Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 17.09.1997, Blaðsíða 2
2 - Miðvikudagur 17. september 1997 JDagur-'3ImTtmT F R É T T I R Heimkoma Flutt heim til íslands Torill Grindahl er flutt til íslands og komin í nám í leirlist við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Heiti Potturinn Pottverjar eru mjög að spá í hver verði nýr umhverf- isstjóri Landsvirkjunar, en það embætti hefur nú bæst í tölu þeirra sem laus eru. Ekki er nú sami glamúrinn yfir þessu og bankastjóra-, fréttastjóra- eða útvarps- stjóra svo ekki sé minnst á sendiherrastöður, en...mikilvægt er starfið. Þegar pottverjar viðurkenndu að þeir hefðu ekkert heyrt kom uppástunga: Hjörleifur Guttormsson! Viðurkenndur náttúruunnandi, virtur fyrir þekkingu sfna á þessu sviði, fyrrverandi iðnaðar- og orkuráðherra. Hvað vilja menn meira? agan endalausa um höfuðlausa herinn heldur áfram: enn er ekki hægt að ráða fréttastjóra, núna vegna þess að Guðrún Helgadóttir vill vita hvað afleysarinn ætlar að gera. Engum hefur dottið í hug að spyrja að þvf hingað til! Ekki í miðju pólitísku plotti. Og í því töluðu orði, meira um farsa. Ævar Örn Jósepsson, útvarpsmaður á Rás 2, fékk ekkert atkvæði í útvarpsráði í síðustu viku og tók þá hatt sinn og staf og fór beint í vinnu á Bylgjunni. Útvarpsráð mælti þá með konu sem hafði ráðið sig annars staðar í vinnu, væntanlega orðin þreytt á seinaganginum. Þegar þetta rann upp fyrir ráðinu var ákveðið að greiða aftur atkvæði og hver fékk þá fullt hús nema Ævar Örn, sem sat og stýrði Þjóðbrautinni á Bylgjunni, þegar fréttir bárust af því hann gæti fengið vinnu hjá RÚV. Norsk stúlka sem leitaði móður sinnar hér á landi í vor, er flutt til landsins og nemur nú myndlist. Norska stúlkan Torill Grindahl, sem telur sig hafa fæðst á íslandi sam- kvæmt fæðingarvottorði en hafa verið ættleidd ung til Noregs, er flutt til landsins og hefur haílð nám í leirlist við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Torill vakti athygli í vor þegar hún kom til íslands til að leita að upprunalegri móður sinni. Sú leit bar þó engan árangur hér. „Þegar ég kom heim til Nor- egs eftir að hafa verið á íslandi í vor, fékk ég upplýsingar um að móðir mín væri dáin. Það er leitt en betra að vita það heldur en að vita nákvæmlega ekkert um hana,“ segir Torill. Hún er mjög ánægð með að Formaður Alþýðubandalagsins telur rétt að taka gjald fyrir notkun á sameiginlegum auðlindum landsmanna. s g er þeirra skoðunar að það eigi að taka gjald fyr- ir notkun á sameiginleg- um auðlindum þjóðarinnar hverju nafni sem þær nefnast," segir Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins. vera komin í Myndlista- og handíðaskóla íslands enda hef- ur hún alltaf haft mikinn áhuga á leirlist. Hún kveðst hafa heyrt að leirlistardeildin þar væri Hún hefur beðið starfshóp, sem er að vinna tillögur í skattamál- um fyrir landsfund flokksins í nóvember, að fjalla um þessa hugmynd og mögulegar út- færslur á henni. Umræða um auðlindaskatt hefur til þess ver- ið mjög bundið við veiðileyfa- gjald, en Margrét segir ekkert vit í að tala um gjald fyrir eina sameiginlega auðlind en ekki aðrar. í þeim efnum verði að vera samræmi og það sé rétt- lætismál að auðlindir þjóðar- innar séu leigðar þeim sem þær nýta gegn sanngjörnu gjaldi. „Mér fmnst eðlilegt að menn skoði hvort ekki er hægt að taka upp slíka samræmda gjaldtöku, en ég hef ekki fast- rrrjög góð og því hafi hún ákveð- ið að sækja um inngöngu. Nám- ið tekur nokkur ár og því má búast við að Torill dveljist hér og læri íslensku. -GHS mótaðar hugmyndir um með hvaða hætti það verði best gert. Við erum að skoða þau mál.“ Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, vill auðlindagjald. Lífeyrismálin Djúpt á samkomu- lagi Dráttur hefur orðið á lokum nefndarstarfs um sam- ræmda lífeyrislöggjöf. Nefnd sem fjármálaráðherra skipaði og átti að skila af sér 15. sept- ember hefur enn ekki klárað sig af og gerir það vart fyrr en um mánaðarmótin. Á síðasta þingi var hart deilt um lífeyrisfrumvarp ríkisstjórn- arinnar. Það var afgreitt til síð- ari umræðu frá efnahags- og viðskiptanefnd með breyting- um, en málinu var frestað fyrir þinglok. Einkum var deilt um tvö atriði; skilgreiningu á lág- marksiðgjöldum til samtrygg- ingar eða ráðstöfun á hluta ið- gjaldanna og hins vegar um skylduaðildina að lífeyrissjóð- unum. Ekki er að heyra á viðmæl- endum blaðsins að líkurnar á samkomulagi hafi aukist. Full- trúar aðila vinnumarkaðarins eiga sæti í nefndinni, en þar er engan fulltrúa stjórnarandstöð- unnar að finna. fþg Ríkisútvarpið Fnn frestað U' tvarpsráð tók ekki afstöðu til ráðningar nýs frétta- stjóra Sjónvarps á fundi sínum í gær. Á síðasta fundi mætti Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, formaður útvarpsráðs, ekki á fundinn en þá hafði verið gert ráð fyrir að gengið yrði frá málinu. I gær samþykkti svo ráðið að fresta enn afgreiðsl- unni eftir tillögu Guðrúnar Helgadóttur sem vildi fá fram nánari upplýsingar um starfs- mennina. Staða Boga Ágústs- sonar var auglýst í lok ágúst en hann hverfur til annarra starfa innan stofnunarinnar í eitt ár. BÞ Alþýðubandalagið Margrét vill auðlindagjald FRÉTTAVIÐTALIÐ , Aldinn til ráða, ungur til dáða Bjarni Ármannsson bankastjóri Fjárfestingarbankans hf. Bjarni Ármannsson var í gœr ráðinn bankastjóri Fjárfestingarbankans, en stofnfé hans er 6,8 milljarðar króna. - Kom þessi ráðning þér á óvarl? „Já á margan hátt gerði hún það.“ - Þú kemur ungur nýútskrifaður tölvunarfrœðingur inn í fjármálaheiminn þegar verðbréfamarkaður er í mótun. Hvað var það sem dró þig inn í þennan heim? „Pétur Blöndal bauð mér fyrst starf hjá Kaupþingi 1989 sem óg þáði ekki þá en ég kom þar til starfa 1991. Ég hef alltaf haft gaman af stærðfræði og honum tókst einhvern veginn að tendra áhuga minn á reikniheiminum og tengslum hans við hinn raunverulega heim. Þannig dróst ég inn í verðbréfaheiminn sem er kannski óraunverulegastur af þeim öllum, en skiptir fólk þó svo miklu máli.“ - Þó þú sért ungur að árum þá er starfsaldur þinn nánast jafn aldri verðbréfamarkaðarins eins og við þekkjum hann í dag „Já, þegar maður horfir á veltutölur þá sér maður að 1991, þegar ég byrjaði hjá Kaupþingi, eru tvö félög á Vcrðbréfaþingi íslands, en nú eru þau fjörutíu. Það segir sig sjálft að á verðbréfamarkaði þar sem eru tvö félög er ekki mikið að gerast. Þessi markaður á enn eftir að þroskast og stækka mikið." - Nú er munur á því að stjórna Verðbréfafyrirtœki eða stórum fjárfestingarbanka? „Þetta er önnur tegund starfsemi þó aðalatriðin séu þau sömu. Það þarf að móta starfsvið þessarar stofnunar og lagaramminn gefur rúmar heimildir um það. Verkefnið er að móta þessi megin markmið, stefnu bankans, hvar hann ætlar að staðsetja sig á fjármálamarkaðnum og hvaða skipulagi hann ætlar að beita til þess. Eg hef ákveðnar hugmyndir um þróun starfseminnar, en ég vil frekar að þær hugmyndir komi fram í stefnu og starfsemi bankans heldur en að fara að ræða þær hér. Það mun skýrast á næstu vikum og mánuðum hvert bankinn stefnir og hvar hann mun ávaxta sitt fé.“ - Nú hefur oft verið rœtt um opinbera sjóði með neikvœðum formerkjum. Óttast þú pólitískan þrýsting á útlán bankans? „Ég held að menn séu klárlega á réttri leið. Með stofnun þessa banka er verið að draga þessar stofnanir inn í eitt hlutafélag og það er búið að gefa út þá yfirlýsingu að það eigi að selja 49% hlutafjár mjög hratt. Þannig að það er ljóst að ríkið hefur verið að draga úr umsvifum sínum á (jármálamarkaöi og þar með dregur úr áhrifum pólitíkusa." - Nú ert þú ungur að árum og það hefur verið áberandi á fjármálamarkaði að megin uppistaða nútíma fjármálaheims á íslandi er ungt fólk. Hefurðu fundið fyrir áhyggjum eldri fjármálamanna af þessu? „Nei, en ég held að sambland af þessu hvoru tveggja sé mjög heilbrigt. Það er alveg ljóst að það er ungt og vel menntað fólk sem hefur rifið upp þennan ijármagnsmarkað úr nánast engu og grundvöllur þess er auðvitað sá að því hefur verið gefið athafnafrelsi og rými til að gera það. En ég held að setningin: aldinn til ráða, ungur til dáða, eigi hér vel við.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.