Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.02.1997, Page 7
Jlagur-®ímtrat
Föstudagur 21. febrúar 1997 -19
Helgin
framundan
Umsjón
Lóa
Aldísardóttir
Akureyrmgur og
Ilornílrðmgur hittast
Tækifæri gefst til að sjá einþáttung-
inn FRÁTEKIÐ BORÐ, eftir Jónxnu
Leósdóttur í Reykjavík og Hvera-
gerði um helgina. Einþáttungurinn hefur
farið víða um landið, m.a. tók Leikfélag
Flateyrar hann til sýningar í vetur.
„Petta er um landsbyggðarkonur, önn-
ur er frá Hornaíirði og hin er frá Akur-
eyri. Þær fá báðar nafnlaust bréf þar sem
þeim er boðið til Reykjavíkur og fá flug-
miða, gistingu og kvöldverð á veitinga-
húsi. Þangað mæta þær uppstrílaðar,"
segir Jórnna, en á veitingastaðnum eiga
þær þetta frátekna borð, ókunnugar kon-
urnar. „Þá fara þær að reyna að rekja
þetta, hvort þær geti þekkst eða verið
skyldar eða hvað sé eiginlega á seyði. Það
upplýsist svo í lokin á óvæntan hátt,“ segir
Jónína, sem er reyndar ekki búin að segja
sitt síðasta á ijölum leikhúsanna á næst-
unni því líklegt er að Borgarleikhúsið
kaupi verk hennar Sælustundir (sem ger-
ist á hjónanámskeiði á líkamsræktarstöð!)
til sýmnga en leikritið fékk 3. verðlaun í
leikritasamkeppni LR, sem haldin var í til-
efm af 100 ára afmæli Leikfélagsins.
Frátekið borð verður sýnt á morgun kl.
16 í Borgarleikhúsinu og á Hótel Örk kl.
21 á sunnudaginn og fimmtudaginn. Ef
undirtektir verða góðar verða fleiri sýn-
ingar.
Tilnefningamynd
Flugvél er skotin niður yfir
Sahara eyðimörkinni árið
1942... Flugmanninum er
bjargað úr logunum, mjög
illa brenndum og honum
komið fyrir í yfirgefnu must-
eri á Ítalíu þar sem saman
eru komnar 3 aðrar mann-
eskjur. Og hver ætli sé reiðu-
búin til að hjúkra honum
nema ung og myndarleg
hjúkrunarkona, leikin af
Juliette Binoche? Og ungi,
óþekkti Englendingurinn er
hennar síðasti sjúklingur. Sá
tignarlegi leikari, Willem
Dafoe, er hins vegar í hlut-
verki þjófs sem hefur reynd-
ar komist til metorða í blóð-
baði síðari heimsstyrjaldar-
innar og fyllir nú flokk
stríðshetja.
Hlýtur að vera skítsæmi-
leg mynd því hún er tilnefnd
til 12 óskarsverðlauna og
hægt verður að sjá hana í
Regnboganum frá og með
kvöldinu í kvöld.
Lokar
sig ofan
í skúffu
Listasafn íslands opnar á
morgun sýningu á úrvali
verka sem keypt hafa ver-
ið á síðustu tveimur árum.
Þar má m.a. finna svo ólík
verk sem ljósmyndaröð
Þorvalds Þorsteinssonar
með svipmyndum úr
hversdagslífi Akureyringa
og fíngerðar nákvæmnis-
blómamyndir Eggerts Pét-
urssonar, sem mynd-
skreytti Flóru íslands.
Að sögn Beru Nordal,
sem lætur af störfum eftir
nokkra daga, eru málverk
í minnihluta. Meira er um
innsetningar á borð við þá
sem sést hér á myndinni.
Daníel Magnússon á heið-
urinn af kommóðunni á
myndinni. „Myndirnar í
skúffunum minna dálítið á
predikara. Maður getur
tekið þetta sem sjálfsmynd
eða jafnvel sem félagslega
afstöðu; listamaðurinn
settur ofan í skúffu og ætti
eiginlega að loka hann
inni...“
jDagurÁEhnimt Föstudagur 21. febrúar 1997 - 21