Dagur - Tíminn Akureyri - 09.09.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 09.09.1997, Blaðsíða 3
^Dagur-®mTQttt Þriðjudagur 9. september 1997 - 15 LIFIÐ I LANDINU Menneru Guðmundur Ingólfsson, Svezanna, Ivan, Pálína og Sandra. Guðmundur og fjölskylda búa sig undir brottflutning úr sveitinni ef Kísiliðjunni verður lokað. „Erfitt að fá vinnu á þessum aldri,“ segir Guðmundur, en eykur möguleika sína með kennaranámi í fjarkennslu. Mynd: gs Burtséð frá áhrifum verksmiðjunnar á lífríki Mývatns er Ijóst að byggðarösk- un yrði veruleg ef Kísiliðjan lokaði og tala menn jafnvel um draugabyggð í Mývatnssveit. að var aðeins klukkustund í skólasetningu Grunn- skólans í Reykjahlíð þegar Dagur-Tíminn leit við hjá Guð- mundi Ingólfssyni, Svezönnu, eiginkonu hans frá Serbíu- Króatíu og þremur ungum börnum f Lynghrauni í Reykja- hlíð. Elsta barnið, Sandra, hlakkaði til að byrja í skólanum en það var kvíði yfir Guðmundi og frú vegna þess óöryggis sem starfsmenn Kísiliðjunnar við Mývatn búa nú við. Eins og kunnugt er, rennur námaleyfi verksmiðjunnar út árið 2010 og sumir segja efnisþurrð valda því að verksmiðjunni verði lok- að innan fárra ára. Guðmundur hefur starfað sem rafvirki hjá Kísiliðjunni í sex ár. Ilann er ættaður frá Siglufirði en fiuttist til Mývatns- sveitar frá Reykjavík. „Ég var búinn að ráðstafa mínu lífi frekar óskynsamlega og fannst tími til kominn að eignast konu og börn. Það var hringt í mig og mér boðin vinna hér og mér fannst tilvalið að breyta til. Ég hef ekki séð eftir því að koma hingað, enda gott að búa í Mý- vatnssveit," segir Guðmundur. Óöryggið vex En það eru blikur á lofti. „Menn eru hræddir. Óöryggið verður sífellt meira, þessar sveifiur í lífríkinu eru raktar af sumum til starfsemi verksmiðjunnar og það hyllir núna undir að Kísil- iðjunni verði lokað. Áður bitust menn um nánast ekki neitt en núna er það stóra spurningin hvort efnistaka verði leyfð í Syðri-Flóa. Ég óttast að kjark- menn vanti í ríkisstjórnina til að taka ákvarðanir. Manni sýn- ist að beðið sé ákvörðunar eig- enda um að stöðva þotta án þess að stjórnvöld taki neina ákvörðun." Hugleysi ráðamanna Þrátt fyrir þessa óvissu hafa enn engir starfsmannafundir verið haldnir til að upplýsa starfsmenn um stöðuna og það er ekki enn búið að ráða nýjan framkvæmdastjóra í stað Bjarna Bjarnasonar. Guðmund- ur er með skýringu á því „ Mér sýnist að tíminn sem um ræðir sé ekki endilega fimm eða sex ár heldur gætum við eins verið að tala um eitt eða tvö. Af hverju er nýr framkvæmda- stjóri ekki ráðinn? Auðvitað vegna þess að það er verið að reyna að setja þrýsting á ráða- menn, að einhver ákvörðun verði tekin. En það koma aldrei nein raunveruleg svör.“ Það fara allir Hvernig sér Guðmundur fram- tíð byggðar fyrir sér í Mývatns- sveit ef Kísiliðjan hættir. Um- fangsmikil þjónusta hefur byggst upp á síðustu áratugum í tengslum við atvinnustarfsemi verksmiðjunnar. „Ef Kísiliðjan hættir, fer allt fólk héðan ekki bara þorpsbúar heldur hver einasti bóndi. Það lokast allt.“ Kennaranám í gegn- um tölvu Vísindamönnum (og stjórn- málamönnum) skal látið eftir að taka ákvörðun um framtíð Kísiliðjunnar en Guðmundur hefur búið sig undir að missa starfið og þar með búsetuna. „Ég er farinn að búa mig undir brottflutning og ætla að læra til kennara í gegnum fjarkennslu. Þetta er er helvíti ömurlegt, en ég er með þrjú lítil börn og get ekki setið bara aðgerðarlaus og beðið. Svo er annað, að þegar maður er kominn á góðan fimmtugsaldur þá hleypur mað- ur ekkert inn í önnur störf. Það hefði verið allt í lagi ef ég væri yngri en svona er þetta nú.“ Fjölskyldan stillir sér upp og brosir þrátt fyrir allt framan í ljósmyndara Dags-Tímans. En undir niðri eins og Guðmundur segir: Menn eru hræddir. BÞ Karþagó lögð í eyði Friðrik Steingrímsson, landsfrægur hagyrðingur og starfsmaður Kísiliðj- unnar í Mývatnssveit, hefur starfað 22 ár í verksmiðjunni. Hann er fæddur og uppalinn Mývetningur og hefur ekki að öðru að hverfa ef Kísiliðjan hættir. „Maður verður sjálfsagt að flytja burt úr sveitinni ef allt fer á versta veg. Ég hef ekki trú á að það verði atvinna hér,“ segir Friðrik. Hann segir slæmt að lifa í al- gjörri óvissu um framtíðina en þó sé eðlilegt að menn haldi að sér höndum þangað til ný dæl- ingaraðferð verði rannsökuð. Hugmyndir eru uppi um nýja tækni sem beitt yrði ef kísilnám yrði leyft úr Syðri-Flóa. Ég er trúaður á að það gangi. Tæknin er það góð í dag að það hlýtur að vera hægt.“ Meira samstarf Efast starfsmenn þessa um- deilda fyrirtækis aldrei um að þeir séu að vinna landinu og þjóðinni gagn? „Það getur verið, en ég er viss um að gagnið er meira en ógagn- ið. Það sem vantar er að náttúru- verndaraðilar og Kísiliðjan sjálf vinni meira saman að rannsókn- um og ákvarðanatöku. Það væri farsælast frekar en að vera nán- ast pólitískt á öndverðum meiði. Niðurstaðan yrði hka trúanlegri á hvorn bóginn sem fer.“ Nokkurs konar trúarbrögð Friðrik spjallar um greinaskrif og fjölmiðlaumfjiillun og vitnar í orð Gísla Más Gíslasonar pró- fessors þar sem hann lagði til árið 1993 í kjöl- far „svartrar skýrslu" að Kís- iliðjan yrði lögð niður þá þegar. „Samt minnir mig að lokaorð skýrslunnar væru þau að ekki væri hægt að rekja sveiflur í lífríkinu til námagraftar eða starfsemi Ki'siliðjunnar. Þetta er ekki ósvipað og að segja: Auk þess legg ég til að Karþagó verð lögð í eyði. Nokk- urs konar trúarbrögð.“ Gífuryrði þjappa mönnum saman Friðrik er sainmála Guðmundi Ingólfssyni um afleiðingarnar fyrir byggðina ef Kísiliðjan hættir. „Sveitarfélagið hreinlega hrynur. Við getum tekið dæmi um verktakafyrirtækið Sniðil sem byggir afkomu sína á starf- semi Kísiliðj- unnar. Hvað yrði um hita- veitu? Gjald- skráin myndi stórhækka, verslunarrekst- ur leggjast af og svo fram- vegis.“ Friðrik hef- ur ekki fundið fyrir því að mórallinn hjá starfsmönnum hafi versnað vegna ástands- ins en auðvitað gremjist mönn- um gífuryrði um Ijölmiðla. „En þau þjappa mönnum líka sam- an,“ segir hann. Starfsmenn verksmiðjunnar vita að þetta er stórmál fyrir framtíð landsins. Ef hætt verður að dæla fer allt hægt og rólega til helvítis. BÞ Friðrik Steingrímsson, Hrönn Björnsdóttir og börn þeirra tvö, Sigurjón og Ragnheiður. Friðrik starfar í votvinnslu Kísilverksmiðjunnar þar sem gúrinn úr Mývatni er þurrkaður. Hann vill aukið samstarf náttúruverndaraðila og Kísiliðjunnar. Mynd: gs „Starfsmenn verk- smiðjunnar vita að þetta er stórmdl fyrir framtíð lands- ins. Ef hœtt verður að dcela fer allt hcegt og rólega til helvítis. “

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.