Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Síða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.02.1997, Síða 1
Þjóðviljinn á Netinu Stöð 3 „Verið að andskotast í Alþýðubandalaginu“ Sjálfstæðismenn farnir að gefa út Þjóðviljann. Alþýðubandalags- menn ósáttir. Váfi leikur á hvort útgáfa dagblaðsins Þjóðviljans á Veraldarvefnum stenst lög. Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins, segir spurningar uppi hvort íjölskylda Skúla Thoroddsen hefur einkarétt á nafninu, en sem kunnugt er gaf Alþýðubandalagið út dagblaðið Þjóðviljann allt fram á þennan áratug. „Við höfum ekki kannað þetta til hh'tar en hins vegar finnst mér þetta heldur lélegur húmor og vondur smekkur hjá þeim sem standa að þessu. Það er verið að afbaka veruleikann og söguna," segir Heimir Már. Andríki hefur hafið útgáfu Þjóðviljans á Veraldarvefnum nú og segja aðstandendur að tilgangurinn sé að koma á framfæri skoðanaskiptum um málefni líðandi stundar. Andríki er félag stofnað af áhugamönn- um um frjálslynd stjórnmála- viðhorf og skipa ritstjórn heimasíðunnar Glúmur Jón Björnsson hjá Sjálfstæðisflokkn- um og fleiri aðilar sem hafa staðið fjærst hugmyndastefnu Alþýðubandalagsins. „Við höf- um ekki rætt af fullri alvöru hvort við gerum athugasemdir við þetta en munum fylgjast með þróun mála, hvort um stundargaman er að ræða eða hvort nota á nafn blaðsins með meira áberandi hætti. Maður heyrir mikið talað um að fólki þykir þetta ósmekklegt, enda held ég að þetta sé aðallega gert til að andskotast í Alþýðu- bandalaginu,“ sagði Heimir Már Pétursson. BÞ Starfsmenn pakka saman á Stöð 3. Nokkrum áskrifendum tókst að segja henni upp í tæka tíð áður en henni var lokað. Mynd: Hilmar 800 millj ónir glatast Eurovison Flytjandi lags er leyndarmál Ekki fæst uppgefið hver verður fulltrúi íslands í Eurovison-keppninni, sem haldin verður í Dublin þann 3. maí næstkomandi. Að sögn Sig- urðar Valgeirssonar, dagskrár- stjóra Sjónvarps, er þetta gert að ósk flytjandans, sem er með- al höfunda lagsins, sem halda vill nafni sínu leyndu að minnsta kosti fram yfir mán- aðamót. „Þetta er ljómandi gott lag og í raun og veru er ég skít- hræddur um að við vinnum þessa keppni," sagði Sigurður Valgeirsson í samtali við Dag- Tímann. Hann sagði að sér þætti sérstakur ávinningur í því að lagið væri samið eftir ís- lenskum forsendum, en ekki þeirri hefð sem skapast hefði um lög þau sem flutt eru í Eurovision. „Þetta er íslenskt, já takk,“ bætti Sigurður við. -sbs. Naglasúpa fjölmiðla- heimsins, sagði maður úr viðskipta- heiminum í gær um tilraun til samkeppni í sjónvarpi. tli það sé ekki stóri lærdómurinn að fara ekki út í svona rekstur. Þegar það komu að þessu menn sem kimnu tU verka þá kom í ljós að þetta var mun fjárfrek- ara fyrirtæki en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þá var ljóst að það borgaði sig frekar að renna þessu saman í staðinn fyrir að leggja í reksturinn á ekki traustari grunni,“ sagði Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Al- mennra hf., í samtali við Dag- Túnann í gær. Stöð 3 var læst seinnipartinn í gær að loknum fundi stjórnar íslenskrar margmiðlunar (Stöðvar 3). í stað dagskrár hennar kom efni Sýnar. Jón Ól- afsson sagði að íslenskar stöðv- ar hefðu annað og þarfara að gera en að heyja vonlítið stríð sín á mfili. Stærsti hluthafi íslenskrar margmiðlunar er úr hópi mestu viðskiptajöfra landsins, Árni Samúelsson í Sam-bíóunum, en hann er nú erlendis. Hinir eru Morgunblaðið (Árvakur), Japis, Fóðurblandan, Sjóvá-Almennar, Skeljungur og fleiri fyrirtæki. í fyrri tilrauninni varð Nýherji fyrir miklu áfalli af völdum sjónvarpstUraunar sem aldrei varð annað. Síðustu greiðslur þess þrotabús munu hafa verið inntar af hendi í síðustu viku. Greiddar voru 30% krafna á búið. Ljóst er að mikið fé hefur glatast í tilraun þessari, menn giska á að það sé ekki undir 800 milljónum króna. Höfuð- borgarbúar hafa hins vegar haft ókeypis skemmtun af Stöð 3 í meira en ár, - mn 2 þús- und manns hafa hins vegar greitt áskriftargjald þrátt fyrir galopna dag- skrá. Sjá mátti ein- hverja þessara áskrifenda koma á skrifstofu Stöðvar- innar í gærdag til að segja upp áskriftinni. Kom aftan að starfsfólkinu í Degi-Tímanum á föstudaginn voru forráðamenn Stöðvar 3 brattir, búnir að fá fyrstu mynd- lyklasendinguna og búnir að tryggja sér 20 þúsund lykla frá Sviss. Þann dag óraði forráða- mennina, nýkomna frá Stöð 2, ekki fyrir framtíð sinni. Þó höfðu þreifingar átt sér stað síðan fyrir áramót! Starfsfólk Stöðvar 3, um 40 manns, átti síst von á þeim skjótu endalokum sem starf þeirra fær. Það mun ræða við nýjan stjómarformann félags- ins, Hreggvið Jónsson, fyrir há- degið í dag. Ætlunin mun að bjóða þeim sem vilja endur- ráðningu. Óljóst er um þá 8 starfsmenn sem komu frá Stöð 2 fyrir fimm vikum og öllum er í fersku minni. Eimskipafélag íslands, virt fyrirtæki í atvinnulífinu, hefur farið á undan í sameiningar- málum stöðvanna. Lykilmaður- inn að „uppgjöf" eða undan- haldi Stöðvar 3 var Þorkell Sig- laugsson. -JBP Sjá nánar bls. 6 Einar Sveinsson forstjóri Sjóvár-Almennra „Stóri lœrdómurinn að fara ekki út í svona rekstur. Þetta varfjárfrekara en áœtlanir höföu gert ráð fyrir. “ Maðurinn á bak við Lífið í landinu Draumeyju dreymir um nám MUNIÐ TILB0Ð A SMÁAUGLÝSINGUM FYRSTA BIRTING 800 KR. FNDURBIRTING 400 KR.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.