Dagur - Tíminn Akureyri - 27.06.1997, Blaðsíða 3
®agm--©nmm
Föstudagur 27. júní 1997 - 3
F R É T T I R
A-Húnavatnssýsla
Lömbin þagna
Margt bendir til að á
annað hundrað lömb
hafi drepist vegna
gallaðs bóluefnis frá
Keldum. Höfum ekki
viðurkennt bóta-
skyldu, segir forstjóri
Keldna.
að veiktust kindur í stór-
um stíl á þeim bæjum sem
þetta gallaða bóluefni fór
á. Þeir á Keldum eru búnir að
viðurkenna að það hafi verið
afhent gallað bóluefni,“ segir
Ólafur Vagnsson, sauðíjárrækt-
arráðunautur hjá búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar. Hann sagðist
hafa frétt af mistökum við eina
lögun af bóluefni hjá Keldum. í
blaðinu í gær var sagt frá því að
á annað hundrað lömb hefðu
drepist á bænum Holti í Svína-
dal. Ábúendur að Holti sögðu
að skömmu eftir að kindur
hefðu verið bólusettar gegn
lambablóðsótt hefðu þær byrjað
að láta. Ólafur Vagnsson segir
svipaða sögu: „Ég þekki einmitt
nálægt dæmi af þessu. Það varð
alveg heiftarlegur gröftur sem
kom undan þessari sprautu.
Þar dóu nokkrar kindur og ég
er ekki frá því að einhverjar
kindur hafi látið lömbunum.
Sjálfsagt hefur þessi lögun
dreifst víða um en ég hélt að
þeir ætluðu að hafa samband
við þá sem hefðu keypt þetta.
Eftir minni bestu vitund hafa
þeir viðurkennt bótaskyldu sína
gagnvart tjóni sem orðið hefur
af þessu."
Keldur af fjöllum
Guðmundur Georgsson, for-
stjóri rannsóknastofunnar að
Keldum, kom af íjöllum þegar
þetta var borið undir hann.
Hann kannaðist við að á
einhverjum stöðum hefðu kind-
ur veikst eftir bólusetningu en í
þeim tilfellum hefðu þeir kallað
inn efnið og rannsakað. Hann
kannaðist ennfremur ekki við
veruleg afföll og vildi alls ekki
meina að Keldur hefðu viður-
kennt bótaskyldu. „Það hefur
einfaldlega ekki komið til þess,“
sagði Guðmundur.
Sigurður H. Pétursson, hér-
aðsdýralæknir, sagði í blaðinu í
gær að það sem hér væri á
ferðinni væri annars vegar
lambalát og hins vegar lamba-
sjúkdómur og sagði hann að
það væri einhver ókunn bakter-
íusýking sem ylli látinu. Þetta
hafði hann eftir rannsóknastof-
unni að Keldum en þangað hafa
fóstur verið send til greiningar.
Björg Helgadóttir, húsfreyja að
Holti, sagði í samtali við Dag-
Tímann að hún vissi til þess að
grafið hefði í kindum á bæjum í
kring eftir bólusetninguna. rm
Sjúkrahús Þingeyinga
Verkfalli
aflýst í gær
Ofaglært starfsfók Sjúkra-
húss Þingeyinga, sem verið
hefur í verkfalli frá því á mánu-
dag, hóf störf um hádegi í gær
en þá var verkfalli aflýst. Dag-
inn áður höfðu samninganefnd
ríkisins og Verkalýðsfélag
Húsavíkur skrifað undir innan-
hússtillögu sáttasemjara í deil-
unni og lauk atkvæðagreiðslu
starfsfólks um tillöguna og nýj-
an kjarasamning í gærmorgun.
66 voru á kjörskrá og greiddu
57 atkvæði eða 86,4%. Já sögðu
42 eða rúm 73%, nei sögðu 15
eða rúm 26%.
Ekki virðist óblandin ánægja
með samninginn meðal starfs-
fólks. Fyrst og fremst virðist
eima eftir af óánægju með
vaktafyrirkomulag sem komið
var á um áramót sem skerti
laun t.d. ræstingakvenna veru-
lega. Menn virðast því óánægðir
með innanhússmál á Sjúkra-
húsinu, fremur en samninginn
sjálfan. í samningnum er þó
bókun þar sem deiluaðilum er
falið að skipa aðila í nefnd sem
á að yfirfara núgildandi vakta-
kerfi og skila áliti fyrir 1. okt
nk.
Að sögn Friðfinns Her-
mannssonar, framkvæmda-
stjóra sjúkrahússins, er starf-
semin að færast í eðlilegt horf
og í gær var verið að kalla inn
þá sjúklinga sem sendir voru
heim í upphafi verkfalls. js
íslenskt dagsverk
Mynd: Hilmar Þór
Fyrsta ávísun söfn-
unarinnar afhent
Forsvarsmenn söfn-
unarinnar „íslenskt
dagsverk11 hafa af-
hent fyrstu ávísun söfnun-
arinnar, rúmlega 4 millj-
óirir króna.
Ávísunin var aflient í
móttöku námsmannahreyf-
inganna í Kornhlöðunni síð-
degis í gær. Það var John
Winston, sem rekur skóla
og sjúkrahús á vegum Unit-
ed Christian Church of Ind-
ia, sem tók við þessu fyrsta
framlagi.
Á bak við „íslenskt dags-
verk“ stendur 30.000
manna námshreyfing fram-
haldsskólanema. Nemarnir
hafa safnað fé sínu með því
að bjóða fyrirtækjum víða
um land starfskrafta sína í
einn dag. Launin fyrir dags-
verkið renna síðan í söfnun-
ina. United Christian
Church of India eru önnur
tveggja samtaka sem for-
svarsmenn söfnunarinnar
hafa ákveðið að styðja. AI
Innanlandsflug
Fargialdastríð!
íslandsflug skorar Flugfélagið á hólm og sendir neytendum ákall!
íslandsflug skorar
Flugfélag íslands á
hólm með 6.900 kr.
hvert á land sem er.
„Ákail til neytenda,“
segir Ómar Bene-
diktsson. „Bíðum og
sjáum,“ segir keppi-
nauturinn.
Ef neytandinn vill áfram 40
ár á háum flugfargjöldum
þá getur hann valið
keppinautinn," segir Ómar
Benediktsson, forstöðumaður
íslandsfiugs. Hann á von á að
Flugfélag íslands muni reyna
að kaffæra nýjan keppinaut í
innanlandsflugi. Hann heitir á
neytendur að láta það ekki tak-
ast. íslandsflug býður nú far-
gjöld til allra áfangastaða sinna
á 6.900 krónur, sem í mörgum
tilfellum er helmingi lægra verð
en Flugleiðir, og nú Flugfélag
íslands, bjóða. Ómar segir að
þetta tilboð sé ákall til neyt-
enda. Aðspurður viðurkennir
hann að tregari þátttaka neyt-
enda í lágu tilboði FÍB á bíla-
tryggingamarkaði en búast hafi
mátt við sé ákveðin viðvörun.
„Við hugsuðum oft um FÍB,“
segir Ómar og biður neytendur
að koma til liðs við Islandsflug
og taka tilboði um lágt verð.
Stenst þetta?
íslandsflugsmenn reikna sér
háa sætanýtingu til að þetta
verð fái staðist. Ómar segist
reikna með að Flugfélag íslands
sé að reikna sór 60-65% sæta-
nýtingu, en íslandsflug ætli sér
70-80%, misjafnt eftir leiðum.
„Þá erum við að tala um eðlileg
gjöld á fiugtíma," segir hann,
6.900 króna fargjald muni
standa undir rekstri með eðli-
legum hagnaði miðað við þessa
nýtingu.
Flugfélagið bíður
„Við bíðum og sjáum til,“ segir
Páll Ilalldórsson, forstöðumað-
ur Flugfélags íslands. Hann
hafði ekkert frekar um málið að
segja í gærkvöld enda fréttin af
fargjaldastríðinu ný.