Dagur - Tíminn Akureyri - 07.05.1997, Qupperneq 11
jOagur-'íEtmmn
Miðvikudagur 7. maí 1997 - 23
ER í MATINN?
HVAÐ
Öðruvísi
hamborgarar
Þessi hamborgarar eru matar-
miklir og svolítið öðruvísi en
þessir hefðbundnu. í íjóra
hamborgara þarf:
350 g hakk
75 g brauðrasp, helst nýtt
1 lauk smátt skorinn
2-3 tsk. af tómatmauki
salt, pipar
2 tsk. af ítölsku kryddi
1 þeytt egg
Blandið öllu saman og
hrærið. Mótið í 4 hamborgara
og steikið þá á pönnu eða
grillið. Pað má láta beikon eða
steikt egg ofan á þá áður en
þeir eru settir í brauðið.
Prútt og samnmgar
Fæstir gera sér grein fyrir
því að oft er hægt að fá
hlutina á betra verði að-
eins með því að fara fram á af-
slátt. Meðal margra þjóða er
það íþrótt að prútta og sá sem
hæfur er í því er mikils metinn
af samlöndum sínum. Okkur ís-
lendingum er prútt ekki tamt,
heldur borgum við það sem upp
er sett jafnvel þó okkur finnist
verðið hátt. Þetta krossapróf
sýnir hversu góð/góður þú er í
því að prútta og jafnframt
nokkrar aðstæður sem bjóða
upp á slíkt.
1. Þú pantar borð á uppáhalds-
veitingahúsinu þínu. Þegar þú
mætir, á réttum tíma, segir
þjónninn þér að borðið þitt
vcrði ekki tilbúið fyrr en í
fyrsta lagi eftir 30 mín.
a: Þú brosir og bíður.
b: Þú hótar því að koma þarna
aldrei aftur.
c: Þú stingur upp á því að ókeypis
drykkur muni auðvelda biðina.
2. Þú ert að kaupa þér ilík og
uppgötvar galla, sem hægt er
að gera við.
a: Þú biður um 10% afslátt.
b: Þú biður um aðra llík.
c: Þú spyrð hversu mikill afslátt-
ur sé veittur fyrir gallaðar vör-
ur.
3. Síðasta sumarleyfisdaginn
uppgötvar þú málverk sem
verðlagt er á 40.000 peseta.
Þú býður 20.000 peseta, en
því boði er ekki tekið.
a: Þú býður 30.000 peseta.
b: Þú gengur í burtu.
c: Þu segist aðeins eiga 20.000
peseta og að þetta sé síðasti
sumarleyfisdagurinn þinn.
4. Þú ert að bóka 12 reiðtíma
fyrir dóttur þína, verð hvers
tíma er 1000 kr.
a: Þú spyrð hvaða afsláttur er
veittur fyrir tóllf tíma nám-
skeið.
b: Þú spyrð um almennan afslátt
á námskeiðum.
c: Þú bókar 10 tíma og ferð fram
á 2 tíma fría.
5. Þú sérð skartgripaskrín í
antikverslun, það er verðlagt
á 10.000 kr. Þú býður 5000 kr.
en afgreiðslumanneskjan seg-
ist geta iækkað verðið i 7000
kr.
a: Þú býður 6000.
b: Þu ferð.
c: Þú segist hvorki hafa ávísana-
hefti né kreditkort og aleiga
þín sé 5000 kr.
6. Þér er boðið nýtt starf og seg-
ir upp. Yfirmaður þinn býður
þér launahækkun ef þú vilt
vera kyrr hjá fyrirtækinu.
a: Þú vilt vita hvað er í boði.
b: Þú biður um 10% launahækk-
un.
c: Þú ferð fram á aukin frfðindi í
starfi áður en þú biður um
launahækkun.
7. Þú ert að kaupa notaðan bíl
og eftir mikið prútt hefur
verðið lækkað um 50.000 kr.
a: Þér finnst það ekki nóg og ferð.
b: Þú býðst til að borga 70.000 kr.
minna, það sé endanlegt boð.
c: Þú samþykkir lækkunina að því
tilskildu að aukadekk fylgi.
8. Sonur þinn, 12 ára viil fá nýja
tölvu.
a: Þú ferð fram á að hann skrifi
lista yfir þau húsverk sem
hann er til í að vinna fyrir tölv-
unni.
b. Þú segir honum að finna sér
ódýrari tölvu.
c. Þú samþykkir.
9. Þér er mikið í mun að selja
íbúðina þín. Eftir 6 mánaða
bið, kemur lilboð sem er
500.000 kr. Iægra en ásett
verð.
a: Þú samþykkir ekki tilboðið.
b: Þú samþykkir tilboðið.
c: Þú samþykkir að því tilskyldu
að gengið sé frá sölunni innan
4ra vikna.
10. 5 ára dóttir þín á 200 kr. sem
hún ætlar að eyða í Kolaport-
inu. Hún vill kaupa lcikfang
sem verðmerkt er á 500 kr.
a: Þú spyrð sölumanninn hvert
hans lægsta verð sé.
b: Þú segir sölumanninum að
dóttir þín eigi aðeins 200 kr.
c. Þú lætur dóttur þína um að
prútta.
Punktagjöf og
afleiðingar af svörum.
í.
a: 0, þú græðir ekkert á þessu
b: 1, Sennilega færðu aðeins frek-
ari afsökunarbeiðni
c: 2, Veitingamaðurinn sleppur of
vel.
2.
a. 1, ekki slæmt, en þú hefðir get-
að gert betur
b: 0, Það er í lagi ef þér er sama
um litinn
c: 2, þú hefur góða samingssað-
stöðu
TEITUR ÞORKELSSON
skrifar
í lagningu
Kynórar kvenna var ein af
metsölubókum áttunda ára-
tugarins í Bandaríkjunum. Gef-
um einni hefðbundinni heima-
vinnandi húsmóðir orðið:
Ég fer í lagningu einu sinni í
viku og þegar kemur að þvx að
ég þarf að sitja og bíða í stóln-
um í tuttugu mínútur fer haus-
inn á mér, og síðan ég öll, af
stað. Við sitjum fimm konur
saman, hlið við hlið, og óg lygni
ég aftur augunum og ímynda
mér að hvít blæja hangi neðan
úr loftinu og nái alveg niður í
gólf. Ég er allsnakin fyrir neðan
mitti og þar sem blæjan er mér
í mittisstað get ég ekki séð það
sem gerist handan hennar. En
ég veit að þar eru ungir Egypt-
ar sem hafa verið þjálfaðir til
þess eins að veita mér og kon-
unum við hlið mér sem mestan
unað. Þeir eru í lendaskýlum,
stæltir og sólbrúnir og krjúpa á
milla fóta okkar. Stór eldri
maður skreyttur gulli fylgist
með frammistöðu þeii’ra og ef
svo virðist sem einhver ungu
mannanna fái ánægju út úr því
sem hann er aðgera fær hann
umsvifalaust svipuhögg. Það
eina sem þeir mega hugsa um
er unaður konunnar.
Ég nýt auðvitað hárlagning-
arinnar til fullnustu og svo þeg-
ar ég elskast með manninum
mínum er nóg fyrir mig að leiða
hugann að því sem gerist hand-
an hvítu blæjunnar og hann
verður besti elskhugi í heimi.
3.
a: 0, þú ert sonnilega að borga
a.m.k. 10.000 pesctum meira
en þú þarft.
b: 1, sölumaðurinn gæti komið á
eftir þér og boðið betur.
c: 2, Góð leið til að segja af eða á.
4.
a: 0, svona er erfitt að fá frekari
lækkun
b: 2, Þiggðu afsláttinn og biddu
svo um 2 auka tíma.
c: 1, Svona afslátt er auðvelt að
fá, flestir vilja heldur gefa vör-
ur/þjónustu en poninga.
5. "
a: 0, Þú er sennilega að greiða of
mikið
b: l.gætivirkað
c: 2, kannski getur þú fengið
hlutinn á 5000 kr. ÞÚ gætir
líka komið aftur eftir að hafa
Vigdís svarar í
símann!
Vigdís svarar í símann í dag að
venju, milli klukkan 9-10.
Ertu með spurningu, viltu ráð eða
viltu gefa, skipta eða... láttu Vig-
dísi vita í síma 460 6100. Algjör
trúnaður og nafnleynd ef þú vilt.
Simbréf til Vigdísar? Þá er númer-
ið 551 6270.
Tölvupóstur til Vigdísar? Þá er
netfangið vigdis@itn.is
„fengið lánaðar" 1000 kr.
6.
a: 1, gefur þér tækifæri til að
prútta upp á við
b: 0, Þú gætir verið að skemma
fyrir þér 15% launahækkun
c: 2, Samþykktu fríðindin og
semdu svo um hærri laun
7.
a: 0, Þetta er sífellt að henda
sölumenn
b: 1, Sennilega virkar þetta, en
getur allt eins leitt til stalemeat
c: 2,Gerir sölumanninum auðvelt
fyrir, hann fær dekkin á heild-
söluverði.
8.
a: 2, Góður byrjunarleikur. Síðan
getur þú notað svar b.
b: 1, Hvetur son þinn til að prútta
c: 0, Hann kemur sennilega aftur
með mynd af helmingi dýrari
tölvu
9.
a: 1, þetta véltur á þvf hve ör-
væntingarfull/ur þú ert að selja
b: 0, þú hefur ekki möguleika á
því að fá meira
c: 2, Gott til að koma sölunni
hratt í kring
10.
a: 1, Góður byrjunarpunktur
b: 0, Sennilega verður þér sagt að
borga mismuninn sjálfum
c: 2, Þetta virkar alltaf!
Niðurstaða:
14-20 punktar: Þú ert fæddur
prúttari. Þér er lífið einskisvert
án samninga og prútts
8-13 punktar: Þú hefur hæfileika
til samningaumleitana, hafðu
auga með aðstæðum þar sem
þeir koma að gagni.
4-7 punktar: Undir feimnu yfir-
borði er viðskiptaeðli, gefðu
því sjens !
Undir 4 punktum: Því miður, það
er ekki til í þér prúttari!
jDcTgur-®mtmt
- besti tími dagsins!
TILB0Ð A SMAAUGLYSINGUM
FYRSTA BIRTING 800 KR.
ENDURBIRTING 400 KR.
Ofangreind verð miðast við staðgreiðslu eða VISA / EURO
Simi auglýsingadeildar er 460 6100 - Fax auglýsingadeildar er 460 6161