Dagur - Tíminn Akureyri - 27.06.1997, Blaðsíða 7
!0agur-'3I«rarat
Föstudagur 27. júní 1997 - 7
ERLENDAR
„Þá yngri langaði á diskó“
Baksvið
Dagur Þorleifsson
egar þetta er ritað er
hermt að Pol Pot, leiðtogi
Rauðu kmeranna í Kamb-
ódíu og einn illræmdustu íjölda-
morðingja sögunnar, hafi verið
handtekinn af sjálfs sín mönn-
um og muni brátt framseldur
Kambódíustjórn. Sennilegt sé að
honum verði stefnt fyrir alþjóð-
legan dómstól, hliðstæðan þeim
sem settir hafa verið á stofn af
tilefni illvirkja framinna í stríð-
unum í Bosníu og Rúanda.
Pot Pot, sem kominn er undir
stjötugt, hefur verið yfirforingi
flokks síns síðan 1963, var rík-
isleiðtogi Kambódíu frá 1975 til
áramótanna 1978-79, er víet-
namskur innrásarher rak hann
frá völdum og hefur síðan, í
tæpa tvo áratugi, hafst við í
frumskógum í vestur- og norð-
urhéruðum lands síns og
stjórnað skæruhernaði Rauðra
kmera, fyrst gegn víetnömsku
hernámsliði og Kambódíustjórn
á vegum þess og síðan gegn
Kambódíustjórn sem mynduð
var að loknum kosningum und-
ir eftirliti Sameinuðu þióðanna
1993.
Bróðir númer eitt
Heimildum ber ekki saman um
hve mörgum landa sinna Rauð-
ir kmerar hafi orðið að bana
meðan þeir ríktu yfir Kambód-
íú. Oft sést því
haldið fram að
tala látinna af
völdum þeirra
þá hafi orðið
um tvær millj-
ónir. Flestir
dóu úr hungri,
ofþreytu og
sjúkdómum í
þrælkun en
tugþúsundir
a.m.k. voru
teknar af lífi,
margir að und-
angengnum
hroðalegum pyntingum.
„Bróður númer eitt,“ eins og
Pol Pot var stundum kallaður,
tókst eftir ósigur sinn fyrir Víet-
nömum að hagnýta sér kalda
stríðið. Bandaríkin, Kína og Ta-
fland reyndu eftir föngum að
bregða fæti fyrir Víetnam, skjól-
stæðing Sovétríkjanna, og
hjálpuðu því með ýmsu móti
upp á Pol Pot. En að kalda
stríðinu loknu tóku heldur að
aukast vandræðin fyrir þessum
skuggasveini alþjóðastjórnmál-
anna.
Eftir kosningarnar 1993
urðu Rauðir kmerar, sem þá
réðu enn allstórum svæðum við
landamærin að Taflandi, að
fjármagna sitt stríð sjálfir. Það
gerðu þeir með því að selja taí-
lenskum herforingjum gim-
steina og við af dýrum tegund-
um, sem mikið er af á yfirráða-
svæðum þeirra. Þau viðskipti
munu í orði kveðnu hafa verið á
laun.
Hugsjóna- og
heilsubrestur
í liði Rauðra kmera tók nú að
gæta mjög þreytu á stríði þessu,
sem engan enda virtist ætla að
taka. „Þá eldri fór að langa
heim á akrana sína, þá yngri á
diskó,“ skrifaði Raoul Jennar,
belgískur Kambódíufræðingur.
Erfitt varð að útvega nýliða.
Stríðsþreytan smitaði frá sér
upp í forystuna og ýmsir í henni
fóru að linast í hugsjóninni.
Þeir voru og teknir fast að eld-
ast og útilegumannslífið var
álag nokkurt fyrir heilsuna. Pol
Pot hefur lengi verið veikur af
malaríu og Ieng Sary, einn
helstu samstarfsmanna hans,
er veill fyrir hjarta. Þeir hafa
báðir legið á sjúkrahúsum í
Bangkok undir vernd taflenskra
herforingja, sem er annt um
þessa viðskiptavini sína. Ýmsir
foringjar Rauðra kmera keyptu
sér villur í Taflandi og fjárfestu
þar í hótelum og bensínstöðv-
um. Ieng Sary gaf sínum mönn-
um leyfi til atvinnureksturs
þarlendis, stofnaði sjálfur
markað og leigði þar sölumönn-
um aðstöðu.
í fyrra reyndi Pol Pot að sögn
að herða agann á ný, en það
leiddi til þess eins að menn
hans struku unnvörpum undan
merkjum, þ.á m. Ieng Sary.
Þessi upplausn Rauðra kmera
hefur síðan haldið áfram, og
svo er nú að sjá að hún sé að
fullkomnast með handtöku Pols
Pot. Ilaft er eftir félögum hans
að hann hafi þegar beðið um að
fá að játa á sig mistök.
Kambódíustjórn hefur veitt
sakaruppgjöf öllum þeim Rauð-
um kmerum, sem gengið hafa
henni á hönd. Svo virðist sem
þar í landi og í heiminum yfir-
leitt hafi náðst þegjandi sam-
komulag um að
Pol Pot einn
skuli svara til
saka fyrir gíf-
urleg illvirki
þeirra félaga.
Sem yfirforingi
Rauðra kmera
var hann
ábyrgari fyrir
gerðum þeirra
en nokkur ann-
ar, en fjölmarg-
ir aðrir í því
liði, hærri og
lægri, munu
hafa verið engu sfður ákafir til
þeirra verka.
Konungssinnar og
Víetnamkommar
Ein af ástæðunum til umræddra
sinnaskipta margra Rauðra
kmera er að líkindum að þeir
telji vænlegra til árangurs fyrir
sig að taka þátt í kambódískum
stjórnmálum á friðsamlegan
hátt en að halda hernaði áfram.
Milli tveggja helstu stjórnmála-
flokka landsins, konungssinna
undir stjórn Ranariddhs prins,
sonar Sihanouks konungs, og
Alþýðuflokksins undir forystu
Huns Sen, er slíkur ijandskapur
að liggur við nýju borgarastríði.
Síðarnefndi flokkurinn er lið
gömlu stjórnarinnar sem var á
snærum Víetnams. Þeir Rana-
riddh og Hun Sen eru báðir for-
sætisráðherrar. Báðum er þeim
kappsmál að fá fyrrverandi (?)
Rauða kmera í lið með sér, í
von um að það ríði baggamun-
inn.
í gegnum það tafl gætu
Rauðir kmerar átt eftir að kom-
ast til valda á ný. En þeir hafa
þóst vita að stjórnarflokkarnir
tækju þá ekki í sátt að fullu
nema þeir fórnuðu Pol Pot. Enn
Rauðir kmerar láta af
hernaði gegn stjórn
Kambódíu og
byggjast í staðinn
taka þátt í valda-
taflinu innan hennar.
Til þess að það gangi
verða þeir að fórna
Poi Pot.
Það sem Pol Pot og Rauðir kmerar eru þekktastir fyrir: Fjöldagröf með beinum fólks sem þeir drápu.
heyrast að vísu grunsemdir um
að handtakan sé bara plat, til
þess ætlað að láta heiminn
halda að Pol Pot sé úr sögunni.
Hann verði látinn hverfa og
muni síðan bíða síns tíma til að
birtast aftur. Áður hefur nokkr-
um sinnum frést frá mönnum
hans að hann væri látinn.
Bflasala • Bflaskipti
Volkswagen Golf 3.d. 1400 Grand '95
grænn ek. 30 þús. km. álf. CD ofl.
V: 1.100.000,-
Toyota Corolla 4.d. 1600 XLI '94 grænn
ek.38 þús. km.V: 1.150.000,-
MMC Space Wagon 4x4 2000 GLXIA/T
'93 blár/grár ek. 92 þús. km.
V: 1.480.000,-
Bflasala • Bílaskipti
w rföSi - f. .... ; 1
■■■ Eft'n mme mm J
Volkswagen Golf 5.d. 1800 A/T '93 hvít-
ur ek. 42 þús. km. álf. sóll. airbag.ofl.
V: 1.150.000,-
Honda Civic 3.d. 1400 16v '90 grár ek.
85 þús. km. álf. ofl. V: 660.000,-
Toyota Carina E 4.d. 2000 GLI ’96 hvitur
ek. 18 þús. km. álf. spoi. airbag.
V: 1.850.000,-
Bílasala • Bflaskiptí
MMC L-200 4,d. dísel turbo ’97
grænn/beis ek. 2 þús. km. V: 2.500.000,-
Toyota 4Runner V-6 3000 A/T ’91 hvítur
ek. 70 þús. km. spoilerar sóll. ofl. ofl.
V: 1.980.000,-
MMC L-200 4.d. dísel turbo '95 grænn
ek. 49 þús. km. m/hús upph. álf. brk. ofl.
V: 1.890.000,-
Vantar bíla á skrá
og á staðinn strax
HfBÍLASÁLINNj
öldur hf.
BÍLASALA
við Hvannavelli, Akureyri
Símar 461 3019 & 461 3000