt. 14. sýn. sunnud. 1. júní. 15. sýn. miövikud. 4. júní. 14. sýn. föstud. 6. júnf. 14. sýn. laugard. 7. júní. VILLIONDIN eftir Henrik Ibsen Föstud. 9. maí Næstsiðasta sýning Miðvikud. 14. maf. Siðasta sýning LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Sunnud. 11. maf kl. 14.00. Nokkur sætl laus Síðasta sýning Tungskinseyjuhópurinn í samvinnu við Þjóðleikhúsið Óperan TUNGLSKINSEYJAN eftirAtla Heimir Sveinsson Frumsýning miðvikud. 21. maí 2. sýn. löstud. 23. maf 3. sýn. laugard. 24. maf Litla sviðið kl. 20.30 LISTAVERKIÐ eftir Yazmina Reza Föstud. 9 maí. Uppselt. Laugard. 10. maí. Uppselt Föstud. 16. mai. Uppselt. Mánud. 19. mai. Uppselt Sunnud. 25. maf. Uppselt Föstud. 30. maí. Laugard. 31. maí. Örfá sætf laus. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.