Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Blaðsíða 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Blaðsíða 11
JDagur-®tmirar BinBHHSBBBI aaÍESsa&Sga rrnmm T T I R Þriðjudagur 25. febrúar 1997 -11 Petr Baumruk fagnar bikarmeistaratitli Hauka í karlaflokki með tilþrífum, Haukar-KA 26:24 Laugardalshöll, Bikarúrslit karla. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 2:4, 3:5, 7:7, 7:9, 9:11, 11:12, (14:12), 15:12, 17:16, 19:18, 21:18, 21:20, 24:21, 26:24. Mörk Hauka: Rúnar Sigtryggs- son 7, Gústaf Bjarnason 4, Aron Kristjánsson 3, Þorkell Magnús- son 3, Petr Baumruk 3, Halldór Ingólfsson 3/1, Jón Freyr Egils- son 2. Sóknarnýting Hauka: Haukar nýttu 14 af 27 sóknum í fyrri hálfleik og 12 af 23 í þeim síðari. Samtals 26/40. Varin skot: Bjarni Frostason 21/1 (þar af 7 aftur til mótherja). Mörk KA: Róbert Julian Duran- ona 8/4, Sergei Ziza 7, Leó Örn Þorleifsson 4, Jóhann G. Jó- hannsson 2, Heiðmar Felixson 1, Björgvin Björgvinsson 1. Sóknarnýting KA: KA menn nýttu 12 sóknir af 26 í fyrri hálf- leiknum og 12 af 24 í þeim síðari. Samtals 24/40. Varin skot: Guðmundur Arnar Jónsson 12 (þar af 2 aftur til mótherja). Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson. Mistækir, sást stundum yfir augljósa hluti, en misstu leikinn aldrei úr hönd- unum. Áhorfendur: Um 2000. Haukastúlkur tryggðu sér bikarínn í fyrsta skipti á laugardaginn. Á mynd inni sjást þær Andrea Atladóttir og íris Guðmundsdóttir. HANDKNATTLEIKUR • Bikarkeppni kvenna Haukastúlkur meist arari fyrsta skipU Haukastúlkur riðu á vaðið á „Haukadeginum" í Laugardalshöllinni sl. laugardag er þær unnu Vals- stúlkur í bikarúrslitaleik kvenna 16:13 og gáfu þannig karlaliðinu tóninn fyrir sigur þeirra gegn KA. Haukaliðið var mjög taugaveikað í upphafi og markaskorun lítil, enda varði markvörður Vals, Vaiva Daling- aite, eins og berserkur og hélt Valsliðinu inni allan leikinn. AUs varði hún 25 skot og var án alls vafa leikmaður tírslitaleiks- ins. Markaskorun var mjög lítil, 6:4 þegar 5 mínútur voru til leikhlés en í hálfleik var staðan 9:6 fyrir Hauka. Haukastúlkum var á tímbili fyrirmunað að skora nema þeg- ar einhver Valsstúlkan lenti í útafrekstri og þegar 4 mínútur voru eftir var staðan 13:12 og Valur jafnar úr vítakasti. Leik- stjómandi Hauka, Judit Eszter- gal, sem b'tið hafði haft sig í frammi til þessa, skoraði tír víti þegar 2 mín. vom eftir og síðan innsiglaði Thelma Árnadóttir sigurinn með góðu marki. Síð- asta markið skoraði svo Hanna Stefánsdóttir um leið og leik- túninn rann út. Haukastelpurn- ar skoruðu því þrjú síðustu mörkin og fyrsti bikartitill þeirra var staðreynd. Sigur þeirra var sanngjarn, liðsheild- in mun sterkari en hjá Val, en Vaiva í marki Vals gerði þeim erfitt fyrir. Bestar í Uði Hauka vom Harpa Melsted og Hulda Bjamadóttir en Vaiva Daling- aite og Sigurlaug Rúnarsdóttir í liði Vals. Það vakti athygb hversu fáir áhangenda Vals lögðu leið sína í Laugardalshöll- ina, það hlýtur að vera félaginu áhyggjuefni. GG Gangur leiksins: 5:4, 6:4, 9:6, 11:8, 11:9, 11:11, 13:12, 13:13, 14:13, 15:13, 16:13. Mörk Hauka: Judit Esztergal 4(1), Hulda Bjarnadóttir 3, Ragnheiður Guð- mundsdóttir 3, Hanna Stefánsdóttir 2, Harpa Melsted 2 og Thelma Árnadóttir 2. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir, 13. Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 7(4), Gerður Jóhannsdóttir 2, Sonja Jónsdótt- ir 2, Lilja Valdimarsdóttir 1, Hafrún Kristjánsdóttir 1. Varin skot: Vaiva Dalingaite 25. Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson, ágætir. HANDBOLTI • Bikarúrslit karla Haukamir skrefínuá undanKA Haukar tryggðu sér bikar- meistaratitilinn í karlaflokki eftir sautján ára hlé, þegar Uðið lagði KA að velli 26:24 í skemmtilegum úr- slitaleik í Laugardalshöllinni. Haukar státuðu af mun sterkari Uðsheild heldur en KA-menn, sem höfðu fyrir leikinn sigrað í fjórtán bikarleikjum í röð. Hvort sigur Hauka er fyrsta spor nýs stórveldis í handknatt- leik, skal ekki dæmt um, en Hafnarfjarðarliðið virðist nú um stundir, standa fremst í flokki prinsa sem eiga mögu- leika á að taka við þeirri krúnu, sem Valsmenn hafa haldið á síðustu árum. Þáttur Bjarna Bjami Frostason var öðru fremur sá þröskuldur sem KA- menn náðu ekki að vinna á. Bjarni gaf Uði sínu tóninn með frábærri markvörslu og þáttur hans í leiknum réði gífurlega miklu, sérstaklega í fyrri hálf- leiknum, á tíma þegar Hauka- Uðið var ekki almennilega kom- ið í gang, en eftir að regla komst á spil Haukanna, þá voru þeir yflrleitt skrefi á undan KA-menn voru mun sterkari aðilinn á fyrstu tuttugu mínút- um leiksins, en þeim gekk illa að skila yfirburðum sínum yfir á markatöfluna. KA-menn náðu aldrei meira en tveggja marka forskoti, þrátt fyrir að tækifærin væru fyrir hendi. Leikmenn liðsins sköpuðu sér ein 6-8 „dauðafæri“ fyrir hlé, en oftar en ekki strönduðu skotin á Bjarna. Leikmenn Hauka voru tauga- veiklaðir á fyrstu mínútunum og voru lengi að finna taktinn. Það var ekki fyrr en Sigurður Gunnarsson, þjálfari Uðsins, skipti þeim Rúnari Sigtryggs- syni og Halldóri Ingólfssyni inn í sóknarleikinn að Haukasóknin fór að ganga betur. Ef hægt er að tala um vendipunkt í leikn- um, þá var hann undir lok hálf- leiksins. KA-menn leiddu leik- inn 11:9 eftir 23 mínútur en Haukar, sem léku fullir af sjálfstrausti, skoruðu fimm af síðustu sex mörkum hálfleiks- ins og sneru leiknum sér í hag. Það hlýtur að hafa verið sárt fyrir leikmenn KA, sem áttu sinn besta hálfleik f langan túna, að vera tveimur mörkum undir í leikhléi og Haukar slepptu aldrei taki sínu í síðari hálfleiknum. Sex glötuð tækifæri Síðari hálfleikur var hálfgerður eltingarleikur og þar var Haukabðið alltaf skrefinu á undan. Munurinn á bðunum var oftast 1-3 mörk, en KA- menn náðu aldrei að jafna leik- inn. Leikmenn Akureyrarbðsins fengu sex sóknir tb þess að jafna metin í síðari hálfleikn- um. Bjarni Frostason veirði tví- vegis í stöðunni 17:16 og KA- menn fengu fjögur tækifæri tU að jafna metin í 22:22, það gerðist ekki, enda var óðagotið fuUmikið á leikmönnum KA. Á lokamínútunum var fulbjóst að hverju stefndi, síðasta hálmstrá KA-manna fauk út í veður og vind tveimur mínútum fyrir leikslok. Margir KA-menn voru þá reiðir yfir því að fá ekki víta- kast fyrir brot á Sergei Ziza, en Sigurgeir Sveinsson og Gunnar Viðarsson, sem höfðu þokkaleg tök á leiknum, töldu svo ekki hafa verið. Breidd hjá Haukum Bjarni Frostason var akkeri Haukabðsins í þessum leik, varði hvað eftir annað erfið skot á þýðingarmiklum augna- bbkum. Hann sá til þess að KA- menn næðu ekki þægUegri for- ystu í fyrri hálfleiknum og í þeim síðari kom hann í veg fyr- ir að norðanmenn kæmust inn í leikinn. Frammistaða Rúnars Sigtryggssonar var einnig mjög góð, hann byrjaði reyndar á bekknum og gerði súi mistök eftir að hann kom inná, en hann lét mótlætið ekki hafa nein áhrif á sig og það skUaði árangri. Að sumu leyti er það ósanngjarnt að taka þessa tvo menn út úr mjög sterkri bðs- heild, þar sem engan veikan hlekk var að finna. Sóknarleik- ur bðsins var fjölbreyttur og það var góður stígandi í leik bðsins. Vörn Hauka styrktist þegar leið á leikinn á meðan að KA-menn virtust klára mikið af orkunni á fyrstu tuttugu mínút- um leiksins. Sergei Ziza var besti leik- maður KA, gífurlega útsjónar- samur og hann lék Haukavöm- ina oft grátt. Þá áttu þeir Juban Róbert Duranona og Leó Örn sínar góðu stundir í síðari háb- leiknum. Sverrir Björnsson átti góðan leik í vöminni. Þreyta í KA-liðinu? Eins og í síðustu leikjum KA, var ekkert sem kom á óvart í sókninni og stundum virtist þreyta vera í mannskapnum. KA-bðið hefur verið í lægð að undanfornu, breiddin í leik- mannahópnum er miklu meiri heldur en á síðasta ári, en þeg- ar síðustu leikir bðsins í vetur eru bomir saman við leikina í fyrra, þá mætti halda að því væri öfugt farið. Sóknarleikur- inn gengur að mestu í gegn um miðjuna, með sterka leikmenn eins og Ziza, Duranona og Leó örn. Hornamennimir virðast hafa dottið mikið út úr spibnu í vetur og það hálpar svo heldur ekki tb þegar markverðir bðs- ins eru í öldudal. Tap í bikar- keppninni eru engin endalok, búast má við KA-bðinu harð- skeyttu í baráttu um íslands- meistar atitilmn.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.