Dagur - Tíminn Akureyri - 23.05.1997, Side 6
18- Föstudagur 23. maí 1997
40agur-®mttrm
GARÐALIFIÐ I LANDINU
Garðálfar dragast að lilríkuni styttum
Áhugi á garðrœkt
eykst stöðugt. ís-
lendingar vilja setja
niður sumarblóm
fyrir 17. júní.
Hafsteinn Hafliðason,
garðyrkjumaður í
Blómavali, hefur leið-
beint áhugamönnum um garð-
rækt í Qölda ára enda eru þeir
ófáir sem hafa komið við hjá
honum til að fá ráðleggingar og
birgja sig upp af blómum,
blómapottum og öllu því sem
um framandlegt og sé mjög vin-
sælt. Trén séu ekki svo dýr og
þau lifi fram yfir áramót.
Mjallhvít
og Rauðhetta
Sífellt algengara verður að hafa
styttur og skraut af ýmsu tagi í
görðum. í Blómavali má sjá
snjóhvíta Mjalihvíti og dvergana
sjö, álfa, Rauðhettu og úlfmn og
fleiri persónur úr þekktum æv-
intýrum. Vinsælt er að hengja
upp blómin og er nú hægt að fá
sérstakar hengikörfur með
vatnshlaupi þannig að moldin
helst mátuiega rök.
„Garðálfarnir dragast að lit-
Pað er í tísku að vera með styttur og alls kyns skraut í garðinum.
þarf til ræktunar. Hafsteinn er
tvímælalaust einn þekktasti
garðyrkjumaður landsins og al-
gjör þekkingarbrunnur um allt
sem viðkemur ræktuninni.
Hann segist finna mjög greini-
lega ár frá ári að áhugi á garð-
rækt aukist stöðugt.
hegar gengið er um Blóma-
val má sjá fjólur í breiðum
„saklausar eins og sveitamær
að hausti,“ eins og Hafsteinn
orðar það, sem nú hafa gulan
lit í blóminu, rauð og bleik apa-
blóm, tóbakshorn, flauelsblóm
og alls kyns sumarblóm alia-
vega á litinn, einær og fjölasr.
Alltof langt mál yrði að telja
það allt upp. Ekki er um neina
tísku að ræða, í blómaræktun-
inni þó að alltaf sé þar um ein-
hverjar nýjungar að ræða.
Hafsteinn segir að helst megi
greina meiri áhuga meðal
landsmanna á svokölluðum
tröpputrjám, það er trjám í
pottum sem standa úti, til dæm-
is við útidyr eða í tröppum.
hetta segir hann að virki stund-
ríkum styttum og verða til þess
að allt sprettur miklu betur,
veðrið verður betra og rigning-
in miklu hlýrri,“ segir Haf-
steinn.
Ráðleggingar
Garðvinnan er komin á fullt
enda vorið mesti annatíminn í
garðinum. Hvaða ráðleggingar
skyldi Hafsteinn vilja gefa þeim
sem eru að vinna í garðinum
núna?
1. Mosi í grasflöt stafar í flest-
um tilfellum af notkunar-
leysi á grasflöt. heim sem
er umhugað um að eyða
mosanum geta borið mosa-
eyði á. (Ath.!)
2. Við sumarbústaði koma
gjarnan upp blóm, sem fólk
þekkir lítið sem ekkert til
og heldur því að sé illgresi.
hetta er mikill misskilning-
ur, að sögn Hafsteins. Hann
segir að sumarbústaðaland-
ið eigi að vera ósnortin
Fjólur eru sígild sumarblóm í garðinn. Það sem er nýtt er guli liturinn í
fjólubláa litnum.
Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumaður í Blómavali, í hópi Mjallhvítar og dverganna sjö.
Myndir. E. Ól.
náttúra eins og hægt er og
því eigi sumarbústaðaeig-
endur að reyna að halda í
náttúrulegt gróðurlendi.
3. Gott er að stinga göt á botn-
inn á svalakössum þannig
að þeir fyllist ekki af vatni í
rigningu enda er í flestum
tilfellum gert ráð fyrir því
að gat sé stungið á. Setja á
blómin mjög þétt niður svo
að þau virki ekki strjál.
Gjarnan má gefa blóma-
áburð á hálfs mánaðar
fresti yfir sumarið.
4. hegar trjáplöntur eru gróð-
ursettar er óæskilegt að
setja tilbúinn áburð með,
réttara er að setja gamlan
búfjáráburð eða annan líf-
rænan áburð því að ræturn-
ar ráða ekki við að festa
tréð og afla næringar sam-
tímis. hetta þarf að gerast í
hægari takti. há er gott að
hafa stoðir við stór tré í
vindálagi.
Sumarplöntusalan er í gangi
allt sumarið þó að mest sé að
gera í maí og fram í miðjan
júní.' Hafsteinn segir að flestir
íslendingar stefni að því að
setja sumarblómin niður fyrir
miðjan júní. Hann finni greini-
lega fyrir því að áhugi á garð-
yrkju glæðist ár frá ári. hegar
illa gengur í þjóðfélaginu finnist
fólki það eiga skilið að kaupa
plöntu eða blóm. hað sé ódýr
skemmtun og varanleg. Engin
kreppa hefur áhrif á blóm í
garðinum. GHS
Tóbakshorn eru venjulega rauð en núna fást þau líka bleik.