Dagur - Tíminn Akureyri - 30.09.1997, Qupperneq 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 30.09.1997, Qupperneq 10
10 - Þriðjudagur 30. september 1997 |Dagpr$Knmm Endasprettur gest- anna kom ofseint Severiano Ballesteros hafði betur í viðureigninni við Tom Kite um Ryder- bikarinn. Evrópuúrvalið sigraði það bandaríska í keppninni um Ryderbikarinn, sem lauk á Valderrama vellinum á Spáni á sunnudaginn. Evrópu- menn voru ótrúlega sigursælir á næst síðasta keppnisdeginum, á laugardag þegar liðið tryggði sér fimm vinninga forskot. Sig- urinn varð hins vegar ekki tryggur fyrr en á 18. holunni á sunnudaginn, eftir stórkostleg- an endasprett bandaríska liðs- ins. Leik Skotans Colin Montgomerie við Scott Hoch, lauk þá með jafntefii og viður- eigninni lyktaði því með með minnsta mögulega mun, 14,5- 13,5, rétt eins og þegar keppnin var haldin síðast, í Bandaríkj- unum fyrir tveimur árum. „hetta mun fara í sögubæk- urnar vegna þess að ég er fyrst- ur til að vinna Ryderbikarinn sem leikmaður og liðsstjóri. Ég er hamingjusamasti maðurinn í heiminum," sagði Severiano Ballesteros, hinn litríki liðs- stjóri Evrópuúrvalsins. Mörgum fannst sem uppröðun hans fyrstu tvo dagana væri sér- kennileg og ákvarðanir hans um að hvfla menn voru ekki all- ar eins og búast hefði mátt við. Árangur liðsins talaði hins veg- ar sínu máli, því Evrópumenn höfðu 10,5 vinninga gegn 5,5 eftir ijórleik og íjórmenning. Stórsigur Ered Couples sem hreinlega „jarðaði“ Ian Woosn- am, reyndist vera fyrirboði sunnudagsins þegar leikið var maður gegn manni. Couples „afgreiddi Woosnam litla“ á ell- efu holum, en þær lék Couples á sjö höggum undir pari. Bandaríkjamenn voru í ölum helstu hlutverkum að reyna við hið ómögulega, að vinna upp fimm vinninga forskot Evrópu í tólf leikjum og óhætt er að segja að gestirnir hafi komist nærri því. Evrópumenn fengu aðeins fjóra vinninga lokadaginn. ítal- inn Constantino Rocca gaf Evr- ópumönnum trú, þegar hann vann óvæntan en auðveldan sigur á Tiger Woods og sama gerði Svfinn Per Ulrik Johanson sem lagði Davis Love III. Áður hafði Daninn Tomas Bjorn gert jafntefli við Justin Leonard og það kom í hlut Pjóðverjans reynslumikla, Bernhards Langer, að innbyrða vinning gegn Brad Faxon á 17. flötinni og tryggja Evrópumönnum því jafntefli. Næstu vinningar féllu allir gestunum í skaut, meðal annars náði Lee Janzen að snúa leiknum gegn Olazabal sér í hag á lokaholunum. Allt var undir lokaleiknum komið, viðureign Montgomerie og Iloch sem voru jafnir eftir sautjándu holuna. Iloch lenti hins vegar í nokkrum vandræðum í karga og Skotinn sem var með góða vinningsstöðu, bauð Hoch jafn- tefli, sem hann þáði. KNATTSPYRNA • Enska úrvalsdeiidin Úrslit í ensku úrvalsdeildinni: Aston ViIIa-Sheff. Wed. 2:2 Staunton 32., Taylor 49. - Collins 26., Wittingham 42. Barnsley-Leicester 0:2 - Marshali 55., Fenton 63. Chelsea-Newcastle 1:0 Poyet 75 -. Crystal Pal.-Bolton 2:2 Warhurst 9., Gordon 19. - Beardsley 36., Johansen 66. Dcrby-Southamplon 4:0 Eranio 76. vsp., Wancope 79., Baiano 82., Carsley 84 -. Everton-Arsenal 2:2 Ball 49., Cadamarteri 56. - Wright 32., Overmars 41. Leeds-Man. Utd. 1:0 Wetherall 34 -. Tottenham-Wimbledon 0:0 West Ham-Liverpool 2:1 Hartson 16., Berkovic 65. - Fowler 52. Blackburn-Coventry 0:0 Staðan er nú þessi: Arsenal Man. Utd. Leicester Chelsea Blackburn Leeds West Ham Derby I.iverpool Newcastle Crystal Pal. Coventry Tottcnham Aston Villa Wimbledon Everton Bolton Sheff. Wed. Barnsley Southampton 954 022:10 19 9 5 3 1 12: 4 18 9 5 3 1 13: 6 18 85 1 222:1016 8 4 3 1 19: 9 15 941 411:11 13 941 412:1413 7 4 0 3 14: 7 12 83 3 2 12: 8 12 6 40 2 6: 512 93 2 4 9:11 11 8242 8:11 10 9243 6:1010 9 315 10:15 10 82 3 3 10:10 9 8224 10:13 8 8 1 52 8:11 8 9 1 3 5 11:22 6 92 0 7 7:23 6 9117 5:17 4 KNATTSPYRNA • Enska úrvalsdeildin Toppliðin töpuðu stigum Gustavo Poyet frá Uruguay skoraði sigurmark Chelsea. Topplið ensku úrvalsdeild- arinnar töpuðu flest stig- um um helgina. Manchester United tapaði sín- um fyrsta deildarleik og féll úr toppsætinu. Sæti þeirra tekur Arsenal, þrátt fyrir að ná að- eins stigi á Goodison park. David Wetherall skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Leeds á keppnistímabilinu og það reyndist nóg gegn Englands- meisturunum. Nigel Martyn, markvörður, var hetja Leeds á fyrsta hálftímanum, þegar hann varði oft vel, en kollegi hans á hinum enda vallarins, Peter Schmeichel, þurfti einnig að taka á stóra sínum. írski harð- jaxlinn hjá Manchesterliðinu, Roy Keane, meiddist undir lok leiksins, eftir tæklingu og tví- sýnt er að hann geti leikið með Man. Utd. í Meistarakeppninni annað kvöld. Robbie Fowler, framherji Liverpool, sendi Gienn Hoddle, þjálfara enska landsliðsins, skilaboð um að hann væri reiðubúinn í enska landsliðs- hópinn, sem leikur gegn ftah'u. Fowler skoraði glæsilegt mark með vinstri fæti, en það dugði Liverpool ekki á Upton Park. Vörn Liverpool var götótt og varnarmenn liðsins voru víðs- íjarri þegar John Hartson skor- aði fyrra markið á 16. mínútu. Eyal Berkovic gerði síðan sigur- mark leiksins á 65. mínútu. Meiri broddur var í sóknarleik Liverpool síðasta stundarfjórð- unginn, eftir að Karl Heinz Riedle kom inná, en sú skipting náði ekki að færa Liverpool jöfnunarmark. „Chelsea er með gott lið og hafði ekki heppnina með sér gegn Arsenal og Manchester United, svo kannski áttu þeir skilið að fá eitthvað út úr þess- um leik,“ sagði Kenny Dalglish, stjóri Newcastle, eftir 1:0 tap í Lundúnum. Gustavo Poyet skor- aði eina mark leiksins á 75. mínútu. Leikmenn Chelsea fóru oft illa með færin, en Newcastle fékk einnig gullin tækifæri. Jon Tomasson skallaði framhjá um miðbik fyrri hálfleiksins og á lokamínútunni þurfti Ed de Goy, markvörður Chelsea, að taka á honum stóra sínum til að verja frá varamanninum Keith Gil- lespie. Paulo Wanchope var besti maður vallarins þegar Derby tók botnlið Southampton til bæna á heimavelli sínum. Wanchope fór oft mjög illa með varnarmenn gestanna sem héldu hreinu á fyrstu 75 mínút- um leiksins. Á þeirri 76. skor- aði Francesco Baino fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu og á næstu sjö mínútum bættu leikmenn Derby við þremur mörkum til viðbótar. „Við viljum fá okkar Totten- ham aftur,“ og „við viljum fá Francis í burtu“ sungu óhressir stuðningsmenn Lundúnarliðsins á meðan á leik liðsins við Wimbledon stóð. Tottenham misnotaði góð marktækifæri til að gera út um leikinn sem varð markalaus. Pess má geta að Joe Kinnear, stjóri Wimbledon, hef- ur verið orðaður sem liklegur eftirmaður Francis hjá Totten- ham, verði Francis gert að taka pokann sinn. Táningarnir Micheal Ball og Danny Cadamarteri, sem eru sautján ára gamlir, voru hetjur Everton sem náði stigi gegn Arsenal. Dennis Bergkamp lagði upp mark fyrir Ian Wright á 32. mínútu og níu mínútum síðar bjó Wright til marktæki- færi fyrir Marc Overmars, sem lét það ekki ganga sér úr greip- um. Táningarnir sáu síðan til þess að heimaliðið jafnaði leik- inn, en Arsenal komst með úr- slitunum á topp deildarinnar. fslendingarnir Ilermann Flreiðarsson og Guðni Bergsson léku báðir með liðum sínum, sem skildu jöfn, 2:2 í innbyrðis- viðureign. Daninn Michael Johnson tryggði Bolton annað stigið með marki á 66. mínútu og Crystal Palace er því enn án sigurs á heimavelli sínum.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.