Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Blaðsíða 11
^Dbtgur-'GIfnrám Miðvikudagur 17. september 1997 -11 HESTAR 7; .. ... -*■ Heiðursverðlaunahestar með áberandi galla HESTA- MÓT Kári Arnórsson á er lokið keppnis- og sýn- ingarmótum þessa árs og því ástæða til að líta yflr farinn veg. Pað sem hæst ber í mótahaldinu er fjórðungsmótið á Kaldármelum og heimsmeist- aramótið í Noregi. Fjórðungs- mótið var stekara hvað hrossin snerti en búist hafði verið við. Þar voru íleiri og betri kynbcta- hross en fréttir höfðu gefið til kynna. Tveir stóðhestar hlutu þar heiðursverðlaun fyrir af- kvæmi og einnig tvær hryssur auk margra hryssna sem hlutu 1. verðlaun. Útkoman á heimsmeistara- mótinu var betri en áður hefur verið og greinilegt að íslenskir knapar eru orðnir betur þjálf- aðir í íþróttakeppni og einnig að nú er lögð meiri áhersla á að velja hesta sem hreina keppnis- hesta fremur en gæðinga, í þeirri merkingu sem hingað til hefur verið í það lögð. Það sem þar gildir er að hesturinn sé sterkur í einni grein og fyrst og fremst þjálfaður þannig. Þetta eru viðhorf og aðferðir sem gilda í íþróttamennsku almennt og því eðlilegt að það færist yfir á hest og knapa. Þarf að endurskoða reglur um mat til verðlauna? Það Qölgar stöðugt þeim hross- um sem komast í 1. verðlaun og En málið er nokkuð snúið því sumir af þeim hestum sem þessi verðlaun hafa hlotið gefa mjög góð reiðhross þó einhverj- ir eiginleikar séu slakir. Nefna má nokkur dæmi. Hrafn frá Holtsmúla einn fremsti kyn- bótahesturinn sem uppi hefur verið er með 93 fyrir fótagerð. Dóttursonur hans Hervar frá Sauðárkróki er með 62 fyrir fótagerð. Fyrir höfuð er Hervar með 96. Sörli frá Sauðárkróki er með 91 fyrir fótagerð og 96 fyrir samræmi. Gáski frá Hofs- stöðum er með 89 fyrir bak og lend og 79 fyrir hófa. Angi frá Laugarvatni er með 93 fyrir geðslag, Þokki frá Garði með 97 fyrir fótagerð, Stígur frá Kjart- ansstöðum með 93 fyrir fóta- gerð og 96 og réttleika, Ófeigur frá Flugumýri með 93 fyrir höf- uð og 74 fyrir réttleika, Þáttur frá Kirkjubæ með 88 fyrir vilja, Náttfari frá Ytra-Dalsgerði með 94 fyrir samræmi og 82 fyrir hófa, Kjarval með 94 fyrir fóta- gerð. Þeir tveir hestar sem hlutu heiðursverðlaun á Kaldármel- um standa hins vegar nokkuð vel að vígi, þó einkum Stígandi frá Sauðárkróki sem er alls staðar vel yfir meðallagi. Mat á eiginleikum Allt eru þetta heiðursverð- launahestar og gæðingafeður. Spurningar vakna því um hvort mat á þeim eiginleikum sem hér hefur verið minnst á sé rétt. Hvað með fótagerðina? Seimur frá Víðivöllum fremri Hervars- sonur er með 62 fyrir fótagerð en virðist engu að síður þola verulegt álag án þess að fætur gefi sig. Þó hann sé tekinn sem dæmi þá má nefna fleiri hesta Þytur frá Krossum sem vann silfur í fjórgangi og brons í tölti er kominn af hestum sem fá slakar fótaeinkunnir. Myndir: ej heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Þetta ætti að gefa til kynna örar framfarir í ræktuninni. Mér finnst hins vegar vera kominn tími til að endurskoða þær regl- ur sem fylgt er við valið til þess- ara verðlauna. Hestur sem hlýtur heiðurs- verðlaun fyrir afkvæmi hlýtur að gefa afkvæmi sem eru nær gallalaus. En svo er ekki. Það eru mjög fáir hestar sem hlotið hafa þessi verðlaun sem eru yf- ir 100 stig í kynbótamati fyrir alla eiginleika. Eins og menn vita þá er 100 meðaltals eink- unn og því verður að gera þá kröfu til hestanna að þeir hafi yfir 100 fyrir það sem dæmt er. eins og fram kemur síðar í þessari grein. Hvað hestana varðar er fengið hafa 1. verðlaun fyrir af- kvæmi þá er Orri alls staðar yfir 100. Piltur frá Sperðli stendur illa að vígi hvað hófa snertir, er með 80 stig og fóta- gerðin 96. Feykir frá Hafsteins- stöðum er með 89 fyrir höfuð og 96 fyrir fótagerð. Otur frá Sauðárkróki er með 85 fyrir bak og lend og 76 fyrir fóta- gerð, Glaður frá Sauðárkróki með 72 fyrir fótagerð og 94 fyr- ir brokk og Kraflar frá Miðsitju með 78 stig fyrir fótagerð. Þeir hestar sem fengið hafa ein- staklingsdóm en eiga færri en Galdur frá Laugarvatni er sonur Stíganda og stendur vel í matinu eins og fleiri Laugarvatnshross. 15 dæmd afkvæmi eru nokkrir yfir 100 í öllum þáttum. Þar má nefna Páfa frá Kirkjubæ, Nökkva frá Geldingaholti, Óð frá Brún, Baldur frá Bakka, Ham frá Laugarvatni, Bassi frá Bakka, Galdur frá Laugarvatni, Topp frá Eyjólfsstöðum og fleiri. Inni í kynbótamati þessara hesta eru fá afkvæmi og því ekki séð hvernig einstakir þættir erfast frá þeirn. Einkunn fyrir fótagerð Það er íhugunarefni að stóð- hestar skuli geta fengið heið- ursverðlaun fyrir afkvæmi þó svo að sýnt sé að frá þeim erfist verulegir byggingagallar miðað við þann dómskala sem notaður er. Það er einnig athyglivert að mest er þetta áberandi í fóta- gerð og réttleika og er sú um- ræða ekki ný af nálinni. í nýlegri rannsókn á spatti hefur komið í ljós að þessi sjúk- dómur er arfgengur. Fróðlegt væri að vita hvort afkvæmi þeirra hesta sem erfa frá sér lé- lega fótagerð hafi innbyggðan veikleika fyrir spatti. Hestar þeir sem hvað best stóðu sig á heimsmeistaramót- inu í Noregi og lentu í því mikla álagi sem töltkeppnin þar var eru afkomendur hesta sem hafa fengið slæman dóm fyrir fætur. Þyrill frá Vatnsleysu sem náði hæstu einkunn fyrir töltið er sonur Þyts frá Enni sem er son- ur Gusts frá Sauðárkróki, en Gustur er með 85 fyrir fótagerð og 95 fyrir réttleika. Þytur frá Krossum sem vann silfrið í Ijór- gangi er sonur Glaðs frá Stóra- Hofi sem er sonur Sörla frá Sauðárkróki sem var með 91 fyrir fótagerð og 99 fyrir rétt- leika. Boði frá Gerðum sem vann gullið í íjórgangi er sonur Ófeigs frá Flugumýri sem er með 77 fyrir réttleika. Gordon frá. Stóru-Ásgeirsá, gullhafi í samanlögðum greinum er son- ur Elds frá Stóra-Hofi sem er með 91 stig fyrir fótagerð. Sköpulag þessara hesta virðist ekki draga úr hæfni þeirra eða getu. Samspil byggingar og hæfileika Það er hægt að hafa langt mál um þetta efni en það sem hér hefur verið nefnt bendir til þess að nauðsynlegt sé að helja víð- tækar rannsóknir á samspili byggingar og hæfileika. Jafn- framt er ástæða til að taka til endurskoðunar matið sem ligg- ur til grundvallar heiðursverð- launum og 1. verðlaunum. Heiðursverðlaunahestar og 1. hryssurnar sem hlutu heiðurs- verðlaun á Kaldármelum eru með slaka einkunn fyrir fóta- gerð. Rétt er að taka það fram að meðan eldra kerfið var notað til að meta hross til verðlauna þá var sama sagan uppi hvað varðar það að liross gátu fengið þessi verðlaun þó einstaka einkunnir væru slakar og um- sagnir bentu til alls annars en slíks ágætis sem þessi verðlaun Heiðursverðlaunahesturinn Stígandi frá Sauðárkróki er sonur Þáttar frá Kirkjubæ og móðirin sonardóttir Sörla frá Sauðárkróki. verðlaunahestar eiga að vera gripir sem mjög æskilegt er að nota til undaneldis. Þeir mega því ekki bera með sér erfða- galla sem festast í kyninu. Þó hér hafi verið skrifað um stóðhestana þá er ástandið alls ekki betra hvað hryssur varðar. Sem dæmi má nefna að báðar eiga að segja til um. Árið 1986 fengu Ófeigur frá Hvanneyri og Náttfari frá Ytra-Dalsgerði heiðursverðlaun. Þeir fengu þessa umsögn: „Báðir hafa reynst vel en hvor- ugur er afbragð til kynbóta." Getur umsögn af þessi tagi átt við um heiðursverðlaunahesta? Hrossasmölun Hrossasmölun í Saurbæjarfjallskiladeild Eyjafjarðarsveitar fer fram föstudaginn 19. september nk. Réttað verður í Borgarrétt laugardaginn 20. september kl. 13. Óskilahross verði komin í Borgarrétt fyrir kl. 13. Fjallskilastjóri.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.